Þjóðviljinn - 07.03.1950, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 07.03.1950, Blaðsíða 6
Nokkur minningarorð um Gissur Gottskálksson Nýlátinn er hér í bænum Gissur Gottskálksson, fyrrum bóndi á Hvoli í Ölfusi og for- maður í Þorlákshöfn. Með hon- um er horfinn af sjónarsvið- inu einn af þessum góðu, traustu alþýðumönnum, sem jafnan eru sómi sinnar stétt- ar, einn af þeim sem markaði sér.í fyrstu stóran verkahring, sem nam ekki staðar þó á móti blési og sigraði alla erfiðleika með þrautseigju, ráðdeild og dugnaði. Gissur Gottskálksson var fæddur að Sogni i Ölfusi 1870, og bjuggu þar foreldrar hans, Gottskálk Gissurarson, af hinni kunnu Reykjaætt og Salvör Ögmundsdóttir. Lítið mun Giss- ur hafa haft af föður sínum að segja, því hann lézt á bezta aidri af slysförum, þegar öll börn hans voru í æsku, en þau voru auk Gissurar, Guðrún, kona Jóns Björnssonar frá Hvoli, þau dvelja núna bæði í Hafnarfirði, Júlía, sem lézt á s. 1. hausti, gift Gísla Sæ- mundss., Guðm., sá er fyrstur manna settist að í Hveragerði og lengi hafði þar benzínaf- greiðslu á hendi, og Guðmund- ur eldri, er fórst af voðaskoti innan við tvítugt. Gissur mun að nokkru leyti hafa alizt upp hjá Vigfúsi^ Árnasyni á Hvoli og við jörð-J inni tók hann eftir Vigfús og giftist um það leyti Jórunni Snorradóttur frá Þórustöðum þar í sveit. Munu efni þeirra hafa verið lítil og óx þeim fljótt ómegð. Höfðu þau aðeins hálfa jörðina til ábúðar, en hún var þá fremur slægjurýr og torunnin einyrkja. En samhent mættu þessi ungu hjón öllum öroúgieíkum x>g mun jafngó-5, sambúð og þeirra var alla tið vera vandfundin. Þau eignuð-j ust sjL' börn, sem öll komust vel til manns. Elst þeirra eri Svnnhildur, kona Guðmundarj Magnússonar, eiganda kaffistofj unnar Fjólu, þá Salvör, giftisti hún Kristni Guðbjartssyni vél-j stjórá, en lézt á bezta skeiði úr berklum 1937. Þá er Gott- skáik, sem býr myndarbúi á Kvo'.i cg tók við jörðinni eftir föður sinn, þá Kristín sauma- kcna hér í‘ bænum, þá Jónína gift Jóni Ölafssyni stýrimanni,! þá Guðrún, gift Ófeigi Ólafs-1 syni húsgagnasmið og Guð- mundur, sjómaður hér L bæn- um. Þau Gissur og Jórunii brugðu búi 1930, en dvöldu þó, nær óslitið hjá Gottskáik syni sínum, þar til fyrir þremur ár- um að þau fluttu hingaö til, bæjarins, enda voru þau þá bæ.5i ];rotin að heilsu og kröft- um eftir langan starfsdag. Frá því um aldamótin síð- uctu hafa margar breytingar oroið & lifnaðarháttun-t fólks I bæði til sjós og í sveit. Þau óþægindi, sem allur alménn- ingur varð þá að búa við, eru nú að mestu óþekkt. Þá voru húsakynnin lekir og þröngir torfbæir, hlóðareldhús, þá varð að bera allt vatn til heimilis- þarfa og brynningar gripum, þýfið barið með ljá og vinnu- dagur fullorðinna manna sjald- an minni en sextán stundir í sólarhring. Þróunin frá þess- um tíma til dagsins í dag hefur ekki tekið mörg ár, en hún hefur kostað marga sveitadropa sem einvörðungu hafa sprott- ið á ennum alþýðunnar. Það er fyrst og fremst sjómaður- inn, verkamaðurinn og bóndinn, sem hafa skapað þessa þró- un. Og traustir þátttakendur í því starfi voru Hvolshjónin áreiðanlega. Samhliða því að vera dugandi bóndi, var Gissur um fjölda ára formaður í Þor- lákshöfn og ávana sér þar vin- sældir og virðingu með því starfi. Tók þá kona hans jafn- an við heimilinu að öllu leyti er hann fór í verið og þá oft hjálparlaus. Þýddi víst ekki að bjóða nútíma konum, að þeim ólöstuðum, að vinna heimilis- störf og skepnuhirðingu, við áðurnefnd skilyrði, og sinna auk þess *mörgum kornbörn um. Og það var líka oft stutt hvíldin hjá bóndanum, sem not- aði hina fáu landlegudaga hverrar vertíðar til að skjótast heim til að vitja konu og barna. En það er um formennsku Gissurar að segja, að hann þótti aflasæll og aðgætinn sjó- sóknari. Þegar hann var kom- inn á gamals ár, sóttust for- menn í Höfninni eftir að hafa hann í ráðum með sér og síð- ast réri hann þar 1941. Ann- ars verður Gissuri vart betur lýst, en einn starfsbróðir hans gerði eitt sinn oþinberlega, er hann sagði, að hann hefði ver- ið bráðduglegur og kappsam- ur og manna kunnugastur fiski- miðum og botnlagi sjávarins á þeim. Eins og fyrr er sagt, brá Gissur búi 1930, en þau hjónin fóru þó ekki frá Hvoli og vann Gissnr þar búi sonar síns. Byggðu gömlu hjónin sér þar lítið hús og var jafnan gaman að heimsækja þau. Gissur var maður jafnlyndur og jafnglað- ur og hafði alltaf upplífgandi áhrif á þá sem til hans komu. Þá var alls ekki fátítt, ef hóf- samlegur dropi hressti upp á sálartetrið, að organhljómar og söngur fyllti litla húsið. Gissur hafði mikið yndi af söng og töluverða hæfileika á því sviði og var hann um skeið organleikari í Arnarbælissólm. Ekki var Jórunn síðri heim að sækja, og mætti inaður þar möðurlegri umhyggju reyndr- ar og góðrar konu. En eftir því sem árin urðu fleiri að baki þeim. fór hreysti þeirra og kraftur þverrandi og loks fór svo að þau urðu bæði að ver.i stöðugt hér í Reykjavík til lækninga og yfirgáfu þau þá Hvol, staðinn þar sem þau höfðu starfað, alið upp börn Framhald á 7. síðu. £ J ö Ð VI L J I N.N. ~ . ý, ' Þriðjudagur 7. februar 1950 „Jæja, segðu Epstein að hóa í okkur, ef þeir koma aftur“. „Jamm“. Mujligan reis á fætur. Hann glotti. „Mér þótti það tíðindum sæta, að þið hefðuð ekki getað fundið einhvern mann. Ykkur hlýtur að vera farið að förlast". „Þú ættir bara að vita, hvað við erum mann- legir“, sagði Simmons. „En segðu þeim ekki á lögreglustöðinni, að ég hafi sagt þetta“. Tveim kvöldum seinna — á fimmtudags- kvöldið — var Breen yfirlögregluþjónn kall- aður inn á skrifstofu yfirboðara síns til að ræða um annað mál, sem þeir voru að fást við. Um leið og hann ætlaði að fara, sagði Shields fulltrúi við hann: „Hvernig gengur það annars með leitina að herra Smith?“ Breen sneri sér við. , Það er dálítið kyndugt allt saman“, sagði hann hægt. „Eg er búinn að tala við hús- bónda hans — þennan herra Hill hjá Hosk- ins og Hill. Hann sagði, að þeir hefðu orðið skelkaðir, þegar Smith var horfinn, og kallað á endurskoðendurna. I dag gat hann sagt mér, að allt hefði verið á hreinu. Ekki nokkur svik í tafli. Hann segir að Smith hafi alltaf verið viðfeldinn og heiðvirður náungi. Hann hafi unnið hjá þeim næstum ár, og hafði prýðileg meðmæli frá Blayne verksmiðjunum í Concord. Hill hefur fallizt á skoðun frú Smith •—- að einhver' hafi unnið honum mein“. Shields fulltrúi handlék blýantinn sinn. „Hvað heldur þú?“ „Ég held, að hann hafi verið að flýja und- an einhverju öðru en lögunum", • sagði Breen hreinskilnislega. „Þessi gervilögregluþjónn — þessi Ijóshærði og bláeygði fugl — Shields fulltrúi kinkaði kolli. „Búinn að tala við fólkið í húsinu?“ „Já, já. Lyftuþjóna, dyravörð, konu dyra- varðarins, nábúana. Einn lyftuþjónanna man eftir að hafa farið með Smith upp þetta þriðju- dagskvöld um hálfsjöleytið. Síðan hefur eng- inn litið hann augum. Það hittist. svo á að ná- búarnir báðum megin voru heima þetta kvöld. Þeir heyrðu enginn óvenjuleg hljóð — engan hávaða. Ekkert þvílíkt, Og enginn man eftir að hafa séð þennan ljóshærða vin okkar“. „Nokkur svör borizt við auglýsingunni í út- varpinu?“ „Aðeins þetta venjulega. Ekkert sem við getum farið eftir. Við höfðum svo lítið á að byggja. Flann var ekkert óvenjulegur í útliti“. Fulltrúinn kinkaði kolli með hluttekningu. „Jæja, þið haldið þessu áfram“, sagði hanij,. og rómur hans gaf til kynna að viðtalinu væri lokið. „Gangi ykkur vel“. B A V t 2» En Breen hreyfði sig ekki. „Svo er enn eitt“, sagði hann. „Eg sendi skeyti til lögreglunnar í Concord og bað þá að komast í samband við Blayne verksmiðjurn- ar og fá skýrslu um manninn. Þeir segjast aldrei hafa heyrt Peter C. Smith nefndan“. Það var daginn eftir, föstudaginn níunda maí, sem myndin af herra Smith kom stækkuð í kvöldblöðunum. Til allrar hamingju var mynd- in skýr og sæmilega stækkuð. Breen yfirlög- regluþjónn hafði sjálfur gefið þeim blaðamönn- um eintak af myndinni, sem töldu það skyldu sína að skýra frá því, sem væri að gerast í Centre Street. Um leið sagði hann stuttlega frá hvarfi, þar sem hann sagði meðal annars, að lögreglunni væri áfram um að hafa upp á lágvöxnum, grönnum manni með magurt, fölt andlit, í dökkgráum yfirfrakka með dökkan flókahatt, en lierra Smith hefði síðast sézt í fylgd með honum. Breen gaf þessar upplýsing- ar ásamt myndinni í ákveðnum tilgangi. Hann vonaði, að það gæti komið skriði á málið. Það gerði það líka. En ekki á sama hátt og harin bjóst við. Meðan Breen yfirlögregluþjónn var að ræða við blaðamennina þennan milda maímorgun í Centre Street í New York, var annað og á- hrifameira að gerast annars staðar í heiminum, í Berlín. Jafnvel þótt lcgregluþjónninn hefði verið gæddur fjarskyggnisgáfu, eins og sumir hinna írsku forfeðra hans þóttust vera, og feng- ið að sjá það sem gerðist, hefði hann haldið, að það kæmi sér alls ekki við. En þar hefði honum skjátlazt. Það var um nónbilið í Berlín. 1 glæsilegri setustofu í gömlu húsi í einu fínasta hverfi borgarinnar, sat ungur maður við píanóið og var að leika „Fantasíu" Mozarts. Hann lék mjög vel, gáfulega, jafnvel snilldarlega. Stúlk- an sem sat i glugganum, lagði handavinnuna frá séi til að hlusta og hún horfði á andlit hans. Þau voru frændsystkin þessi tvö, ekki ná- skvld, en það mátti sjá ættarmót með þeim. Einhver óljós, kynlegur ættarsvipur kom öðru hverju fram í andlitum þeirra: bæði voru þau mjög ljós yfirlitum, en þó var það frekar eitt- hvað í svipnum, sem var keimlíkt, munnsvip- ur, augnaráð, geislandi bros og lífsfjör. Stúlkan var ung — átján ára — og piltur- inn ekki miklu eldri: ef til vill tuttugu og tveggja eða þriggja ára. Og bæði voru þau gædd fegurð æsku og góðs atlætis -— ef til vil.1 of góðs — hendurnar voru grannar og ‘ fíngerðar, nefin há og vel löguð.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.