Þjóðviljinn - 05.02.1950, Page 3
Sunnudagur fl febrúar J950.
Þ JÓÐ VILJINN
TT'-nr'
",Fr r : -fíf
Ný kenmng um kreppuna
Kreppan er aðeins til í
heilabúi íslenzkra kommún-
ista, sagði Bjarni Benedikts-
son í útvarpsræðu fyrir al-
þingiskosningarnar í haust
og var upp með sér af mörk
uðunum sínum. Kannski hef
ur hann trúað þessu þá, en
víst er um það að hann er
hættur að tala svona digur-
barkalega nú. Þó hefur
hann ekki enn minnzt á
kreppu. Það orð er nefnilega
bannhelgt meðal aðdáenda
kapítalistískra þjóðfélags-
hátta, og í stað þess eru
notaðar umritanir, líkt
og tíðkast um óhugnanleg
fyrirbæri hjá frumstæðum
villiþjóðum, svo sem mann-
ætum þeim sem enn safna
höfðum hryðjuverkamanna.
á Malakkaskaga til dásöm-
unar vestrænu lýðræði.
Kreppa heitir „aðsteðjandi
örðugleikar", „markaðsvand
ræði" eða eitthvað þvílíkt og
orsakir hennar eru öllu öðru
dularfyllri. Hún er sem sé
eins og vindurinn, enginn
veit hvaðan hún kemur eða
hvert hún fer. Þannig mælti
Ásgeir Ásgeirsson endur fyr
ir löngu, og hafa ekki aðr-
ir auðval-dssinnar fundið
betri búning vanmætti sín-
um andspænis meginein-
kenni hinna aðdáunarverðu
þjóðfélagshátta sinna.
Kreppan er líkt og óviðráð-
anlegt náttúrufyrirbæri eða
banvæn pest, hún er reynsla
sem forsjónixmi þóknast að
leggja á hrjáð mannkyn til
að prófa það.
Og þó. Nýr spámaður er
risinn upp meðal vor. Hann
brýtur lögmál bannhelginnar
eins og spámanni sæmir,
nefnir kreppuna sínu rétta
nafni og hefur af eindæma
skarpskyggni fundið mjög
hversdagslega skýringu á
þessari ömurlegu forsend-
ingu. Spámaður þessi er
Halldór Kristjánsson, fyrr-
verandi bóndi á Kirkjubóli,
og hann flytur kenningar
sínar af venjulegri röggsemi
í prentsvertudálki Tímans s.
1. fimmtudag. Kreppan er
„heimatilbúin framleiðsla",
segir hann, alíslenzkt fyrir-
bæri, eins og kúskinnsskór
eða vestfirzkir hrútar. Og
orsakir hennar eru ofur-
einfaldiega þær að kommún-
istar mynduðu hér nýsköpun
unarstjóm árið 1944 og
eyddu öilum gjaldeyrinum.
Sem sagt: fátæktin sem nú
er að grúfa sig yfir íslenzk
aiþýðuheimili stafar af því
að íslendingar hafa eignazt
nýsköpunartogara í stað
þeirra 15 gömlu sem ryðga
og rottuétast, hún stafar af
nýja bátafiotanum, fiskiðju
verunum, hraðfrystihúsun-
um, síldarverksmiðjunum,
iðnfyrirtækjunum og þeim
stórvirku landbúnaðartækj-
um sem erja jörðina meðan
hin gömlu amboð spámanns-
ins gisna. Þannig er hin
nýja kenning um kreppuna
o-g orsakir hennar. — Þeg-
ar Ásgeir Ásgeirsson mælti
hin . sígildu orð líkti hann
háflugi andríkis síns við vist
í Kögunarhóli, sunnan Ing-
ólfsfjails. Spámaður Tím-
ans hefur ekki fundið and-
ríki sínu landfræðilegan
stað, enda eru fæstar ís-.
lenzkar þúfur öraefndar þótt
sumar beri þær samheiti.
En á meðan um það er
deilt á íslandi hvort krepp-
an sé heldur yfirnátturlegt
fyrirbæri eða stafi af ný-
sköpunarstefnu íslenzkra
kommúnista riður hin alþjóð
lega kreppa húsum um allan
hinn kapítalistíska heim og
vobrestirnir skera í hlustir.
Atvinnuleysingjunum fjölg-
ar dag frá degi, tötramenn
og hungruð börn fylla götur
fátækrahverfanna, sjálfs-
morð eru hversdagslegustu
viðbrögð við lífinu, í fyrir-
myndarríkinu Danmörku eru
framkvæmdar 1100 ólögleg
ar fóstureyoingar á ári. Búð
irnar eru hins vegar að
springa utan af vörum sem
enginn hefur efni á að
kaupa, framleiðslan minnk-
ar, gjaldþrotin móta kaup-
hallarviðskiptin, atvinnuleys
ið eykst enn. Þeir fáu verða
ríkari og ríkari, þeir mörgu
fátækari og fátækari. Og
einnig þeir fáu riku komast
í vandræði. Til hvers er að
framleiða mat handa. hungr-
uðu fólki sem ekki á pen-
inga ? Hvað gagnar að fram
ieiða föt handa tötrughypj-
um sem enga fjármimi eiga
til að leggja á móti ? Hvað
stoðar að framleiða hús
handa féleysingjum sem
skjálfa í portum og húsa-
sundum? En við þessum
vandræðum er þó eitt ráð,
hið sigilda ráð kapítalism-
ans. Þegar skipulagið er
skroppið í baklás og ekki er
lengur hægt að græða á því
að framleiða hús, klæði og
mat handa þurfafólki, þá
skulu framleidd morðtól. Og
það eru framleidd morðtól.
70% af ríkisútgjöldum
Bandaríkjanna fara nú í
morðundirbúning. Þeir fram
ieiddu úraníumsprengju í
gær og í dag framleiða þeir
vetnissprengju. Sú síðar-
nefnda er margfalt dýrari
þeirri fyrrnefndu, hvert ein
tak er talið kosta þúsund
milljónir króna, en þó er
framleiðslan spor i rétta átt
því tilkostnaður er stórum
minni miðað við hvern myrt
an. I Volstrít reikna þeir
þannig og reikna og græða
og græða, og vonandi kemur
bráðum strið, en á stríðs-
tímunum er sem kunnugt er
aldrei kreppa og aldrei neitt
atvinnuleysi. Sumir eru að
visu hræddir um að þeim
muni takast að splundra
hnettinum okkar, en hvað
er um slíkt að fást. Það er
þó altént betra en kommún-
isminn.
f! < ' ★
Holskefla kreppunnar er
að ríða á hólmanum okkar,
og enn heldur spámaður
Tímans áfram að formæla
nýsköpunartogurunum sem
valda öllum þessum ósköp-
um. Eftir nokkrar vikur
verður gengið lækkað þann-
ig að eriendur gjaldeyrir
hækkar um 50%. En
hvað stoðar það okkar
ágætu auðmenn? I stað þess
að framleiða vetnissprengjur
eru þeir að paufast við að
framleiða mat handa þjóð-
um sem er svo vísdómslega
stjómað að almenningur hef
ur ekki efni á að éta nema
lítinn mat og lélegan og ó-
dýran. Jafnvel þótt íslend-
ingar tækju upp á því að
vilja gefa hinum ágætu
marsjallþjóðum mat, myndi
það ekki takast. Það væri
sem sé mjög óheiðarleg ráð-
stSotfun sem enn myndi auka
kreppuna meðal matvæla-
framleiðenda þessara ágætu
þjóða. Enda segja sérfræð-
ingar ríkisstjórnarinnar að
þeir sjái engin ráð til að
losna við nema 15.000 tonn
af freðfiski á þessu ári, eða
hálfa ársframleiðslu, hva*
svo sem verðið sé. <Þeir bú-
ast líka við að saltfisksalan
muni dragast saman. Og
þorskalýsið sem gæti roðað
marga föla barnskinn er í
bezta falli hægt að losna
við sem skepnufóður.
„Sú kreppa, sem íslenzka
þjóðin horfist nú í augu við,
er því fyrst og fremst heima
tilbúin,“ segir spámaðurinn
frá Kirkjubóli og á við ný-
sköpunina. En þó má færa
orð hajis til sanns vegar. Is
lendingar hafa átt leið und-
an holskeflu kreppunar og
enn væri hægt að sæta lagi.
Tveir fimmtu hlutar mann-
kynsins hafa nú brotizt und
an skipulagi kapítalismans,
hjá þeim þjóðum ríður krepp
an ekki lengur húsum og
vobrestirnir kveða aðeins við
úr fjarska. Þar gerast þau
undur að fólk hefur efni á
að éta á friðartímum og
leggur meira að segja kapp
á að komast yfir æ betri
og meiri mat og þykist hafa
efni á að borga fyrir hann.
Árum saman hafa sósíalist-
ar klifað á því að þessu
fólki gæfist kostur á íslenzk
um mat og fengu því m. a.
ráðið um skeið, meðan þeir
voru að undirbúa kreppu þá
sem spámaðurinn talar um.
En svo kom í ljós að slik
viðskipti samrýmast ekki
sönnu amerísk hugarfari, en
fyrir slíkt hugarfar er sem
kunnugt er öllu fórnandi.
Þess vegna er kreppunni nú
boðið heim til íslands — og
ef til vill verður þess ekki
langt að bíða að nýsköpunar
togararnir verði bundnir eins
og þeir gömlu. Það verður
þá að minnsta kosti afleið-
ing kreppunnar, og það hef
ur komið fyrir betri spá-
menn en þann frá Kirkju-
bóli að rugla saman orsök-
um og afleiðingum.
&
A
<* 0 <-
í
;
Skák
Ritstjóri: GUÐMRNDRR ARNLANGSS0N
Ungu mennirnir sækja fram.
1
Islenzkir skákunnendur tengja
miklar vonir við þá ungu menn,
sem hér hafa komið fram á
síðustu árum enda virðist full
ástæða til þess. Væntanlega
eiga nöfn Guðmundar Pálma-
sonar, Friðriks Ólafssonar,
Ingvars Ásmundssonar, Þóris
Ólafssonar og Sveins Kristins-
sonar eftir að sjást oft i ís-
lenzkum skákfréttum, og vonir
standa til þess að einhverjir
þessara manna að minnsta
kosti eigi eftir að ýta íslenzk-
um skákstyrkleika hærra upp
en hann hefur áður komizt. En
það eru fleiri þjóðir en við ís-
lendingar, sem státa af ungum
efnismönnum. Hér í dálkunum
hefur áður verið sagt frá ungu
háskólastúdentunum bandarísku
Bisguier, Evans og Kramer-
bræðrum — sem eru komnir í
fremstu röð. I London gerðust
þau tíðindi í vetur að 15 ára
drengur vann skákmeistaratign
borgarinnar, að vísu í tiltölu-
lega fámennri keppni. Og síð-
ustu fréttir frá Sovétríkjunum
og Júgóslavíu sýna að ekki er
framsókn ungu mannanna minni
þar.
Skákþingi Sovétríkjanna lauk
hinn 20. nóvember síðastliðinn.
Þetta mót var áreiðanlega öfl-
ugasta skákmót í heiminum á
árinu sem leið. Keppendurnir
þurftu að fara í gegnum marg-
faldan hreinsunareld til að afla
sér þátttökuréttar og varð
margur viðurkenndur meistar-
inn úti á þeirri leið. Hins vegar
komust nokkrir lítt kunnir skák
menn inn i lokakeppnina, sem
fór fram í Moskvu. Af þeim
má nefna Mark Tajmanoff, ung
an hljómlistarnemanda fra
Leningrad, Kolmoff og Efim
Heller frá Odessu. Skákþing-
inu lauk með sameiginlegum
sigri Bronsteins og Smysloffs.
Kom það fáum á óvart því að
Smysloff varð næstur Botvinn-
ik á heimsmeistaramótinu, og
mun af ýmsum talinn sá Rússi
sem gengur næst honum. Bron-
stein er ekki síður sigrunum
vanur. Hann varð efstur á
kandidatamótinu í Saltsjöbad-
en í fyrra, og á næsta Rúss-
landsmóti fyrir þetta varð hann
einnig efstur, þá ásamt Kotoff.
Áttu þeir að tefla einvígi um
tignina, en síðar var hætt við
það. Smysloff og Bronstein eru
báðir ungir menn, Smysloff
mun vera 28 en Bronstein 25.
Næstir þessum tveimur komu
Heller ög Tajmanoff með 13
vinninga hvor. Því næst komu
Boleslavskí, Furmann og Kot-
off með IIV2, Keres með 11,
Aronin og Kolmoff með 10. Af
kunnum taflmeisturum, sem
ekki náðu upp í efri helming í
þetta skipti má nefna Lilient-
hal og Mikenas.
Á skákþingi Júgóslavíu voru
keppendur 20 og fóru leikar
þannig að Gligoric varð efstur
með 14 vinninga, Pirc annar
með 12i/2 og Trifunovic þriðji
með liy2; Þessir þrír menn eru
áreiðanlega beztu taflmenn Hér er hvítur of aðgerðalítil!..
landsins, og má minna á að Leiknum mun ætlað að hindra.
Gligoric vann Stálberg í ein- e6—e5, en hann gerir það ekki
vigi, en Pirc hélt jöfnu gegn e2—e4 sýnist tilvalinn leikur £
Euwe og Trifunovic gegn Naj- staðinn.
dorf í sumar. En næstir koma 15. Bd8—c7‘
fjórir menn með 11 vinninga 16. f2—f3 e6—e5
hver: Fuderer, Ivkoff, Matano- 17. d4xe5 > d6xe5
vic og Rabar. Af þeim er Iv- 18. Rd3—f2 Bd7—c8
koff yngstur, hann átti 16 ára 19. Rbl—c3 Ra6—c5
afmæli meðan skákþingið stóð 20. Hfl—el Rc5—e6
yfir, en Matanovic og Fuderer 21. e2—e3 Re6—g5■
eru 18 ára. Á þinginu tefldi 22. Dc2—e2 f5—f4!
Ivkoff meðal annars þá skák Svartur hefur lokið undir~
er hér fer á eftir. búningi sínum og hefur nú..
lokasókn. Menn hans standa
HOLLEftZKUR LEIKUR. eins vel og á verður kosið, svo>
Bozic Ivkoff að sóknin er hættuleg.
1. Kgl—fS e7—e6 23. g‘3—g4 Dh5—h4
2. c2—c4 f7—15 23. e3xf4
3. g2—g3 Rg8—f6 e3—e4 litur ögn skár út, því
4. Bfl—g2 Bf8—e7 að sá leikur heldur biskups-og
5. b2—b3 d7—d6 hróks-línunum lokuðum, en þá
6. d2—d4 0—0 getur svartur haldið sókninni.
7. Bcl—b2 Dd8—e8 áfram t. d. með h7- -h5.
8. 0—0 De8—h5 24. e5xf4
9. Kbl—c3 a7—a5 25. De2—c2 He8xel
10. —a3 Rb8—a6 26. Hdlxel Rf6xg4!
11. Ddl—c2 Bc8—d7 27. f3xg4 f4—f»
12. Hal—dl Ha8—e8 28. Bg2—hl Dh4xh2f
13. Rf3—el c7—c6 29. Kgl—fl Rg5—hS
14. Rel—d3 Be7—d8 20. BhlxfS Dh2—glt,
15. Rc3—bl -<v l og hvítur gafst upp. *