Þjóðviljinn - 24.08.1950, Blaðsíða 8
fvo mínuði he
fálf stunda hvild á
Slann hefur nú eiustmtt iœhifmri tii að
hafa ahrif á gang iogaradeilunnar
Ein meginkrafa sjómanna í togaradeilunni er 12
stunda hvíld á sólarhring og fjandskapur útgerðarmanna
gegn þessari sjálfsögðu kröfu ein af meginástæðunum
til þess að þeir kjósa nú að binda mikilvirkustu fram-
leiðslutæki íslendinga.
Norðfjarðartogararnir hafa hins vegar tekið upp 12
stunda hvíld og í byrjun júní var gerð tiiraun á Ingólfi
Arnarsyni, togara bæjarútgerðar Reykjavíkur, og gafst
hún mjög vel. 15. júní s.l. flutti Guðmundur Vigfússon
tillögu í bæjarstjórn Reykjavíkur um að lýsa yfir ánægju
með tilraunina og skora á Bæjarútgerðina að halda þeirri
tilhögun áfram. Tillögunni var vísað til útgerðarráðs.
í útgerðarráði var samþykkt með atkvæðum íhalds og
Alþýðuflokksins að vísa tillögunni til framlivæmdastjóra
bæjarútgerðarinnar. Frá þeim hefur hins vegar ekkert
<orð heyrzt enn, OG HEFUR JÓN AXEL ÞANNIG LEGIÐ
í TVO MÁNUÐI Á AFSTÖÐU SINNI UM ÞAÐ IIVORT
TAKA EIGI UPP TÓLF STUNDA HVÍLD EÐA EKKI!
Þessi þögn Jóns Axels Péturs
sonar er þeim mun kynlegri
sem hann hefur nú einstakt
tækifæri til að taka frum-
kvæði að lausn togaradeilunn-
ar. Ef Bæjarútgerð Reykjavík-
ur fellst á tólf stunda hvíld er
útgerðarmönnum ekki stætt á
því að halda lengur andstöðu
sinni gegn þessu réttlætismáli.
Píanóhljómleikar
vöktn hrifningie
Verða endurteknii: í
kvöld í Austurfeæjarfeíói
Þórunn S. Jóhannsdóttir hélt
píanótónleika í Austurbæjar-
bíói í gærkvöld, fyrir fullu
húsi áheyrenda og við framúr-
skarandi undirtektir.
Á efnisskránni voru verk eft-
5r Bach, Beethoven, Schumann,
Chopin og J. M. Ewen. Varð
Þórunn að endurtaka sum við-
fangsefnin og leika aukalög.
Henni bárust margir blómvend-
ir, og í lok hljómleikanna var
hún köliuð aftur og aftur fram
á sviðið.
Þórunn hélt nýlega hljóm-
Frh. á 7. síðu
Væri þá þegar leyst verulegt
atriði í togaradeilunni.
Jón Axel Pétursscn er í
nánum tengslum við landhers-
stjórn Sjómannafélagsins og í
gegnum hann hafa Sæmundur
og kumpánar mjög gott tæki-
færi til að hafa áhrif á afstöðu
atvinnurekenda. Er ekki ein-
sætt að nota það tækifæri held-
ur en að halda uppi daglegum
róg- og lygaskrifum um starf-
andi sjómenn? Því það skyldi
þó aldrei vera að Jón Axel
Pétursson væri andvígur þess-
ari sjálfsögðu réttlætiskröfu ?
KVENFÉLAG SÓSÍALISTA
SÓSÍALISTAFÉLAG
REYKJAVlKUR
Berjaferð
verður n. k. sunnudag kl. 9
f. h. Farið verður að' Fer-
stiklu. Lagt verður af stað
frá Þórsgötu 1. Farmiðar
seldir á Þórsgötu 1 í dag,
sími 7511. Verð kr. 35.00
báðar leiðir. Öllum heimil
þátttaka. Athugið að þarna
er mjög gott berjaland og ef
til vill síðasta tækifærið tii
berjatínsfu á þessu sumri.
Tryggið ykkur farmiða í
tíma.
Undirbúningsnefndin.
Nær 299 íbúðir
einangraðar me§
innfendri steinal!
Nálægt 200 íbúðir hafa nú
verið einangraðar mcð steinull
sem framleidd er í steinullar-
gerðinni að Geithálsi, en til-
raunir við framleiðslu voru
hafnar fyrir tveim árnm.
Steinullin er eins og nafnið
bendir til unnin úr grjóti og
er notað grjót sem tekið er hjá
Lögbergi og er bætt við nokkru
af skeljasandi. Grjótið er brætt
og leðjan blásin í fína þræði er
líkjast ull. — Einangrunarefni
þettá hefur þá ágætu kosti að
það hvorki brennur, rýrnar né
fúnar. Er það töluvert notað
til einangrunar húsa erlendis.
Framleiðslan hófst fyrir
tveim árum, var bandariskur
sérfræðingur fenginn til að-
stoðar og fór fyrra árið að
mestu í tilraunir. Nú er fram-
leiðslan 500 kg. á klst., eða 1
lest á tveim stundum og næg-
ir það magn til að einangra
3—4 íbúðir. Ennfremur .er fram
leidd sérstök tegund steinull-
ar til einangrunar á hitaleiðsl-
um. Við framleiðsluna vinna 7
menn. Sveinbjörn Jónsson bygg
ingarmeistari er formaður fé-
lagsins er að vinnslunni stend-
ur.
Jón Axel Pétursson.
Sæmimdur
heykíist
I síðustu viku var hald-
inn fnndur í Sjómannafélagi
Reykjavíkur, sá fyrsti frá
því togarastöðvunin hófst!
Sæmundur kexverksmiðjufor
stjóri Ólafsson hafði gert
sér miklar vonir um þann
fund og samið svívirðingar-
tillögur um sjómenn á Akur-
eyri og Norðfirði í samræmi
við Alþýðublaðsskrif sín. En
þegar á fundinn kom leizt
Sæmundi ekki árennilega á
sjómenn, heyktist á því að
flytja tillöguna og hélt ekki
einu sinni ræðu í Alþýðu-
blaðsstíl.
Kexverksmiðjuforstjórinn
veit að starfandi sjómenn
fordæma glópsku Sjómanna-
félagsstjórnarinnar og róg-
skrif hans. Það væri því vit-
urlegast fyrir hann að láta
af gaspri sínu, en honum
er vorkunn; hann ræður ekki
við ofsa sinn. Ætli væri ekki
ráð að Stefán Pétursson
reyndi að hafa vit fyrir hon-
um?!
Dráttarbraut fyrir 290 smál skip
starfrækt á Siglufirði í sumar
Það er starfsmenn dráttarbrauartinnar er hafa hana
á leigu og starfrækja hana.
Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Tvö undanfarin sumur hefur engin dráttarbraut verið
starfrækt hér.á Siglufirði, en þessi sumiur hefur staðið yfir
bygging nýrrar brautar og var henni lokið seint í vor.
Brautina lét Siglufjarðarkaupstaður byggja, og var kostn-
aðarverð hennar um 800 þús. kr.
Upp í brautina er hægt að taka allt að 200 smál. skip.
4. landsþing Sam-
bands ísl, sveitar-
félaga
Fjórða landsþing Sambands
íslenzkra sveitarfélaga hefst á
Þingvöllum n. k. laugardag ki.
4 e. h.
Á þinginu munu mæta 70
ifulltrúar en í sambandinu eru
nú 120 sveitarfélög með um
110 þús. íbúa. Pjórir erlendir
gestir sitja þingið, frá Finn-
landi, Svíþjóð, Danmörk og
'Noregi.
Þessi dráttarbraut hefur orð-!
ið bátaflotanum að ómetanlegu
gagni, því öll þau skip, sem
upp í brautina hafa verið tek-
in í vor og sumar hefðu ann-
ars orðið að fara til Akureyr-
ar eða eitthvað ennþá lengra til
þess að komast í dráttarbraut.
Síðan dráttarbrautin hér tók
til starfa, eða síðan 14. júní til
1. ágúst hafa verið teknir upp
í hana um 30 bátar, til meiri og
minni aðgerðar. Þar að auki eru
allir nótabátar, en þeir skipta
tugum.
Bærinn leigir brautina og
leigutakar eru starfsmenn braut
arinnar, og er það víst eina
dráttarbrautin hér á landi, sem
rekin er á þann hátt.
Við brautina starfa ennfrem-
ur tveir kafarar. Þeir Aage Jo-
hansen og Jón Guðmundsson,
skipaverkfræðingur, en hann er
einnig framkvæmdastjóri drátt-
arbrautarinnar.
Hsklugosið
1947-1948
Fjöguí hefti homin út
til viðbctar
Étgáfa á hinu fyrirhugaða
mikla riti íslenzkra vísinda-
manna um Heklugosið hófst í
vetur með 2. og 3. hefti IV.
bindis, sem skrifuð voru af
Trausta Einarssyni. Fjögur ný
hefti eru nú komin út, eftir
Trausta Einarsson og Sigurð
Þórarinsson.
Fyrsta hefti II. bindis skrifar!
dr. Sigurður Þórarinsson um
byrjun Helklugossins og lýsing-
ar sjónarvotta. 2. hefti sama
bindis skrifar dr. Trausti Ein-
arsson um fyrstu myndirnar
sem teknar voru af Heklugos-
inu. Fjórða og fimmta hefti IV.
bindis skrifar Trausti Einars-
son um efnainnihald hraunleðj-
unnar og eldgos og orsakir
þeirra. Allmargar teikningar
eru til skýringar, en auk þess
eru safn fyrstu myndanna er
teknar voru af gosinu um morg
uninn, rétt eftir að gosið var
nýbyrjað.
Ritið er gefið út á ensku
og nefnist: „The Eruption of
‘Hekla 1947—1948“, — Heklu-
gosið 1947—1948. Ritstjórar
eru Trausti Einarsson, Guð-
mundur Kjartansson og Sigurð-
ur Þórarinsson.
Páll kiason fer um næstu
helgi að
Hlöðufelli og
Hagavafni
Um næstu heigi ráðgerir Páll
Arason bifreiðarstjóri að fara
með ferðafólk í tveim bifreið-
um að Hlöðufelli og Hagavatni.
Leiðin, sem Páll ætlar að
fara, hefur einu sinni áður
verið farin í bifreið, en er
mjög rómuð fyrir náttúrufeg-
urð. Ætlar hann að aka af
Kaldadalsvegi á Hlöðuvelli við
Hlöðufell, og gista þar aðfara-
nótt sunnudagsins, en lagt verð
ur af stað héðan úr bænum kl.
2 á laugardaginn.
Frá Hlöðuvöllum hyggst Páll
komast um Mosaskarð að Haga-
vatni, en þaðan verður farið
um Gullfoss til Reykjavíkur á
sunnudagskvöld. Gefst þátttak-
endum þannig kostur á að sjá
marga fagra og sérkennilega
staði á tveimur dögum.
Eins og fyrr segir hefur þessi
leið aðeins einu sinni áður ver-
ið farin í bifreið. Var það Ámi
Stefánsson er hana fór í jeppa-
‘bifreið fyrir þrem árum.
Gjöf til björgun-
arskntuNorður
lands
Guðmundur Guðjónsson fram
kvæmdastjóri, Djúpuvík, hefur
sent Siysavarnaféiagi fslands
lir. 2.300.00, sem er gjöf frá
konum þar á staðnum, og óska
þær að fé þetta gangi tíl hinn-
ar væntanlegu björgunarskútu
fyrir Norðurlandi,
Konumar í Djúpuvík, Reykj-
arfirði, hafa tekið upp þann
sið að halda árlegan „Peysu-
fatadag" kvenna með skemmt-
un til ágóða fyrir slysavama-
starfsemina, og hefur mikill á-
hugi rikt fyrir þessu framtaki
kvenfólksins.
1 fyrra sendu konurnar Slysa
varaafélaginu kr. 1.170.48, sem
var ágóði af slíkri skemmtun,
og nú varð ágóðinn kr: 2.300,00
sem þær hafa sent Slysavarna-
félaginu með þeim fyrirmælum
að féð renni til hinnar væntan-
legu björgunarskútu Norður-
lands.