Þjóðviljinn - 24.08.1950, Síða 4
-*r’;
ÞJðÐVILJtNff
ílmmtudagur 24. ágúst 1956.
plÓÐVILJIMN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðamenn: Ari Kárason, Magnús Torfl Ólafsson,
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjóm, afgrelðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðu-
stig 18. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14.00 á mán. — Lausasöluverð 60 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans b. f.
1 Kannski birtist Reykjavíkurbréf
f á sunnudaginn
y ■
í viöræðum um landsmálin er þögnin oröin langal-
gengasta vopn afturhaldsleiðtoganna. Bjarni Benedikts
son hefur þagaö síðan í mai aö hann var kvaddur á ráð-
herrafund Atlanzhafsríkjanna. Sé ríkisstjórnin krafin
sagna um mál sem snerta afkomu allrar þjóðarinnar má
ganga aö því sem vísu að hún velji þögnina sem viö-
brögð sín, og nú er svo komiö aö meira aö segja þeir
menn sem hafa þá launuðu atvinnu að tala og skrifa
fyrir afturhaldið eru orðnir helteknir af þagnarsýkinni.
Pyrir tíu dögum var stríðsæsingaáróður Valtýs Stef-
ánssonar tekinn til allýtarlegrar meðferðar hér í blaðinu
og lagt út af Reykjavíkurbréfi sem hann hafði birt tveim
dögum fyrr. Rökleiðsla Valtýs hefur sem kunnugt er
verið þessi: í ársbyrjun 1949 lýsti hann yfir því að Vestur
evrópa væri algerlega varnarlaus en Sovétríkin grá fyrir
jámum, reiðubúin að hefja vopnaða árás vestur á bóginn.
Aðeins eitt væri til varnar, að stofna hernaðarbandalag
tafarlaust og vígbúast af alefli. Þessa dagana, hálfu
öðru ári síðar, heldur Valtýr enn á lofti sömu kenning-
unni: Vesturevrópa er enn varnarlaus að heita má, Sovét
ríkin enn árásartryllt með hundraðfalda yfirburði á öll-
um sviðum. Og enn sem fyrr er aðeins eitt til varnar,
ofsalegur vígbúnaður sem öllu sé fórnað fyrir. „Eftir því
sem vamarherirnir eru öflugri, eftir þvi hikar einvaldur-
inn í austri við að leggja út í vopnaða styrjöld hérna meg
in á hnettinum. — Ekkert annað getur tafið hernaðarað-
gerðir austanað. .. Úrvalsheimskingjar einir geta kom-
izt hjá því að sjá að þetta er aðstaða Evrópuþjóðanna í
dag.“
í tilefni þessarar rökleiðslu lagði Þjóðviljinn fyrir
Valtý Stefánsson eftirfarandi úrlausnarefni:
„Hvemig stóð á því að Sovétríkin lögðu ekki
undir sig Vcsturevrópu fyrir 16 mánuðum þegar
í vamir hennar voru engar?
„Hvemig stendur á því að Sovétríkin leggja ekki
Vesturevrópu undir sig nú þegar varnir hennar eru
' hlægilegur hégómi hjá hinum austræna styrk?
„Hvernig stendur á því að Sovétríkin bíða eftir
l hervæðingu Vesturevrópu sem að sögn Valtýs er það
eina sem komið getur í veg fyrir heitasta draum
l Stalíns?
„Sér Staiín ef'til vill ekki það sem Valtýr sér;
er hami slíkur „úrvalsheimskingi“ að hann „kom-
ist hjá því að sjá hver er aöstaða Evrópuþjóðanna
í dag?““
Þessar einföldu spumingar voru lagðar fyrir Valtý
Stefánsson fyrir tíu dögum og síðan hefur einnig hann
þagað. Á sunnudaginn var gerðust síðan þau mjög svo
óvenjulegu tíðindi að Morgunblaðiö kom út án Reykja-
víkurbréfs og hafði það þokað fyrir viðtali sem ívar Guð-
mimdsson hafði fært í letur! Bráðapest þagnarinnar
virðist hafa heltekið ritstjóra Morgunblaðsins, manninn
sem. hefur haft það aö æfistarfi að þegja ekki.
En ef til vill er Valtýr Stefánsson aö hugsa. Ef til vill
er hann að búa sig undir að vanda sig sem bezt. Kannski
birtist Reykjavíkurbréf á sunnudaginn.
Krossgáta nr. 13.
Bílífi.
Það lætur nærri að einn nýr
lúxusbíll hafi verið fluttur inn
á hverjum degi á þessu ári.
Aðrir islenzkir lúxusbílar hafa
verið á ferðalögum í Evrópu
þar sem eigendur þeirra hafa
enn sem fyrr vakið atihygli á
sér fyrir hofmannlega lifnaðar-
'háttu. Ferðir með Gullfossi
hafa verið upppantaðar í marga
mánuði. Flugvélarnar keppast
enn við að flytja íslenzka lúx-
usfarþega til Lundúna og Kaup
mannahafnar. Sá hluti yfirstétt
arinnar sem ekki hirðir um að
fara til annarra landa I ár á-
stundar bílifi hér heima fyrir.
Vinsældir Vetrarklúbbsins fara
sívaxandi og örlætið við barinn
þar þykir minna á alræmdustu
flottræflastöðvar stórborganna.
★
Skortur.
Á sama tíma liggja nýsköp-
unartogaramir við landfestar.
Sildin virðist ætla að bregðast
eitt árið enn. Víða um sveitir
má segja að ekkert hey sé enn
komið i hlöður. Sjötiu og fimm
atvinnuleysingjar hafa verið
skráðir í Reykjavík um hábjarg
ræðistimann. Húsmæður úr al-
þýðustétt verða á ný að velta
hverjum eyri I hendi sér áður
en homím sé varið til einhvers.
Hinn sári skortur virðist vofa
yfir heimilum þúsunda manna.
★
Bílífismenn vegsama
skortinn.
Og nú skrifa málgögn lúx
uslýðsins að alþýðan megi ekki
krefjast kjarabóta, og geti eng-
ar kjarabætur fengið. Atvinnu-
ástandið sé mjög alvarlegt og
atvinnuvegirair þoli ekki að
almenningur hafi sæmilega til
hnífs og skeiðar. Hins vegar
muni atvinnuvegirnir skrimta
af ef alþýðan sættir sig við
hina sárustu fátækt og lætur
ganga á rétt sinn möglunar-
laust, og sérstaklega þó ef þús-
undir manna verða vinnulaus-
ar. Ekkert getur eins bjargað
atvinnuvegunujn og það. Og að
afloknum slíkum skrifum
bregða leigupennar auðmanna-
blaðanna sér í Vetrarklúbbinn
og teyga framleiðsluvörur rík-
isins með „eigendum“ þeiraa
atvinnuvega sem ekkert þoia
nema eymd almennings.
★
Fá ekki að búa til kókó.
Öúsmóðir liringdi til mín í
gær og benti mér á að kókó
er nú ófáanlegt í verzlunum
Mun það litla sem til landsins
kemur vera keypt upp af sæl-
gætisgerðum og verksmiðju
iþeirri sem ástundar þá iðju að
blanda ýmsu gumsi í kókóið
og selja það síðan sem kókós-
mjólk á uppsprengdu verði.
„Það er svona á öllum sviðum",
sagði húsmóðirin, „okkur er
ætlað að kaupa tilbúin föt á
bömin og nú fáum við elcki
einu sinna að útbúa kókóið
handa þeim sjálfar."
Viija fá að sjá
skipslíkanið.
Á sunnudaginn birti Þjóðvilj-
inn mynd af mjög haglega
gerðu skipslíkani sem Jón Eyj-
ólfsson bifvélavirki hafði smíð-
að í frístundum sínum. Ýmsir
hafa komið að máli Við bæjar-
póstinn og minnzt á að
skemmtilegt væri ef skútan
væri til sýnis á einhverjum fjöl-
föraum stað, t. d. i búðar-
glugga. Eg kem uppástimgunni
á framfæri til þeirrar verzlun-
ar sem viðbragðsfljótust er;
það er varla hætta á að skips-
líkanið myndi skyggja mikið á
vörubirgðinjfir.
★
Lárétt. 1 brothljóðum — 7 næði
8 hljóð — 9 von — 11 vixl — 12
friður — 14 samhl. — 15 unga
17 þjónar — 18 djöfla — 20 málm-
ur.
Lóðrétt. 1 buxúr — 2 blóm — 3
2eins — 4 allslaus — 5 dvelur
6 brjóta — 10 veitingastofa — 13
skaði — 15 húsdýr — 16 orlof
17 forn — 19 tvíhl.
Lausn á nr. 12.
I.árétt. 1 orðalag -
9 asa — 11 nag -
15 flag — 17 hæ
hrollur.
7 fæ — 8 káfa
12 fg — 14 rg
- 18 fót — 20
Kimsldp
Brúarfoss kom til Reykjavikur
21. ágúst frá Álaborg. Dettifoss
fór frá Hull 21. ágúst til Reykja-
víkur. Fjallfoss er í Gautaborg
fór þaðan væntanlega í gær til
Rotterdam og Reykjavíkur. Goða-
foss er á Akranesi, fer þaðan til
Vestmannaeyja og austur um land
til Reykjavíkur. Gullfoss kom til
Reykjavíkur í morgun frá Khöfn
og Leith. Lagarfoss fór frá Reykja
vík 19. ágúst til New York. Selfoss
fór frá Siglufirði í gær til Svi-
þjóðar. Tröllafoss er í Reykjavík.
Ríkisskip
Hekla er i Reykjavík og fer
þaðan næstk. sunnudagskvöld til
Glasgow. Esja var á lsafirði sið-
degis í gær á norðurleið. Herðu-
breið fór frá Reykjavík kl. 20 í
gærkv. austur um land til Bakka-
fjarðar. Skjaidbreið var á Isa-
firði síðdegis í gær á norðurleið.
Þyrill er norðanlands. Ármann fer
væntanlega frá Vestmannaeyjum í
dag til Reykjavíkur og frá Rvík
á morgun til Vestmannaeyja.
Minningarspjöld dvalarheimilis
aldraðra sjómanna fást á eftir-
töldum stöðum í Reykjavík, á
skrifstofu Fulltrúaráðs sjómanna-
dagsins í Edduhúsinu við Skugga-
sund, opið kl. 11—12 og 16—17,
sími 80788, og í bókaverzlunum
Helgafells í Aðalstræti og Lauga-
veg 100. 1 Hafnarfirði hjá V. Long.
SíldÍE
Framhald af 1. síðn.
nokkur skip eru nú á leiðinni
hingað með ufsa.
Ufsinn hefur veiðzt við Mán-
áreyjar, Flatey á Skjálfanda,
út af Málmey á Skagafirði og
út af Siglufirði. Einn bátur,
Erlingur II. VE fór frá
Siglufirði kl. 9 í morgun og
var kominn aftur kl. 1 með 350
mál af ufsa og enn var hann
kominn aftur kl. 9,30 í kvöld
með 150 mál af ufsa.
Selfoss fór héðan í nótt með
3500 tunnur af saltsíid til
Gautaborgar, sem hann hafði
Iestað á Þórshöfn, RaufárhÖfn
og Húsavík. ,
Lóðrétt. 1 ofar — 2 ræs — 3 ak
4 lán — 5 afar — 6 gagga ■— 10
afl — 13 gafl — 15 fær — 16 gól
17 hh — 19 tu.
> Fastir liðir eins og
venjulega. — Kl.
19.30 Tónl.: Dans-
lög (plÖtur). 19.40
Lesin dagskrá
næstu viku. 20.30
Útvarpshljómsveitin: Norsk al-
þýðulög. 20.45 Dagskrá Kvenrétt-
indafélags Islands. — Ferðapistill
(Margrét Jónsdóttir kennari).
21.10 Tónleikar (plötur): a) „Rak-
astava" (Elskhuginn), svíta eftir
Sibelius. b) Fiðlukonsert í d-moil
eftir Vaughan| Williams. 22.10
Framhald sinfónísku tónleikanna:
Sinfónía nr. 1 op. 10 eftir Shosta-
kovich. 22.45 Dagskrárlok.
Nýlega opinberuðu
trúlofun sina ung-
frú Anna Sigurð-
ardóttir, Hjallaveg
48 og Þráinn Árna-
*» son, myndskeri,
Kambsveg 15 Reykjavík. —
Hafið þið munað eftir að líts
yfir smáauglýsingarnar á 7
síðu?
Nýlega y.oru
gefin saman í
hjónaband af
séra Þorsteini
Björnssyni, ung
frú Sigþrúður
Sölvadóttir, Norðurgötu 6, Akur-
eyri og Snorri Jónsson, loftskeyta-
maður, Oldugötu 9, Reykjavík. —
Heimili brúðhjónanna er á Öldu-
götu 9.
\\'V
Hjónunum Hall-
, , dóru Jónsdóttur og
h~~" Jy — Marteini Þorláks-
7 syni verkamanni,
r Æ X. Öldugötu 26, Hafn-
h>W arfirði, fæddist 9-
marka sveinbarn, sunnudaginn 20.
ágúst.
Leiðrétting
1 frásögn blaðsins í gær af
uppsögn verkalýðsfélaganna urðu
meinlegar prentvillur. 1 aðalfyrir-
sögn á 8. siðu stóð „14 félög",
en áttí að vera „40 félög“ o.s.frv.
Ennfremur féllu niður r.öfn nokk-
urra félaga, þar á meðal Félags
ísl. rafvirkja og Bakarasveinafél.
lslands.
Blaðamannafélag Islands
heldur fund að Hótel Borg næst-
komandi mánudag kl. 2 e. h. —
Fundarefni: Kjaramál.
Auglýsið í
ÞjóSviljanum