Þjóðviljinn - 01.03.1950, Blaðsíða 1
VILJINN
15. árgangur.
Miðvikudagur 1. marz 1950.
50. tölublað.
rr\
27 SJOMENN FORUST
1 Bretar og 20 Kinverjar - þegar olíuskipið Clam rak á land á
Reykjanesi í gærmorgun
TaliS víst að öil áhöfnin hefði bjargazt hefði hún verið
á skipinu þar til björgunarsveitin kom
Æ.F.R
L J R fundur í kvöld á
venjulegum stað kl. 9.
Mætið stundvíslega.
Tuttugu og sjö menn fórust þegar olíuskipið
Clam rak á land skammt frá Reykjanesvita í gær-
morgun. Er þetta mesta sjóslys er orðið hefur hér
við land í mörg ár.
Clam slitnaði aftan úr dráttarbátnum milli
Eldeyjar og Reykjaness. Veður var suð-suðvestan
5 vindstig, og rak skipið til lands. 31 af skip-
verjum fóru þá í 2 báta, en báðir bátarnir sukku
og björguðust aðeins 4 menn í land. Þeim 19
mönnum er eftir voru í skipinu bjargaði björgunar-
sveitin Þorbjörn í Grindavík og er taiið víst að
allir mennirnir hefðu bjargazt hefðu þeir verið
kyrrir í skipinu.
Á skipinu voru 14 Bretar og 36 Kínverjar. 7
Bretar fórust og 20 Kínverjar.
Dráttarbátnrinn Englishman
lagði af stað með Clam áleiðis
til Englands í fyrramorgun.
Mun skipsmönnum hafa verið
ráðlagt að fara fyrir utan en
þeir fóru samt milli Eldeyjar
og lands. Slitnaði oliuskipið þar
aftan úr dráttarbátnum og rak
þegar undan veðrinu til lands.
Rak á land nálægt
vitanum
Slysavarnafélaginu var til-
kynnt um atburðinn og sneri
það sér þegar til björgunar-
sveitarinnar í Grindavík og vita
varðarins á Reykjanesi, Sigur-
jóns Ólafssonar og fór hann
ásamt aðstoðarmanni sínum,
Hannesi Sigfússyni á strand-
staðinn, laust fyrir kl. 7. Var
skipið rekið á land skammt
frá litla vitanum, eða milli
Valahnúks og Skarfaseturs.
Hafði það tekið niðri um 60
metra frá landi.
Aðeins 4 tókst
að bjarga
Skipverjar settu þegar út 2
báta og hvolfdi öðrum þegar í
stað og tókst vitaverðinum að
bjarga tveim þeirra er í bátn-
um voru en einn bjargaðist
sjálfur á land og sá fjórði
komst í helli og var sigið eftir
honum þegar björgunarsveit-
in kom á staðinn. Hinum bátn-
um mun hafa hvolft eða liann
brotnað og allir mennirnir far-
izt.
Vegurinn út á Reykja-
nes afleitur
Slysavarnasveitin Þorbjörn
í Grindavík lagði af stað á
strandstaðinn kl. 6.30, 40—50
menn í tveim bifreiðum, en
björgunarsveitin var ekki kom-
in á staðinn fyrr en eftir tvær
klukkustundir, því vegurinn frá
Grindavík út á nesið er mjilg
slæmur.
Talið víst að öllum
myndi hafa verið
bjargað, ef —
Skipið var um 30 m. frá
landi þegar björgunarsveitin
kom og var aðstaða til björg-
unar hin bezta því bergið bar
hærra en skipið. Var öllum
mönnunum 19, sem eftir voru
á skipinu bjargað á land í stól,
meiddist enginn þeirra. Er tal-
ið víst að allir mennirnir myndu
hafa bjargazt hefðu þeir að-
eins verið kyrrir á skipinu
þangað til björgunarsveitin kom
á vettvang.
Dráttarbáturinn hætti sér
mjög nærri landi og sömuleiðis
fór Sæbjörg á staðinn, ef tak-
ast mætti að bjarga mönnun-
um frá sjó, en til þess kom
ekki.
Sjómennirnir 23 sem bjölrguð
ust voru fluttir í hótelið á
Keflavíkurflugvelli.
Ríkisútvarpið
þagði um verð-
lækkunina
a! því að brezka áróðurs-
útvarpið stakk henni
undir stól!
í fréttum ríkisútvarpsins í
gærkvöld var ekki minnzt einu
orði á verðlækkanirnar í Sovét-
ríkjunum og gengishækkun
rúblunnar. Frá þess'um fregnuni
var sliýrt í útvarpssendinguni
frá Moskva á Vestur-Evrópu-
málum síðdegis í gær. Fréttia
var lesin fyrst allra erlendra
frétta í kvöldfréttum danska
útvarpsins. Fréttaþjónusta is-
lenzka ríkisútvarpsins veit hins
vegar ekki af henni. Skýringin
er sú, að í fréttatíma áróðurs,
Framhald á 6. síðu.
Hagfræðingur Landsbankans um gengis-
lækkunarf rumvarpið:
Hinar þyngstu byrðar lagðar á
almenning - anðmönnnmun
fullkomlega hlift
Á stúdentafundinum í gær-
kvöld gagnrýndi Klemenz
Tryggvason, hagfræíingur
Landsbankans,. gengislækk-
unarfiumvarp stjórnarinnar
í þurgorðri og hvassri ræðu.
Hann benti á að greinargerð
þeirra hagfræðinganna,
Benjamíns og Ólafs, bæri á
sér nijög ófræðimannlegan
áróðursblæ. Þar væri sagt
að engin kjaraskerðing yrði
af ráðstöfunum frumvarps
ins, en sú fullyrðing væri al
ger fjarstæða. Framfærslu
Hllt að helmings verðlækkun
á neyzluvöru í Sovétrákfunum
Gsngi rúblunnar hækkað, gull myntfatur í stað dollars
Sovétstjórnin tilkynnti í gær mikla verð-
lækkun á neyzluvörum, hina þriðju síðan 1947.
Jafnframt var gengi rúblunnar gagnvart öðrum
myntum hækkað og-gullgengi tekið upp en hætt
að miða gengið við Bandaríkjadollar.
1 tilkynningu frá Sovétstjórn
inni jegir, að vegna aukinnar
framleiðslu landbúnaðar og
iðnaðar á síðasta ári og auk-
inna afkasta vinnandi fóiks
hafi reynzt fært að lækka verð
lag frá og með 1. marz og hafi
sú ráðstöfun í för með sér
aukinn. kaupmátt og ihækkað
gengi rúblunnar, aukinn kaup-
mátt verkamanna og annars
launafólks, bótaþega, náms-
styrkjaþega og samyrkju-
bænda.
Sparar 110 milljarða
rúblna
I tilkynningunni segir, að^
verðlækkanirnar spari þegnum
Sovétríkjanna 110 milljarða1
rúblna útgjöld á ári.
Verðlælikanirnar nema
frá 10% allt uppí 54% af
verði hundraða vörutegunda
og taka til matvæla, fatnað-
ar, munaðarvöru, hremlætis-
vöru, húsbúnaðar, búsá-
halda, farartækja, bygging-
arefnis og enn fleiri vöru
flokka.
Sem dæmi um einstakar'verð
lækkanir má nefna, að hveiti-
og rúgbrauð lækka í verði frá
25.9% til 30%, mjöl 25% til
30%, hrísgrjón lækka í verði
um 30%, nautakjöt 24% til
30%, kindakjöt 28%, svína-
kjðt 24%, niðursuðuvörur
(kjöt og grænmeti) 25%.
Þorskur og síld lækka í verði
10.2%, styrja um 30%, styrju-
hrogn 25%. Smjörverðið lækk-
ar um 40%, ostur 20%, mjólk
og rjómi 10%, smjörlíki 38%,
tólg 18%, egg 15% og sykur
um 15%. Verðlækkunin á brjóst
sykri og súkkulaði nemur 20%,
Framliald á 6. síðu.
kostnaður alinennings myndí
árciðanlega hækka um allt
að því fimmtung og upp-
bæturnar væru svo óveru-
legar að kjaraskerðing lág-
launastéttanna yrði allt að
því 15%.
Því aðeins myndu Iág-
launastéttirnar sætta sig víð
svo þungbærar álögur að
fullar byrðar væru lagðar á
breiðu bökin, en því færi
víðs fjarri. Rakti hann lið
fyrir lið hvernig ráðstafan-
irnar til að höggva skarð i
óhemjugróða auðmannanna,
væru aðeins ,,viðundur“ og
„skrípalæti“. Kvaðst hanre
álíta óverjandi að slíkar
byrðar kæmu af öllum þunga
á efnaminni stéttirnar á
sama tíma og aðeins mála-
myndabaggar væru lagðir á
breiðu bölsin og ósennilegt
að Iaunþegasamtökin myndu
sætta sig við kvaðir frum-
varpsins, þótt ef til vill yrðl
reynt að nota atvinnuleysis-
voluna til að knýja þau til
undirgefni.
Ivlemenz lauk máli sínu
með því að með frumvarp-
inu væri á ábyrgðarlausan
Iiátt gengið á hagsmuni fá»
tækustu stéttanna og teflt á
tæpasta vað með lífshags-
muni þjóðarinnar.
Á undan horium höfðu tal-
að Ólafur Björnsson, seni
mælti með frumvarpinn T
einstaklega þvoglulegri rroðu
Gylfi Þ. Gíslason og J'uias
Haralz sem gagnrýndu all-
mjög einstaka liði frum-
varpsins, einkum blckking-
arnar um sparifjái'appbæt-
Framhald á 6. síðu.