Þjóðviljinn - 11.03.1950, Síða 8
Ölvaður maður veldur dauðaslysi
í fyrrakvöld ók drukkinn maður á 56 ára gamla
Itonu á Hringbrautinni, skammt fyrir sunnan Laufás-
vcg og lézt hún skömmu síðar á Landsspítalanum. Bíl-
stjóri «r átti leið þarna um varð konunnar var og til-
Lynnti það lögreglunni rétt fyrir klukkan 10.
Konan hét Ingibjöhg L. Ás-
mundsdóttir og átti heima að
Varmahlíð við Suðurlandsbraut.
Á slysstaðnum sást að annað
hvort framljós bifreiðarinnar
hafði brotnað, en bílstjórinn
er banaslysinu olli hafði ekið
á brott. Hann kom í leitirnar
í gær, gaf sig sjálfur fram.
Hann kvaðst hafa verið mikið
drukkinn og vitað að bíllinn
rakst á eitthvað en ekki gert
sér grein fyrir hvað það var
fyrr en hann sá bíl sinn og blöð
in í gærmorgun. — Bíllinn var
R-5947.
Skíðaferðir
Dregið í happ-
drætti háskólans
I gær var dregið í 3. fl.-happ
drættis Háskóla Islands.
Hæsti vinningur, 15.000 kr.,
kom á nr. 18.368 en næsthæsti
vinningur, 5.000 kr., á nr. 4001
Voru hvorttveggja fjórðungs-
miðar. Af hæsta vinning vorú
tveir miðar seldir í Keflavík,
einn hjá Marenu Pétursdóttur
og einn í Varðarhúsinu, en af
þeim næsthæsta tveir á Akur-
eyri, einn á Selfossi og einn á
Akranesi.
Ekið á dreng
Um kl. 11.13 í gærmorgun
varð 7 ára gamall drengur fyrir
bifreið á Bergstaðastræti. Meidd
ist hann á fæ*ti og var fluttur
í Landsspítalann.
Málavextir eru þeir, að
drengurinn, hann heitir Sigurð-
ur Einarsson og á heima á Skál
holtsstíg 7, kom á hjóli niður
Spítalastíg og beygði til vinstri
inn á Bergstaðastræti, en 5
sama mund var sorphreinsunar.
bifreiðinni R-1862 ekið suður
Bergstaðastræti. Drengurinn
mun hafa beygt skyndilega til
vinstri en við það fallið af
hjólinu. Bifreiðastjóranum
tókst ekki að hemla nógu
snemma og kom annað fram-
hjól bifreiðarinnar við dreng-
inn og hjólið með þeim afleið-
ingum er fyrr getur.
Rannsóknarlögreglan biður
þá er voru sjónarvottar að
þessu slysi að gefa sig fram
við hana sem allra fyrst.
Félag til að koma á menningar-
tengslum milli íslands og
Sovétríkjanna
Stofnfundur á morgun í Tjarnarcafé
Ákveðið hefur verið að stofna félag til að koma á
menntatengslum milli íslands og Sovétríkjanna og efla
gagnkvæm kynni milli landanna. Verður stofnfundurinn
í Tjarnarcafé á morgun og hefst kl. 2 e. h.
Um næstu helgi efna Ferða-
skrifstofan, Skíðadeild K.R. og
Skíðafélag Reykjavíkur til
skíðaferðar bæði i Hveradali
og á skíðamótið í Jósepsdal.
Á laugardag verður farið kl.
14 og kl. 18.
Á sunnudag verður farið kl.
9 og kl. 13.30.
Fólk verður ems og venju-
lega tékið, í öllum ferðum, í
austurbænum hjá Litlu bílstöð-
inni. Ennfremur verður fólk
»sótt í úthverfin í sambandi við
ferðina kl. 10 á sunnudagsmorg
un. — Nægur skíðasnjór er nú
á fjöllum uppi og við skíða-
skálana hér í grennd.
Snót fær kaup-
hækkun
Vestmannaeyjum í gær.
Frá fréttaritara Þjóðvilj.
Aðalfundur verkakvennafé-
lagsins Snótar var haldinn 3.
marz. I stjórn voru kjörnar:
Guðrún Guðmundsdóttir, for-
Framhald á 7. síðu
Sksðamót Reykja-
víkur hefst í dag
Þátttakendur 126
Skíðamót Reykjavíkur hefst
í dag kl. 5 e. h. í Jósefsdal
með keppni í brunj kvenna B.
og C.-fl. Mótinu verður hald-
ið áfram á morgun og sunnu-
dag.
Sænski skíðakennarinn Erik
Söderin keppir í svigi A-fl. á
sunnudaginn og einnig í bruni
Framhald á 7. síðu.
I gær var birt hér í blaðinu
ávarp frá 15 mönnum sem hafa
beitt sér fyrir félagsstofnun-
inni og var þar vakin athygli
á nauðsyn slíks félags sem
hefði m. a. það verkefni, „að
halda uppi sambandi við menn
ingarstofnanir og menningarfé-
lög í Sovétríkjunum, afla heim-
ilda þaðan, útvega kvikmyndir,
bækur og tímarit, gangast fyr-
ir fræðsluerindum um Sovétrík-
in og greiða fyrir ferðalögum
þangað. Á sama hátt mundi fé-
lagið leitast við að kynna ís-
lenzka menningu og þjóðhætti
meðal Sovétþjóðanna."
Stofnfundurinn verður eins
og áður segir í Tjarnarcafé kl.
2 morgun. Verður þar rætt um
félagsstofnunina og síðan sýnd
rússnesk kvikmynd.
Skákþingið
Næsta umferð
á morgun
Biðskákir á skákþingi Reykja
víkr voru tefldar í gærkvöldi
að Þórsgötu 1. Fóru leikar
þannig, að Baldur Möller vann
Friðrik Ólaföson, Guðmundur S.
vann Lárus Johnsen, en jafn-
tefli gerðu Guðjón M. og Ben-
óný, Baldur Möller cg Sveinn
Kristinsson. Fresta varð skák-
um Árna og Friðriks og Guðr
mundar S og Lárusar.
Eftir 2 umferðir hefur Guðm
S. 2 vinninga, en Guðjón og
Benoný IV2 v. hvor.
Næsta umferð verður tefld
kl, 1 á sunnudag í Þórskaffi.
Guilöld marshallstefnunnar:
Ekki lengur til umbúða
pappír!
í dagblaði Eysteins og eymdarinnar, Tíman-
birtist í gær eftirfarandi:
,„ORÐSENDING TIL HÚSMÆÐRA. Þar
sem birgðir vorar af umbúðapappír eru
þrotnar getum vér ekki fyrst um sinn af-
greitt SKYR til annarra en þeirra, sem koma
meö umbúðir undir það í mjólkurbúðirnar.
Mjólkursamsalan."
Þessi stutta tilkynning er eitt lítið dæmi um
velgengni íslenzku þjóöarinnar undir marshall-
stefnu þeirra Eysteins, Bjarna Ben. og Stef. Jóh.
Það er ekki einu sinni til umbúðapappír um
skyr! — Skyldi líða langt þangað til Tíminn
birtir annað álíka eymdarvæl betliþjóðar varð-
andi mjólkurflöskur? Er það kannske misskiln-
ingur að hálfgerður eysteinseymdarsvipur hafi
verið á útvegun þeirra undanfarið?
ÞlÓÐVILllNN
ÚRRÆÐI SÓSÍALISTAFLOKKSINS VII.
BURT MEB MILLILIÐAOKRIÐ
Á sama tíma og útvegur-
inn er í mestu vandræðum
lifa milliliðimir góðu lífi og
græða milljónir á milljónir
ofan. Gott dæmi þess eru
olíufélögin. Á undanförnum
árum hafa þau ráðizt í millj-
ónaframkvæmdir og fengið
leyfi til þess hjá yfirvöld-
unum. Komið hefur verið
upp tvö- og þreföldu sölu-
kerfi um land allt, verið er
að byggja hinar stærstu
olíustöðvar hér við Faxa-
flóa o. s. frv. Þjóðin borg-
ar og ekki sízt útvegurinn
sem á mikið undir viðskipt-
um við olíufélögin. Skipu-
lagsnefnd atvinnumála sann-
aði á kreppuárunum fyrir
stríð að gróði olíufélaganna
á einu ári slagaði hátt upp
í tap útvegsins! Sama máli
gegnir um sölu á veiðarfær-
um.
Þá er útvegurinn féflett-
ur með óhófslegum viðhalds-
og viðgerðarkostnaði, sem
nemur mjög háum upphæð-
um árlega.
Sósíalistar leggja áherzlu
á að á meðan þessum málum
og öðrum hliðstæðum sé
ekki komið í heiðarlegt horf
liggi ekkert fyrir um það að
framleiðslukostnaður sé of
mikill vegna kaupgjalds. 1
kosningastefnuskrá Sósíal-
istaflokksins í haust voru
tillögur Sósíalista í þessum
málum dregnar þannig sam-
an:
„Verð á olíu og veiðar-
færum verði stórlækkað í
sambandi við þær ráðstaf-
anir í verzlunarmálum,
sem lagðar eru til hér að
framan, og útgerðarmönn
um gefinn kostur á að
hafa með höndum alla
innlenda framleiðslu veið-
arfæra.
Gerðar séu ráðs.»íafanir
til að lækka viðhalds-
kostnað útgerðarinnar
með strangari reglum
um verðlagningu, og
hundraðstöluálagning á
efni og vinnulaun ekki
heimiluð“.
Finnsk listahjón hér á ferð
Halda hljomleika í Gamla bío á fimmtudagskvöldið
Finnska söngkonan Tii Nie-
melá og píani‘*iinn Pentti Kos-
kimies, maður hennar, komu
hingað vestan um haf í fyrri-
nótt og dvelja nú hér í bænum.
Hit*íu fréttamenn þau hjónin
að máli á Hótel Borg í gær.
Munu þau halda hljómleika í
Gamla bíó á fimmtudaginn kem
ur.
Þau hjónin komu hingað í
bæinn kl. 6 í morgun, en geta
ekki dvalið hér nema stuttan
tíma vegna þess að frúin er
ráðin til að syngja á hljómleik
um í Helsinki, sem haldnir
verða mjög bráðlega. Þessi
finnsku listahjón eru ekki ein-
ungis velmetnir listamenn í sínu
heimalandi, heldur hafa þau
ferðazt um Svíþjóð, Noreg,
England og Bandaríkin og hlot
Framhald á 7. síðu.
Þjóðviljasöfnunin:
Nr. 105 fékk 1. vinninginn
í áskrifendahappdrætlinu
Á morgun verður birt röð deildanna
I gær var bezti dagur áskrif-
endasöfnunarinnar. Ekki náð-
ust þó alveg 100 nýir áskrifend
ur. Barónsdeild leiðir enn í ram
keppninni á milli deildanna. Á
morgun verður birt röð deild-
anna og þurfum við að gera
góðan dag í dag. Tekið er dag-
iega á móti nýjum áskrifendum
í skrifstofu Þjóðviljans Skóla-
vörðustíg 19, simi 7500 og i
skrifstofu Sósíalistafélags
Reykjavíkur Þórsgötu 1, sími
7511.
Dregið var um 1. vinning í
áskrifendahappdrættinu í gær,
en það var Þúsund og ein nótt,
kom upp nr. 105.—Er handhafi
happdrættismiðan’n beðinn að
framvísa honum í skrifstofu
Þjóðviljans gegn vinningnum.
Herðið sóknina. Útbreiðið
Þjóðviljann. Þjóðviljinn inn á
hvert heimili og vinnustað.