Þjóðviljinn - 23.04.1950, Qupperneq 3

Þjóðviljinn - 23.04.1950, Qupperneq 3
ísunnudagur 23. apiil 1950 Þ J Ó ÐVIUIN N V iðreisnarkartöflur. ' Ráðamenn hins unga ís- lenzka lýðveldis hafa boðað þjóð sinni mikinn fögnuð. Til landsins eru komin 1000 tonn af viðreisnarkartöflum, evo að almenningur getur enn um sinn borðað kartöfi- ur með fiskinum, þótt feit- meti sé að verða fjarlægur munaður og kaffipakkinn hartnær eins dýr og brenni- vínsflaskan fyrir stríð. Já, hvílík mildi og náð, og auk þess vöru kartöflukaup'.a hagkvæm viðskipti, og geng- ur slíkt ekki kraftaverki næst þegar öll önnur viðskipti verða æ óhagstæð- ari með hverjum degi sem líður. Vestur í Bandaríkjun- um hefur ríkisrtjórnin þann sið að kaupa kartöflufram-. leiðsluna af bændunum til þess að halda verðinu uppi — svo að lögmál frjálsrar verzlunar, framboð og eftir- spum, þessir hyrningarstein ar vestræns skipulags, komi ekki til framkvæmda. Þeim kartöflum sem ekki Eeljast á þessu háa verði er safnað saman í kartöflufjöll, og vísindamenn Bandaríkjanna hafa af hugviti sínu og snilld fundið upp vö'kva sem gera kartöflurnar óhæfar ti\ manneldis og eyða þeim á undraverðan hátt. Slíkur.i hátindum ná vísindin þar sem þau eru frjáls. Og at- vinnuleysingjunum fjölgar, og næringarskorturinn verð- ur æ almennari, og kartöflu- fjöllin hrúgast upp og gro.tna niður, aðeins til vei- lystingar rottum og öðrum dýrum merkurinnar. Þar til hinir tignu ráðamenn hinnar stoltu íslenzku þjóðar fengu leyfi til að ganga í eitt fjall ið og forða undan eyðingar- 1 ■ >>v. vökvum og rottum 1000 tonn um handa fátæku fólki á hjara veraldar þar sem makarín fæst aðeins fyrir náð og kaffipakkinn er á- móta dýr og brennivínsflaska á kreppuárunum fyrri. ★ Sú var tíð að stoltið var dýrmætasti eiginleiki íslend- inga. Því sárar sem skort- urinn svarf að þjóðinni þeim mun hvassar yddi einstak- lingurinn metnað sinn. Það birtist ekki ævinlega í hljóm miklum orðum, heldur sam- anbitnum tönnum. Beining- ar, ölmusa, þurfamaður — sárari hugtök hafa aldrei verið til á íslandi. Og það er ekki ýkjalar.gt síðan þessi hugtök voru daglegur veru- leiki, við þekkjum öll fólk sem hefur horfzt í a-ugu við skortinn. Frásagnir um of- læti hins snauða hafa verið þjóðinni dýrgripir, efni ljóða og sagna sem hituðu og brýndu. En á sjötta ári hins endurreista íslenzka lýðveld- is, i þann mund sem þjóð- leikhús er vigt, eru þjóðinm boðnar viðreisnarkartöflur. ★ En þetta eru hagstæð við- skipti, segja forustumenn lýðveldisins, viðreisnarkart- öflurnar kostuðu aðein3 tæpa 10 aura !3ekkurinn. Já, þetta eru hagstæð viðskipti. Framleiðsluvörur íslendinga eru einnig að verða að fjöll- imi eins og kartöflurnar -fyrir vestan haf, og kannski fáum við senn viðreisnar- vökva til að eyða þeim. Freðfiskurinn er óseljanleg- ur og íslenzk skip hafa þá iðju að flytja birgðir síðasta árs úr einu landinu í annað. ísfiskmarkaðurinn þrengiit æ og er talinn muni hrynja með vorinu á nýjan leik; fyrsta sumardag seldi ís- lenzkur togari fyrir lægsta verð sem fengizt hefur í 20 ár, að sögn Morgunblaðsins. Síldarmjöl er illseljanlegt að sögn sjávarútvegsráðherr- ans. Saltfiskmarkaðurinn er að yfirfyllast. Gjaldeyristekj irniar rýma, innflutningur- inn minnkar, iðnaðurinn lam ast, atvinnulej'sið eykst, vöruverðið hækkar. — En í staðinn fáurn við 1000 tonn af viðreisnarkartöflum. Eru það ekki dásamlega hagstæð viðslcipti ? ★ Því þetta eru hin raun- verulegu viðrkipti. Viðreisn- arkartöflurnar kosta meira en 10 aura sekkurinn. Þær eru sérstök umbun fyrir marsjallstefnuna, þá stefnu sem fjötrar okkur við heim -*yj „offramleiðslunnar“ og færir | okkur sölutregðu, gjaldeyris skort, gengislækkanir, dýr- tíð, atvinnuleysi og skort. Það eru sérstök verðlaun fyrir þe_i:a stefnu að ráða- menn lýðveldisins hafa feng- !ð aðgang að hinum frið- íielgu. birgðum rottunnar og eyðinga,rvökyanna, kartöflu- fjö'lunum bandarísku. Við- reisnarkartöflurnar kosta ckkur frelsið til að vinna, framleíða óg kaupa fulla verði að eigin geðþótta. Eru það ekki hagstæð viðskipti? Hvernig skyldi þeim vera innanbrjósts kartöfluráðherr unum í viðreisnarstjórninni ’ Hverjar skyldu hugsjónír þeirra vera, hverjir vöku- draumarnir um framtíð ís- lenzku þjóðarinnar? Jörðni er að gliðna undir fótum þeim, allar aðgerðir þeiri'a auka aðeins öngþveitið, og þoð verður ekki séð að þeir hafi á takteinum nein önnur „jákvæð“ úrræði ea treysta æ meir á náð vina sinna í því landi sem stoltir fátæklingar eignuðu sér eitt sinn í örbirgð sinni, Vínlandi hinu góða sem íslendingar fundu forðum! Þaðan fáum við nú að ,,gjöf“ hveiti, fóð- urbæti, hrísgrjón, bauniv, tóbak, smjörlíkisolíur, áburð. Og þaðan fáum við nú við- reisnarkartöflur. Er það þá draumsjón þei:sara manna að hlutverk íslenzku þjóðarinn- ar ’sé samkeppni við banda- rískar rottur? Og gera þeir sér framtíðarvonir um sigur í þeirri viðureign ? - A 'rvyua fim — «« - —i—“i—.^>i~rnri<~»rTt«^runj»_ Hér fer á eftir ein af skák- um nýja Reykjavíkurmeistar- ans með skýringum hans sjálfs: ; ‘ ÍJrslit Reykjavíkurmóts 1 6.- 3. 1950. Hvítt: Guðm. S. Guðmundssori. Svart: Eggert Gilfer. 1. d2—d4 d7—da 2. Rgl—13 Rg8—f6 3. c2—c4 e7—eG 4. Rbl—c3 Rb8—d7 5. Bcl—g5 B1'8—e7 6. e2—e3 0—0 7. Ddl—c2 — iSkákfræðin telur þennan leik jafnframt og 7 jastan. Hal—cl sterk- 7. c7—c6 iVenjuiegra er 7. c7—c5 aneð um það bil jöfnu tafli. 8. c4xd5 — —. Þessi uppskipti eru mjög tíðkuð í stöðum líkri þessari vegna þess að það gefur hvítum hættu lausa stöðu en vinningsmögu- leika er fram í sækir. 8. ---- cGxdð Ekki eins venjulegt og 8. -- e6xd5. Hinn gerði leikur hefur þó þann kost að minnihluta árás hvíts er ekki möguleg. 9. Bfl—d3 h7—hfi Rangur leikur sem veikir að óþörfu kóngsstöðu svarts. 10. Bg5—hl a7—a6 Nauðsynlegur leikur til þess að hindra ridara hvíts í að komast til b5. 11. 0—0 Rf6—e8 Svartur hefði heldur átt að gera drottningarvænginn hættu lausan með 11. — — b7—b5, 12. ----- Be8—b7 og 13. • — Ha8—c8. 12. Bh4xe7 DdSxe7 13. Hal—c.1 ------ Nú fær hvítur yfirráð yfir einu línunni sem opin er á borðinu. C línunni sem meðal annars gerir út um úralit skákarinnar. 13. ---- f7—f-5 Hér var betra að leika Rd7—b6 eins og framhaldið ljórlega sýnir. 14. Rc3—a4 b7—b6 Nauðavörn en staðan er þegar orðin erfið fyrir svartan. 15. Rf3—e5! Rd7xe5 16. d4xe5 ------ Hvíta peðið á e5 er orðið stór- veldi, það varnar riddaranum útgöngu. 16. ---- De7—b7 17. Dc2—b8 b6—b5 18. Ra4—c5 Db7—b8 19. Db3—c3 Ha8—a7 20. Dc3—d4 ------ Nú getur hvíta drottningin komizt í sóknarfæri á kóngs- vængnum líka sem er mjög mikilvægt, þareð átökin drottn- ingarmegin hafa nú stöðvazt, vegna þess að hvítur hef- ur nú náð því takmarki sem að var keppt: 1. að veikja svörtu peðin drottn- ingarmegin, 2. að geta hvenær sem er tvöfaldað hrókana á c línunni sem mundi fyrr eða síðar leiða til taps fyrir svart. 20. ----- g7—g5 Svartur hyggrt að rétta hlút sinn með sókn kóngsmegin. 21. f2—f4 g5xf4 Rangur leikur. Svartur hefur ekki efni á að opna taflið vegna hinnar slæmu stöðu riddarans og biskupsins. Sjálfsagt var að leika 21.----g5—g4 og gera með því hvítum eins erfitt og mögulegt er. 22. ----- Hf8—f7 Sennilega bezti leikurinn af þeim 3 sem til greina komu. 22. — — Hf8—f7 23. Hf4—h4 ------- Mikilmægur tímavinningur fyrir hvítan, peðið á h6 þarf nú að valda. 23. ----- Hf7—h7 24. g2—g4 Hh7—g7 25. Kgl—hl Hg7xg4 26. Hh4xHg4 f5xHg4 27. Dd4xg4f Ha7—g7 Ef 27.-----Re8—g7. Þá 28. Dg4—g6 Db8xe5, 29. Hcl—fl og mát verður ekki umflúið. 28. Dg4—h5 ----- Sterkur leikur sem valdar peðið- á e5 og setur riddarann á e8. 28. ---- Kg8—fS Nú dugar 28.-------Re8—c7 ekki, vegna 29. Dh5xh6, og hótar máti með 30. Bd3—h7f Hg7xBh7, 31. Hcl—glf með máti á eftir. 29. Bd3—g6 ----- Hótar enn riddararum á eS. 29. ------------- Hg7xBg6 Riddarinn mátti ekki víkja til c7, vegna 31. Dh5xh6. Ef þá 30. ----Bc8—d7, 31. Hcl— fl+ Kf8—g8, 32. Dh5xh9 Db8xe5, 33. Bg6—h7f Hg7x- Bh7, 34. Hfl—f8 og mát. 30. Dh5xHg6 Db8xe5 31. Dg6xh6t Kf8—c7 32. Dh6—h4t Re8—fS Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.