Þjóðviljinn - 23.04.1950, Page 4
*
í> J Ó Ð V I LJÍ N N
Sunnudagur 23. apríl 1950
Þióðviliinh
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árna-
son, Eyjólfur Eyjólfsson.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skölavörðu-
stíg 19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 12.00 á mán. — Lausasöluverð 50 aur. eint,
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
Alþýðuflokkurinn og vökulögin
Vökulagamáli'ö er mjög glöggt og lærdómsríkt dæmi
®m þróun Alþýðuflokksins.
í upphafi gerði Alþýðuflokkurinn þaö mál að einum
meginþætti baráttu sinnar. Afturhaldið stóð sem veggur
gegn þvi að sjómenn fengju lágmarkshvíld og vildu halda-
takmarkalausri vinnuþrælkun aö geðþótta atvinnurek-
enda. En Alþýðuflokkurinn hélt þá málinu fram af eld-
rnóði og baráttuþrótti og geröi það að sameign allrar
alþýðu. Og að lokum varð þrýstingurinn svo sterkur að
afturhaldið bognaöi og 1921 var togarahásetum tryggð
G stunda hvíld á sólarhring meöan skip voru að veiðum.
í*að var fyrsti sigurinn í þessu rnáli. En baráttan hélt
áfram og enn hélt Alþýðuflokkurinn áfram forustu sinni,
og 1928 náðist hin upphaflega 8 tíma hvíldarkrafa. Síðar
var tilhöguninni breytt í framkvæmd þannig að 6 tíma
hvíld kom eftir hverja tólf stunda vinnu.
Með þessum árangri er lokið hinum fyrra þætti í
hinni sameiginlegu sögu Alþýðuflokksins og vökulaga-
málsins, og mun hinnar ótrauðu baráttu flokksins á þess-
um tíma lengi minnzt með þakklæti.
Þegar togaravökulögin voru sett var vinnutími i
landi aimennt 10 tímar eða lengri. Með baráttu alþýðu-
samtakanna tókst cíðan smám saman að stytta hann
niður í 8 tíma dagvinnu. En kjörin á sjónum voru óbreytt
og brátt jókst þeirri réttlætiskröfu fylgi að baráttunni
yrði haldið áfram og sjómönnum tryggð 12 stunda hvíld
á sólarhring. Sá þáttur málsins hefst á Alþingi 1942 meö
írumvarpi sem ísleifur Högnason, þingmaður sósíalista,
flutti þess efnis. En þá gerðust þau tíðindi að Alþýðu-
flokkurinn lét sér fátt um finnast, og málið dagaði
uppi í nefnd.
En baráttunni var haldið áfram. Árið 1946 fluttu
þeir Sigurður Guðnason og Hermann Guðmundsson
frumvarp um málið. Afturhaldið var þá sem fyrr alger-
lega andvígt málinu, og anduð Alþýðuflokksforsprakk-
:anna leyndi sér ekki. Finnur Jónsson ssm sæti átti í
þeirri nefnd sem um málið fjallaði lýsti yfir því að hann
iværi ekki reiðubúinn til að taka afstöðu til þess!!
Enn dagaði máliö. uppi, en mikil hreyfing hafði nú
orðið meöal sjóriianna og innan alþýðusamtakanna. Ura
400 starfandi sjómenn sendu alþingi kröfu um samþykkt
frumvarpsins. Enn var það borið fram af sömu þing-
mönnum 1947. Var þá kominn auðsær geigur í forsprakka
Alþýðuflokksins, og tóku þeir nú þann kost að láta vísa
rnálinu til ríkisstjórnarinnar til aö svæfa það og eyði-
leggja á þann hátt.
En málið verður ekki svæft. Þaö liggur enn fyrir
alþingi flutt af þingmönnum sósíalista. Og nú hefur Al-
þýðuflokkurinn lýst yfir fylgi við það. ALþýöuflokkurinn
hefur bognað á sama hátt og afturhaldið bognáði 1921
og 1928. Hann þorir nú ekki annað af ótta við baráttu
isjómanna undir forustu Sósíalistaflokksins.
Árið 1921 hafði Alþýðuflokkurinn forustu í vöku-
lagamálinu og beygði afturhaldið. Árið 1950 er Alþýðu-
flokkurinn í hlutverki afturhal'dsins og bognar. Þannig
er þróun þess flokks, svo alger er niðurlæging hans, svo
fullkomin eru svik hans. Nú reynir hann að gera undan-
hald sitt að dyggð, eins og afturhaldið gerði 1921, en
sjómenn og öll alþýða man staðreyndirnar og dregur af
Jeim réttar ályktanir.
Kartöfiuskorturinn
og áburðarskorturinn
K.S. skrifar: — „Kartöflu-
garðalandi hefur nú verið út-
hlutað í holtinu Reykjavíkur-
megin við Rauðavatn og virðist
það vera vel íallið til kartöflu-
ræktar, moldin þurr og landið
liggur vel við sól. En áburð-
arþörf er mikil því jörðin er
mögiír, en áburður er eitt
stærsta vandamáiið við alla
ræktun. Nú er helzt ókleift að
fá ’áburð með verði sem ekki
er ofviða f járhagslega. Mér
finnst nauðsynlegt að gerðar
verði ráðstafanir til að hægt
verði að nytja garðlöndin með
því að auðvelda mönnum að
afla sér áburðar í garðana,
svo virðist erlendur gjaldeyrir
af skornum skammti að ekki
veiti af að hagnýta það sem
hér getur aflazt.
. •
Sauðfé má ekki
komast að
„En það má ekki endurtaka
sig að sauðfé sé að staðaldri
í garðlandinu og eyðileggi það
sem með ærnum tilkostnaði er
unnið þar. Það var Ijót sjón
að sjá á s. 1. hausti að búið
var að naga b!öð og stöngla
kartöflugrasanna, víða langt
niður eftir leggnum. Við sem
þarna eigum hlut að máli eig-
um heimtingu á að verk okkar
sé ekki eyðilagt fyrir slóða-
skap, svo mikið er fyrir því
haft. Krafa okkar er: Hafið
fyrst og fremst girðinguna í
lagi. Og i annan stað: Sjáið til
þess að til sé nauðsynlegur á-
burcur, svo að ekki sé unnið
fyrir gig. — K. S.“
•
I biðröð við
Þjóðleikhúsið
Stj. skrifar: — „Ég var hinn
sjöundi í biðröðinni við Þjóð-
leikhúsið, þegar byrjað var
að selja „almenningi" hina 150
aðgöngumiða, sem höfðingjum
þykja ekki samboðnir, þ. e. a. s.
á 2. hanabjálka hússins. Það
var einhver óánægjutónn í þeim
fremstu í röðinni, sem ekki var
nema von, því að hin 150 sæti
reyndust vera nokkur sæti á
4. og 5. bekk hanabjálkans,
og tók ég eftir því að meðan
afgreiðslukonan var að afhenda
þá svaraði hún í símann og
lagði frá miða fyrir vini og
vandamenn, sem ekki viidu
leggja biðraðaerfiðið á sína
fínu persónu. Svo komst ég að,
en þá voru aðeins eftir sæti
til hliðar á 5. bekk, og varð
ég að láta mér það nægja,
•
Annað hvort
eða ekki
„En hvað á svona háttalag
að þýða? Annað hvort eigum
við að hafa þessa 150 miða til
sölu á frjálsum markaði, eða
þá að þjóðleikhússtjórnin ætti
að úthluta þeim sínum vildar-
vinum með hinum miðunum,
svo að fólk þyrfti ekki að
leggja á sig langar biðraða-
stöður og stimpingar fyrir
harla lítið eða ekki neitt. En
þjóðleikhússtjórnin vill k'ann-
ske ekki vera eftirbátur ann-
arra í biðraðaskipulaginu, sem
svo mjög er í tízku í okkar
annars svo mjög ferfætlings-
kennda þjóðfélagi. Mér dettur
ekki í hug að cfunda forgangs-
mennina, hvorki innundirvini
þjóðleikhússins eða aðra, en
við sem höfum erft biðraða-
réttinn þolum heldur ekki að
vera sviknir um það sem okkur
hefur verið lofað.
„Sitting pret‘iy“
„Svo kemur önnur saga. Ég
bauð kunningja mínum í eitt
bíóhúsið héma um daginn, og
pantaði þess vegna miða í
táma. Ég bað um sæti á 10.
bekk niðri og var mér svarað
í símann, að það væri í lagi.
Þegar ég sótti pöntunina, þá
vom sætin á 12. bekk uppi,
og þegar ég sagði við af-
greiðslustúlkuna, að ég ætti
engan kíkir og væri nærsýnn,
bauð hún mér tvö stúkusæti,
sem ég þáði. Þegar í stúkuna
kom, voru engin sæti, en hins
vegar brakandi kjaftastólar
fyrir aftan stúkuna, og spurði
ég þá dyravörðinn, hvort seld
væru stúkustæði, en hann
svarað því að stólarnir
væru forsvaranlegir og enginn
hefði kvartað undan þeim. —
Nú vil ég bara spyrja, er fé-
græðgi kvikmyndahússeigend-
anna takmarkalaus, því ekki
dettur mér í hug að starfs-
fólkið taki slíkt upp hjá sér
að troða í húsin fleirum en þar
geta setið? —Stj.“
★
Skipadeild SIS
Arnarfell lestar saltfisk í Faxa-
flóa. Hvassafeil er í Cadiz.
Ríkisskip
Hekla er í Reykjavik og fer það
an næstkomandi þriðjudag vestur
um land til Akureyrar. Esja er í
Reykjavík og fer þaðan næstkom
andi föstudag austur um land til
Siglufjarðar. Herðubreið fór frá
Reykjavík um hádegi í gær til
Breiðafjarðar og Vestfjarðahafna.
Skjaidbreið er í Reykjavík og fer
þaðan annað kvöld" til Húnaflóa-
Skagafjarðar- og Eyjafjarðar-
hafna. Þyrill var á Skagaströnd í
gærdag. Ármann var í Vestmanna
eyjum í gær.
Elnarsson & Zoega
Foldin er á leið til Englands
frá Palestínu. Lingestroom er í
Amsterdam.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Vestmanna-
eyjum 18.4. til Leith, Lysekil,
Gautaborgar og Kaupmannahafn-
ar. Dettifoss fer frá Hamborg
22.4. til Reykjavíkur. Fjallfoss fór
frá Reykjavík 17.4. til Halifax
N. S. Goðafoss kom til Reykjavík-
ur 21.4. frá Leith. Lagarfoss er í
Rej'kjavík. Selfoss fór frá Leith
20.4. til Vestmannaeyja og Reykja-
víkur. Tröllafoss fór frá Balti-
more 18.4. til Reykjavíkur. Vatna
jökull kom til Genova 21.4.
Fríkirkjan. Messa
kl. 2 e. h. (Ferm-
ing). — Séra Þor-
steinn Björnsson.
Laugarneskirkja.
kl. 2 e.h. Ferming.
Séra Garðar Svavarsson. Barna-
guðsþjónusta kl 10 f. h. — Dóm-
kirkjan. Messa kl. 11 f. h. — Séra
Jón Auðuns. (Ferming). Messa kl.
2 e. li. — Séra Bjarni Jónsson.
(Ferming). ------ Nesprestakali.
Messa í kapellu Háskólans kl. 2.
— Séra Jón Thórarensen. —• Óliáði
Fríkirkjusöfnuðurinn. Messa í
Stjörnubló kl. 11 f. h. Séra Emil
Björnsson.
^ I dag verða
gefin saman í
hjónaband af
séra Sigurbirni
Einarssyni, Dag
___ ’ björt Guð-
brandsdöttir og Björgvin Torfa-
son. Heimili þeirra verður á Berg
þórugötu 15A. —f 1 gær voru gef-
in saman í hjónaband, ungfrú
Ingibjörg Albertsdóttir og Sverrir
Einarsson stud. med. — Heimili
þeirra verður á Freyjugötu 37.
Nýlega hafa
opinberað trúlofun
sína, ungfrú Stéf-
anía Ingólfsdóttir,
Samtúni 20 og
Kjartan Helgason
að Unaðsdal við Isafjarðardjúp. —■
Nýlega opinberuðu trúlofun sína
ungfrú Anna Sigríður Ingólfsdótt-
ir, Samtúni 20 og Hjörleifur Guðna
son, starfsmaður hjá H/F Shell.
Gjöf tll Þjóðviljans.
Frá S. S. (6 ferðir í Vogana)
kr. 100.00
15.15 Miðdegistón-
leikar. 16.15 Út-
varp til Islendinga
erlendis: Fréttir.—
Frá vígslu Þjóð-
leikhússins. 18.30
Barnatími (Skógarmenn K.F.U.M.)
19.30 Tónleikar: „Veizla Belsaz-
ars,“ hljómsveitaryprk eftir Sibe-
lius (plötur). 20.20 Tónleikar:
Yehudi Menuhin leikur á fiðlu
(plötur). 20.35 Erindi: Þegar múr-
ar Pompei taka að tala (Júlíus
Havsteen sýslumaður). 21.10 Karla
kórinn Þrestir syngur (Söngstjóri:
Páll Halldórsson; píanóleikari: dr.
Victor Urbantschitsch). 22.05 Dans
lög (plötur). — 23.30 Dagskrárlok.
Útvarpið á morgun:
20.20 Útvarpshljómsveitin (Þór-
arinn Guðmundsson stjórnar): a)
Alþýðulög (Þuríður Pálsdóttir
svngur með hljómsveitinni). b)
Forleikur að óperunni „Martha"
eftir Flotow. c) „Die Schluchten
des Sierre" eftir Geo Linat. 20.45
Um daginn og veginn (Gisli Guð-
mundsson alþm.). 21.05 Tónleikar:
Lanciers (plötur). 21.20 Erindi:
Um kartöflur og kartöflurækt
(Gisli Kristjánsson ritstjóri). 21.45
Sjórinn og sjávarlífið (Ástvaldur
Eydal lincensiat).
Helgidagslæknir: Bjarni Jóns-
son, Reynimel 58. —- Sími 2472.
Næturvörður er í Reykjavílcur-
apóteki. — Sími 1760.
Næturakstur í nótt og aðra nótt
annast Hreyfill. — Sími 6633.
FRÍKIRKJAN.
Fermingarbörn 23. apríl.
S T Ú L K U R
Aðalheiður Sigr. Svavarsdóttir,
Hverfisgötu 53, Agnes Kjartansd.
Meðalholti 17, Bergþóra Guð-
mundsdóttir Laugaveg 153, Björg
Erla Steingrimsdóttir Grettisgötu
20C, Erna Hafdís Jóhannsdóttir
Frakkastíg 5, Guðbjörg J. St.
Viggósdóttir Laugaveg 149, Guð-
munda H. Júlíusdóttir Kamp
Knox A 2, Guðrún Guðmundsdóttir
Baldursgötu 27, Hanna Gyða
Kristjánsdóttir Barm'ahlið 6, Iris
Ingibergsdóttir Vesturgötu 65, Jó-
hanna Guðbjörg Guðbrandsdóttir
Framhald á 7. siðu.