Þjóðviljinn - 12.12.1950, Blaðsíða 4
ÞJÓÐVILJINN
Þriðjudagur 12. desember 1S50.
Þjóðviuinn
Útgefandi: Samei'ningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.) Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð: kr. 14.00 á mánuði. — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
< ísland og Kérea
Á heimsfrfðarþinginu í Varsjá var samþykkt svo-
felld ályktun um styrjöldina 1 Kóreu:
„Þar sem styrjöld sú sem nú geisar í Kóreu færir
ekki aðeins Kórverjum ólýsanlegar hörmungar heldur er
hætta á að hún breytist í heimstyrjöld, krefjumst vér
þess að vopnaviðskiptum verði hætt þegar í stað, allir
erlendir herir verði fluttir burt frá Kóreu og þessi alþjóð-
lega deila verði leyst á friðsamlegan hátt af deiluaðilum
með þátttöku fulltrúa kórversku þjóðarinnar.
Vér krefjumst þess að um vandamálið verði fjallað
af Öryggisráðinu fullskipuðu, þ. e. með þátttöku löglegs
fulltrúa lcínverska lýðveldisins.
Vér krefjumst þess að aflétt verði innrás amerískra
herja á kínversku eyna Formósu og hætt verði árásum á
lýðveldið Viet-Nam, en þessar aðgerðir fela báðar í sér
hættu á að vopnaviðskiptin breiðist út um heiminn.“
Þessi ályktun var samþykkt einróma af fulltrúum
sem hafa að baki sér meirihluta mannkynsins. Hún er
í fullu samræmi við tillögur Nehrus, en þær hafa hlotiö
fylgi Sovétríkjanna og Kína, auk Indverja, en þessar
þrjár þjóöir eru meira en milljarður að fjölmenni. Það
er þannig hægt aö leysa Kóreudeiluna á friösamlegan
hátt í samræmi viö óskir mikils meirihluta mannkynsins.
Þaö er rætt um aö Kóreudeilan hafi í för meö sér
hættur fyrir framtíð íslands, og það er rétt. En þeirri
hættu veröur ekki bægt frá með því að gera einhverjar
„öryggisráöstafanir“ hér innanlands né með ncinni „her-
vernd“. Hagsmunir íslands verða aöeins verndaðir meö
jþví aö friður haldist 1 heiminum, og íslendingum ber að
leggja fram allt sem þeir mega til að tryggja frið. í sam-
bandi viö Kóreudeiluna ber íslendingum því aö fylkja
sér um samþykktir friöarhreyfingarinnar og tillögur
Nehms. Ef slíkar raddir heyrðust frá íslandi á þingi
sameinuöu þjóöanna yröi því veitt athygli um allan heim.
En meö því aö fylla raöir stríösæsingamanna eru valda-
m-cnn íslands sjálfir aö reyna aö kalla yfir sig öryggis-
leysi og hörmungar nýrrar styrjaldar.
Sprakk blaðran?
í leiöara Vísis í gær segir Kristján GuÖIaugsson m.có'-
al annars þetta um afgreiöslu fjárlaganna: „Hafa þessir
flokkar báöir (Sósíalistafl. og Alþfl.) taliö áö of lítið fé sé
variö til verklegra framkvæmda, en þar tií er því aö svara
aö gert er ráö fyrir á næsta ári víötækari opinberum
framkvæmdum en nokkru sinni fyrr — að vísu ekki en-
vörðungu á vegum ríkisins. Veröa ýmsar æskilegar í'ram-
kvæmdir að sitja á hakanum, meö því að líkindi eru til
aö mannafla skorti, ef engar óvenjulegar truflanir vérða
á atvinnulífi landsmanna í heild, sem ekki er gerandi
ráö fyrir.“
Víðtækari opinberar framkvæmdir á næsta ári en
nokkru sinni fyrr, að vísn ekki á végum ríkisins, líkur
til að mannafla skorti — þetta eru fréttir sem Vísir heföi
veriö vel sæmdur af aö birta yfir þvera forsíöuna og þaö
Jneö nánari útskýringum. Þetta er leiöari í blaöi stærra
flokksins í ríkisstjórninni, svo gera má ráö fyrir aö hér
hafi lekið um sprungu hernaöarleyndarmál afturhaldsins.
Hvaö er blaö Björns Ólafssonar aö dylgja um? Er
jþaö framkvæmdin á loforðum íslenzku landsöluflokkanna
nm aö breyta íslandi í svið til aö heyja á tortímingar-
Orustur næstu styrjaldar? Er þaö framkvæmd mútuþeg-
Jólaáskriftarkort Land-
nemans er tilvalin
vinargjöf
Áhugasamir menn í Æsku-
lýðsfylkingunni hafa beðið Bæj-
arpóstinn að vekja athygli á
jólaáskriftarkorti því sem gef-
ið hefur verið út á vegum
Landnemans. Kort þetta er hið
snotrasta, prýtt mynd þeirri
eftir Picasso, Móðir og bam,
sem var forsíðumynd á jóla-
hefti Landnemans í fyrra. Kort-
ið kostar 30 kr. og gildir sem
áskrift að einum árgangi Land-
nemans. Má óhikað mæla með
korti þessu við sósíalista, þeg-
ar þeir nm fara að hugsa til
jólagjafakaupa. — Sérstakiega
virðist vel til fallið fyrir þá að
senda kortið vinum sínum í
öðrum flokkum.
Óstundvísi
í strætisvagnaferðuni
Maður einn, sem býr i Kópa-
vogi, sendir svohljóðandi á-
drepu: ,,....Það voru að vísu
ýmsir gallar á strætisvagna-
ferðum milli Reykjavíkur og
Hafnarfjarðar hér áður, en síð-
an eigendaskiptin urðu, hefur
þar allt versnað enn til muna.
Ég held t. d., að það komi varla
fyrir, að ferðimar standist á-
ætlun, stundvísi sýnist hér vera
einhver ódyggð, sem vissast sé
að forðast. Ég þarf t. d. að
vera mættur til vinnunnar í
Reykjavík kl. 8, og ætti mér
því, ef allt væri með felldu,
að nægja að taka þann vagninn
sem fer úr Firðinum kl. 7.30.
En þvi miður er þetta öðruvísi
í reyndinni. Vagn þessi kemst
nefnilega aldrei til Reykjavík-
ur fyrr en 10 mínútur eða
kortér yfir 8.
Þarf endilega að bíða
cftir stúlkuimi?
„Þetta ástand tel ég vera
óþolandi, og ef það breytist
ekki til bntnaðar, áður en Jangt
um líður, þá hvet ég hiklaust
til þess, að sérleyfisleiðir þess-
ar verði teknar af núverandi
handhöfum (ef það er þá hægt)
og fengnar einhverjum þeim
mönnum sem virða réttindi þess
fólks er þarf að nota vagnana.
Óg að lokum stutt fyrir-
spurn: Er ekki hægt að fá
bílfreyju í vagninn sem fer frá
Kópavogi? Eða má ekki bara
bílstjórinn ‘ sjálfur innheimta
fargjaldið ? . Þessi vagn er
nefnilega alltaf látinn bíða þang
að til hinn óstundvisi Fjarðar-
vagn kemur og bílfreyjan það-
an líka látin innheimta far-
gjaldið í þessum vagni. —
Stundvís.“
Verðið á gull- og
silfurmununum
B. P. skrifar: „Kæri Bæjar-
póstur. — Eftir því sem ég bezt
veit, er starfandi hér í bænum
heilmikil skrifstofa sem á að
gæta þess að verzlunarfyrir-
tæki geri sig ekki sek um
óleyfilegt verðlag. En hefur
þessi góða skrifstofa ekki
gleymt gullbúðunum svonefpdu
í þessu eftirlitsstarfi sínu? Eða
á maður að trúa því að það
óheyrilega verðlag, sem við-
gengst á silfur- og gullmunum,
sé löglegt? .... Hér er vissu-
lega mál sem þarfnast athug-
unar. — B. P.“
ISFISKSALAN:
1. des. seldi Freydís 651 kits í
Fleetwood fyrir 2500 pund, 4. des.
seldi Helgi Helgason 305 cw. í
Fleetvood fyrir 538 pund. Þráinn
seldi 469 vættir fyrir 1107 pund i
Aberdeen 6. des. Hinn 5. des seldi
Freyfaxi fyrir 2180 pund i Aber-
deen. Botnvörpungurinn Maí seldi
í Grimsby 1493 kits fyrir 5247
pund.
Fimskip
Brúarfoss er í Reykjavik. Detti
foss fór frá N.Y. 10.12. til R.-
víkur. Fjallfoss er í Reykjavík,
fer í kvöld 12.12. vestur og norð-
ur. Goðafoss fer frá Bremerhav-
en 11.12, til Hamborgar og Gauta-
borgar. L^garfoss er í Reykjavík.
Selfoss fór frá Raufarhöfn 5.12.
til Amsterdam. Tröllafoss kom til
N.Y. 10.12. fer þaðan væntanlega
29.12. til Reykjavíkur. Laura Dan
fór frá Halifax 7.12. til Reykja-
víkur. Foldin kom til Reykjavík-
ur 10.12. frá Leith. Vatnajökull
fór frá Gdynia 7.12. til Reykjavík-
ur.
SKIPADEILIl S.IS.:
Arnarfell lagði af stað á
föstudag frá Spáni, áleiðis til
Reykjavíkui'. Arnarfell fór frá
Kaupmannahöfn í gær álciðis til
Akureýrar.
Orðsending frá Húsmæðrafélagi
Reykjavíkur í Borgartúni 7.
Það er í kvöld kl. 8.30, sem ó-
keypis kennari félagsins upplýsir
reykvískar húsmæður um skemmti
legan og hentugan jólamat og
ýmsan undirbúning fyrir hátíðina,
Húsmæður bæjarins eru velkomn-
ar meðan húsrúm leyfir.
Vetrarhjálpin í Ilafnarfirði er
tekin til starfa. Þetta er 12. stárfs-
árið. 1 fyrra söfnuðust 14 þúsund
krónur og bæjarsjóður lagði franr
12 þúsund. Úthlutað var i 129
staði. Næstu kvöld munu skátar
heimsækja bæjatbúa á vegunr
hjálparinnar. Auk ^þess tekur
stjórnarnefndin við gjöfunr, en
hana skipa prestar safnaðanna,
Ólafur H. Jónsson, kaupmaður,
Guðjón Magnússon, skósm. og
Guðjón Gunnarsson, framfærslu-
fulltrúi.
Ma'ðrafélagið heldur fund nrið-
vikudaginn 13. des. í Aðalstræti 12.
„Með árvökrum augum hins
liagsj'na stjóriranda muii maður-
inn Iíta yfir lieimsálfur sínar og
höf, fjallgarða og sléttur og gera
upp við slg lrverju þurfi að
breyta, hvað þurfi að skapa að
nýju“. — Úr greininni Auðævi
jarðar og nrennirnlr í síðasta
hefti Réttar. Þar getur þú lesið
um það livernig mennirnir munu
umskapa jörðina.
' Fastir liðir eins og
venjulega. Kl. 20.20
Tónleikar: Kvart-
ett í C-dúr op. 20
nr. 2 , eftir Haydn.
20.35 Erindi: Um
uppeldi og skólamál (Snorri Sig-
fússon námsstjóri). 21.00 „Sitt af
hverju tagi“ (Pétur Pétursson).
22.10 Vinsæl lög. 22.30 Dagskrár-
lok.
fundur í kvóld kl. 8,30
á venjul. stað. Stundvísi.
EFÞÉRGETIÐLESIÐ
ÞAÐTILENDASEMH
ÉRSTENDURÞÁHAF
IÐÞÉRFUNDIÐLAU
SNINAÁÞEIRRIGÁT
UHVARHAGKVÆM
ASTOGBEZTERAÐ
KAUPAJÓLABÆK
URNARÍÁROGME
STERÚR V ALIÐ AF J
ÓLAKORTUNUMEN
ÞAÐERHJÁBÓKAB
ÚÐINNIARNÁRFEL
LLAUGAVEGI15
"N
anna á fyrirskipun BandaríkjaauÖvaldsins um hervirki á
íslandi? Er þaö skýring á því aö bandarísku húsbændurn
ir skipuöu Birni Ólafssyni að brjóta þingskaparlögin og
fremja embættisafglöp á alþingi. þegar óskaö var eftir
upplýsingum um Keflavíkurflugvöll? Er þaö vísbending
um aö enn sé haft á gamla iagiö, betlikindurnar sémji
viö bandarísku húsbændurna án þess aö þjóðin fái um
þaö að vita fyrr en aö frömdum glæp?
Telja má víst aö strax í gær hafi verið troöið upp í
spurninguna svo Vísir leki ekki meira. Fyrr en kannski
næsta mánudag, þaÖ er eins og þann dag sé einna hætt-
ast viö slíkum truflunum.
Norman Krasna:
ELSKU RUT
Sýning í Iðnó annað kvöld,
miðvikudag kl. 8.
Aðgöngumiðar seldir í dag
frá kl. 4—7 — Sími 3191
Næst síðasta sinn fjrir jól