Þjóðviljinn - 11.03.1950, Qupperneq 4
Laugardagur 11. marz 1950
1
Þ J Ó Ð V ILJINN
DlÓÐVILIINN
Útgefandl: Samelningarflokkur alþýðu — Sósialistaflokkurlnn
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttastjóri: Jón Bjarnason.
BlaOam.: Arl KArason, Magnúa Torfl ólafsson, Jónas imason
Auglýslngaatjórl: Jónsteinn Haraldsson
Rltatjóm, afgreiðsla, auglýslngar, prentsmiðja: Skólavörðu-
■tig 10 — Biml 7600 (þrjár linur)
Áskriftarverð: kr. 12.00 & m&n. — Lausasöluverð 60 aur. elnt
Prentsmlðja Þjóðviljans hS.
SóslaUstaflokkurlnn, Þórsgðtn 1 — Sfml 7610 (þrj&r linur)
43 alþingismenn
Til kosninganrxa í haust var gengiö í tveim fylking-
um. Annars vegar var Sósíalistaflokkurinn, stjórnarand-
staöan, sem kraföist gerbreyttrar stefnu í inna’nlands-
og utanríkismálxnn. Hins vegar voru stjórnarflokkarnir
þrír, Sjálfstæöisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Al-
þýðuflokkurinn, sem báru sameiginlega ábyrgö á stjórnar-
fari þriggja undangenginna ára og voru sammála um öll
meginatriöi, þótt ýms smærri atriöi væru blásin út og
þeim flíkaö fyrir kosningarnar meö tilliti til háttvirtra
kjósenda. Kosningarnar voru þannig mjög óbrotnar, þaö
var kosið um tvær fylkingar, tvær meginstefnur.
Úrslit kosninganna uröu síöan þau að óbreytt ástand
hélzt í þjóðmálunum. Sósfalistaflokkurinn fékk sömu
hlutfallstölu kjósenda og í næstu kosningum á undan,
stjórnarflokkarnir sömuleiðis. Eina breytingin var sú aö
einn stjórnarflokkurinn, Framsókn, hirti nokkurt fylgi
af öðrum stjómarflokknum, Alþýöuflokknum. Hlutföllin
á þingi uröu þau aö stjómarliöiö haföi 43 þingmenn,
stjórnarandstaöan 9.
Þessi úrslit hefðu vissulega átt aö vera vel til þess
fallin aö skapa „öryggi“ og „festu“ í stjómmálalífinu
hér á landi. Meirihluti stjórnarflokkanna var svo alger
að engin hætta var á að kvefpest yrði stjórn þejirra aö
falli, eins og yfirvofandi er talið í Englandi. Flokkarnir
voru eins og áður segir sammála um öll meginatriöi,
héldu allir uppi svörum í sömu tóntegund gegn gagn-
rýni sósíalista, og hin smærri ágreiningsmál hefðu þeir
auðveldlega getað samið um. Þeir hafa áður komið sér
saman um annaö eins. Þaö hefði því mátt ætla aö áhrif
kosninganna hefðu orðið bjargtraust stjórnarfar.
En sú hefur vissulega ekki orðið raunin. Senn eru
liðnir fimm mánuðir síðan kosningum iauk, og enn hefur
43 sammála alþingismönnum ekki tekizt aö klambra
saman starfshæfri ríkisstjórn! Þeir eru sjálfir í mestu
vandræöum með aö koma fram með skýringar á þessu
furðulega fyrirbæri. Alþýðuflokkurinn þykist enn vera
í fýlu vegna kjósendastulds Framsóknar og segir að
hinir samstarfsflokkarnir tveir geti bara stjórnað einir,
fyrst svo illa var þökkuð löng og dygg þjónusta! Hinir
flokkarnir tveir bregða hvor öðrum innbyrðis um ýmsar
dularfullar veilur, skort á „þjóöhollustu“, ,,heilindum“
og „þegnskap“ Síðan eru leikin hin hjákátlegustu sjón-
arspil frammi fyrir þjóðinni, eins og þingrofsleikurinn,
sem afhjúp^ði á eftirminnilegan hátt aö þaö er ekki
málefnaágreiningur sem stendur í vegi fyrir stjórnar-
ihyndun.
En hvernig stendur þá á þessu, hvað kemur til að
43 sammála alþingismenn geta ekki tekiö áö sér það
hlutverk sem þeim var falið af meirihluta kjósenda, að
stjórna landinu? Ástæöan er sú aö jafnvel þessum mönn-
um er nú oröiö ljóst aö stefna þeirra er að leiöa til svart-
asta öngþveitis, jafnt í irmanlands- sem utanríkismáliun.
Það hallar undan fæti á öllum sviðum og framtíðin er
í algerri andstöðu við fögur kosningaloforö og hagsmuni
þeirra kjósenda sem létu blekkjast af þeim. Marsjall-
stefnan, valdboð bandaríska auðvaldsins, er að leiða
kreppu, skort og eymd yfir þjóðina og hinum hlýðnu
þjónum hrýs hugur við að standa andspænis afleiðing-
um gerða sinna og bera ábyrgð á því sem nú dynur yfir,
áfram verður haldið á sömu braut. Ringulreið hinna
Atburður sem ekki
verður þagað yfir.
Kona nokkur biður fyrir
eftirfarandi bréf: — „Eg upp-
lifði á fimmtudagskvöldið at-
burð sem ég get ekki þagað
yfir. Sá atburður gerðist í
Austurbæjarbíói þegar hin nýja
Sinfóníuhljómsveit lék í fyrsta
sinn opinberlega undir stjórn
Róberts Abraham. — Eg ætla
ekki að gagnrýna hljómsveit-
ina, það gera mér færari menn.
En sem áheyrandi vil ég af al-
hug þakka öllum þeim sem
unnið hafa að því að koma upp
þersu sérstæða menningartæki,
og gefið okkur þannig tækifæri
til að sjá og njóta hinnar æðstu
listar, þeirrar listar sem meist-
arar aldanna hafa skapað.
□
Hver er þýðing Siníóníu-
hl jómsveitarinnar ?
Eg efast um að almenningur
geri sér það fyllilega ljóst,
hvað hér er á ferðinni, eða
hvers virði það getur orðið
andlegum þroska þjóðarinnar
að hafa eignazt slíkt menning-
artæki sem fullskipuð sdnfóniu-
hljómsveit er. — En til þess að
þýðing þessa máls verði al-
menningi sem ljósust, þá vil ég
hér með skora á alla þá, sem
tök hafa á, að fullskipa húsið
í hvert sinn sem þessi hljóm-
sveit lætur til sín heyra; einnig
er mikils um vert að allir unn-
endur tónlistarinnar geri sitt
til að styrkja hljómsveitina,
svo að við megum eiga hana
sívaxandi að þroska, til skemmt
unar og menningarauka fyrir
aldna og óborna. — Kona.“
□
Þegar útvarpsleikrit
eru endurtekin.
Svo hef ég verið beðinn fyrir
tilmæli vegna útvarpsleikrit-
anna. Maður „sem mikið hlust-
ar á útvarpið“ segir: — „Tíð-
um ber það við, að útvarpH-
-leikrit eru endurtekin. Venju-
lega eiga hér í hlut vinsæl og
góð leikrit, svo að ráðstöfunin
er sízt þess verð að vera löst-
uð. En hér er að mínum dómi
einn hængur á. — Endurtekn-
um leikritum er útvarpað á
laugardögum, svo að hlustend-
ur fá ekki að heyra neitt nýtt
leikrit þá vikuna. En svona á
þetta ekki að vera. Endurtekn-
ing leikrita má ekki kosta það,
að þeir sem hafa heyrt þau
áður, fari á mis við þá skemmt-
un sem þeir eiga fullan rétt á
að fá með nýju l'eikriti á hverj-
um laugardegi. Endurteknum
leikritum á að útvarpa ein-
hverja aðra daga en laugar-
daga, helzt sunnudaga, annað-
hvort á kvöldin, eða þá bara
lun eftirmiðdaginn. En á laug-
ardagskvöldum eigum við allt-
af að fá að heyra nýtt leikrit.“
c
‘Nauðsyn á aukinni
kartöflurækt.
Í.H.S. skrifar: — „Bæjar-
pó;tur! —r- Eg er ekki vanur
að skrifa í blöðin, en ég get
ekki orða bundizt, þegar alltaf
er verið að kvarta undan kart-
Framhald á 7. síðu.
★
SKIPADEILD S. I. S.
Arnarfell er í N. Y. Hvassafell
er á Akureyri.
Einarsson og Zoiiga
Foldin iestar frosinn fisk fyrir
Norðurlandi. Lingestroom er í
Færeyjum.
RIKISSKIP :
Hekla er í Reykjavík. Esja er á
Austfjörðum á suðurleið. Herðu-
breið fór frá Reykjavík í gærkv.
til Breiðafjarðar og Vestfjarða.
Skjaldbreið er á Húnaflóa á suður
leið. Þyrill er í flutningum í Faxa
flóa. Ármann fór frá Reykjavík í
gærkvöld til Vestmannaeyja.
Elnutlp
Brúarfoss er í Reykjavík. Detti-
foss fór frá Hamborg 8.3. til Ant
verpen, Rotterdam, Hull og Leith.
Fjallfoss fór frá Reykjavík 9.3.
vestur og norður. Goðafoss kom
43 sammála alþingismanna er aöeins spegilmynd af
ástandinu í efnahagsmálum og atvinnumálum þjóöar-
innar, þar standa ráöþrota menn frammi fyrir staö-
reyndunum um verk sín.
Og þetta ástand er ekkert einsdæmi hér á íslandi,
heldur má segja aö öngþveitið hér sé táknrænt fyrir allan
hinn kapítalistíska heim. í einu landinu af öðru standa
ráðamennirnir uppi ráöþrota, ríkisstjórnir fara og ríkis-
stjórnir koma, og allt fer á eina leiö. ÁstandiÖ er verra
i dag en þaö var í gær, atvinnuleysið eykst, fátæktin
magnast, framleiöslutækin stöðvast vegna „offramleiöslu“
á sama tíma og milljónir hafa ekki allra frumstæöustu
lífsnauösynjar. Þaö er áætlað aö tala þeirra sem búa
viö atvinnuleysi og atvinnuskort í auövaldsheiminum
nemi nú 40 milljónum. í þessum mikla harmleik erum
við íslendingar aöeins lítiö peð, en einnig 1 stjórnarfari
okkar speglast skipbrot kapítalismans. Og 43 samsekir
alþingismenn standa úrræöalausir og eiga ekki manndóm
til að rísa gegn afleiðingum stefnu sinnar og bjarga þjóö-
inni undan verstu holskeflum auövaldskreppunnar.
til Reykjavíkur 8.3. frá N. Y.
Lagarfoss fór frá Keflavik um-
hádegi í gær 10.3. til Akraness og
Reykjavíkur. Selfoss fór frá Men-
stad 6.3. til Reykjavíkur. Trölla-
foss fór frá Halifax 7.3. til Reykja
víkur. Vatnajökull er í Vestmanna
eyjum, fer þaðan til Norðfjarðar
og Holl’ands.
. 1 dag verða
gefin saman í
hjónaband af
séra Sigurbirni
Einarssyni, ung
frú Ingibjörg
Magnúsdóttir, Frammnesvegi 30
og Valdimar Tryggvason sjómað-
ur, Reynimel 45. Heimili brúðhjón
anna verður að Drápuhlíð 29.
Nýlega opin-
beruðu trúlofun
sína ungfr. Edda
Scheving, Víði-
mel 25 og Agnar
Bragi Aðalsteins-
son, Haðarstíg 18. — Nýlega hafa
opinberað trúlofun sína, ungfrú
Unnur Sólveig Vilbergsdóttir,
Blönduhlíð 6 og Hálfdán Ingi
Jensen, Melahúsi við Sandvíkur-
veg. — Nýlega hafa opinberað trú-
lofun sína, ungfrú Eyrún Sigurðar
dóttir og Garðar Haukur Georgs-
son, togaranum Marz,
MESSUR A MORGUN:
r-wo,- Laugarneskirkja.
IUlwa-í3 Messað kl. 2 e. h.
Svavarsson. Barna
guðsþjónusta kl. 10
f. h. — Séra Garð-
ar Svavarsson. Frikirkjan. Messað
kl. 5 e. h. --- Séra Þorsteinn
Björnsson. Dómkirkjan. Messað
kl. 11 f. h. — Séra Jón Auðuns.
Messað kl. 5 e. h. — Séra Bjarni
Jónsson. Altarisganga. Nespresta-
kall. Messa í kapellu Háskólans
kl. 2. Séra Jón Thórarensen.
Kvöldbænir fara fram í Hall-
grímskirkju á hverju kvöldi nema
sunnudaga og miðvikudaga, kl. 8
stundvislega.
18.25 Veðurfregnir.
18.30 Dönskuk.; II.
fl. — 19.00 Ensku-
kennsla; I. f 1.19.25
Tónleikar: Sam-
söngur (plötur).
20.30 Útvarpstríóið: Tríó í G-dúr
eftir Beethoven. 20.45 Leikrit: „In
memoriam" eftir Halldór loga
(Leikendur: Brynjólfur Jóhannes-
son, Edda Kvaran og Inga Lax-
ness. — Leikstjóri: Þorsteinn Ö.
Stephensen). 21.20 Tónleikar: Pet-
er York og hljómsveit hans leika
létt lög (plötur). 21.40 Upplestur:
Smásaga (Ævar Kvaran leikari).
22.00 Fréttir og veðurfregnir. —
22.05 Passíusálmar. 22.15 Danslög
(plötur). 24.00 Dagskrárlok.
Arshátíð Iðju, félags verksmiðju
fólks, verður haldinn í kvöld i
Flugvallarhótelinu og hefst kl.
9.15 með ávarpi Björns Bjarnason
ar formanns félagsins. Aðgöngu-
miðar að hátíðinni verða seldir frá
kl. 4—6 í skrifstofu félagsins, AI-
þýðuhúsinu.
S ö f n i n
Landsbókasafnið er opið kl. 10
—12, 1—7 og 8—10 alla virka
daga, nema laugardaga, þá kl.
10—12 og 1—7. — Þjóðskjalasafn-
ið kl. 2—7 alla virka daga. —
Þjóðminjasafnið kl. 1—3 þriðju-
daga, fimmtudaga og sunnudaga.
— Náttúrugripasafnið er opið
sunnudaga kl. 1,30—3 og þriðju-
daga og fimmtudaga kl. 2—3. —
Listasafn Einars Jónssonar kl.
1.30—3.30 á sunnudögum. — Bæj-
arbókasafnið kl. 10—10 alla virka
daga nema laugardaga kl. 1—4.
Heimsóknatími á sjúkraliúsum.
Landspítalinn, kl. 3—4 virka
daga, 2—4 helga daga. Landakots-
spítali, kl. 3—5 alla daga. Hvíta-
bandið, kl. 3—4 og 6.30—7. Far-
sóttahúsið, 3—5.
Næturvörður
er í Lyf jabúðinni Iðunn, sími 7911.
Næturlæknir
er í læknavarðstofunni, sími 5030.
Næturakstur i nótt annast
Hreyfiil. — Sími 6833.