Þjóðviljinn - 05.04.1950, Blaðsíða 3
Þ J ÖÐVILJINN
Miðvikudagur 5. apríl , 1950.
KÁTHE KOLLWITZ
Mig langar til með fáum n
jorðum að vekja athygli á
sýningu Káthe Kollwitz. Heim-
ur hennar er mjög annar en sá
er við íslendingar höfum
kynnzt undanfarna styrjalda-
tíma, list hennar er einnig bæði
að innihaldi og formi gerólík
þeirri sem við helzt þekkjum;
engar landlagsmyndir, ekkert
abstrakt form. Hún málar ekki
í litum, heldur er svartlist sér-
grein hennar, auk þess sem
hún fékkst um skeið allmikið
við höggmyndagei'ð. List henn-
ar er einföld en frábær innan
sinna takmarka, teikningar
hennar og handbragð slíkt að
hún er þar meðal fremstu snill-
inga og persónuleiki hennar
syo_ rnikill og áhrif hans svo
sterk í myndunum að þær
hljóta að gagntaka hvern á-
horfanda eða setja honum úr-
slitakosti.
Káthe Kollwitz fæddist í
Königsberg í Austurprússlandi
árið 1867. Hún fór átján ára
til listnáms í Berlín, stundaði
síðan framhaldsnám í Miinchen,
gifttst 24 ára lækninum Karl
Kollwitz og fluttist með honum
til Norðurberlínar í eitt fátæk-
asta hverfi borgarinnar og var
heimili þeirra í Weissenburg-
ergötu 25 samfleytt yfir 50
ár, frá 1891 til 1943 að það
eyðilagðist í loftárás og Káthe
Kollwitz varð að flýja úr Berl-
ín, en maður hennar var þá
dáinn fyrir þremur árum. Hún
var fyrsta listakonan sem kjör-
in var í Prússnesku listaka-
demíuna 1919. Hún ávann sér
þegar nafn með fyrstu sýning-
um sínum í Berlín, teikning-
únum í Vefarann, hið fræga
leikrit Gerhards Hauptmanns,
1898, og myndum úr bænda-
stríðinu frá dögum Lúthers
1908, en frægust varð hún
bæði innan og utan Þýzkalands
fyrir myndir þær er hún gerði
eftir fyrri heimsstyrjöldina
þegar keisaraveldið var hrun-
ið í rúst og ægilegustu afleið-
ingar styrjaldarinnar, algert
f járhagshrun, örbirgð og sult-
ur, sóttu heim þýzka alþýðu. Þá
voru myndir Káthe Kob.vltz
sendar í þúsundum eintal.a út
úr Þýzkalandi, en j ’.sundir
matarsendinga bári:;; inn í
landið í staðinn til hiiis svelt-
andi fólks. Meðan lýðveldið
lifði var hún meðal þeirra
þýzkra listamanna sem mest
voru metnir, en eitt fyrsta verk
Göbbels var að láta reka hana
úr akademíunni og banna sýn-
ingar á verkum hennar. Hún
þo’di um dagana margar raun-
ir, ef til vill hina þyngstu
tr hún missti yngri son sinn
1914 í heimsstyrjöldinni fyrri.
Var hún lengi að ná sér, en
vann síðan átján ár að minnis-
mcrki um liann, höggmyndinni
Foreldrar, sem mun vera stór-
brotnasta og mesta verk henn-
sr. Þessi lækniskona í Norður-
ber’.ín stóð daglega augliti til
'iughts við vonlausustu fátækt,
oult og sjúkdóma og styrjald-
arógnir, og þar á ofan andlegt
myrkraveldi fasismans. Ævi-
kjör Káthe Kollwitz er harm-
saga eins og líf þýzkrar alþýðu
samí-'mis og list hennar einmitr
tákn þessa djúpa harms og ó-
bærilegra örlaga því að hafi
nokkur listam. lagt alla reynslu
sína, hug sinn og hjarta í list
sína er það Káthe Kolwitz.
Hún tók á sig sorgir annarra og
bar lífsreynslu sína með tign
fram á síðustu stund. Einn vin-
ur hennar segir úm hana, eftir
að hún var flúin frá Berlín
og hafði misst aleigu sína,
að hún hafi verið eins og
drottning í útlegð. Hún dó
1945, 78 ára götnul.
Eins og allir beztu lista-
menn þráði Káthe Kolwitz feg-
urðina framar öllu. Þó að svo
megi virðast sem myndir henn-
ar flytji ákveðinn tilgang og
innihaldið sé þar aðalatriðið
vegna þess hve áhrifin eru
sterk, er misskilningur að
halda að listakonan hafi frá
upphafi gert þær í áróðurs
skyni eða vanmetið í nokkru
hið listræna form. Hún er ein-
mitt formsnillingur innan
þeirra takmarka sem hún set-
ur sér. En fegurðin er í aug-
um hennar ekki formið í ein-
angrun, heldur alltaf tengt
mnnnlegu lífi, lífi fátæklinga,
verkamanna, þeirra sem bera
lífið fram og þjást. Á upp-
vaxtardögum hennar uppgötv-
uðu einmitt fremstu skáld og
listamenn, margir vegna á-
hrifa frá mannúðarstefnu sósí-
alismans, öreigann og hvers-
Verkamenn syrgja Karl Liebkneckt.
dagslíf hans sem æðsta við-
fangsefni listarinnar. Káthe
Kollwitz varð eins og Vincent
van Gogh fyrir áhrifum frá
samtíma bókmenntum, verkum
eftir Zola, Dostojevski, Ger-
hard Hauptmann. Myndir henn-
ar taka ýmsum þróunarstigum.
Þær eru ekki upphaflega
sprottnar af félagsáhuga, það
tekur hún fram sjálf í bréfum
sínum. Hún leitar að fegurð,
og hún dregur myndir sínar
úr einföldu alþýðulífi vegna
þess að það heillar hana sem
fegurð. En eftir því sem hún
kynnist meir fátækt og þján-
ingu alþýðu og því böli sem
styrjaldirnar leiða yfir líf henn-
ar þá vaknar í brjósti hennar
sú . sannleiksást og réttlætis-
kennd sem hverju stórmenni
andans eru í brjóst lagin, og
sannleikurinn um sveltandi
börn og mæður og réttlætis-
krafan um að stríð verði aldrei
framar verður um skeið á-
sýndin á myndum hpnnar og
hún finnur til hinnar félags-
legu skyldu að berjast gegn
ógnun fátæktar og styrjalda
og helga list sína alþýðunni.
Þjóðfélagsleg byltingarkona er
hún ekki, heldur er samúðin
ríkasta einkenni hennar. Hún
ber raunir allra þeirra sem
þjást og vill umvefja þá kær-
leik sínum og ást sinni. Móðir
að vernda barn sitt fyrir sulti
eða dauða er efni sem kemur
fram aftur og aftur í mynd-
Um hennar. Þegar hún gerir
minnismerki um son sinn hegg-
ur hún í steininn mynd af konu
sem skynjar alla sorg heimsins
án þess að hafast sjálf nokkuð
að eða gera nokkra hreyfingu.
Síðustu aldursárin er Káthe
Káthe Kollwilz: ílelstríð.
Kolwitz í rauninni buguð af
sorg, hún hefur misst trú og
ást á lífinu og þráir dauðann
sem hún segist annars hafa
verið á tali við alla ævi sína,
og myndir hennar, sjá t. d.
sjálfsmyndirnar, verða æ meir
ímynd hryggðar og sorgar, en
ekki síður mannlega stórbrotn-
ar í listrænum einfaldleik sín-
um.
Þeim ber miklar þakkir sem
unnið hafa að því að fá sýn-
ingu á verkum Káthe Kollwitz
hingað heim. List hennar á
sannarlega erindi til íslendinga.
Okkur er hollt að sjá að stríð
er ekki gull og gróði, heldur
dauði, suitur og þjáning millj-
óna, höfum gott af að leggja
niður eina stund léttúðartal um
atómsprengjur og horfast í
augu við sannleikann, þótt
beiskur sé og svíði undan hon-
um.
Kr. E. A.
, I
Eddukvœði l-ll
Snorra - Edda
Eddulyklar
fást enn á áskriftarverði kr. 175.00 í
skinnbandi. — Eftir 15. apríl gildir að
eins bókhlöðuverðið, sem er ákveðið
kr. 220.00 í skinnbandi.
Kaupið Eddurnar á lága verðinu.
Eg undirrit..... gerist hér með áskrifandi að IV. flokki íslendingasagnaútgáf
unnar h.f. Sæmundar-Eddu (2. bindi), Snorra-Eddu og Vísnaskýringabindi, (4.
bindi), og óska eftir að fá bækurnar: innbundnar, óbundnar. (Strikið yfir það,
sem ekki á við.)
Litur á bandi
öekast
Svartur
Brúnn
Rauður
(Strikið yfir það
sem ékki á við).
Nafn
Heimili
Póststöð
yrwwwvw»-uwwvb
1
IsBendlngasagnaútgáfan h. f.
Túngötu 7—Pósthólf 73—Símar 7508 og 81244 Reykjavík