Þjóðviljinn - 16.03.1951, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 16.03.1951, Blaðsíða 6
16) ÞJÖÐVILJINN Föstudagur 16. marz 1951 I Strætisvagnadeilan íagsins skyldu grei'ða kr. 2.00 á dag í sjóðinn meðan verkfail vagnstjóranna hjá SVR stæði yfir. Er hér fyrst og fremst um það að ræða að efla Vinnu- deilusjóðinn, og getur það v?rla talizt nema sjálfsögð ráð- stöfun, sem verkalýðsfélög a!- mennt gripa ti' í því skyni að efla Vinnudeilusjóði sína, méð- an á verkfalli stendur. Vinnudeilusjóður Hreyfils starfar á sama liátt og slíkir sjóðir almennt, þ. e. að úr hon- um er ekki veittur styrkur nema i vinnudeilum, ef félags- menn þurfa á fjárhagslegri að- stoð að halda. — Frá því SVR- verkfallið liófst, 16. febr. hafa aðeins verið veittar samtals kr. 296.00 til vagnstjóranna úr Vinnudeilusjóðnum. Af þessu er það augljóst að vagnstjóra.nir eru enganveginn á „launum“ hjá Vinnudeilusjóði félagsins. 28. febr. s. 1. gerði ég grein fyrir vinnutíma vagnstjóranna, í greinargerð, sem þá birtist í dagblöðunum, og einnig fyrir þeim forsendum sem lágu til þess að samningum var sagt upp, en hún var sú að óska eftir 17% launahækkun, þ. e. sömu hækkun og lögregluþjónar og slökkviliðsmenn fengu á s. 1. ári, en vagnstjórar liafa undanfar- in ár haft sama kaup og þess- ar stéttir I ræðu bogarstjóra, á bæjar- stjórnarfundi fyrir nokkru, kom það fram, að vagnstjórar hefðu farið fram á kauphækkun, sem næmi 26*4%, þessi prósentu- tala stafar af misgáningi, sem Sovétfulltrúarnir Framhald af 1. síðu. nafnbótina þjóðlistamaður og síðan Stalínverðlaun. Pianóleikarinn Naum ‘Vftlter er fæddur í Ukrainu og á ti! hljómlistarfólks að telja. Hann lauk prófi við tónlistarháskói ■ ann við Dnépropedrovsk en hélt námi sínu síðan áfram í Moskvu. Árið 1929 kom hann fram sem einleikari í útvarpina óg 1933 tók liann þátt í keppni um píanóleik og hlaut fyrstu verðiaiín. Hefur hann síöan ferðast um Sovétríkin og hald ið hljómleika, en einnig hefur hann leikið í Berlín, Austurríki, Búlgaríu og Kína. Igorj Lupukov er prófessor í sögu i Moskvu. Hann ei yngsti fulltrúi sendinefndarinn- ár og fulltrúi yngstu kynslóð- ar sovézkra menntamanna. Ár- ið 1942 gekk hann í herinn og barðist m. a. við Stalíngrad en, tók 1946 aftur við starfi sínu við háskóiann. var í samningsuppkasti Hreyf- ils, eins og það var upphaflega. Þ. e. að kr. 150.00 sem vagn- stjórar fengu mánaðarlega fyv ■ ir ákveðna vinnu, var bætt við mánaðarkaupið sem var 1837.50 þannig að 17% var bætt við kr. 1987.50 í stað 1837.50. Ef þessi misgáningur er ekki leiðréttur, sýnist kauphækkunarkrafan nema 26'/2%. Þetta var leið- rétt við sáttasemjara og leið- réttist hér með fyrir öllum al- menningi. Vegna orðróms þess sem myndazt hefur um það áð vagn- stjórar hafi ekki slakað neitt á kröfum sínum, frá því sem þær voru áður en verkfallið hófst, skal á það bent að vagn- stjórarnir hurfu frá kröfum sínum um frídaga, aukið sumar- leyfi og einnig frá kröfunni um 17% kauphækkun, og buðust til að semja um kr. 150.00 kaup- hækkun á mánuði, ásamt öðr- um lagfæringum á samningum og tilsvarandi hækkun á öðrum greiðslum. Það sem vagnstjórarnir hafa átt kost á að semja uppá er: 1. Breytt fyrirkomulag á akstri vagnstjóranna að og frá geymslustað. Að hætta akstri % klst. fyrr á aðfangadag jóla, gamlársdag og laugardaginn fyrir páska. Að fá kr. ' ‘ .00 í stað kr. 100.00 á rnánuði, ef vagn- stjórar fá ekki föt á rétt- um tíma. 4. Að vagnstjórar fái tvennar buxur á ári í stað einna. Að ef bærinn afgreiðir ek'ri hlífðarjakka á tilskildum tíma, sem á áð vera annað- hvert ár, greiði bærinn kr. 150.00 á ári í stað kr 55.00. Að vinna á stórhátíðadög- um hækki úr kr. 20.40 í kr 23.00 pr. klst. Að yfirvinna hækki úr kr. 15.00 í kr. 17.50 pr. klst. Að samningurinn verði upp- segjanlegur með eins mán- aðar fyrirvara hvenær sem er. Ofangreind atriði voru lögð fyrir fund í Strætisvagnstjóra- deild Hreyfils, en voru felld með 29 atkv. gegn 24. Hér hefur verið skýrt frá öll- um aðalatriðum, sem snerta þessa deilu, og vænti ég þess að þessi greinargerð nægi til að hnekkja þeim sögusögnum, sem gengið hafa um mál þetta meöal almennings. Að lokum og að gefnu tilefni, skai það tekið fram að þessi deila er með öllu óviðkomandi Bifreiðastöð Samvinnufélagsins Hreyfils. Bergsteinn Guðjónsson. Uztdir eilíidarstjörnuni Eftir A.J. Cronii '1 115. O A G U R , 2. 3. 5. 6. 7. 8. Carólína. Þið skuluð ekki vaka eftir mér. Ég kem sennilega seint heim. Ég ætla að fara í leik- húsið með Hetty. Maður verður að lifa þótt styrjöld standi yfir. Það er verið að leika „Fjallastúlkuna", ágætt ieikrit er mér sagt. Hetty langar mjög mikið til að sjá það“. Hann reis á fætur og fitlaði við blómið í hnappagat- inu sínu. Hann kinkaði kolli til Carólínu, virti Arthur ekki viðlits og gekk síðan út úr her- berginu. Arthur sat kyrr við borðið, þögull og hreyfing- arlaus. Honum var vel kunnugt um að Hetty og faðir hans fóru oft saman út að skemmta sér: nýju fötin, blómið í hnappagatinu og eirðar- leysið í fasi Barrasar, gerði sitt til að undir- strika þá staðreynd. Það hafði í byrjun verið nokkurs konar sárabætur — Arthur hafði komið skammarlega fram við Hetty og Barras hafði séð sig knúðan til að bæta henni það upp á ein- livern hátt. En Arthur hafði grun um að nú væri annáð og meira en eintóm hugulsemi á bak við þetta samband. Hann vissi það ekki. Hann andvarpaði þungt yfir hugsunum sinum. And- varp hans fyllti Carrie frænku óróa. ,,Þú hefur varla bragðað á matnum, Artliur", sagði hún. ,,Þú ættir. að snaakka þennan búðing“. ,,Ég er ekki svangur, Carrie frænka“. „En þetta er svo góður búðingur, vinur minn“, sagði hún með áhyggjuhreim í röddinni. Hann hristi höfuðið og horfði á hana með þjáningarsvip. Hann fékk skyndilega löngun til að létta á huga sínum við hana, losa sig við þær sálarhvalir sem lágu á honum eins og mara. En hann stillti sig, honum var Ijóst, að það var tilgangslaust. Carrie var góðhjörtuð, hún elskaði hann á sinn hátt, en óframfærni hennar og lotn- ingin sem hún bar fyrir föður hans hindraði að hún gæti hjálpað honum. Hann reis á fætur og fór út úr herberginu. Hann staðnæmdist úti í anddyrinu og vissi ekki hvað hann átti af sér að gera. Hann þráði sam- úð. Bara að Hetty hefði verið hjá honum .... það kom kökkur í hálsinn á honum .... hann var ráðþrota og hjálparvana. Hann gekk hægt af stað upp stigann. Um leið og hann kom að dyrunum að herbergi móður sinnar, nam hann skyndilega staðar. Ósjálfrátt lagði hann höndina á hurðarhúninn og fór inn í herbergið. „Hvernig líður þér núna, mamma"? spurði hann. Hún sneri sér snögglega við þar sem hún hall- aði sér á koddahrúguna. Það var undrunarsvipur á fölu og feitu andliti hennar. „Ég er með höfuðverk“, svaraði hún. „Og mér varð svo hverft við þegar þú opnaðir dyrnar svona ógætilega“. „Fyrirgefðu mamma". Hann settist á rúm- stokkinn hjá henni. „Nei, Arthur“, andmælti hún. „Ekki þarna, góði minn. Ég get ekki þolað að neinn sitji á rúminu mínu. Ekki þegar ég hef svona mikinn höfuðverk, — ég þoli það ekki“. Hann flýtti sér að rísa á fætur og roðnaði lítið eitt. „Fyrirgefðu mamma“, sagði hann aftur. Hann reyndi að skilja afstöðu hennar. Hún var þó móðir hans. Or innstu djúpum sá/lar hans steig minningin um það, þegar hún hafði beygt sig yfir hann í knipplingakjól, faðmaði hann að sér og þrýsti honum að brjósti sér. Hann liélt dauðahaldi í þessa minningu um móðurlega blíðu, DAVlÐ og í von um skilning og ástúð hvíslaði hann titrandi röddu: „Mamma, má ég tala um dálítið við þig?“ Hún virti hann undrandi fyrir sér. ,,Ég er með svo mikinn höfuðverk“. „Það tekur ekki langan tíma. Ég þarf að leita ráða hjá þér“. „Nei, Arthur", andmælti hún og lokaði augun- um eins og hún þyldi ekki að horfa á ákafa hans. „Ég get það alls ekki. Einhvern tíma seinna. Ég hef svo hræðilegan höfuðverk". Hann dró sig þögull til baka í herberginu. Synjunin hafði gerbreytt andlitssvip hans. „Af hverju heldurðu að þetta sé Arthur?“ hélt liún áfram með lokuð augu. „Af hverju heldurðu að ég sé alltaf að fá höfuðverk? Mér hefur dottið í hug hvort það gæti stafað af skothríðinni í Frakklandi, titringnum sem berst með loftinu. Auðvitað veit ég að ég heyri ekki skotin; en mér hefur dottið í hug að titringur- inn í loftinu gæti haft áhrif á mig. En hann getur auðvitað ekki orsakað bakverkinn og hann hefur verið mjög slæmur upp á síðkastið. Segðu mér Arthur, heldurðu að skotdrunurnar geti haft einhver áhrif?“ „Ég veit það ekki, mamma", svaraði ’nann þreytulega, en þagnaði svo og áttaði sig. „En ég held varla að þær geti haft áhrif á bakið á þér“. „Það er ekki af því að ég sé að kvarta yfir verk í bakinu. Smyrslin sem Lewis Jæknir lét mig hafa, hafa hjálpað mér geysilega. Aconite, belladonna og klóróform las ég á lyfseoiinum, þrjú banvæn eitur. Er það ekki undarlegt að eitur skuli hafa svona góð áhrif útvortis? En hvað var ég að tala um- Já, titringurinn í loft- inu. Ég er nýbúin að lesa i blaði, að hann orsaki rigningarnar sem hafa verið upp á síðkastið. Það virðist sanna mál mitt. Það sannar að hann hefur mikil áhrif. Og Lewis læknir segir mér að til sé sjúkdómur sem heitir fallbyssuhöfuð- verkur. Auðvitað eru aðalorsakirnar taugaþreyta. Hún hefur alltaf þjakað mig, Arthur minn, taug- ar minar eru ajveg lamaðar“. „Já, mamma“, samsinnti hann lágri röddu. Aftur varð dálítil þögn og síðan fór hún aftur að tala. 1 hálfa klukkustund talaði hún um líðan sína, svo bar hún höndina upp að enninu og sárbændi hann um að fara út, því að hann þreytti hana. Hann hlýddi henni þegjandi. Fimm- tán mínútum síðar þegar hann gekk aftur eftir ganginum, heyrði hann hroturnar í henni. Sú tilfinning, að hann væri einangraður með kvöl sinni, fór vaxandi eftir því sem dagarnir liðu, honum fannst hann einmana, næstum út- lægur. Ósjálfrátt dró hann sig meira í hlé en nokkru sinni áður. Hann fór aðeins í vinnu sína, og jafnvel þar tók hann eftir kynlegum augna- gotum sem beint var að honum — frá Armstrong og Hudspeth og sumum verkamönnunum. Á leiðinni í og úr vinnu voru oft lirópuð skammar- yrði á ef-tir honum. Öllum var kunnugt um ó- samlyndið milli hans og föður hans og almennt var talið að það stafaði af því að hann vildi ekki fara í herinn. Barras hafði ekki hikað við að láta skoðanir sínar í ljós opinberlega; hin sterka ættjarðarást hans vakti alls staðar hrifn- ingu. Það var talið virðingarvert af honum að láta persónulegar tilfinningar engin álirif hafa á afstöðu sína á þessum uggvænlegu tímum fyr- ir föðurlandið. Það lamaði Arthur algerlega að finna að allur bærinn fylgdist með ágrci. ingi þeirra feðgnnna. í febrúarmánuði versnaði ástandið stöðugt og um miðjan marz settist hervæðingarnefndia á rökstóla. I nefndinni voru fimm menn, James Ramage, Bates vefnaðarvörukaupmaður, Murehi- son gamli, séra Enok Low prestur í kirkjunni í Bethel Stræti og Ríkharður Barras sem vav ein- róma kjörinn formaður. Auk þess átti sæti í nefndinni fulltrúi frá hermálaráðuneytinu, Douglas kapteinn. Bæjarráðsritarinn Ruttei’, var ritari nefndarinnar. Arthur fylgdist með störfum nefndarinnar af áhuga og óstyrk. Hann var fljótur að kom- ast að raun um að þarna var alvara á ferð- um. Hvað eftir annað var umsóknum um undan- þágu synjað. Douglas var forliertur og ráðríkur. Hann gerði umsækjendurna dauðskelkaða. til- kjnnti siðan úrskurð sinn: „Ég þarf á þessum manni að halda"; Ramage og faðir Arthurs voru báðir álíka bólgnir af ættjarðarást; hinir höfðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.