Þjóðviljinn - 30.06.1951, Síða 8

Þjóðviljinn - 30.06.1951, Síða 8
'■■Sft ISnþing íslendinga: ES ia stfórncsriimar lið iyrir lið 13. iðnþing íslendinga hélt áfram störfum í fyrradag og vom þá tekin í LandssambandiÖ tvö ný félög, Iönað- armannafélag Rangæinga og Iðnaðarmannafélagið Ham- ar í Hveragerði. Þingiö bar fram kröfur um að ríkisstjórn- in léti af hinum skipulagöa lánsfjárskorti sínum, að tryggt væri að byggingarefni væri flutt inn svo snemma aö bygg- ingar geti hafizt strax að vorinu, að almenningur fái frelsi til að byggja sér ódýrar smáíbúðir. Ennfremur mót- mælti þingið harðlega okurgjaldeyri. ríkisstjórnarinnar og krafðist þess aö afnumdar yrðu skriffinnskustofnanir stjórnarinnar, fjárhagsráð og undirdeildir þess. Nokkrar samþykktir þingsins fara hér á eftir: Lánsfjárskorturinn ,,1, 13. Iðnþing Islendinga skorar á ríkisstjórn og Alþingi: a. Að leggja á næsta Alþingi varanlegan grundvöll undir fjáröflun til nauðsynlegra lán- þarfa iðnaðins. ta. Að tryggja hagkvæm og nægjanleg lán «út á fasteignir svo byggingastarfsemi ekki leggist niður vegna fjárskorts. c. Að tryggja iðnaðinum nægilegt rekstrarfé í hlutfalli við aðra atvinnuvegi þjóðar- innar.“ Skemmdarverk í innflutningsmálum. „2. a. Iðnþingið beinir þeim tilmælum tii innflytjenda að þeir geri allt, sem í þeirra valdi stendur til að efnivörur til iðn- aðarins verði fluttar til lands- Fékk 200 timnur En veiðiveður var óhag- stætt út af Snæfellsnesi V. b. Einar Hálfdansson frá Boíungarvík kom aftur að landi í gær með 200 tunnur af síld. Hafði hann fengið síldina á svipuðum slóðum og daginn áð ur, út af ísafjarðardjúpi. M. b. Sveinn Guðmundsson frá Akranesi fékk 60 tunnur af síld í reknet í fyrrinótt út af Snæfellsnesi, og v. b. Runólfur frá Grundarfirði kom með 100 tunnur af sömu slóðum í gær. Veiðiveður var ekki hagstætt Framhald á 6. síðu. ins það sneinma árs, að bygg- ingar geti hafizt strax að vor- inu. b. Meðan f járhagsráð er starf andi skorar iðnþingið á það að leyfa innflutning á byggingar- efni, það snemma, að bygging- ar geti hafist strax að vorinu og geti haldið viðstöðulaust á- fram, ennfremur að fjárfesting- arleyfi verði veitt fyrri hluta ársins.“ Byggingaírelsi. „Iðnþingið skorar mjög ein- dregið á ríkisstjórnina að fram- kvæma nú þegar þingsályktun síðasta Alþingis um það, að þegnum þjóðfélagsins sé frjálst að byggja sér ódýrar smáíbúð- Okurgjaldevrir og skriííinnska. ,,13. þing Landssambands iðnaðarmanna telur að þjóðar- heill krefji að hömlum þeim á gjaldeyris og innflutningsmál- um þjóðarfnnar er ríkt hefur á undanförnum árum, verði af- Framhald á 7. síðu Laugardagur 30. j orá 1951 — 16. árgangur — 114. tölubiað ISLENDINGUM GEFIN ÞRJÚ SKINNHANDRIT: Elzta bréf sei til er á íslenzku Dr. Earl P. Hanson. piófessor við liáskólann í Delaware, hefur sent íslenzka ríkinu að gjöf þrjú skinnhandrit, er faðir hans, Albert Parker Ilanson, eignaðist á ferð sinni um Island árjð 1898. Segir dr. Earl P. Hanson, að faðir sinn heitinn hafi á- vallt haft í hyggju að krsma handritunum til Islands aftur og sé hann með gjöf þessari að framkvæma fyriræílanir föður síns. Norskur nýsköpunar-selfang- ari í Rekjavíkurhöfn Eitt vandaðasta skip sem hingað hefur komið Hingaö til Reykjavíkur kom s.l. þriðjudag norski sel- fangarinn Polorís frá Álasundi. Skipiö er á leigu hjá Dön- um eins og stendur, og kom frá Grænlandi til að sækja farþega sem væntanlegir voru hingað meö „Drottning- unni“ frá Kaupmannahöfn. Menntamálaráðuneytið bað dr. Björn Karel Þórólfsson, skjalavörð, að athuga handrit- in og er umsögn hans á þessa leið: „Öll eru bréfin þrjú um Reyki í Tungusveit. Elzta bréf- ið er dagsett 23. júní 1311 og er elzta bréf, sem til er á ís- lenzku með ártali og dagsetn- ingu. Það er prentað í íslenzku fornbréfasafni, 2. bindi, 372—3, eftir afriti, sem Jón, bróðir Árna Magnússonar, gerði,* en útgefandi fornbréfasafnins mun aldrei hafa séð frumrit bréfs- ins. Er þessi gjöf dr. Hansons hinn mesti kjörgripur. Bréfið hefur geymzt mjög vel, bókfell- ið óskert og furðu hreint. Inn- siglin bæði, sem sett voru fyrir bréfið þegar það var gert, eru þar enn, annað að vísu brákað. Hver stafur í bréfinu er skýr og læsilegur, svo að ekki verð- ur um villst. Þó að bréf þetta 3Ó ekki langt, má margt af því Framhald á 7. síðu Prentarar semja um Daffsbrúnar- t — eítir skyndiíund í íélaginu Skyndifundur var kallaður saman í Ilinu íslenzka prent- arafélagi í fyrradag með tæpra fimm stunda fyrirvara. Fyrir fundinum lá tillaga frá stjórn- inni um að samið yrði við at- vinnurekendur um að Dags- Framhald á 6. síðu. Þetta er nýtt og glæsilegt skip, búið öllum fullkomnustu tækjum. Stærð skipsins er 450 smálestir, með 1200 hestafla þýzkri Man-diselvél. Ganghraði skipsins er rúmar 11 mílur á vöku. Selfangarinn var byggður í Álasundi og hljóp af stokk- unum á s.l. vetri. Þetta er stál- skip með fjórum vatnsþéttum skilrúmum. Verð skipsins var 3 milljónir norskay krónur. Skip- stjóri og eigandi selfangarans heitir Peter Brandal. Tíðindamaður Þjóðviljans hafði tal af skipverjum og fékk þessar upplýsingar. Selfangar- inn fór veiðiferð í Nýfundna- Framhald á 7. síðu Samvmmitrygglngar taka að sér endurtr>ggmgar fyrir sænsku Samvinnutryggingaraar Fréttamenn út\arps og blaða áttu viðtal í gær við for- stjóra Samvinnutrygginga. Erlend Einarsson, og skýrði hann svo frá, að nýgengið væri f>á samningum um að Samvinnu- tryggingar taki allr iklar endurtryggingar fyrir sænsku sam- vinnutryggingafélögin. Hérlendis hafa dvalizt um nokkurt skeið tveir uf forráðamönnum Folksam, sem er samband sam- vinnuti yggingafélaga í Svíþjóð, þeir Seved Apelqvist forstjóri þess og Bengt Frænkel framkvæmdarstjóri bruna- og bifreiða- trygginga, og undirrlluðu þeir samningana fyrir Folksam. Er hér um að ræða mjög merkan þátt í starfi endurtrygg ingadeildar Samvinnutrygginga, en áður hefur deildin annazt endurtryggingar fyrir félög í Englandi, Kanada, Ástralíu og Israel. Að þessum samningum Joknum munu endurtryggingar- iðgjöldin nema allverulegri upp hæð en þau greíðast í erlendum gjaldeyri. . Trygingarstarfspmi byggist fyrst og fremst á því að dreifa Framhald á 6. síðu. IngóIfsfJarG’arverk- smiðfan tilbúin Síldarverksmiðjan í Ingólfs- firði á Ströndum hefir tilkynnt að hún kaupi síld til bræðslu og getið tekið á móti nú þegar. Hvað hyggst Sfómannafélagsslfórnin íyrir? Farmannasamningarnir eru útrunnir í kvöld Sljórn S. R. gerir ekkert til að knýja fram sainninga Á miðnætti í kvöld eru gildandi kjarasamningar milli Sjómannafélags Reykjavíkur annarsvegar og Eimskipa- félags íslands, Skipaútgerðar ríkisins og Eimsskipafélags Reykjavíkur hinsvcgar, gengnir úr gildi samkvæmt upp- sagnarákvæðum þeirra. En samningunum var sem kunn- ugt er sagt upp af hálfu sjómanna með tilskildum fyrir- vara. Hinsvegar er ekki kunnugt, að stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur hafi enn boðað vinnustöðvun á farskipaflot- anum eða yfirleitt gert nokkrar ráðstafanir til þess að knýja fram kjarabætur og nýja samninga fyrir farmenn- ina. Farmennirnir hafa lengi búið við mjög lágt kaup og léleg kjör án þess að nokkrar veru- legar breytingar til bóta hafi náðst fram. Var því samþvkkt að viðhafðri allsherjaratkvæða- greiðslu meðal þeirra í vor, að segja samningunum upp og eru þeir útrunnir T. júlí. Jafnframt fékk stjórn Sjómannafélags Reykjavíkur umboð til að leggja fram nýtt uppkast að samningum og boða vinnustöðv- un á flotanum þegar til kæmi. Fyrir nokkru lagði stjórn S. R. fram uppkast sitt að nýjum samningum, með nokkrum breytingum til hækkunar á kaupi o. fl. Útgerðarfélögin hafa neitað allri grunnkaupshækkun Framhald á 7. síðu Hvítahandinu lokað vegna viógerða Ákveðið hefur verið að loka. sjúkrahúsi Hvítabandsins um mánaðartíma vegna óhjákvæmi- legra viðgerða á húsinu. Eru vatns- og rafmágnsleiðslur hússins stórlega bilaðar orðnar. Mun sjúkrahúsið loka nú um mánaðamótin, en gert er ráð fyrir að það geti tekið til starfa að nýju um 1. ágúst n. k. Krossanesverksmiðjan iiEbúin að taka á méti síid app úr mánaðamótnnum Frá fréttaritara Þjóðviljans á Akureyri Akureyrartogaranir Svaibakur og Harðbakur lönduðu ný- ver?,ð afla sínum í síldarverksmiðjjmni í Krossanesi hvor um sig 379 tonnum af karfa til bræðslu. Auk karfans var allmikið af grálúðu í báðum. I vor hefur Krossanesverk- smiðjuna undir að geta tekið smiðjan alls tekið á móti frá öllum f jórum togurum Akureyr- arkaupstaðar 6476 tonnum til bræðslu. Verið er nú að búa verk- á móti síld, ef hún kynni að ber ast, og er gert ráð fyrir að hægt verðj að hefja mótttökii síldaf fljótlega upp úr mánaff- armótunum júní—júlí.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.