Þjóðviljinn - 12.08.1950, Side 3
irdagur 12. ágúst 1950..
ÞJÓÐVILJINN
1 lok 1. aldar e. Kr. varð til
í Litlu-Asíu vestanverðri krist-
ið rit, sem kallast Opinberun
Jóhannesar, síðasta rit Nýja
Testamentisins. Hvort sem einn
maður eða fleiri hafa- farið
höndum um þetta rit í þeirri
gerð, er vér höfum það nú, þá
er auðsætt, að það er skrif-
að eftir ofsóknir á hendur
kristnum mönnum og logar af
hatri til Rómaríkis. Þótt það
kunni að láta í eyrum manna
sem öfugmælí að telja Opin-
berun Jóhannesar til heimildar
rita um sögu Rómaveldis —
því að ritið er spásögn —, þá
varpar það samt Ijósi á til-
veru heimsveldisins, sýnir Róma
ríki frá sjónarmiði hins undir-
okaða rómverska þegns. Op-
inberun Jóhannesar túlkar hat-
ur kúgaðra stétta og þjóða á
Rómaveldi, vonir þeirra um af-
drif þess og þau örlög, er biðu
þess. En svo sem vænta mátti
af aldaranda og hugsunarhætti
þeirra tíma, þá fengu menn ekki
dæmt heimsdrottninguna við.
Tíberfljót öðrum dómi en guðs
dómi. Engill stígur af himni
og hrópar sterkri röddu: Fall-
in er, fallin er Babýlon hin
mikla og orðin að djöfla heim-
kynni, ög fangelsi alls konar
óhreinna anda, og fangelsi alls
konar óhreinna viðbjóðslegra
fugla, af því að hún hefur byrl-
að öllum þjóðum af reiðivíni
saurlifnaðar síns, og konung-
ar jarðarinnar drýgðu saurlifn-
að með henni og kaupmenn
jarðarinnar auðguðust af gnótt-
um munaðar hennar.
Hin himneska rödd Opin-
berunarinnar hefur þó ekki
íslendingar taka
Þœttir ur sögu Rómaveldis ///.
Hrun Rómaríkis
þátt í vöru-
r •
synmgu \
Chicago
Nýlega var opnuð alþjóða
vörusýning í Chicago, og gat
borgarstjóri Chicagoborgar
þess i setningarræðu sinni að
þetta væri fyrsta alþjóðasýning
in, sem haldin væri þar í borg.
Island er meðal þeirra 47
landa, þátt taka i' sýningunni,
og stendur Gunnar Pálsson,
forstjóri í New York, fyrir
hinni íslenzku sýningardeild,
sem vakið hefur talsverða at-
hygli. Sýndar eru vörur frá
Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna
og Sölusambandi íslenzkra fisk
framleiðenda.
Kæliskipið „Vatnajökull“
kom til Chicago miðvikudaginn
3. þ.m. og tók þar smjörfarm,
sem fara á til ítalíu. Skipið
'lagði úr höfn - laugardagsmorg-
unin 5. ágúst og hafði verið
fyrsta íslenzka skipið til að
sigla til Chicago.
(Frá utanríkisráðuneytinu,
| samkvæmt fréttaskeyti
ræðismauos 1 Chicago).
aðra úrlausn að bjóða hinum
undirokuðu þjóðum Rómaveld-
is en flóttann frá heiminum:
Gangið út, mitt fólk, út úr
henni, svo að þér eigið engan
hlut í syndum hennar, og svo
að þér hreppið ekki plágur
hennar.
Enn er sjálf Róm þess alls
ekki áskynja, hvað hún á í
vændum. Hún situr að veldi
sínu sem sjálfsögðum hlut og
hugsar í sínu hjarta: Eg sit
og er drottning, og er eigi
ekkja, og fæ alls ekki sorg
að sjá. Fyrir því munu plágur
hennar koma á einum degi:
dauði og sorg og hungur, og
í eldi mun ‘ hún verða upp-
brennd, því að máttugur er
Drottinn Guð, sem hana dæmdi.
Og gráta munu og kveina yfir
henni konungar jarðarinnar,
sem með henni drýgðu saurlifn.
að og lifðu í munaði, er þeir
sjá reykinn af brennu hennar,
er þeir standa langt frá af
ótta fyrir kvöld hennar og
segja: vei, vei, borgin hin
mikla, Babýlon, borgin vold-
uga, því að á einni stundu kom
dómur þinn. Og kaupmenn jarð-
arinnar gráta og harma yfir
henni, því að enginn kaupir nú
framar vörur þeirra, vörur af
gulli og silfri og gimsteinum
og perlum, og dýru lini og
purpura og silki og skarlati,
og allskonar ilmvið, og allskon-
ar áhöld af fílsbeini og allskon-
ar áhöld af hinum dýrasta viði
og af eiri og járni og marmara
og kanelbörk og balsam og ilm-
jurtir og smyrsl og reykelsi og
vín og olíu og fínt mjöl, og
hveiti, eyki og ásauði og hesta
og vagna og man og mannsál-
ir .... Seljendur þessára hluta,
sem auðgast hafa á henni,
munu standa álengdar, af ótta
fyrir kvöl hennar, grátandi og
harmandi, og segja: Vei, vei,
borgin hin mikla, sem klæddist
dýru líni og purpura og skarl-
ati, og var gulli roðin og gim-
steinum og. perlum, því að á
einni stundu eyddist allur þessi
auður, og allir skipstjórar og
allir farmenn og hásetar, og all-
ir þeir, sem atvinnu reka á
sjónum, stóðu álengdar, og
hrópuðu, er þeir sáu reykinn
af brennu hennar og sögðu:
Hvaða borg jafnast við borg-
ina hina miklu? Og þeir jusu
mold yfir höfuð sér og hróp-
uðu' grátandi og harmandi og
sögðu: Vei, vei, borgin hin
mikla, sem allir þeir, er skip
eiga á sjónum auðguðust á,
vegna yfirlætis hennar: því að
á einni stundu var hún lögð
í eyði. Fagna yfir henni, þú
himinn, og þér heilögu, og þér
postular, og þér spámenn, því
að Guð hefur rekið réttar yðar
á iienni.
veldis, nokkru áður en hefst
hin gullna öld rómverskrar
keisarastjórnar. 1 sjálfum for-
dæmingarorðum spámannsins
má jafnvel lesa rómverska hag-
fræði, hin öru viðskipti á sjó
og landi, auðlegð og fjölbreytni
afurðanna frá öllum löndum
heims. Með þetta blómaskeið
að baksviði rís dómsdagurinn
upp með ölium sínum feiknuin,
gráti og örvílnan þeirra, sem
auðguðust vegna yfirlætis henn-
ar.
2
Það hrun, sem höfundur Op-
inberunarbókarinnar sá í hug-
sýn að yrði á einum degi reynd-
ist að vísu skynvilla. Róm var
hvorki byggð á einum degi né
heldur hrundi hún á einum
degi. Hugmyndir manna um
„hrun" Rómaríkis eru nú allar
aðrar á vorum dögum en á 18.
og 19. öld. Að sumu leyti nálg-
ast þessar hugmyndir hugs-
anir miðaldanna, . sem trúðu
eins og regn þyrstan akur. Þótt
hið mikla þrælaframboð í lok
lýðveldisaldarinnar ylli oft fé-
lagslegum kreppum og átökum
þá leystust öll slík viðfangs-
efni um stund á meðan þjóðfé-
laginu var séð fyrir þessu ó-
dýra vinnuafli, er flaut af land-
vinningunum. En á þeirri
stundu, er landvinningunum
hætti,' þá var uppsprettulind
þrælahaldsins þrotin og þjóð-
félagskreppan lagðist að landi
hins rómverska heimsveldis. Á
öndverðri 2. öld e. Kr. má
heita að landvinningum Róm.
verja ljúki og ríkið skreppur
inn í skel sína á bak við virkis-
múra sína og landamærafljót.
Eftir það varð nýrra þræla ekki
aflað nema með verzlun við
þrælakaupmenn, sem fóru í
leiðangra inn í villimannalönd-
in handan landamæranna. Pax
Romana — Rómafriður — hið
mikla siðmenningarafrek keis-
araaldarinnar, skapar því í
raun og veru skilyrðin fyrir
hnignim þrælahaldsins og end-
anlegu hruni rómverskrar
menningar. Hið rómverska
þjóðfélag var slíkt að allri gerð,
^WyWUVVWWWVVWWWA^IVWWVVWWVWUVVWVV
\ Eítir SVERRI KRISTJÁNSSON sagnfræðing
í — FYRRI HLUT I —
A(wwwvuvvwwvuwwusvwvvwvwyvwvywywtfwvw
þvi, að Rómaríki væri
enn uppi standandi. — Að
minnsta kosti dettur eng-
um fræðimanni í hug að hugsa
sér hrun Rómaríkis hafa orðið
með líkum hætti og þegar hús
hrynur til gninna í jarðskjálfta.
Menn hafa á síðari tímum lagt
meiri áherzlu á samhengið í
sögu síðfornaldarinnar og mið-
aldanna og margir neita því
jafnvel, að um nokkurt sögu-
legt straumrof sé að ræða. 1
þeim efnum hefur sumum fræði-
mönnum þó orðið sú skyssa á
að fara úr einum ýkjunum í
aðrar og þurrka burt þann mis-
mun, sem er á fommenningunni
og miðöldunum. Rannsóknir á
þessu merkilega millibilsástandi
fornaldar og miðalda hafa ekki
enn komizt að einhlýtum al-
mennum niðurstöðum um hrun
Rómaríkis. Þó má heita að
menn séu nú sammála um, að
hrun Rómaríkis sé fólgið í
langvinnri hnignun, þjóðfélags-
legum og atvinnulegum um-
skiptum, er tók margar aldir
áður en full væru orðin. Undir-
rót þessara umskipta var
hnignun þrælahaldsins og þess
búskaparkerfis, er því fylgdi.
Þess var getið í upphafi þess-
ara greina, að þrælahaldið hefði
verið atvinnulegur grundvöllur
hins rómverska heimsveldis.
Sérhver aúkning Rómáríkis
víkkaði sjálfkrafa þennan at-
vinnugrundvöll, veitti án af-
Sjaldan hefur hatur á kúg-
aranum verið íklætt máttugri
orðkynngi en í þessum setn-
ingum Opinberunarinnar. Húnlílts nýJum lindum lifandi vinnu-
er skrifuð. á blómaskeiðj Róma-afls ion í ríkiðt vökvaði það
að það þoldi ekki friðsamlega
tilveru. Það hafði orðið til í
stríðum, hafði vaxið og þrosk-
azt á styrjöldum, og friðurinn
varð því að aldurtila. Ráneðli
hins rómverska þjóðfélags var
svo ríkt, að friðurinn orkaði
á það líkt og ef neyða ætti
tígrisdýr til að verða jurtaæta.
Uppdráttarsýki Rómaríkis hófst
því á þeirri stundu, er það átti
ekki kost á að lifa á mann-
ránum, svo sem það hafði gert
fram á 2. öld e. Kr. Fata Rom-
ana — rómversk örlög — voru
þrædd og ofin saman við ánauð-
arvinnu þrælanna, við látlaust
aðstreymi hertekinna þjóða.
Þegar Rómaríki staðnæmdist
við landainörk keisaradæmisins
voru örlög þess í raun og veru
ráðin.
En það voru ekki aðeins ytri
aðstæður, er gerðu þrælahaldið
að dauðadómi Rómaveldis.
Þrælaskipulagið orkaði inn á
við, á allt athafnalíf einstakl-
inganna og þjóðfélagsins. Þeg-
ar þrællinn bolaði hinum fr jálsa
manni frá þeim störfum, sem
mannshöndin vinnur, þá gat
ekki hjá því farið, að starfið
sjálft. hið skapandi • starf með
verkfæri yrði markað þræls-
marki. Grískir heimspekingar,
svo sem Aristóteles og Platon,
lærifeður Rómverja, höfðu
skrifað af mikilli fyrirlitningu
um störf og vinnu þess manns,
er beitti verkfæri. Líkamleg
vinna var svo lítilsmetin, að
hún jþótti engum hæf nema
þrælum og líkamleg vinnaí
frjálsborins manns gerði
hann þrælum líkan, skipaði
honum lægra sess i þjóðfélag-
inu. Aristóteles komst svo aði
orði, að „vissulega ætti hinn,
góði maður og hinn góði borg-
ari ekki að læra iðnir lágt-
settra manna nema rétt sér tili
dundurs, ef þeir iðka þær að
staðaldri þá mun munurinn,
hverfa milli húsbónda og
þræls". Ciceró túlkar skoðanir.
stéttar sinnar og tíma í loki
lýðveldisaldarinnar, er hann1
telur allar handiðnir óheiðar-
legar, svo maður ekki tali um
smáverzlun x>g skattainnheimtu,
Þó álítur hann stórkaupmann
og útgerðarmann heiðarlegan
ef hann kaupir sér jarðeign
fyrir gróðann og lifir sem göf-
ugur gósseigandi það sem eftir,
er ævinnar. j
Þessi fyrirlitning hinna róm-
versku þrælaeigenda á hinni
daglegu önn lífsins skapaði hina’
furðulegu teknísku fátækt forn-
aldarinnar. Vélamenning gat
ekki komizt til neins þroska í
Rómaríki vegna þrælahaldsins
og þess andlega hugsunarhátt-
ar, er af því spratt. Það var,
engin ástæða til að brjóta heil-
ann um teknískar nýjungar,
um vinnusparandi vélar, þegar,
allir markaðir voru fullir af
þrælum. Uppfinningar vísinda-
mannanna í Alexandríu kom-
ust ekki út fyrir veggi hinnar,
frægu menntastofnunar Egipta-
lands og þó mun gufuvélin
hafa verið fundin þar upp 2
þús. árum á undan afreki
Watts. Þegar litið er á verk-
lega tækni Rómaríkis, þá má
segja að það hafi engu bætt
við þær miklu uppfinningarl
bronsialdarmenningarinnar í
Efrat- og Nílardal: plóginn,
I vagnhjólið, skipaseglið, málm-
I bræðsluna. Hin verklegu stór-
virki Rómaríkis, akbrautir,
þess, vatnsveitur og hringleika-
hús og baðhallir voru ekki unn-
in með vélum, heldur handafli
þrælanna og ófrjálsra manna.
En svo víðlent var Rómaríkii
orðið, að miklum erfiðleikum
var bundið að stjóma því frá
einum stað með þeirri tækni,
sem fyrir hendi var. Meðan
allt lék í lyndi, meðan heilum
þjóðum var bætt við ríkið á
ári hverju, þá var hægt aði
hemja heimsveldið með virð-
ingarlausri sóun á mannafli.
En nú leið að þeirri stund er,
framleiðsluöflin tóku að bilaJ
og fólksfæðin lét æ meira tili
sín taka. !
Jón Hrason
Framhald af 8. síðu. í
Jón Aras. og að því loknu hefst
útisamkoma. Steingrímur Stein-
þórss. forsætisráðh. flytur ræðvt
Sig Sigurðss. sýslumaður talar
fyrir minni Skagafjarðar, Ey-
þór Stefánsson les kvæði Matt-
híasar Jochumssonar um Jón
Arason og síðan verða flutt á-
vörp ög lesin Ijóð. Milli atriða.
verður söngur og lúðrablástur.
Búist er við f jölmenni á Hóla
stað á morgun og hefur t. d.
Skagfirðingafélagið í • Reykja-
vík efnt til hópferðar þangað<i