Þjóðviljinn - 14.03.1950, Page 1
15. árgangur.
Þriðjudagur 14. marz 1950.
■1
Munið skemmtifund Kvenfé*
lags sósíalista í Tjarnarcafé í
61. tölublað. kvöld.
rn
HEIÐNABERGSSTJORNIN
YNDUÐ
Kosningarnar
í Sovétríkjnnum
Kjörsókn var gífurlega mikil
. í kosninguniun til Æðsta ráðs
Sovétríkjanna í fyrradag. í
kjördæmi Stalíns í Moskva
höfðu allir á kjörskrá greitt
atkvæði á hádegi og í kjör-
dæmi Molotoffs voru allir búnir
að kjósa um nónbil. Úrslit kosn
inganna rnunu verða tilkynnt í
einu fyrir öll Sovétríkin.
Bslgískir kratar
hóta skemmdar
verkum
Belgiskir sósíaldemokratar
lýstu yfir í gær, að þeir myndu
ásamt Alþýðusambandi Belgíu
hefja algera efnahagslega
skemmdarverkaherferð, ef aðr-
ir flokkar reyndu að knýja
fram að Leopold III taki á ný
við konungdómi. Við þjóðara:-
kvæðagreiðslu í fyrradag lýstu
57,68% sig fylgjandi aftur-
komu konungs. Atkvæðagreiðsl-
an var ekki bindandi heldur
aðeins vísbending til þingsins.
Af stjómarflokkunum telja
kaþólskir atkvæðagreiðsluna
sýna, að Leopold eigi að hverfa
Framsóknarforsprakkarnir
feyga dreggjar niSurlœging-
arinnar til botns
Eftir fimm mánaða látláusa togstreitu íhaldsins og
Framsóknar er nú loks fengin niðurstaða, ný stjórn verð-
ur mynduð í dag. Þjóðin hefur horft á þennan fimm
mánaða leik með sívaxandi undrun, og mest hefur
undrun þeirra Framsóknarkjósenda verið sem héldu að
þeir hefðu unnið kosningasigur í haust og að nú yrði
ráðizt að Heiðnabergi auðmannastéttarinnar af atorku.
Þeir hafa séð forsprakka sína auðmýkta æ ofan í æ,
þótt nú fyrst séu dreggjar niðurlægingarinnar teygaðar
til fulls.
Þessi stjórn er mynduð kringum gengislækkunar-
frumvarp íhaldsins. Hefur Framsókn fengiö framgengt
smávægilegum breytingum, einkum hækkun á eigna-
skatti, en í staðinn fellur niður stóreighaskattur sá sem
settur var með eignakönnunarlögunum !! Þá mun Bún-
aöarbankinn eiga að fá ca. 20 milljónir af þessum skatt-
tekjum. Enn fremur mun Sambandið eiga að fá eitthvaö
stærri kvóta en hingað til! Þetta eru efndirnar á stóru
loforðunum sem rauðprentuð voru utan á Tímann í
haust.
Enn auðviröilegri verður þó hlutur Framsóknarfor-
sprakkanna þegar athuguð er verkaskipting ríkisstjórn-
Afgreiðslustúlkur í mjoiKur-
og brauðsölubúðum métmæla
gengisiækkunarfrumvarpinu
Á fundi trúnaðarmannaráðs A.S.B. s.l. laugardag
var eftirfarandi álylrtun sanfiþykkt:
„Fundur í trúnaðarmannaráði A. S. B.(
íélags aígreiðslustúlkna í mjólkur- og brauð-
sölubúðum, haldinn 11. marz 1950,. mót-
mælir eindregið írumvarpi til laga um
gengisskráningu, launabreytingar o. íl.( er
nú liggur íyrir Alþingi, þar sem augljóst er
að það hefur í för með sér stóraukna dýrtíð
og skerðingu á kjörum almennings, ef sam-
þykkt verður. Fundurinn leggur áherzlu á,
að vinnandi konur eru nú svo illa launaðar,
að þær geta ekki lifað sómasamlega, en
frumvarp þetta, eins og það liggur fyrir,
virðist leggja þyngstar álögur á þá, sem
lægst eru launaðir en ýmsum hópum manna,
sem rakað hafa saman fé nú um 10 ára skeið,
svo að segja algjörlega hlíft. Fundurinn
skorar því á Alþingi að fella frumvarpið.”
Frönsku verk-
aftur en frjálslyndir eru á önd-
verðum meið. Eyskens forsæt-
“ Sv‘ss föllin breiðast út
Verkföll héldu áfram að breið
ast út í Frakklandi í gær. Þorri
gasstöðvastarfsmanna hefur
haft að engu hótanir ríkis-
stjórnarinnar um fangelsisrefs-
ingu og neitað að hverfa til
vinnu. Starfsmenn heilbrigðis-
og tryggingaráðuneytanna
lögðu niður vinnu í gær, sömu-
leiðis starf :menn við vatnsveitu
Parísar og fiutningaverkamenn
og götuhreinsarar i Marséilles.
Jessup íer fyrir
rannsóknar-
réítinn
Jessup, sendimaður Banda-
ríkjastjórnar til Asíulanda,
mun hraoa för sinni heim til
Washingtoii til aC mæta fyrir
rannsóknarnefnd öidungadeild-
arinnar. Öldungadeildarmarður-
inn McCarthy, republikani frá
Wisconsin, hefur sagt nefnd-
inni, að Jesirup sé „hlynntur
kommúnistískum samtökum".
McCarthy hefur nú nafngreint
einn af þeim 57 starfsmönnum
í utanríkisráðuneytinu, sem
hann segir vera kommúnista.
Heitir sá Hansen.
annnar . Þeir hafa fengið það eitt sem íhaldið hefur
skammtað þeim. Fyrir nokkrum dögum töldu þeir yfir-
ráð yfir utanríkismálum og viðskiptamálum óhjákvæmi-
leg skilyrði fyrir þátttöku sinni, nú fá þeir hvorugt!
Eftir því sem næst varð komizt í gærkvöld verður
verkaskipting gengislækkunarstjórnarinnar þessi í aðal-
atriðum:
Steingrímur Steinþórsson verður forsætis- og félags-
málaráðherra. Hann var valinn í ráðherra-
stól samkvæmt kröfu íhaldsins, til þess
að Jón Pálmason geti orðiö forseti sam-
einaðs þings á ný! Þau alvarlegu mistök,
sem Tíminn þreytist aldrei á að harma,
aö Steingrímur var kosinn forseti samein-
aðs þings, hafa þannig lyft tveim mönnum
í ráðherrastól, fyrst Jóni og nú Steingr.
Hermann Jónasson verður landbúnaðarráðherra og
mun auk þess fá einhverjar smærri
sporslur. Fær hinn mikli sigmaður
þannig minnstu sylluna í Heiðnabergi í
sinn hlut.
Eysteinn Jónsson verður fjármáiaráðherra. Uröu harðar
deilur milli flokkanna um þaö embætti,
því hvorugur vildi taka það að sér! Fram-
sókn hlaut þó aö hlýöa, enda fer ekki illa
á því aö Eysteinn taki við fjármálunum
eftir að eymdin hefur tekið bólfestu í
ríkissjóöi.
Ólafur Thórs verður utanríkis- og sjávarútvegsmála-
ráðhcrra, og munu Framsóknarmenn telja
þaö nokkra sárabót aö hafa hann sem
óbreyttan ráðherra í stjórn þar sem Fram-
sókn hefur forustu! !
Bjarni
Benediktsson veröur dóms- og menntamála-
ráðherra og getur því vakað yfir því hér
eftir sem hingaö til að haldið verði áfram
á braut réttarofsókna. Hins vegar mun
hann l.ta á það þungt persónulegt áfall
að vera nú sviptur yfirstjórn markaös-
málanna.
Björn Ólafsson verður viðskiptamálaráðherra. Þaö urðu
þá niðurstöðurnar af kosningasigri Fram-
sóknar, sem ekki sízt var unninn vegna
áróðurs um viöskiptamál, áð í stjórn sem
Framsókn myndar eru viðskiptamálin
falin illræmdasta heildsala landsins!
Ekki var alveg endanlega gengið frá þessari verka-
skiptingu í gærkvöld, þannig að hugsanlegar eru smærri
breytingar.