Þjóðviljinn - 02.08.1951, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 02.08.1951, Qupperneq 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 2. ágúst 1951 30 sovéttogarar smiðaoir i Nviþjoo Sovétstjórnin er nú að láta smíða fiskiskip víða á norður- löndum, og eru meðal þeirra 30 togarar, sem smíða á í Sví- þjóð, til fiskveiða í íshafinu. Skipasmíðastöð í Gávle á að smíða 8 slíka togara og er sá fyrsti um það bil tilbúinn. Hann hefur hlotið nafnið ,,Am- úr“ og er 700 tonn. K í n a Framhald af 1. síðu. einungis hernumið grannland Kína, Kóreu og ráðizt allt norður að Jalú-fljóti með hem- aðaraðgerðir, heldur hafa bandarískar hernaðarflugvélar hvað eftir annað rofið lofthelgi Kína, varpað sprengjum á kín- verskt land og drepið og sært kínverska þegna. Bandariskir heimsvaldasinnar hika ekki við að vopna jap- anskan her og búast jafnframt til að halda Japan og Súður- Kóreu varanlega hemumdum. Þeir "hika ekki við að tæta sundur alla alþjóðasamninga og hyggjast semja sérfrið. við Jap- an, sem Kína gefst ekki kostur að ræða, hafa áhrif á né verða aðili að. Bandarískir heimsvaldasinnar lýsa því opinskátt yfir að þeir hyggist halda áfram ófriðleg- um aðgerðum gagnvart alþýðu- lýðveldi Kína. Og enda þótt Kínverjar æski einskis fremur en friðar, friðar í Asíu, friðar um allan heim, neyðumst við til að vera viðbúnir að verja land okkar og frelsi. Nú eru vopnahlésumræður hafnar í Kóreu, og Kínverjar óska þess að þær megi bera árangur og Kóreudeilan leysast á friðsamlegan hátt. En Kínverjar gleyma ekki hættunni, sem yfir þeim vofir. Úr fátæklega alþýðuhernum sem við stofnuðum 1. ágúst 1927 er að verða nútímaher, landher, floti, flugher. búinn nýjustu hergögnum og þjáif- aður í nútímahernaði. Og það skulu bandarísku heimsvalda- sinnarnir vita að alþýðuherinn er reiðubúinn að mæta hverri þeirri árás sem gerð verður á hið unga alþýðuveldi. Kaff ih Cora Sandel GENGISSKRÁNING. 1 f kr. 45.70 1 $ USA kr. 16.32 100 danskar kr. kr. 236,30 100 norskar kr. kr. 228.50 100 sænskar kr. kr. 315.50 100 finnsk mörk kr. 7.00 100 belsk. frankar kr. 32.67 1000 fr. frankar kr 46.63 100 svissn.fr. ' kr. 373.70 100 tékkn. kr. kr. 32.64 100 gyllini kr. 429.90 Að ferðast um allan heiminn-------það er víst-------það er að minnsta kosti garnan--------— ? heldur hún áfram hikandi og vandræðaleg. Eins og hún viti ekki hvað hún á að segja. Hún hefur gott af því að vera dálítið vandræðaleg. Það er sjálfri henni að kenna. Já, að mestu leyti, lcftið er hreint og himininn blár. Stund- um er það þreytandi og stundum skemmtilegt og glæsilegt kvenfólk í hverri höfn. Sumir hafa engan áhuga á kvenfólki. Jú, auðvitað að vissu marki, en annars gefa þeir ekki túskilding fyrir kvenfólk. En ég hef ánægju af kvenfólki, mér finnst alltaf gaman að félagsskap kvenna, Mér geðjast að konum. Það er auðvitað þrældómur að vera á sjónum, segir hann og breytir um rödd: En þó er það betra en í landi. Og ég get verið ánægður yfir minu hlutskipti eins og ástandið er meðal sjómanna í heiminum. Sumir félagar mínir í Svíþjóð lifa á bón- björgum. ♦ Og maðurinn fer meira að segja að tala um fjölskyldumál. Rétt eins" og hann og Katinka væru gamlir vinir: Ég á dóttur. Heima í Gávle. Þá eruð þér ekki alveg einn, segir Katinka og hún er enn vandræðaleg eins og hún viti ekki hvað hún á að segja. Þvættingur. Þetta hljómar afar ruddalega, en maðurinn hefur sjálfsagt ekki ætlað sér að vera dónalegur, því að andartaki síðar segir hann með þessari rödd, sem er næstum þægileg, þegar hánn sést ekki sjálfur: Fyrirgefið þér. Ég veit að þér eruð að reyna að vera vingjarnleg, en auðvitað vitið þér að þetta er þvætt- ingur. Ungt fólk er alltaf sjálfu sér líkt. Drekkið þér nú. Ef þér viljíð meira, þá skuluð þér fá það. Og Katinka tekur boðinu tveim höndum. Glásið glamrar við diskinn, Og rödd hennar er áreiðanlega dálítið þvogluleg þegar hún segir: En þykir henni ekki vænt um yður? Hún er að minnsta kosti ágeng eins og drukkið fólk er alltaf. Það er eins og hún hafi afar mikinn áhuga á því, hvort telp- unni þykir vænt um föður sinn eða ekki. Henni er sjálfsagt ekki illa við mig. En hún er hjá tengda- foreldrum mínum. Og tengdamamma hefur aldrei getið fyrir- gefið mér að barnið fæddist of snemma. Og hún kennir mér líka um dauða konunnar minnar. Konan mín fékk tæringu, og það átti að vera vegna þess að ég stóð mig ekki nógu vel, <Ok svo að hún þurfti að vinna meira en hún þoldi. En aldrei 20 suiadmemt af 155 sem tilkynnfiu þáttfiöku sína í verðlaunasundi Daily Mail syntu yfir Ermarsund 1 fyrra efndi euska stórblað- ið Daily Mail til keppni í sundi yfir Ermarsund, og er verðlaun um heitið sem svara til ca. 350 þús. ísl. króna, þar sem fyrsti maður og kona fær ca. 50 þús. Blaðið endurtekur þessa keppni í ár . og virðist áhuginn sízt minni nú. 23. ágúst leggja þessir 20 Leiðrétting Af misgáningi var Hannes frá Undirfelli nefndur Jónsson í leiðara blaðsins í gær en á að vera Pálsson. útvöldu sundmenn, sem eru frá 11 löndum í þessa hörðu og þrekmiklu keppni. Blaðið til- kynnir að þessir 20 keppéndur hafi verið valdir mjög vandlega úr þeim 155 sem tilkynntu þátt töku en þeir voru frá 23 lönd- um. Keppendurnir eru: frá Eng- landi 5, Frakklandi 3, Svíþjóð, Egyptalandi og Argentínu 2 frá hverju, Bandaríkjunum Kanada, Grikklandi Hollandi, Danmörku og Peru, 1 frá hverju. Annar sænski keppandinn ætlar í ná- inni framtíð að synda leiðina Kaupmannahöfn — Malmö sem er 25 km. sagði konan mín neitt 1 þá átt. Hún kvartaði aldrei. Hún fyrir- gaf mér allt. Sjálfsagt hef ég gert ýmislegt sem ég átti ekki að gera, en þannig eru flestir. En dóttir mín er á þeim aldri, að hún lítur aðeins við jafnöldrum sínum. Og ég hef víst ekki verið nógu góður við hana heldur. Hef ekki borgað eins mikið og mér bar, skiljið þér. Já, hérna sit ég og létti á hjárta mínu við yður. Skál. Ég hef að minnsta kosti borgað, segir Katinka annars hugar. Að vísu hefur hún gert það á sinn hátt, þótt hún hafi ekki ævinlega staðið í skilum. En það nær ekki nokkurri átt að tala svona við bláókunnugan mann. Og samt eruð þér einmana. Það eruð þér áreiðanlega. Það er sama hvernig maður fer að. Það er alveg eins gott að svíkjast um. Þau hirða ekki hót um okkur, hugsa ekki um neitt nema sjálf sig. Eiginlega er ungt fólk andstyggilegt. Það hef ur ánægju af að særa. Hafið þér ekki tekið eftir því? Það er eins og það hafi ógeð á okkur. Harðkúluhattinum er liðugt um málbeinið. Og Katinka ræf- illinn tekur undir: Já eiginlega---- Sjálf þykjast þau vera hreinasta afbragð, af því að þau eru ung. Þau geta ekki þolað að fólk eldist. Við þurfum að eiga mikinn auð, völd og hafa góða stöðu í þjóðfélaginu til að standa þeim á sporði. Ef svo tr ekki-----Og jafnvel þótt svo sé------ Þau eru full af ofmetnaði, af því að þau eru ung. Þarna situr Harðkúluhatturinn og mælir allt upp í henni Katinku. Hún er þó nógu afleit fyrir. Larsen lítur á Sönstegárd á frú Krane. Frú Krane hristir höfuðið með mæðusvip. Það er nauðsynlegt að halda í við þetta unga fólk, segir hann: Gefa þeim mat og þvíumlíkt. En segja fátt. Segja fátt. Nú er hún líka farin að tala sænsku. Og það eins og hún hafi fensrið svar við vandamáli sem hún hafi lengi haft áhyggjur af. Er það nú háttalag. Þetta er heilagur sannleikur, staðhæfir Harðkúluhatturinn: Og spyrja einskis----- Nei, spyrja einskis----- Þau muna aldrei eftir því að þau verða sjálf gömul fyrr en varir. Mér er alveg orðið sama um þau. Katinka er farin að tala hátt, eins og hún sé að reyna að yfirgnæfa eitthvað: Ég get ekkert gert fyrir þau hvort sem er. Ég hef hoppað og skoppað í kringum þau eins og lítill hvolpur, segir hún gremjulega. Harðkúluhatturinn tautar eitthvað. Það er ekki hægt að heyra orðaskil, en það er eins og hann berji hnefanum í borðið. Svona nú, segir frú Krane os virðist komin með eftirþanka. Uss, segja Larsen og Sönstegárdi: Við skulum heyra meira. Og þær heyra meira. Katinka bullar allt hvað af tekur. Móður- ástin, segir hún: Þau eru að tala um móðurást. Hún virðist eiga að þola allt. En það er ekki annað en vitleysa. Hvað gefa flest börn í aðra hönd? Fyrirlitningu. I hæsta lagi meðaumkun. Og það drepur ástina, alls konar ást. Þetta er heilagur sannleikur. Mín börn skilja mig ekki, skal ég segja þér. Hvað áttu mörg? Tvö. Tvö? Þá geta þau scmeinazt gegn þér. Það er ef til vill of mikið sagt----- Að hugsa ser þau eru farin að þúast. Þarna situr Katinka og þúar þennan líka mann. Og'talar meira að segja um einka- mál sín, börnin hvað þá annað. Frú Stordal er sokkin dýpra en fólk hélt. Einu sinni var hún þó siðsöm og skikkanleg kona. Mig langaði til að gera mitt bezta, skilurðu. En það er heimskulegt. Það borgar sig ekki. Maður uppsker ekki annað en fyrirlitningu • Kr.rðv. þig kollótta um þau, Ég geri það. Það er einmitt þáð sem ég geri. Þekkir þú þess konar ást sem líkist reiði, hún er svo aflvana. Þekkir þú hana ? Já ætli ekki það------ Um jólin til dæmis. Kuldaleg gagnrýnisaugnaráð þeirra. Ö- þægileg þögn. Maður hefur lagt sig allan fram. Verið á þön- um Betlað. Stofnað sér í skuldir. Skuldir á skuldir ofan. Það er aldrei nóg. Það er tilgangslaust að koma með útskýringar. Og hvað er hægt að útskýra? Enginn getur gert meira en sitt fcezta, Að sitja heima ein jól í biðbót? Eins og glæpamaður? Eins og einhver sem vanrækir skyldur sínar? Nei, nei og aftur nei. T

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.