Þjóðviljinn - 12.05.1951, Síða 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 12. mai 1951
(MÓÐVIL)INN
Útgefandl: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, SigurBur Guðmundsson (ób.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Arl Kárason, Magnús Torfl Ólafsson, Jónas Árnason.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Síml 7500 (þrjár línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði — Lausasöluverð 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h. f.
i Kernám ísiands eykur
stríðshætluna
Erlend blöð sem ekki eru sorprennur bandaríska áróðurs-
5ns telja striðshættuna í heiminum hafa stórum vaxið við her-
nám Islands. Eftir innlimun Ðanmerkur og Noregs í hern-
aðarbandalag Bandaríkjanna hefur athygli umheimsins í vax-
andi mæii beinzt að Svíþjóð, sem neitaði að verða með í Atlanz-
Laísbandalaginu. Það kom þó ekki til af því að núverandi vald-
bafar Svíþjóðar séu miklum mun ónæmari fyrir bandarískri
ástleitni en danskir og norskir starfsbræður þeirra, en hitt
reið baggamuninn, að þjóðin hafði skýrari skilning á þeim
gífulegu hættum er leiðir af því að láta rígbinda sig í striðs-
vagn Bandaríkjanna, og sósíaldemókratar Svíþjóðar mátu það
svo að þeim yrði ekki liðið að ganga gegn þjóðárviljanum um
iþað örlagamál.
Enda stinga ummæli blaða sænsku rikisstjórnarinnar mjög
i stúf við þýlindisáróðurinn í dönskum og norskurn blöðum.
Svíum er ljóst að með hernámi íslands geti færzt nær framkv.
þeirrar ætlunar bandarískra heimsvaldasinna að hefja þriðju
heimsstyrjöldina, þeim er ljóst hvað það þýðir að Bandaríkja-
Ætjórn er að færa fram vígstöðvalínu sína, manna þær stöðvar
sem herfræðingar um heim allan reikna með að yrðu í fremstu
víglínu ef Bandaríkjaauðvaldinu tekst brenn'uvargsætlunin, að
kveikja í heiminum.
Og hverjum skyldi ætlað að trúa því að flugstöðvar Banda
ríkjamanna á Islandi séu ætlaðar til varnar ? Bandarísikir stjórn-
málamenn og herfræðingar fara ekki dult með að hernaðar-
undirbúningur Bandaríkjamanna er miðaður við sóknarstyrj-
Öld. Flugstöðvar og herstöðvar um Evrópu, Afríku og Asíu, í
stórum hring um alþýðulýðveldin í Evrópu, Sovétríkin og Kina
<eru ekki ætlaðar til „vamar“. Kjarnorkusprengjur og sýkla-
morið sem Bandaríkin treysta á eru ékki varnarvopn. Bæði
Islendingar og útlendingar vita, að það er staðreynd sem seg-
ir í ávarpi Sósíalistaflokksins að tilgangur hernáms Islands
sé sá að „nota það sem herstöð til árásar á meginland Evrópu“.
Afleiðingar þess sér enginn maður fyrir. Þó er svo mikið víst, að
takizt Bandaríkjaauðvaldiuu að koma af stað þriðju heims-
etyrjöldinni munu sex menningarnir i ríkisstjórninni og þeir
fjórir tugir alþingismanna sem tóku á sig þá ábyrgð að gera
ísland að bandarískri herstöð, jafnan taldir mestu óhappamenn
Islandssögimnar.
Ríkisstjórnarklíkan ber ábyrgðina
Ýmsir atburðir gerast þessa síðustu daga sem benda á að
ríkisstjórnarafturhaldið og hinir bandarísku yfirboðarar þess
hugsi sér að láta koma til þeirra viðtæku verkfalla sem boðað
hefur verið til eftir tvo daga. Fari svo, sem allar horfur eru
á, er þar um glæpsamlegt ábyrgðarleysi að ræða, ábyrgðar-
leysj sem veldur óhemjulegu tjóni á hverjum degi sem vinnu-
stöðvun stendur.
Ríkisstjórnarklíkan mun þá fá að kenna á valdi verkalýðs-
samtakanna. Aldrei fyrr hafa jafn mörg félög staðið saman,
aldrei fyrr hefur jafn miklu afli verið beitt og í þeim átökum
eem framundan eru. Flest helztu félög Reykjavíkur — með
rum 8 þúsundir starfandi meðlima hafa boðað vinnustöðvun og
aíleiðingin hlýtur að vera sú að flestar athafnir falla niður hér
3 bænum og víðar. Eitt bifreiðastjórafélag austur í Árnessýslu
á nú í verkfalli við vegavinnu, og afleiðingin er sú að mjög erfitt
cr að koma mjólk til Reykjavíkur og áburðarflutningar til
bænda hafa stöðvazt. En hversu margfalt víðtækari verða ekki
afleiðingarnar af stöðvun í Reykjavík sem tekur til flestra fé-
laga í bænum! Öll starfsemi þjóðfélagsins hvílir á verkalýðn-
nm og felli hann niður atvinnu sína þó ekki sé nema stutta
stund mun sjálft þjóðfélagið lamast. Sameinaður verkalýður
er afl sem ekkert fær staðizt.
Verkalýðssamtökin í Reykjavík vilja ekki að til verkfalla
Jvomi; þau kæra sig ekki um að beita valdi sínu. En séu rétt-
lætiskröfur þeirra hunzaðar eiga þau ekki annarg kost. Og rík-
iestjórnarafturhaldinu er hollt að gera sér Ijóst að það mun
tkki takast að kúga vekalýðssamtökin til hlýðni; alþýðan veit
sð hún býr yfir afli sem enginn máttur fær bugað, og því afli
verður beitt ef nauðsyn ber til. En komi til þess ber ríkisstjórn-
Jahklíkan ein alla ábyrgð.
Gerum fundinn
glæsilegan.
I kvöld safnast reykvísk al-
þýða saman til að mótmæla
þeim svikum sem málstaður Is-
lands enn hefur verið beittur á
örlagastund. — Alþýðan mun
gera þennan fund að glæsilegu
tákni þess máttar sem nafni
Islands eflist í brjósti hennar
að sama skapi sem rödd þess
kafnar í brjósti þeirra sem
landráðin fremja. Landráðaöfl-
in skulu skjálfa fyrir hinum
hávaðalausa mætti þessa fund-
ar. Hann skal verða þeim óræk
ur fyrirboði þess hver endan-
lega mun bera sigur úr býtum
í baráttunni um örlög tslands.
. n .
Takið kunningjana með!
Enginn, sem á þess kost að
sækja þennan fund, má sitja
heima í kvöld. Takið vini ykkar
og kunningja með, hvar í
flokki sem þeir standa. Þetta
er þeirra fundur allra jafnt,
fundur alþýðunnar, vettvangur
sameiginlegra mótmæla gegn
þeirri svívirðu sem höfð hefur
verið í frammi við hana, land
hennar og sögu, vettvangur þar
sem hún þjappar sér saman og
strengir þess heit að linna ekki
baráttunni gegn ofbeldi þessu
og órétti fyrren fullur sigur
er unninn. — Já, við skulum
fjölmenna á fundinn í kvöld.
Við skulum láta landráðaöflin
finna þann kyrrláta styrk sem
býr í sameinaðri íslenzkri al-
þýðu á þessum örlagatímum.
o n .
Svar borgarlæknis.
Hér er svarið sem borgar-
læknir sendir við fyrirspum
sem gerð var til hans 11. maí:
„1 blaði yðar í dag kvartar
„húsmóðir við Bollagötu“ yfir
sorphreinsuninni eins og hún
hefur verið áð undanförnu. ;—
Það er því miður fullkomlega
rétt, að of langt er á milli
tæminga á sorpílátum nú sem
stendur. Hreinsunarflokkunum
er ætlað að tæma hvert ílát
eigi sjaldnar en vikulega, a. m.
k. á sumrum, en í þessum mán-
uði hafa flokkarnir verið 5-—7
daga eftir áætlun. I Bollagötu
t. d. fóru, skv. bókun í skrif-
stofu minni, þrjár síðustu
hreinsanirnar fram miðviku-
dagjnn 10. maí. Þessi seina-
gangur á þó engan veglnn rót
sína að rekja til „amlóðahátt-
ar“ hjá hreinsunarmönnunum,
eins og „húsmóðir" vill halda
fram. Hreinsunarstarfið hefur
sótzt óvenju seint þennan mán-
uð af ýmsum ástæðum: vor-
hreingerningar innanhúss fara
einmitt fram um þetta leyti,
talsvert er um flutninga, og
vegna óhagstæðrar tíðar í
apríl hefur vorvinna á lóðum
og í görðum dregizt til skamms
tíma.
. n .
Ankaráðstafanir
♦
þessa viku.
„Allt hefur þetta hjálpazt að
til að auka sorpmagnið gífur-
lega á stuttum tíma, svo að
hreinsunarmennirnir hafa víð-
ast hvar orðið að fara eina
eða fleiri aukaferðir heim að
húsunum til þess að sækja
trjágreinar og annan úrgang.
Loks hafa hinir mörgu frídagar
undanfarið gert sitt til að auka
vandræðin. -— Til úrbóta hafa
aukaráðstafanir verið gerðar
þessa viku, að svo miklu leyti
sem bílakostur hefur leyft, og
verður þeim haldið áfram eins
lengi og þörf gerist. — Jón
Sigurðsson.“
• □ °
Maður í sveitinni
svarar fyrir sig.
Bóndi skrifar: „Þann 6. maí
síðastliðinn skrifar Agr. i Bæj-
arpóstinn um meðferð landbún-
aðarvæla. Hann hrópar af vand-
lætingu, já, og honum svelgist
á, enda að vonum, því að stór
eru orðin, er hann reynir að
mæla. Hann heldur því fram,
að landbúnaðarvélar standi úti
um land allt á vetrum. Eg
leyfi mér að ándmæla, því að
mér er vel kunnugt um, að svo
illa er þessu eigi farið. Við
vitum, að alstaðar eru þeir
svörtu sauðimir, en að dæma
hjörðina alla svarta er fráleitt.
I Reykjavík eru nokkrir fá-
vitar. Af því mundir þú, Agr,
sæll, álykta alla Reykvíkinga
fávita. Er ekki svo? En hví
lítur þú þér ekki nær? Hví
æpir þú eigi að bílaeigendum
Rvíkur? Standa þar eigi úti,
sem bílarnir eru, verðmæti, er
veðrast á Ikostnað erlends gjald
eyrís? — Bóndi.“
* ★ *
ÁN ÞJÓÐVILJANS fengi ein-
okunarklíkan óátalið að valsa
með málefni lands og þjóðar!
Gerizt áskrifendur.
Heiísuvérnd, tima-
lit Náttúrulækn-
ingafélags Islands,
1. . hefti 1951, er
nýkomið út. Úr
efni þess er þetta
helzt: Merkilegar manneldistilraun
ir eftir ritstjórann, Jónas Krist-
jánsson. Hvernig Island kom mér
fyrir sjónir (dr. Kirstine Nolfi). —
Heilbrigðar gulrófur (Jón Árn-
finnsson, garðyrkjumaður). — Út-
flutt kjöt og sojabaunir (Björn L.
Jónsson). — Húsmæðraþáttur,
bakstur úr heilhveiti (frú Dag-
björt Jónsd.). — Ungbarn lspknar
sig með kartöflum (B.L.J.). — Eit-
urefni í matvælum. — Fósturláti
afstýrt með hráfæði. — Læknar
skýra orsakir krabbameins. —
Spurningar og svör. — Þingsálykt-
untillaga um útvégun heilnæmra
fæðutegunda. — Merkileg indiána
þjóð. — Á víð og dreif. — Félags-
fréttir o. fl. Nokkrar myndir prýða
ritið.
Sí. laugardag
voru gefin sam
an í hjónaband
Arndís Bjarna-
dóttir, hjúkrun-
**- arkona og Guð-
mundur Guðmundsson, trygginga-
fræðingur, Háteigsvegi 42. — Sl.
.laugardag voru gefin saman í
hjónaband í Vestmannaeyjúm ung
frú Jóna Júiíusdóttir og Tryggvi
Jónásson frá lsafirði. Heimíli ungu
hjónanna er á Urðarvegi 8, Vest-
mannaeyjum. — Sl. laugardag
voru gefin saman í hjónaband af
sr. Emil Björnssýni ungfrú Auður
Guðmundsdóttir og Guðmundur
A. Erlendsson, )jósmyndari, Stór-
holti 45.
Sextug er í dag ekkjan Eyrún
Helgadóttir, Hverfisgötu 100 B,
Reykjavík.
Mjónunum Ingu
rQ ' Þorgeirsd. og Ing-
W /j ^ ólfi Guðbrandssyni
J V Jiennara, Hofteigi
í W v 48, íæddist nýiega
dóittir. — Hjónun-
um Áslaugu Siggeirsdóttur og (
Friðjóni Sigurðssyni, lögfræðingi,
fæddist sónur 1S. mai.
■\y's
Skipadeild S.l.S.
Hvassafeli lestar saltfisk í Faxa
flóa. Arnarfell lestar saltfisk í
Vestmannaeyjum. Jökulfell fór frá
Reykjavik i gærdag kl. 15.00 áleið
is til N.Y.
Ríkisskip
Hekla er á Austfj. á suðurleið.
Esja fer frá Rvík í kvöld vestur
um land til Akureyrar. Herðubreið
fer frá Rvík í kvöld austur um
land til Siglufj. Skjaldbreið er
væntánleg til Rvíkur í dag að
vestan og norðan. Þyrill er i Rvík.
Eimskip
Brúarfoss komur til Rvíkur i
gær 15. þm. frá Sigluf. Fer frá R-
vík í kvöld 16. þm. til Grimsby.
Dettifoss fór frá Alexandria 8.
þm., væntanlegur til Hull 19. þm.
Fer þaðan til London. Fjallfoss fór
frá Rvík 11. þm. til Austfj., Gauta
börgar og Kaupmannah. Goðafoss
fór frá Reykjavík 11. þm. til
Hull, Grimsby, Hambosgar og
Rotterdam. Gullfoss kom til Kaup
mannahafnar 14. þm. frá Borde-
aux. Lagarfoss kom til N.Y. 10.
þm. frá Rvík. Selfoss væntanleg-
ur til Rvíkur kl. 23—24.00 í gær-
kvöld 15. þm. frá Austfjörðum.
Tröllafoss kom til Reykjavíkur
14. þm. frá Norfolk. Hilde kom
til Reykjavíkur 9. þm. frá Leith.
Marie Boye fór frá Akureyri 14.
þm. Fermir í Álaborg og Odda í
Noregi seinni partinn í maí til R-
víkur. Katla fór frá N.Y. 8. þm.
t.il Reykjavíkur. Liibeck kom tii
Reykjavíkur 14. þm. frá Hull.
STAKA.
Stórveldinu færði fórn,
Fróni varð að helsi.
Sárt er að eiga svona stjórn
er selur land og frelsi.
ÞJÓÐVILJINN er ekki aðeins
blað sósíalista. Þjóðviljinn er
blað alþýðufóiks í öllum flokk-
um. Gerizt áskrifendur!
Flugfélag Islands:
Innanlandsfiug: I dag er ráð-
gert að fljúga til Akurevrar, Vest
mannaeyja, Hehisands og Sauðár-
króks. Á morgun eru áætlaðar flug
ferðir til Akureyrar, Vestmartna-
eyja, Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfjarð
ar, Neskaupstaðar, Seyðisfjarðar
og Sauðárkróks. Miliilandaflug:
Gullfaxi kom frá Londön i gær-
kvöld. Flugvélin fer til Osló á,
föstudagsmorgun og kemur aftur
til Reykjavíkur samdægurs.
8.30—9.00 Morgun-
útvarp. 10.10 Veð-
urfr. 12.10—13.15-
Hádegisútvarp. —
15.30 Miðdegisút-
varp. 16.25 Veður-
fregnir. 19.30 Tónleikar: Óperulög.
20.30 Erindi: 1 rannsóknarför um
Vatnajökul (Jón Eyþórsson veður-
fræðingur). 21.00 Skólakvöld: Söng
ur kóra úr framhaldsskólum i R~
vik., upplestur o. fl. 22.10 Dans-
lög. 22.30 Dagskráriok.
MARSHALLSTEFNAN er að
drepa íslenzkan iðnað. Þjóðvilj-
inn er eina dagblaðið, sem berst
gegn Marshallstefnunni, fyrir
tilveru og viðgangi íslenzka iðn-
aðarins. Gerizt áskrifendur!
Loftleiðir h.f.:
1 dag er áætlað að fljúga til:
Vestmannaeyja, Isafj., Patreksf j.,
Akureyrar, Sa.uðárkróks og Hólma
víkur. — Á morgun er áætlað að
fljúga til: Vestmannaeyjá og Ak-
ureyrar.
Næturlæknir er í læknavarðstof—
unni, Austuibæjarskólanum. —
Sími 5030.
Næturvörður er í Laugavegs-
apóteki. — Simi 1618.