Þjóðviljinn - 05.04.1950, Page 5

Þjóðviljinn - 05.04.1950, Page 5
Þ J ÖÐVILJINN Miðvikudagur 5. apríl 1950. rJ »LATUM EKKI SNEFIL AF SJALFSTÆÐI KAR ÞOn AÐ KREPPI« Reykvíkingar, verkamenn, launþegar! í fyrrasumar var ég kallaður fyrir rétt út af atburðunum, við alþingishúsið 30. marz. Ég má segja að það hafi verið sjö sinnum. Rann=óknarrétturinn átti aðsetur á Fríkirkjuvegi 11. Þegar ég gekk þar um gólf í ganginum og beið þess að vera yfirheyrður í fyrsta sinn kom mér í hug hve einstaklega ráðamenn íslenzkrar auðstéttar hefðu verið stílfastir í athöfn- um, þegar þeir völdu æsku- heimili Ólafs Thors fyrir rann- sóknarlögreglu sína og breyttu dag3tofu Thorsfjöldskyldunnar í dómsal yfir íslenzku fólki. Þar sem Ólafur og bræður hans léku að gullum sínum, brúðum og bangsum, lærðu faðir vorið og fleira gott, skálma nú lög- reglumenn og lærisveinar í sakamálum breiða ganga. Þeir æfðustu skella hurðum svo fast að hriktir í, æsa sig upp og reyna að vekja ótta og virðingu fyrir húsakynnum réttlætieins og handhöfum dómsvaldsins. ★ Thorsfjöldskyldan er löngu flutt úr þessu húsi og eitt sinn lét Ólafur Thors þess getið að það hefði verið fyrir fátæktar sakir. En sannleikurinn er sá að það var þar ekki lengur pláí's nema fyrir leikföngin. Bangsarnir og brúðurnar fylla þar alla sali, og þegar Thors- fjöldskyldan og fylgifé hennar, íslenzka borgarastéttin uggir um völd sín og gróða vegna samtaka alþýðunnar, þá er kippt í þræðina sem liggja frá heimilum auðstéttarinnar að Fríkirkjuvegi 11 og brúðuleik- húsið sett í gang. Þegar hag- ræða þarf völdunum, og auka gróðann eða hylma yfir með lögbrjótum úr auðstéttinni, er líka kippt í þræðina, sem liggja á Fríkirkjuveg 11 og tilkynnt, að nú eigi ekkert að heyrast í brúðunum, og bangsarnir að þegja. Síðaitti stóri leikurinn sem settur var á svið á æskuheimili Ólafs Thors eru réttarhöldin útaf gestaboðinu mikla 30. marz í fyrra. Öll þessi réttarliöld bera á sér einkenni sektarinnar. Ekki sektar þeirra, sem kallaðir eru fyrir og dæmdir, heldur hinna, sem stjórna yfirheyrslun um og dæma. Þeir sem sök eiga á því að grjóti og mold var kastað að hvítliðasveitunum við Alþingishúsið í fyrra vita það ofur vel að þótt þeir ráði dóm- um yfir okkur, sem þar vorum staddir, bíða þeir sjálfir ann- ars dóms, ekki fyrir skítkastið eitt, heldur alvarleg afbrot. Þeir bíða dóms fyrir glæpinn, sem þeir frömdu 5. okt: 1946, þegar þeir seldu iandsréttindi Islendinga með Keflavíkursamn ingnum. Þeir bíða dóms fyrir glæpinn, sem þeir frömdu, þeg- ar þeir undirrituðu Marshall- samninginn og innlimuðu ís- land í kreppusvæði Bandaríkja- auðvaldsins. Þeir bíða dóms fyrir samþykktina, sem gerð var á Alþingi 30. marz í fyrra, þegar ísland var innlimað í hernaðarkerfi Bandaríkjanna og yfirlýsing Alþingis um ævar- andi hlutleysi Islendinga í ófriði var fótum troðin. Þjóðin hefur nii á 4. ár búið við Keflavíkursamninginn. Þótt allt hafi verið gert, sem unnt hefur verið til þess að leyna okkur því sanna um fram- kvæmd han;, erum við þess nú vísari að með Keflavíkursamn- ingnum átti sér stað raunveru- legt afsal landsréttinda, að þar hefur hreiðrað um sig herra- þjóð, sem fyrirlítur Islendinga og velur þeim verkin, sem í Bandaríkjunum eru talin hæfa lægri manntegund. Á sama tíma, sem tollar og skattar sliga íslenzkan almenning og nauðsynjavarningur er af skorn um skammti, fær herraþjóðin á Keflavíkurflugvelli, óátalið af ÍJlenzkura valdhöfum, að brjóta íslenzk lög, flytja inn tollfrjáls- ar vörur að vild, reka svartan markað í stórum stíl og upp- taka húsnæði fyrir íslenzkum mönnum, meðan þeir sjálfir búa í hermannabröggum. Hér er þó aðeins fátt nefnt af lög- brotum þeirra. Þessi yfii’troðsla á íslenzkum lögum gerist með vitund og vilja dómsmálaráðherrans, Bjarna Benediktssonar, eem réði dómunum útaf 30. marz. íslenzkur almenningur er nú tekinn að finna áhrifin af Marshallsamningnum — ame- ríska kreppan er að skella yfir ísland með öllum sínum þunga. Því var logið að þjóðinni að Marshallaðstoðin svokallaða samt aðildinni að samningnum, mundi skapa Islandi öruggan efnahagsgrxmdvöll, ti’yggja markaði, tryggja endurnýjun atvinnutækjanna, og nýbygg- ingu í stórum is.tíl. Og íslenzku ráðhexraflónin voru látin semja óskalista yfir gjafimar, sem þeir vildu fá að westan. Gjafirnar eru komnar, en það eru ekki þær gjafir, sem ráðherraflónin báðu úm, heldur eru það hinar sígildu gjafir auðvaldsins: Tvær gengislækk- anir með stórhækkuðu verðlagi, atvinnuleysi og markaðshrun. Innganga Islands í Atlanz- haf íbandalagið var staðfesting á uppgjöf íslenzku leppanna gegn kröfum ameríkumanna og viðurkenning á fullri heimild þeirra til þess að nota Island sem ódulbúna herstöð. Nú er Bjami Benediktsson floginn á fund í Evrópuráði, Bjarni mun sennilega þykja þar hlutgengur nú, eftir að hafa dæmt 20 landa sína í nálega 10 ára fangelsi samanlagt, fyrir að halda fram málstað þjóðar sinnar. ★ Fyrir glæpi sína bíða land- sölumennirnir nú dóms. Með hverjum mánuði sem líður er ;ekt þeirra augljósari og að sama skapi eykst ótti þeirra. Þeir hugga sig við þá von að fólkið muni gleyma, en sú von mun bregðast þeim. Það er satt, að stór hluti þjóðarinnar liefur verið of lengi að sjá í gegnum moldviðrið, sem borgarablöðin hafa þyrlað upp og með því látið fleka sig til þess að ljá Ameríkuleppunum kjörfylgi. En reynsla fólksins mun verða dýr og hún mun kenna því mikið — sá læi’dómur mun leiða til þyngsta dóms, sem íslenzka þjóðin getur fellt yfir þeim mönnum, sem hafa svikið hana. Við skulum hinsvegar gera okkur þess ljósa grein að hræddir menn og sekir eru hættulegir. Við sáum það 30. marz í fyrra hvernig ótti ame- ríkuleppanna leiddi þá til flónskulegra fólskuverka. I ofboði buðu þeir út þúsund manna liði. Buðu okkar niður að Alþingishúsi, töluðu ekki við okkur aukatekið orð en réðust eíðan að okkur með kylfum og gasi. Framkoma æðstu manna lögreglu- og dómsmála í land- inu, lögreglustjórans og dóms- fyrra eru táknandi fyrir hugar- ástandið hjá hinum seku mönn- um. Lögreglustjórinn kallar á hvítliðana sem voru í þinghús- inu, brýixir þá til atlögu og segir: Fylgið mér! Sjálfur verð ur hann eftir inni, þegar hann hefur hleypt óðum skrílnum út. Gasinu lætur hann kasta án að- varana og hefur ekki meira vald á mönnum sínum en svo, að þeir gengu berserksgang það sem eftir var dágs og köstuðu gasi þar sem þeir sáu fleiri en einn mann á ferli í miðbænum. — Dómsmálaráð- herrann skríður á fjórum fót- um upp í bifreið sína, sem þó er traustlega varin vopnuðum lögregluþjónum og flýgur í sjúkraflugt'él til Bandarikjann t strax um kvöldið. Þar kiagar hann þjóð sína, í ræðu, sem hann flytur öllum heimi, fyrir að hafa kastað I Alþingishúsið í Reykjavík. Málsmeðfei’ðin öll útaf 30. max’z í fyrra mótast af ótta, en hún ber líka 'á sér úthverfu hans, hið fasistíska smetti. Úr hópi þúsundanna sem kröfðust þjóðaratkvæðis eru tíndir út 24 menn, sekt þeirra er hvorki meiri nó minni en annarra, sem ráðizt var á og báru hönd fyrir höfuð sér. Það er leitað með logandi Ijósi að átyllu til þess að finna sök hjá okkur, sem vor um fulltrúar verklýðshreyfing- arinnar þennan dag. Samkvæmt lögum er enga sök að finna. Hlutskipti mitt var að tilkynna því fólki sem fulltrúaráð verk- lýðJfélaganna og Dagsbrún hafði boðað til mótmælafundar, úrslit mála. Ég sagði einungis frá staði’eyndum, en sö’kurn þess að ekki þótti á þeim haf- andi voru fengin til ljúgvitni sem sóru það að ég hefði sagt: „Það skal verða tekið á móti þeim þegar þeir koma út“. 4 vitni bera það eindregið að þessi orð hafi ég aldrei talað. En réttarvitund þeirra, sem að dómunum istanda telur mig eiga að sæta 18 mánaða fangelsi fyrir störf mín þennan dag og gera sér þá sennilega vonir um að sú betrunai’húsvist muni lxafa slík áhrif, að ég hætti að segja fóiki frá staðreyndum. En ósköp er hætt við að lexían endist mér ekki nema í 18 mánuði. Missi kosningaréttar okkar fjögurra veit ég að þið munið jafna við hvei’jar kosn- ingar héðan í frá og kjörgengi okkar í samtökum alþýðunnar verður ekki af okkur tekið með iHtéttardómi. En eðli þessara stéttardóma á sér dýpri rætur. Þeir eiga að sýna hinum amerísku yfirboð- urum hversu trúir þjónar þeirra á íslandi eru. I dyggðalaun mæna þeir eftir Marshallbeini. Dómaniir eru líka til þess felld- ir að skapa grundvöll að frek- ari ofsóknum. Þessvegna enx þeir hnefahögg í andlit verka- lýðs og annarrra frjálslyndra manna. Þeir eru inngangur að frekari íhlutxm amerísku heims- valdasinnanna hér á landi, þeir eru upphaf að skipulögðum at- vinnuofsóknum, sem eiga að miða að því að brjóta niður varnir fólksins og tvístra verk- STEFÁN ÖGMUNDSSON lýðshreyfingxmni, þeir eiga að hræða frjálslynda menn frá að segja meiningu sína. Það er enginn eðlismunxu’ á því þegar auðmannastéttin dæmir okkur í fangelsi eða þegar hún ræðst á lífskjör okkar, það er aðeins Etigmunur. Hvortveggja eru árásir af hendi manna, sem hafa auðsöfnun að leiðarljósi og völdin að vopni. Það er barátta við yfirstétt, sem nú aftur er á góðum vegi með að gei'a þjóð- félagið að þrældómshúsi og sveltiklefa fyrir launastéttirnar og fangelsi fyrir alla frjáls- lynda menn. Löggjafar og dómsvald hefur lítil klíka þess>- arar yfirstéttar í sinni- hendi, og leikur i;ór að mönnum einsog sakadómara, Valdimar Stefáns- syni, líkt og væru þeir peð á skákborði. ★ Afturhaldsflokkarnir höfðu tvö gestaboð á síðastliðnu ári. 30. rnarz var það fyrra, þá voru gestii’nir kvaddir með kylfum og táragasi og nokkrir þeirra sem misskildu gestrisnina dæmd ir í tugthús. Síðara gestaboðið voru al- þingi:kosningarnar í haust. Þar voru framreiddar ilmandi kosn- ingalygar um öryggi, atvinnu og föðurlega forsjá hinna á- byrgu lýði’æðisflokka. Nú hafa kjósendur verið kvaddir í ann- að sinn, ekki með kylfum lög- reglunnar, heldur með vendin- um góða: hótun um skort, ekki með amerísku táragasi, sem svíður í augu, lieldur með ame- ríski'i auðmýkingu sem brennur í hjarta. Hinir miklu gestgjafar eru nú að halda daginn hátíðlegan niður á Alþingi, þeir eru að framlengja söluskattinn og aðra þá tolla og skatta, sem þeir sögðu að gengislækkunin ætti að korna í staðinn fyrii'. Þessi gjafaböggull verður senni lega úfbúinn frá neðri deiid nú í nótt og hefur inni að halda 60 milljón króna skatfcarán á almenning. ★ F.ins og áþján Dana á íslandi hélt þjóð okkar niðri í efnalegu og menningarlegu tilliti, unz hún velti valdi þeirra, þamxig er nú farið högum íslenzkra Framhald á 7. síðu. Ræða Stefáns Ögmundssonar á Iðnólundmum 50. marz s.I. a- málaráðherrans 30. marz í

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.