Þjóðviljinn - 10.05.1950, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 10.05.1950, Blaðsíða 8
161 þúsund kr. söfnuðust til Sumargjafar 120 börn blntn bókaverSianii Blaðinu hefur borizt sundurlic'að RreinargerS yíir fjár- söfnun Sumariíjafar um s.l. sumarmál (svigtölurnar eru frá árir.u 1949): Merkjasala Barnadagsblaðið „Sólskin“ Skemmtanir Tekjur af blómasölu Gjafir Fánasala Ýmsar tekjur kr. 45.012,15 — 21.396,36 — 40.089,90 — '48.731,48 — 5.505,25 — 100,00 — 220,00 — 0,00 Kr. 161.057,14 (32.407,96) (15.308,50) (44.148,77) (47.526,35) (3.920,00) (1.025,00) (135,00) (186,80) (144.858,98) Árangur fjársöínunar Sum- argjufar í ár verður að teljast undraverður, sé miðað við á- stan og horfur. Safnazt hafa 16 þi’sund krónum meira en í fyrra og um 30 þúsund krón- um meira en 1948, og voru þetta þó hvorttveggja metár. Bai nadagsblaðið og merkin hafa aldrei gefið svona góðan árangur. Rúmlega ellefu hundruð börn stóðu að sölu blaðs, bók- ar og merkja. Se'du þau fyrir rúmlega 97 þúsund krónur, þar af í Grænuborg einni tæp- lega 60 þúsund krónur. Sölu- hæstir voru tveir drengir 11 og 12 ára: Gylfi ísaksson og Einar Ólafsson. (hann var hæsti r í fyrra). Þessir drengir seldu fyrir tæpar þúsund krón- ur, hvor. Bókaverðlaun hlutu 120 börn að þessu sinni, og voru bæk- urnar afhentar börnunum s.l. sunnitdag. Voru margar bæk- urnar verðmætar, sumar barna bækur, en margar fyrir ungl- inga og fullorðna, enda eru áritaðar bækur ævieign. Eftírtalin bókaforlög sýndu þá rausn að gefa Sumargjöf bækurnar til söluverðlauna: Barnablaðið Æskan, Bókfells- útgáfan, Bókaútgáfa Guðjóns Ó. Guðjónssonar, Bókaútgáfa Máls og menningar, Bókaút- gáfa Pálma H. Jónssonar, Bókaverzlun Sigfúsar Ey- mundssonar, Draupnisútgáfan. Hlaðbúð, Helgafell, ísafoldar- prentsmiðja h.f., Leiftur h.f., Lilja og Norðrí. Alls munu þessar bækur hafa verið um 5 þúsund króna virði. Sumar- gjöf vottar útgefendum verð- skuldaðar þakkir fyrir þessa raus/i. Framh. á 4. síðu. Piltur verður lyrir jeppa- bifreið — Lögregluna vantar vitni IJm kl. 13 í fyrradag varð 14 ára piltur, Aðalsteinn Birg- ir Ingólfsson að nafni, til heimilis að Mávahlíð 31, fyrir bifreið á gatnamótum Hring- brautar og Laufásvegs. Varð pilturinn fyrir talsverðum meiðslum, sem þó var ekki vlt- að í gær hvað alvarleg eru. Pilturinn var á leið niður Hringbraut á reiðhjóli, er hann mætt; jeppa-bifrmðinni L-184. Segir hann að bifreiðin hafi beygt í veg fyrir sig á gatna- mótunum, með þeim afleiðing- um að handfar.gið á vinstri hurð hennar s^akkst á kaf í vinstri upphandleggsvöðva drengsins. Við það datt hann af hjólinu, en sat fastur á handfanginu og dróst tals- verðan spöl til suðurs inn á Laufásveginn. Bílstjórinn ók drengnum á Landsspítalann og gerði foreldrudi hans aðvart um slysið, en hcfur ekki enn f f a ny Þegar genglslækkunin var samþykkt lýstu liinir vísu hagfræðingar yfir því að nú yrði h: ‘ t við Alþýðu- flokkskerfið, sífelldar tolla- og skattahækkanir, niður- greiðslur og uppbætur. En þessi vísindi hafa reynzt endileysa eins og öll hin. Tollarnir og óbeinu skattarn ir liafa aldrei verið hærri en nú, eftir gengislækkun, og niðurgreiðslur á smjör- líki hafa nýlega verið aukn- ar stórlega, eða um meira en helming, smjörlíki kostar nú í verzlunum kr. 4.22 kíló- ið, en raun\eruleg‘; verð mun vera komið yfir 10 kr. kílóið!! Tilgangurinn með þessari stórauknu nið'urgreiðslu er ekki sá að halda verðlaginu í skegjum heldur hinn, að svíkja launþega um löglegt kaup. Áætlunin er sú að láta þessar niðurgreiðslur ekki standa lengur en fram í júnímánuð, svo að nýja vísitalan hækkj sem minnst. Síðan verður smjörlíkið lát- ið hækka hömlulaust, því frá 1. júlí til áramc»;a verða engar kaupuppbætur greidd- ar, hvemig sem verðlag breytist. Því næst er hægt að greiða verð niður í des- ember til þess að koma í veg fyrir kaupuppbætur í janúar 1951! Hin mikla viðreisn Ólafs Thors er vissulega komin inn á „troðnar slóðir!“ gefið sig fram við lögregluna. Skorar rannsóknarlögreglan á stjórnanda L-184 að gefa sig strax fram hjá lögreglunni, svo og aðra þá er kynnu að hafa verið sjónarvottar að slys- inu, eða geta gefið einhverjar upplýsingar um það. Fjórða þessa mánaðar opfiaði Matthias Sigfússon málverkasýningu í Listamannaskálanum. Sýnir hann þar yfir 50 olíumálverk og er myndin hér að ofan af einu þeirra: Frá Þingvöllum. í gær höfðu selzt 9 myndir og 'um 500 manns sótt sýninguna. Sýningartíminn fer nú að styttast, sýningunni lýkur á sunnudaginn. þlÓÐVILIINN Nemendur úr balletskóla Rigmor Hanson. Fyrsta lans- r ■ h r Rigmor Hassozi og nem- endur balleiskólans sýna listdans Frú Rigmor Hanson og nem- endur úr balletskóla hennar sýna listdans í Þjóðleikhúsinu á sunnudaginn kcmur, og hefst sýningin kl. 2. e. h. Þessi fyrsta danssýning í Þjóðleikhúsinu verður. með öðrum hætti en nemendasýn- ingar þær er frú Rigmor Han- son hefur efnt til undanfarin vor. Nú sýna aðeins nemendur úr balletskóla frúarinnar, en þessi góðkunni listdansari hef- ur einnig samkvæmisdansskóla eins og kunnugt er. Danssýningin á sunnudag- inn hefst með því að frú Rig- mor dansar spánskan dans, en síðan sýna nemendur hennar Ástraiskir hafnarverkantsnn mótmæla kúgunarlögum Um 7000 hafnarverkamenn í áströlsku stórborginni Lydn- ey samþykktu á útifundi í gær harðorð mcúmæli gegn kúgun- arfrumvarpi íhaldsstjórnar Ástralíu, um bann á Kommún- istaflokknum. Jafnframt skoruðu hafnar- verkamenn á ástralska alþýðu- sambandið að hefja allsherjar- verkfall til að mótmæla þess- um kúgunarlögum. —----- -.- Illutavelta Þjóðviljans. Hlutavelta Þjóðviljans verður n. k. sunnudag. Þeir sem eig'a eftir að skila mun- um . eru vinsamlega beðnir um að hraða því. Tekið er á móti munum á afgreiðslu Þjóðviljans, Skólavörðustíg 19 og skrifs'ioíu Sósíalista- flokksins Þórsgötu 1. Við sækjum muni heim ef þess er óskað. Þeir, sem veitt geta ac - stoð við undirbúning hluta- veltunnar eru beðnir að mæta á Þórsg. 1 í kvöld kl. 8,30. balletdar.n og fyrri hluta efn- isskrárinnar lýkur með þvi að 28 nemendur úr I. og III. fl. balletskólans sýna atriði úr balletinum „Coppelia". 1 síð- ari hluta sýningarinnar er m. a. Coppinata, balletatriði við músík cftir Chopin. — Fritg Weisshappel annast undirleik- inn á sýningunni. Jén Hreggviðsson á þlngi í allsherjaratkvæðagreiðslu í neðri deild Alþingis í gær bað forseti Jón Hreggviðsson eitt sinn að greiða atkvæði, og vakti það mikinn fögnuð þing- manaa. Mun það næsta óvenju- Iegt að skáldskaparpersóna sé svo rik í hugum manna á Al- þingi — en vel væri ef andi Jóns Hreggviðssonar ríkti á þessum nýju niðurlægingar- tímum. Norðurheimskant bandarísk herstöð? -■ Bandarísk flutningaflugvél hefur tvisvar lent og hafið sig til flugs á skíðum á ísnum nálægt Norðurheimskautinu. Bandariski flugherinn tilkynn- ir, að þessi tilraun hafi „mikla hernaðarþýðingu". Baldur efstur með Wz vioning Biðskákir í landsliðskeppn- inni voru tefldar í gærkveldi og urðu úrslit þessi: Guðjón vann Hjálmar, Ásmundur vann Lárus, Baldur vann Margeir, Guðmundur vann Bjama, Benó- ný vann Guðjón, Bjarni vann Margeir og Gilfer vann Benóný. Biðskák varð hjá Gilfer og Hjálmari í annað sinn. Eftir 6. umferð cr Baldur efstur með 5%, Guðmundur Ág. með 5, Ásmundur með 3Vz og biðskák, Guðjón og Benóný með 3%, Gilfer rreð 3 og tvær biðskákir, Lárus og Bjarni með 2y2, Sturla 2 og biðskák, Margeir 1. Hjálmar % og tvær biðskákir Jón með y2. 7. umfcrð verður tefld í kvöld kl 8 í Þórskaffi. Þá tefla saman Benóný og Lárus, Guðm. Ág. og Gilfer, Baldur og Guðjón, Margeir og Jón, Sfcúrla og Bjami, Ásmundur og Hjálmar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.