Þjóðviljinn - 29.10.1950, Page 1
Samninga M sjómennina sjáifa
Fjórir mánuðir eru nú liðnir síðan tog-
aradeilan hófst. Upphafið var það að stjórn
sjómannafélagsins ákvað deilutímann upp á
sitt eindæmi, án samráðs við sjómennina
sjálfa, og valdi þann tíma sem útgerðarauð-
valdinu var hagstæðastur. Hún hafnaði
einnig karfasamningum án samráðs vlð
sjómenn, en þeir hefðu tryggt sjómönnum
drjúgar tekjur í sumar og þrýst á um
heildarlausn. Stjórnin hefur yfirleitt forðast
allt samband við sjómenn allt
til þessa dags, aðeins haldið
tvo fundi sem ekki varð und-
an komizt.
Atferli hennar í sjálfri deil-
unni er á allra vitorði. Eftir
þriggja mánaða verkfall var
hún allt í einu „hlutlaus" um
fyrra smánartilboðið, án sam-
ráðs við sjómenn. Eftir nærri
fjögurra mánaða verkfall
mælti hún af tryllingi með
síðara smánartilboðinu, einn-
ig án samráðs við sjómenn.
Og hún gerði meira. Hún lýsti
yfir því að engin leið væri
að komast lengra, að.frekara
verkfall væri „þýðingarlaust",
að sjómenn værú „skepnur"
ef þeir héldu fast við 12
stunda hvíld! Með þessu hef-
ur stjórnin raunverulega lýst
yfir því skýrt og skorinort
að afskiptum hennar af verk-
fallinu væri lokið.
Togarastöðvunin hefur nú
kostað þjóðina 90 milljónir
króna í dýrmætum erlendum
gjaldeyri og fórnir sjómanna
eru geysilegar. Það er aug-
Ijóst mál að dcilan verður
ekki leyst með meðalgöngu
sjómannafélagsstjórnarinnar,
hún hefur lýst yfir algeru
gjaldþroti sínu, enda er hún
ekki fulltrúi sjómanna og nýt
ur einskis trausts þeirra. Af-
leiðingin er augljós: Það verð
ur að semja við sjómennina
sjálfa. Þeim hefur verið hald-
ið utan samninga í fjóra mán
uði, en útgerðarauðvaldið í
staðinn verið að semja við
þjóna sxna. Þess var ekki að
vænta að góður árangur feng
ist af slíkum vinnubrögðum,
og það er fyrir löngu kominn
tími til að stjórnarvöldin
horfist í augu við staðreynd-
ir. Það verður þegar í stað
að hefja samninga við sjáifa
sjómennina, á þeirri sjálf-
sögðu íorsendu að þeir kvika
ekki frá 12 stimda hvíld og
sæmilegu kaupi.
15. árgangur.
VIU
Sunnudagur 29. október 1950.
242. tölublað.
Almenningur krefst samninga við sjómenn
Stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur er hlaupin uadan merkjum og hsfur þar með fyrir-
gert rétli sínum sem fulllrúi sjómanna. — Sjómenn kreljast fundar_
1 fjóra mánuði hefur staðið yfir verkfall togarasjómanna.
Lausn þessarar deilu hefur aðeins strandað á óskammfeilni
útgerðarburgeisanna. Það hefur komið æ betur í ljós að þeir
sem fóru með umboð sjómanna á samningavettvangi hafa
þegar ailt kom til alls ekki gengið erinda sjómanna lieldur
andstæðinga þeirra, að sáttanefndin, sem um þessi mál lief-
ur fjallað, hefur allan þennan tíma ekki mælt orð við neinn
raunverulegan fulitrúa togarasjómanna í þessari deilu, held-
ur félagsstjórn, sem fyrir löngu er orðin að einskonar til-
raunadýri útgerðarauðvaldsins.
við stjórn Sjómannafélags H-
víkur er skrípaleikur til þess
eins gerður að tefja fyrir
lausn deilunnar. Hér er- að-
eins um eitt að ræða, og það
er: að ganga að meginkröf-
um sjómanna, því þær eru
réttlí’.'tiskröfux' og að semja
við sjómennina.
Með hinu freka liðhlaupi
frá meginkröfum sjómanna,
skósveinshlutverki í þágu út-
gerðarmanna, og lítilmannleg-
um yfirlýsingum í Alþýðublað
inu, hefur stjórn Sjómanna-
félags Reykjavíkur raunveru-
lega sagt af sér sem aðili í
þessari deilu sjómannamegin
og fyrirgert rétti sínum þar.
Sjómenn gei'a sér ljóst hversu
komið er í þessu efni og hafa
krafið félagsstj. um fund.
Augljóst er að eins og nú
er komið málum verða sjó-
menn að taka mál sín í eigin
hendur. Það sér hvei’t manns-
barn að frekara makk sátta-
nefndar og útgerðarmanna
ÍSLENZKA
FRIÐAKNEFNDIN
minnir menn á að ljúka
sem fyrst söfnun undir-
skrifta undir Stokkhólms-
ávarpið og skila söfnunar-
listum fyrir nœstu helgi.
Hlaðbúðarbækur
Þjóðviljanum hafa borizt
tvær bækur frá Hlaðbúð. —
Nefnist önnur Formannsævi
í Ey.jum og hefur að geyma
æfisagnaþætti eftir Þox-stein
Jónsson, Laufási. Jóhann G.
Ólafsson hefur skrifað for-
mála. Ljósmyndir eru í bók-
inni og vignettur teiknaðar af
Engiibert Gíslasyni.
Hin bókin er Þjóðsagnakver
Magnúsar Bjarnasonar frá
Hnappavöllum, en þær þjóð-
sögur eru skráðar um 1870.
Jóhann Gunnar Ólafsson ann
aðist útgáfuna. — Bóka þess-
ara verður nánar getið síðar
hér í blaðinu.
Stjórnarvöldin skipuleggja framleiðslubann
Húsvíkingar krefjast þess a0 fá a$ starfrækja hraðfrystihús siff
Eftirfarandi tillaga var samþykkt einróma á almennum
borgarafundi í Húsavík 6. október síðast liðinn:
„Almennur borgai'afundur haidinn í Húsavik 6. okt. 1950
iítur svo á að vegna atvinnuástæðna á staðnum sé brýn
nauðsyn á því, að hraðfrystihús Fiskiðjusamlags Húsavíkur
taki til starfa sem fyrst á komandi vetri. Vegna þessa, svo
og þjóðarnauðsynjar á öflun gjaldeyris, skorar fundurinn á
bæjarstjórn Ilúsavíkur og þingmann kjördæmisins að gera
sitt ýtrasta til að þetta mál nái fram að ganga, þar á meðal
að leita aðstoðar stjórnarvalda þjóðarinnar málinu ti lfram-
dráttar ef með- þarf.“
Á Húsavík er fullgert prýði-
legasta hraðfrystihús. Á Húsa
vík er ágætur bátafloti. Á
miðunum undan Húsavík er
nú ágætur afli. Þar eru því
allir möguleikar til gjaldeyr-
isöflunar í stórum stíl, en
möguleikarnir eru aðeins ekki
hagnýttir. Ríkisstjórnin bann-
ar hraðfrystihúsinu að fram-
leiða útflutningsafurðir, þar
sem þær séu „óseljanlegar".
Þannig er gjaldeyrisskortur-
inn skipulagður og afleiðing-
ÍSLENZKAR ÁR
Ferðaskrifstofa ríkisins hef
ur gefið út bók eftir hinn
kunna brezka laxveiðimann
Stewart og nefnist hún Riv-
ers of Iceland.
Mr. Stewart hefur dvalið
hér mikið á sumrum við lax-
veiðar, allt frá árinu 1912 og
lengst af haft Hrútafjarðará
á leigu. I bókinni ræðir hann
um íslenzkar ár og veiði í
þeim og þótt hún sé á ensku
og aðallega ætluð útlending-
um munu íslenzkir veiðimenn
engu síður hafa gaman af
henni. Bókin er um 200 síð-
ur og í henni margar mynd-
ir. Hún er prentuð í Alþýðu-
prentsmiðjunni.
Áttnx'ður er í dag Oddur ÓÞ
afsson, sem lengi bjó að Lækj
arbaug í Fróðárhreppi, nú að
Haðarstíg 22, Reykjavík.
Helgidagsiæknir: —1 Kristján
Hannesson, Auðarstr. 5. Sími
3836.
lívenfélag sósíalasfa
Félagsfundur verður hald-
inn n. k. miðvikudag.
Nánar auglýst síðar.
ar hans: vöruskorturinn, at-
vinnuleysið og fátæktin.
Fyrir alþingi liggur nú
frumvarp frá sósíalistum um
afnám einokunarskipulagsins.
Samkvæmt því yi-ði hraðfrysti
húsinu á Húsavík heimilt að
selja framleiðslu sína og
kaupa í staðinn nauðsynjar.
Yrði slík heimild gefin myndi
ekki standa á framkvæmdum
bátarnir myndu sækja fisk á
miðin, hraðfrystihúsið fram-
‘leiða af kappi, atvinna yrði
næg og vöruskorti aflétt.
En auðmenn Reykjavíkur
standa sem múrveggur gegn
slíkri lausn; þeir telja sér
auðsjáanlega hag í því að
leiða sem sárasta eymd yfir
þjóðina.
Fyiir hvem
|ssíe a3 spara?
I launalagafrumvarpi
miliiþinffanefndar sem ÓI-
afur Björnsson og Arngr.
Kristjánsson eiga sæti í
er gert ráð fyrir að lækka
laun flug vallarstarfsmanna
— „til samræmis".
Valborg Bentsdóttir spurði
þessa menn við störf
hvaða maima hefði verið
borið saman.
Og fyrir hverja voru
þelr að spara með því að
Iækka laun þessara
manna? Eru þau ekki end-
urgreidd í dollui'um að
verulegu leyti frá Alþjóða
f lugmálastof nuninni ?
Skipafréttlr: Brúarfoss fór
frá Ceuta 27. þ.m. til íslands.
Dettifoss og Fjallfoss eru í
Rvík. Goðafoss kom til Hauge
sund 26. f.m., fer þaðan til
Siglufjarðar og Reykjavíkur.
Gullfoss er í Kaupmannahöfn.
Lagarfoss er á Akranesi. Sel-
foss kom til Uleá í Finnlandi
25. þ.m. Tröllafoss kom til
Stephansville í New-Found-
land 24. þ.m. frá Rvík. Laura
Dan fermir í Halifax 20. þ.m.
til Rvíkur. Pólstjarnan ferm-
ir í Leith 1—2 þ.m, til Rvík-
ur. Heika fermir í Hamborg,
Rotterdam og Antwerpen 3—8
þ.m. — Arnarfell lestar salt-
fisk á Austfjörðum. Hvassa-
fell er í Denía á Spáni. —
Hekla, Esja, Herðubreið og
Þyrill eru í Rvík. Skjaldbreið
fer frá Reykjavík á morgun
til Húnaflóahafna. Straum-
ey er á Austfjörðum á norð-
urleið. Þorsteinn fór frá R-
vík í gærkv. til Vestm.eyja.
Undanfarið hafa farið
fram kosningar í Alþýðu-
flokksfélagi Reykjavíkur
um fulltrúa á næsta þing
flokksins. Hafa þar verið
miklir flokkadrættir milli
„hægri“ og ,,vinstri“(!) og
upplausnarástand flokks-
ins komið glöggt I Ijós. Af
úrslitunum má nefna að
Gylfi fékk flest atkvæði,
eða 120, Stefán Jóhann
næstflest eða 105! Þrír
mektarmenn féllu: Jón
Axel Pétursson, Sæmundur
Ólafsson og Stefán Péturs-
son, og einnig féll Jóhanna
Egilsdóttir. Jón Axel er
fyrsti varamaður, fékk
einu atkvæði minna en
Vilhelm Ingimundarson!
Miklar deilur munu nú
vera um það í flokknum
hvorir hafi sigrað „hægri“
menn eða „vinstri"!
Ráðstefna um einingu
Þýzkalands
Blað sósíalistíska einingar-
flokksins í Austur-Þýzkalandi,
„Neues Deutschland", skýrði
frá því í fyrrad., að hundruð
manna úr stjórnmálaflokkum
Vestur-Þýzkalands, kaþólska
flokknum, sósíaldemokrötum
og kommúnistaflokknum,
hefðu nýlega setið á leynilegri
ráðstefnu með stjórnmála-
mönnum frá Austur-Þýzkar
landi, þar sem rætt var um
sameiningu Þýzkalands.
Lýsiz B.S.R.B.
samúð með
togarasjómönnum?
Á þingfundi BSRB í gær
flutti Pétur Pétursson eft-
irfarandi tillögu:
„13. þing BSRB lýsir yf-
ir samúð sinni með sjó-
mönnum í baráttu þeirra
fyrir 12 stunda livíld á'
sólarhring.“
Tillögunni var vísað til
allsherjarnefndar.
Deildarfundir
Aðalfundir allra deilda
Sósíalistafélags Reykjavík-
ur verða n. k. þriðjudags-
kvöld á venjulegum stöð-
xim. Áríðandi að félagar
fjölmenni á fundina.
Sæmimdiir og smánartilboðið
1 þjónkun sinni við útgerð-af .öllum gæðaflokkum fisks og
Ihaldssfúcknfar í
minnihlula
TJrslit stúdentaráðskosn-
inganna urðu sem hér segir:
A (Alþ.fl.) 59 atkv. (einn)
B (Frams.) 60 atkv, (einn)
C (Rótt.) 106 atkv. (tvo)
D (Ihald) 230 atkv. (fjóra)
E (verkfræðinemar) 56 at-
kvæði (einn).
Frá hapfdsrætfÉz'H
Vegna rúmleysis í blaðinu
í dag verður útkoman í deilda
samkeppni happdrættisins
ekki bii't fyi'i' en á þriðjudag.
— Allar deildir eru beðnar
að gera skil á morgun.
Háskólafyrlrlestur. Hallvard
Mageröy sendikennari flytur
fyrirlestui- í I. kennslustofu
háskólans miðvd. 1. nóv. kl.
8.15 e. h. um Johan Herman
Wessel og det norske Sel-
skap. — Öllum er heimill aðg.
Bölusetning gegn bai'naveiki.
— Pöntunum veitt móttaka
þriðjudaginn 31. okt. og þriðju
daginn 7. nóv. n. k. kl. 10—
12 f. h. í síma 2781.
Menningartengsl Islands og
Ráðstjórnarríkjanna. Stjórn
MIR minnir félagsmenn sína
á fundinn í Stjörnbíó í dag,
stundvíslega kl. 2. Fjölmennið
og takið með ykkur gesti.
Þeir, sem ætla að greiða ár-
gjöld sín eru beðnir að mæta
tímanlega.
Gjöf til Handíðaskólans. 1
s. 1. viku barst Handíða- og
myndlistaskólanum frá sendi-
ráðinu franska hér góð og
verðmæt gjöf. Voru það rúmi-
lega 130 frábærlega vel gerð-
ar ljósmyndir af listaverk-
um í frönskum söfnum. — í
þessari viku hefur sendiráðið
enn sent skólanum rúml. 70
myndir til viðbótar. Eru það
myndir af málverkum, högg-
myndum og franskri bygging
arlist.
Baldur Möller, skákmeistari
Norðurlanda, teflir fjölskák
kl. 1.30 í dag í Listamannask.
Hjónaband. I gær voru gefin
saman i hjónaband af sr.
Bjarna Jónssyni, ungfrú Guð-
björg Guðmundsdóttir hár-
greiðslumær og Harry Sonder
skov, járnsm. Heimili ungu
hjónanna er að Sjafnargötu 8.
armenn ræðst kexverksmiðju-
stjórinn Sæmundur Ólafsson
fram á ritvöll Alþýðublaðsins
síðastliðinn fimmtudag til
þess að fegra smánartilboðið,
sem hann vildi að togarasjó-
menn samþykktu. Hafa
nokkrir útgerðarmenn svo
sem Jón Axel, vinur hans,
lánað honum yfirlitsi'eikn. yfir
nokkrar veiðiferðir gerðar
fyrripartinn á einhverju ári
(sennilega á árinu 1950). Mik-
ið að hann skyldi ekki fara
aftur til ársins 1936, því svo
gamlir eru víst eldri samn-
ingar sjómannafélagsins á
saltfiskveiðum. Fær hann út
úr þessu allmikinn mismun á
kaupi samkvæmt eldri samn-
ingum og smánartilboði fyrr-
nefndu. Eðlilegt hefði verið
að hann hefði tekið saman-
burð miðað við að veiðiferð
væri gerð á sama tíma, er
hann reiknar út fi'á hverju
fyrir sig, eldri samningi og
smánartilboðinu, en ekki kom
ið fram með stórkostlegar
vísitölufalsanir í útreikning-
um sínum með því að gera
sömu veiðiferð einhvern tíma
í fyrndinni í öðru tilfellinu en
hina á fimmtudaginn, því út
úr þessari fölsun fær hann
kr. 5,67 í mismun á dag á
fastakaupi sem verða kr.
170,10 á mánuði. Auk þess
metur hann fisk og lýsi eftir
eigin geði og segir svo til
sjómannastéttarinnar: Ef þið
skilið ekki svona miklu magni
aflans í 1. fl. þá er það fyrir
lélega vöruvöjidun. Meðal-
sólarhringsveiði reiknar hann
sleppir löndunartímanum og
fær með því allveruleg auka-
aflaverðlaun, en í smánartil-
boðinu var skýrt tekið fram
að meðalsólarhringsveiði
reiknaðist aðeins af 1. fl.
þorski og löngu.
Flestir sjómenn hafa sjálf-
sagt fengið að kynnast fals-
aðri vísitölu fyrr svo óþarft
mætti teljast af Sæmundi Ól-
afssyni að leggjast svo lágt
að falsa hana vísvitandi enn-
þá meir til að gylla sitt
smánartilboð.
Ég ætla að setja hér upp
auðvelt dæmi fyrir þig Sæ-
mundur, sem ég tel að þætti
lélegt af barni innan við ferm
ingu ef það fengi ekki rétta
útkomu.
Við förum báðir út á salt-
fiskveiðar í dag sinn á hvor-
um togara og veiðum ufsa.
Ég er skráður samkv .síðasta
samningi ,en þú samkv. smán
ai’tilboðinu. Ég fæ 260 tunnur
af lifur, en þú samsvarandi
20 tonn af lýsi.
Ég fæ: Lifur 260 tunnur á
kr. 6,086 + vísitöluuppbót
16,75% eða kr. 7,05 pr. tunnu.
Alls kr. 1833,00
Þú færð: Lýsi 20 tonn á kr.
40,00 tonnið. Alls kr. 800,00.
Mismunurinn verður kr.
1033,00 eða sem svarar afla-
verðlaunum af röskum 413
tonnum af 1. fl. ufsa, en það
magn mun enginn íslenzkur
togari bera. Geta ekki útkom
urnar orðið svipaðar í fleiri
dæmum, Sæmundur?
Sjómaður.
2. dagTir 13. þlngs B.S.R.R.:
Látlaus ádeila á framkomu formanns og vara-
formanns B.S.R.B,
„Formaður B.S.R.B. smíðaði vopnið í hendur þeim sem vilja láta
örðugleikana koma þyngst niður á launþegum"
Annar þingdagur BSRB fór í látlausar ádellur á formann
sambandsins, Ólaf Bjömsson og varaformann, Arngrfm
Kristjánsson og voru þeir taldlr bera ábyrgð á að vinnu-
tíminn var lengdur, taldlr hafa brugðlzt í launalaganefnd.
Þingfundur hófst með er-
indi Hjálmars Blöndal um
norræna samvinnu, síðan
kaus þingið fastanefndir. Þá
flutti gjaldkeri BSRB, Þor-
valdur Árnason skýrslu sína.
Arngrímur Kristjánsson tók
fyrstur til máls um skýrslu
stjórnarinnar og svaraði á-
deilum Guðjóns B. Baldvins-
sonar. Taldi hann sig og Ól-
af Björnsson hafa „náð til-
tölulega hagkvæmum samn-
ingum" við ríkisvaldið við
endurslcoðun launalaganna. —
Prófessor Ásmundur Guð-
mundsson taldi ádeilur á Ól-
af Björnsson ómaklegar, líkti
honum við öruggan skip-
stjóra „hann veit hvar brýt-
ur" — vitnaði auk þess í heil-
aga ritningu. Maríus Helgason
lýsti hryggð sinni yfir að
þingið byrjaði með óeiningu
og deilum.
Helgi Þorláksson vitnaði til
fyrri samþykkta BSRB, sem
þeir Ólafur og Arngrímur
hefðu sniðgengið við endur-
skoðun launalaganna. Sam>-
bandið hefðl gert kröfu til að
Iaun tækju breytingum ef
5% breyting yrði á launum
annarra stétta en í launa
lagafrumvarpinu stæðl að
launalög skyldu endurskoð-
ast ef laun annarra stétta
tækju breytlngu um 10%.
Þá átaldi hann harðlega
að fuiitrúar þeir er félögin
kusu í þessu máli fengu ekki
að fylgjast með störfum launa
laganefndarinnar nema endr
um og eins og þegar frumv.
var lagt fyrir þá var þeim
neitað um eins dags frest til
að athuga það á þeirri for-
sendu að það ætti að leggj
ast fram strax!! — Hvað hef-
ur stjórnin gert til framkv.
samþykktum fyrra þings BS
RB í vísitölu- og dýrtíðar-
málum? jú, formaðurinn
samdi gengislækkunarlögin.
Hvað um aðstoð við einstök
starfsmannafélög? Hvað um
húsnæðismál? Hvað um menn
ingarmál? Hefur ekki kom-
ið fram í skýrslunni að stjórn
in hafi framkvæmt neitt af
samþykktum sambandsins.
Þorsteinn Egilsson átaldi
framkomu Ólafs og Arngríms
í launamálinu og lengingu
vinnutímans og flutti þeim
kveðju undirritaða af 20 starfs
mönnum útvarpsins, þar sem
þeir voru taldir bera höfuð-
sök á því að vinnutíminn
var lengdur. Valborg Bents-
dóttir og Pétur Pétursson éu-
töldu einnig mjög alvarlega
gerðir fyrrnefndra manna,
einkum þó það að hafa lækk-
að laun allra flugvallastarfs-
manna og hafði Pétur ekki
lokið máli sínu þegar þing-
fundi var slitið.