Þjóðviljinn - 15.04.1950, Blaðsíða 8
Vökulögin nýju:
Aldrei farpna en nú að samþykkja 12
sfynda hvíldartíma togarasjómanna
„Aldrei heíur það verið meiri nauðsyn en nú
að lögfesta 12 tíma hvíldartíma á togurum”, segir
Áki Jakobsson í nefndaráliti um vökulögin nýju.
Sjávarútvegsnefnd neðri deildar hefur klofnað um
málið. Fulltrúar íhaldsins og Framsóknar, Pétur
Ottesen, Sigurður Ágústsson og Gísli Guðmundsson,
leggja til að það verði fellt, en Finnur Jónsson er
nú loks orðinn samþykkur því, en skilar þó sér-
áliti! í nefndaráliti Áka segir svo:
„Frv. það, sem hér liggur
fyrir, var fyrst flutt á Alþingi
1942 (sumarþinginu) af þm.
Sósíalistafl. þáv. 2. landsk.
þm. Isleifi Högnasyni. Frumv.
var þá vísað til sjávarútvegs-
nefndar, en var ekki afgreitt úr
nefndinni og dagaði uppi á þing
inu. Árið 1942 var allur togara
Pétain-málið
tekið upp
Aðstandendur Pétains mar-
skálks hafa tilkynnt, að þeir
ætli að rejma að fá mál hans
aftur tekið fyrir af dómstólun-
um, — þykjast hafa í höpdum
sér ný gögn er sanni að dóm-
urinn yfir honum hafi verið
mjög á hæpnum forsendum
byggður. — Pétain var forsæt-
isráðherra í Vichy-stjórninni.
Hlaut hann fyjrir það dauðadóm
eftir stríðið, en seinna var þeim
dómi breytt í æfilangt varð-
hald. Hefur Pétain verið í haldi
á smáey einni í Miðjarðarhafi
síðan 1945. Hann er nú 94 ára.
184 dðildir ii SVFl
164 félagsdeildir hafa rétt til
að senda fulltrúa á ársþing
Slysavarnafélags Islands, en
það hefst á morgun með guðs-
þjónustu í kapellu Iláskólans.
Fyrsti þingfundurinn fer fram í
I. kennslustofu háskólans en
síðan mun þingið halda áfram í
Tjarnarkaffi.
flotinn á ísfiskveiðum, en meiri
hluti háseta dvaldi í landi á
meðan á siglingu til Englands
stóð, en liún tók venjulega 10
daga. Af þessu leiddi, að þau
óeðlilegu fyrirmæli gildandi
laga, að hásetar á botnvörpu-
skipum skuli vinna í 16 klst.
á sólarhring, eftir að verkafólk
í landi var almennt farið að
vinna í 8 klst. á sólarhring,
urðu ekki til eins mikils baga
og síðar kom fram. Veiðiferð-
irnar stóðu í allt að 14 daga*,
og þótt það væri erfið skorpa
og jafnvel hættuleg heilsu
manna, voru menn þó öruggir
um að fá um 10 daga hvíld,
þeir sem heima biðu, og miklu
hægari vinnu hinir, sem sigldu.
Þegar frv. þetta var upphaflega
flutt, var ekki ríkjandi nógu
almennur skilningur á þýðingu
þessa máls.
Næst var mál þetta flutt á
þingi 1946 af tveim þm. Sósíal-
istaflokksins, þeim Hermanni
Guðmundssyni og Sigurði
Guðnasyni. Frv. náði þá enn
ekki að verða afgreitt á þing-
inu, en sjávarútvegsnefnd Nd.
sem fékk málið til meðferðar,
afgreiddi það þó. Afgreiðslan
varð sú, að meiri hl„ þeir Sig-
urður Kristjánsson og Pétur
Ottesen, fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins, og Skúli Guðmunds-
son, fulltrúi Framsóknarflokks-
ins, lýstu sig andvíga málinu
og lögðu til, að frv. yrði fellt.
Finnur Jónsson, fulltrúi Alþýðu
flokksins, lýsti yfir því, að hann
væri ekki við því búinn að taka
afstl'ðu til málsins, en fulltrúi
Hvaða ríkisstjárii leyf&i aS
ÞjéSwerjHii væru seldir
Gylfi @g Kári?
Engin opinber tilkynning hefur enn verið gefin út
um sölu .,::áputo.garanna“, Gyifa cg Kára, þannig að
ekiki er vitað hvernig henni var háttað. Hins vegar á
almenningur heimtingu á því að fá að vita hvernig á
því stendur að Þjóðverjum eru seld íslenzk sldp til að
stunda samkeppni við Islendinga á íslenzkum fiskimið-
um. Þjóðviljinn væntir þess að opinberir aðiijar svari
eftirfarandi spurningum:
1. Hvaða ríkisstjórn gaf leyfi til að togararnir
væru seldir úr landi? Var það ef til vill
„fyrsta ríkisstjórnin sem Alþýðuflokkurinn
hefur myndað“?
2. Með hvaða skilmálum voru togararrJr seldir
Og hvert verð fékkst fyrir þá?
Sósíalistaflokksins, Áki Jakobs-
son, lagði til, að frumvarpið
yrði samþykkt.
Meðan málið lá fyrir þinginu
1946 var það mikið rætt meðal
sjómanna á togaraflotan-
um, og kom þá í ljós, að áhugi
var mjög mikill og alm. fyrir
því að lögfesta 12 tíma hvíldar-
tíma á togurunum. Þessi mikli
áhugi kom og frairr í því, að
um 400 starfandi togarasjó-
menn sendu Alþingi áskorun
um að samþykkja frv. Eins
og áður er sagt, dagaði frv.
þetta uppi á þinginu 1946.
‘I þriðja sinn var mál þetta
borið fram á þinginu 1947 og
þá af hinum sömu tveim þing-
mönnum Sósíalistaflokksins, en
fluttu frv. 1946. Enn var máli
þessu vísað til sjávarútvegs-
nefndar Nd„ sem afgreiddi það
þannig, að meiri hlutinn, full-
trúar Sjálfstæðisflokksins, þeir
Sigurður Kristjánsson og Pét-
ur Ottesen, fulltrúi Framsóknar
flokksins, Halldór Ásgrímsson,
og fulltrúi Alþýðuflokksins,
Finnur Jóngson, lögðu til, að
frv. yrði vísað til ríkisstjómar-
innar gegn loforði hennar um
að athuga málið sjálf eða skipa
nefnd til þeirrar athugunar.
Minni hlutinn, fulltrúi Sósial-
istaflokksins, Áki Jakobsson,
lagði hins vegar til, að frv.
yrði samþykkt óbreytt. Var
málið síðan afgreitt í deildinni
þannig, að þingmenn Sjálfstæð-
isflokksins, Framsóknarflokks-
Framhald á 6. síðtf
t
nýjan samning um
kaup og kjör
Þar.n 12. þ.m. var undirritað-
ur nýr kaupsamningur milli
Félagsins Skjaldborgar og Fé-
lags ísl. iðnrekenda.
Samkvæmt hinum nýja samn-
ingi liækkar grunnkaup sveina
og jfressara úr kr. 160,00 í kr.
177,00 á viku, og grunnkaup
fullgildra aðstoðarstúlkna úr
kr. 362,00 í kr. 400,00 á mán-
uði. Nemur þessi hækkun um
10,5%. Allir ákvæðisvinnutaxt-
ar hækkuðu um 10%. Samning-
urinn gildir frá 15. apríl og
rennur út án uppsagnar sam-
tímis og núgildandi samningur
Iðju, félag: verksmiðjufólks og
Fólags ísl. iðnrekenda, næst
þegar sá samningur gengur úr
gildi vegna uppsagnar.
Saumastofa verksmiðjuútsöl-
unnar Gefjun — Iðunn undir-
ritaði samskonar samning við
Skjaldborg þann 14. þ.m. —
Starfsmaður Fulltrúaráðs
verkalýðsfélaganna, Guðmund-
ur Vigfússon, aðstoðaði Skjald-
borg við eamningana.
þlÓÐVILIINN
.
5. erindi um frelsisbaráttu
nýlendujijéðanna verður á
morgun kl. 2 e.h. á Þórsg. 1
Magnús Torfi Ölafsson blaðamaður flytur 5. erindi
sitt um frelsisbaráttu nýlenduþjóðanna á morgun kl. 2
e.h. á Þórsgötu 1 (salnum). Erindi þetta fjallar um
barátt'u nýlenduþjóðanna í Afríku. — Öllum heimill
aðgangur.
Mótmæiaíundir í Höfn vegna nær-
verá ameriskii hernaðarflugvélanna
Fjölmennir fundir voru í gær haldnir í Kaupmanna-
hofn toil að mótmæla því, aö Bandaríkjamenn hafa
fengið að gera Kastrupflugvöll að bækistöð fyrir stóra
sveit hernaðarflugvéla undir því yfirskyni, að þær eigi
aö leita að flugvél þeirri, sem fyrir einni viku hvarf á
flugi yfir Eystiasalti.
Lögreglunni var sigað á
þessa mótmælafundi, og hand-
tók hún 7 menn. Málið var
einnig tekið fyrir í danska þing
Tugmilljéna
„eignaleysingjar“
I sambandi við frumv. á Al-
þingi og tillögur í bæjarstjórn
um að reyna að finna bæjar-
stæði Ingólfs Arnarsonar, (sem ,
talið er að hafi verið ofan Aðal
strætis) og kaup á svæðinu er
bærinn hefur staðjð á (ef talið
verður að hann finnist) sagði
borgarstjóri í fyrradag af kaup
á Grjótaþorpinu myndu kosta
tugi milljóna. Eru ekki Silli og
VaUIi aðaleigendur lóðanna þar,
og eru þeir ekki eignalausir
menn? Og vesalings Reykjavík-
urbær er svo „eignalaus“ að
hann get'ur ekki keypt eignir
hinna. „eignalausu manna“. —
Mikið er það tugmilljóna eigna-
leysi!
Fjöltefli
Ásmundar 4:6
1 fyrrakvöld fór fram fjöl-
tefli að Þórsgötu 1. Ásmundur
Ásgeirsson tefldi við tíu menn
úr meistaraflokki og 1, flokki
Taflfélags Reykjavíkur. Leikar
fóru svo, að Ásmundur vann
4 skákir en tapaði 6. Þessir
menn unnu:. Freysteinn Þor-
bergsson, Björn Jóhannesson,
Jón Pálsson, Birgir Sigurðsson,
Arinbjörn Guðmundsson og Þór
ir Ólafsson. — Ásmundur vann
Svein Kristinsson, Ingvar Ás-
mundsson, Jón Einarsson og
Karl Þorleifsson.
Framvegis verða æfingar T.
R. að Þórsgoku 1 á fimmtudags-
og laugardagskvöldum.
inu og olli þar hörðum umræð-
um. — Samskonar mótmæla-
fundir hafa verið haldnir í Wi-
esbaden.
iBandaríkjamenn hafa til-
kynnt, að þeir muni halda á-
fram leitinni að hinni týndú
flugvél minnsta kosti 20 daga
ennþá. Ekki höfíu þeir í gær
svarað mótmælum Svía út af
því, að bandarískar hemaðar-
flugvélar flugu yfir sænskt
bannsvæði núna um daginn,
eins og skýrt var frá í frétt-
um. ' —
Þoka var yfir Eystrasalti í
gær.
Leggur til, að
upphafsstafir
verði lisfa-
békstafir
Á fundi neðri deildar Alþing-
is í gær var framhald 3. umr.
um frumvarp Sigurðar Bjarna-
sonar um listabókstafi flokk-
anna. — Ján Pálmason bar
fram breytingartillö'gur við
frumvarpið þar sem meðal ann-
ars er lagt til að upphafsstafir
flokkanna verði listabókstafir
þeirra, (A- Alþýðuflokkur, F-
Framsóknarflokkur, S- Sjálf-
stæðisflokkur), nema að því er
snertir Sósialistaflokkinn, hann
fái listabókstafinn C. Einnig
leggur Jón til, að „frambjóð-
endur á landslista þingflokks,
sem hlýtur uppbótarþingsæti,
komist að eftir þeirri röð, sem
þeir eru í á landslista. Er þetta
gjörbreyting á kosningalögun-
um, þar sem núverandi fyrir-
komuiag á úthlutun uppbótar- .
þingsæta vrði afnumið. — Um
ræðunni um málið var enn frest
að,