Þjóðviljinn - 12.05.1951, Side 5
Laugardagur 12. maí 1951 — ÞJÓÐVILJINN
Dýr mundi
I dag er sá alþýðumaður til
bálstofu borinn, sem mér
þótti meir vera Háva kyns en
nokkur annar sessunautur og
vinur, sem ég hef átt í Reykja
vík. Einar hollvinur hans
Benediktsson gefur samlík-
ínguna, er hann kveður í leit
að manni á torgi múgans:
Svo há og víð er hjartans
auðá borg,
að hvergi kenhir rjáfurs eða
veggjar.
En leiti ég manns, ég lít um
múgans torg;
þar lifir kraftur, sem minn
vilja eggjar.
Hvað vita þessir menn um
sælu og sofg,
er supu aldrei lífsins veig í
dreggjar!
Eg þrái dýrra vín og nýja
vini
og vel mér sessunaut af Háva
kýni.
Sá fulltrúi almúgans, sem
þessum eigindum og reynslu
er gæddur, skyldi dýrst bætt-
ur maður á íslandi, ef vel
væri, því að hann er tákn þjóð-
arandans. Hvort sem hann
nefnist Bólu-Hjálmar og varð
ódauðlegt skáld eða Ölafur
Kárason, ímyndað og full-
skapað skáld, eða Hafliði Jórts
son sjómaður, áþreifanlegt,
en óskapað skáld, er þjóðar-
andinn jafnt að verki í þeim
öllum, þeir supu einhverntíma
á ævi veig íslenzkrar alþýðu-
þjáningar í dreggjar, áttu
dýpri sorg og sælu inni fyrir
og hærra til rjáfurs í hjart-
anu en flestir menn. ,,Þar lif-
ir kraftur,“ segir Einar um
þaU hjörtu, og þessir menn
áttu allir orku, sinn með
hverju móti, til að spenna
boga sinn í bardaga, og gnótt
hvassra örva áttu þeir stund-
um. En að skotum þeirra urðu
sjaldnar not nema helzt
Hjálmars,
því eðlið er spunnið af
öðrum toga,
þess ör á ei streng á sinn
boga.
Ekki er rúm hér að ræða,
hve margir og mis-samstæðir
þættir voru fólgnir í Hafliða
Jónssyni sjómanni. Þátttaka
hans í félagsmálum, tryggð
við Héðin Valdimarsson, sem
hann átti hjartfólgnar bar-
áttuminningar bundnar við,
einlægni hans og hiti hvar og
hvenær sem honum þóttu út-
lendir menn og þjónar þeirra
ganga á íslenzkan rétt, —
þetta var þeim f jölda manna
kunnugt, sem átt höfðu við
hann orðastað þar, sem hann
vann allan síðasta kafla æv-
innar (á benzínstöð), eöa
mætt honum annars staðar.
Vitaskuld var, að einskis
manns var að verða Hafliða
sammála um allt, sem hugur
hans steypti sér gegnurn á
fluginu, enda hefði hann ekki
metið þann jábróður mikils,
sem það hefði gert.
Hafliði komst nokkra vet-
ur yfir fifnmtugt og dó, með-
an hann var í æsku andlega.
Um lífsþrótt hans og langanir
get ég ekki stillt mig um að
ljóstra því upp, sem hann
trúði mér fyrir snemma í þess
um mánuði, að mikið langaði
sig til að læra nú loksiris að
synda þrátt fyrir hjartavéil-
una, sem hann vissi, að var
búin að sitjá um líf hans
nokkuð á annan áratug og
hlaut að sigra. Þetta spratt af
tali okkar Um íþróttir sona
hans, sem hann gladdist áf, og
íslenzkán metnáð í norrænni
f jölsundskeppni.
Næst mættúmst við 7. maí,
þar sem hann vann. Hann var
glaðlegur og reifur, en undir
niðri mikið og þungt, byrjaði
að tala um nýtt hernám. Ann-
ir beggja slitu talinu þegar, en
í hug mér lifnaði minning frá
hernámsárum, suddaþungt
miðnætti á sama benzínplani.
Kringum bíl við tank Hafliða
væflaðist Gunna eyðimörk
fulltrúi Islands og 2—3 jafn-
merkir fulltrúar erlends stór-
veldis, — reikuðu þó minna
en hún. „Horfðu ekki á það.“
Skepnur," sagði Hafliði, því
að þetta snart hann ólíkt
Grímsbýarlýð, og hann bætti
við ófínni orðum um heldri-
dömur, sem við tankinn birt-
ust í líkum erindum og þætt-
ust gera happaför. „Þjóð þín
og mín,“ sagði hann, „er ekki
Gunna ræfill, heldur prúðbún-
asta hefðarkvendi, sem treður
sér í græðgi og dollaralosta
inn í bíla herraþjóðarinnar.“
Svo vildi til aðfangakvöld
hins ellefta hernámsafmælis,
að Hafliða sótti ómegin við
vinnu sína, studdist við dyru-
staf. Hjartað neitaði að slá
lengur. Hann féll og var nær
um leið örendur.
Þannig lauk ábyrgðarstörf-
um ævinnar. Löngu innan
fermingar hóf hann þau í
smán og skorti öreigans vest-
ur í Skálavík, með hraust-
lyndri móður og hópi yngri
systkina, og öll varð honum
sú ævi að þroskabraut og öðr-
um gagn.
Hafliði bjó á Ásvallagötu
61. Hann lætur eftir sig ekkju
og fjóra syni, einn þeirra í
bernsku. I þeim virðist vera
góður málmur að erfðum.
Það er þegnfélag vort, sem
misst hefur mann, þar sem
Hafliði hvarf, að ógleymdum
Framhald á 7. síðu.
Áætlaðar flug-
ferðir
frá 15/5—15/6
1951
Ennanlands:
Frá Réýkjavík:
Sunnudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
Mánudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Hornafjarðar
— Kirkjubæjarklaust-
urá
— Sigluf jarðar
Þriðjtidaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Blönduóss
— Sauðárkróks
— Siglufjárðár
Miðviktidaga:
Til Akureyrar
■— Vestmannaeyja
— Sauðárkróks
— Hellisands
— Siglufjarðar
Fimmtudaga:
Til Akureyrar
•— Vestmannaeyja
— Seyðisfjarðar
■— Norðfjarðar
— Reyðarfjarðar
— Fáskrúðsfjarðar
— Sauðárkróks
— Blönduóss
— Siglufjarðar
Föstudaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Hornafjarðar
•— Fagurhólsmýrar
— Kirkjubæjarklaust-
urs
— Siglufjarðar
Laugardaga:
Til Akureyrar
— Vestmannaeyja
— Blönduóss
— Siglufjarðar
— Sauðárkróks
Frá AkureyrS;:
Til Siglufjarðar alla
virká daga
— Ólafsfjarðar, mánu-
daga og fimmtu-
daga
— Austfjarða, fötetu-
daga.
FEygféfðg Ísíands h.f.
HópferS Dano
til Islands
í Kaupmannahafnarblaðinu
„PoIitiken“ birtist þann 3. maí
s. 1. frétt þess efnis, að í júlí
verði efnt til 18 daga ferðar
frá Danmörku til Islands. Er
það ferðaskrifstofa blaðsins
setii gengst fyrir ferð þessari
í samvinnu við Ferðaskrifstofu
ríkisins liér.
V.erður lagt af stað frá IC-
höfn þann 14. júlí með „Gull-
fossi“. Til Reykjavíkur komiö
þahn 19., og næstu átta daga
ferðazt um landið, Þingvellir
heimsóttir, Laugarvatn, Gull-
foss, Geysir, Hekla, eitthvað
farið gpp undir jökla, o. s. frv.
Til Danmerkur verður haldið
aftur me'ð „Drottningunrii“ 27.
júli.
Er líklegt að þátttaka í þess-
ari ferð verði mikil, enda býðst
hún Dönunum fyrir tiltölulega
lítið verð, samkvæmt því sem
blaðið segir.
Öldur á Buðum
Fáskrúðsfirði. Frá frétta-
ritara Þjóðviljans.
Ungmennafélagið Leiknir á
Búðum í Fáskrúðsfirði hafði í
gær frumsýningu á leiknum Öld
ur eftir Jakob Jónsson.
Aðsókn og undirtektir voru
ágætar. Mun félagið sýna leik-
inn á eystri fjörðunum, enn-
frerriur leikinn Seðlaskipti og
ástir, sem félagið æfði og sýndi
í fyrra.
Mikill snjór er hér enn og
verður að gefa fé mikið inni og
hefur heyið sem hingáð var
flutt reynzt alltof lítið. Afli hef
ur sama og enginn verið, 2—3
bátar fóru nokkrum sinnum, en
hættu vegna aflaleysis. Á hvíta-
sunnunni var fermt í báðum
kirkjunum, Kolfreyjustað og
Búoum, 15 börn hér en 6 á Kol
freyjustað og af þeim voru 3
alsystur.
Alexander 16-
hannesson rektor
í boði Frakklandsstióinai
Prófessor Alexander Jóhann-
esson, rektor Háskóla Isiands,
lagði af stað héðan í dag, þriðju
dag, áleiðis til Frakklands, en
þangað fer hann í boði frönsku
ríkisstjórnarinnar.
Rektor mun dvéljast í mánuð
á Frakklandi, þar sem hann
mun heimsækja háskólana í
París, Caen og Grenoble og
halda þar fyrirlestur um efnið
„Rannsóknir á uppruna máls-
ins“. í París mun rektor halda
fyrirlestur sinn þ. 18. þ.m.
Prófessor Alexander Jóhann-
esson og kona hans, sem ferð-
ast með honum, munu að lok-
um dveljast við Miðjarðarhafs-
strönd Frakklands. Meðan rekt-
tor stendur við í Normandie,
mun hann heimsækja Avranch-
es, í boði borgarstjóra þeirrar
borgar. Eins og mönnum er
kunnugt, var rektor í fram-
kvæmdanefnd Frakklandssöfn-
unarinnar rétt eftir síðustu
heimstyrjöld, og safnaði nefnd-
in gjöfum til þessa bæjar, sem
var mjög hart leikinn af völd-
um stríðsins. Sem þakkarvott
hefur borgarstjórnin gefið einni
af götum bæjarins nafnið „Is-
landsgata".
— (5
Leikfélag Reykjavíkur:
Ssgðu steminwm
sýnt annað kvöld
1 sjónleikrium Segðu stein-
inum — eftir John Patrick hef
ur' Leikfélág Reykjavikur safn-
að saman nokkrum skemmti-
legustu yngri leikendum bæjár-
ins, enda má segja, að sýning
leiksins sé með frískum og
hressilegum brag, svo að unun
er á að horfa. Leikritið sjálft
hefur hlotið góðar undirtektir
og vinsældir, efni þess er og
einkar hugþekkt. Rúrik Har-
aldsson, Guðbjörg Þorbjarnar-
dóttir og Gunnar Eyjólfsson
fara með aðalhlutverklini, en
Gunnar Bjarnason vekur mikla
kátínu með leik sínum í hlut-
verki enska hermannsins og
Gísli Halldórsson, sem vakti
athygli á sér fyrir leikmeðferð
í fyrri sjónleik L.R., sýnir nú
að hann er efni í góðan skap-
gerðarleikara. Árni Tryggva-
son, Þorgrímur Einarsson : og
Guðjón Einarsson fara með
önnur hlutverk í leiknuin.
Næsta sýning Leikfélagsins á.
þessum skemmtilega, leik verð-
ur annað kvöld.
200 hestái af töðu
brenna
Sl. laugardag kom upp eldur
í vörugeymslu kaupfélagsins á
Vopnafirði og eyðilögðust 200
hestar af töðu, en öðrum vör-
um, sem í húsinu voru var
bjargað. Vörugeymslan eyði-
lagðist. Eldsupptök eru ókunn.
Ingólfur Gíslason
Ingólfur Gíslason læknir lézt
í sjúkrahúsi í fyrrakvöld. Ing-
ólfur var fæddur að Þverá í
Dalsmynni 17. júlí 1874. Hann
lauk kandidatsprófi í lækriis-
fræði 1901, var skipaður héraðs
læknir í Reykdælahéraði og síð-
ar var hann læknir í Vopna-
firði og Borgarnesi. Hann fékk
lausn frá embætti 1941 og flutt
ist skömmu síðar til Reykjavík-
ur. Ingólfur hefur skrifað tvær
minningabækur: „Læknisævi“
og „Vörður við veginri' og þótti
hinn skemmtilegasti útvarps-
fyrirlesari.
Eldsvoði á Þingeyii
Á laugardagsmorgun sl. kom
upp eldur í vörugeymslu Kaup
félags Dýrfirðinga á Þingeyri.
Talsvert tjón varð á vörum
kaupfélagsins, bæði af eldi og
reyk. Eldsupptök eru ókunn.
Greiðasalaþing í Rvík
Dagana 2. til 5. júli n. k. eru
væntanlegir hingað til lands 14
fulltrúar frá Norðurlöndum, til
að sækja ársþing Nordisk Hot-
el- og Restaurantforbund, sem
haldið verður hér í Reykjavík
dagana 6.—12. júlí. Alls verða
22 í hópnum, þar af 8 eiginkon
ur fulltrúanna. Samband veit-
inga- og gistihúsaéigenda ann-
ast móttökur gestanna, en full-
trúar frá þeim samtökum hafa
sótt ársþing undanfarinna 3ja,
ára, sem haldin hafa verið í
Kaupmannahöfn, Osló og Hels-
ingfors.