Þjóðviljinn - 14.09.1951, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 14. september 1951
IMÓÐVILIINH
Útgefandl: Samelningarflokkur alþýSu — Sóslalistaflokkurinn.
Ritstjórar: Magnús Kjartansson, SlgurBnr Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjóri: Jón Bjarnason.
Blaðam.: Arl Kárason, Magnús Torfi Óiafssen, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Rltstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmlðja: Skólavörðustlg
19. — Sími 7500 (þrjár línur).
Áskriítarveið kr. 16 á mánuði. — Lausasöluverö 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
V. ____ j
Smáíbúðir og lánsfjárskortur
Fyrir síöasta alþingi lá frumvarp um aö bygging
smáíbúöa skyldi gefin frjáls. Þetta frumvarp átti óskipt
fylgi svo aö segja allra þingmanna, en hlaut þó þau
örlög að ná ekki fram að ganga.
Þaö var yfirstjórn bandaríska auövaldsins á fjár-
festingarmálum íslendinga. fjárhagsráö afturhaldsstjórn-
ar íhalds og Framsóknar, sem hindraöi framgang þessa
nauösynjamáls. Fjárhagsráö tilkynnti sjálfu alþingi ís-
lendinga að sá vfsir að frslsi í byggingamálum sem í frum
varpinu fólst væri mjög varhugaveröur, því væri sú stefna
tekin upp ,,myndi það gera ómögulegt að sýna. forráöa-
mönnum mótviröissjóös fram á hver fjárfestmgin væri,
þar sem takmarkanirnar næöu aöeins til hluta hennar".
Skýrar var ekki hægt að viðurkenna aö marsjallflokkarnir
höföu afhent erlendu valdi úrslitaáhrif um fjárfestingu
á íslanéi. Enda fór svo að allir þingmenn afturhalds-
flokkanna, að Jóhanni Þ. Jósepssyni undanskyldum,
beygöu sig fyrir hinu erlenda valdboði.
Nú hefur fjárhagsráö nýlega neyöst til aö slaka á
hinu óvinsæla og hataöa banni gegn byggingum smá-
íbúöa. Sá sigur er árangur af linnulauísri baráttu Sósíal-
istaflokksins gegn þeim höftum og fjötrum sem þrengt
hafa aö byggingariönaöinum. Almenningsálitiö fordæmdi
einum rómi banniö gegn því að íslendingum væri frjálst
að byggja yfir sig. Þaö er reiði fjöldans sem hefur knúiö
afturhaldið til þess undanhalds sem birtist í hinni ný
út gefnu tilkynningu fjárhagsráðs.
íslenzk alþýöa fagnar því aö fjöturinn hefur veriö
brotinn af byggingum smáíbúðanna, því þótt eftir sem
áður séu margir erfiðleikar í vegi efnalítilla alþýðu-
raanna. sem vilja koma upp þaki yfir höfuöiö, er hér
vissulega um mikilsveröan sigur aö ræöa.
Sá örðugleiki, sem nú mun fyrst og fremst mæta
þeim félitlu alþjöumönnum, sem framar öðrum hafa
þörf fyrir aö hagnýta sér þau leyfi sem fást til aö byggja
íbúöir af þeirri stærö, sem leyfðar verða, er án efa fjár-
skorturinn. Eins og málum er nú háttað em bankar og
aörar lánsstofnanir harölæstar fyrir þeim sem þurfa aö
fá lán til bygginga.
Þetta er msð öllu óþolandi. Þaö er óverjandi meö öllu
að bregöa fæti á þennan hátt fyrir efnalitla einstaklinga
sem hafa brýna þörf fyrir að byggja yfir sig.
Stærsti hópur þessara manna mun snúa sér aö smá-
íbúöabyggingum á lóöum þeim, sem Reykjavíkurbær
er nú að úthluta við Sogaveg, fyrir noröan hið nýja
Bústaöahverfi. Þarna veröur strax úthlutaö lóöum und-
ir 200 íbúöir. Nokkrir menn hafa þegar hafiö fram-
kvæmdir aö byggingum þarna, þótt á byrjunarstigi séu.
Þáö er skylda hins opinbera, ríkisvaldsins og bæjar-
yfirvalda, aö tryggja msö hverjum þeim ráöum sem til-
tæk eru, aö þessir áhugasömu einstaklingar geti komið
íbúðum sínum upp en framkvæmdir þeirra verði ekki
stöðvaöar meö hinum skipulagða lánsfjárskorti, sem rík-
isstjórnin og flokkar hennar eru ábyrgir fyrir.
Án alls efa nemur lánsfjárþörf þessara manna minnst
um 50 þús. kr. á íbúö eöa samtals um 10 millj. króna á
200 íbúöirnar. Þetta fé veröur að gera einstaklingunum
fært aö fá til bygginga sinna eigi að vera einhver von
um að koma þeim upp.
í þessu sambandi kæmi án efa til athugunar hvort
ekki væri skynsamlegt af einstaklingunum aö mynda
samvinnubyggingarfélag um þessar smáíbúðabyggingar.
Meö þeirri tilhögun væri aö því stuölaö að ríkisábyrgð
fengizt fyrir 80% af byggingarkostnaöinum, samkv. gild
andi lögum um aðstoð ríkisins við samvinnubyggingar-
félög.
En hvort sem sú leið veröur valin eöa ekki hvílir sú
skylda á ríkisstjórn og bæjarstjórn aö gera nauösynlegar
ráöstafanir án tafar til þess aó bægja hættu lánfjárskorts
ins frá dyrum þess fólks, sem nú eygir möguleika á að
eignast íbúð, eftir að fjárhagsráösíhaldiö hefur veriö knú-
iö íil nokkurs undanhalds.
Fróttabréf nm
heUbrigðismál.
Ágústheíti er kom-
ið út. Efni: Dauð-
inn er ekki ósigr-
andi. Ýmislegt v.nt
krabbameinsrannsóknir. Vat r:»
Gatnahreinsuniu í mið-
bænum.
Vegfarandi skrifar: „Bærinn
ver miklu fé til gatna- og sorp-
hreinsunar og skal það sízt
talið eftir. En þegar tekið er
tillit til kostnaðarins ætti
að mega gera þá kröfu til bæj-
arins að þessi starfsemi sé í
góðu lagi og þá ekki sízt þar
sem bæjaryfirvöldin geta bezt
fylgst með. Ég á oft leið um
Austurstræti og Pósthússtræti
og lief ekki komizt hjá því að
taka eftir hve gatnahreinsun-
inni er oft ábótavant þama í
sjálfu hjarta miðbæjarins. Það
er t.d. ekkert einsdæmi að við
götusteinana á horni Austur-
strætis og Pósthússtrætis sé
samansafn af blaðarusli og
hverskonar óþverra dögum sam
an. f húsinu sem stendur við
hornið eru sjálfar bæjarstjórn-
arskrifstofurnar og getur þessi
óþrifnáður því varla farið
fram hjá yfirvöldum bæjarins.
— Vegfarandi".
Fjárhagsráð og verk-
námið.
Móðir skrifar:
„Það fer ekki hjá því að það
vekji óskipta athygli foreldra
og annarra aðstandenda barna
og ungiinga í bænum að hin
vísa yfirstjórn fjárfestingar-
málanna, fjárhagsráð ríkis-
stjórnarinnar, skuli hafa neitað
um leyfi fyrir innflutningi á
nauðsynlegustu áhöldum og
efni til verknámskennslu gagn-
fræðastigsins. Hér var ekki um
neina stóra fjárupphæð að
ræða. Umsóknin var um 19.
þús kr. leyfi. Eigi að síður
sagði fjárhagsráð þvert nei og
litlu munaði að neitun ráðsins
stöðvaði allar ráðagerðir um
verknám í vetur.
Mikið nauðsynjamál.
Allir eru sammála um nauð-
syn þess áð ekki dragist leng-
ur en orðið er að sá kafli nýju
fræðslulaganna er að verknám-
inu lýtur komi til framkvæmda.
Og í sannieika sagt er alveg
óverjandi hve lengi framkvæmd
verknámskennslunnar hefur
dregizt. Öll börn eru ekki
hneigð til bóknáms og vafasamt
að leggja aðaláherzlu á þá hlið
kennslunnar gagnvart ungling-
um sem fyrst og fremst hafa
áhuga fyrir verklegu námi. Þaö
er því óskiljanlegt með öllu að
fjárhagsráð skuli telja sér fært
að viðhafa svona starfshætti og
stuðla beinlínis að því að koma
í veg fyrir að unnt sé að hefja
verknám í skólunum. Og þótt
talcast kunni að afstýra, verstu
afleiðingum þessarar stirfni og
þjösnaháttar ráðsins, fyrir til-
styrk annarra, er afstaða þess
jafn vítaverð eftir sem áður og
á skilið almenna fordæmingu.
— Móðir“.
Tyrft á ný.
Hér í þessum pistlum var
fyrir nokkru minnst á hve illa
grasblettirnir á Skólavörðuholt-
inu væru komnir. Þeir voru
orðnir svað eitt. Fólk sem þarna
átti leið um lagði það í vam
sinn að spara sér nokkur spor
og ganga yfir grasið. Það sem
gert hafði verið til að prýða
bert holtið var eyðiligt á
skömmum tíma. Nú hefur verið
unnið að því undanfarna daga
að tyrfa grasblettina að ný'ju
og þótt að þessu sé unnið nú
rétt fyrir veturinn er þess að
vænta að vegfarendur sjá nú
sóma sinn í því að sjá blettira
í friði og hlífa þeim við þeim
átroðningi sem lagði þá í flag
í fyrra skiptið. Við höfum ekki
of mikið af gróinni jörð í
Reykjavík.
notkun og menning. Hráætui-. -
RitiS. er gefið út af Krabbameins-
félagi Reykjavikur. Ritstjóri og
ábyrgðarmaður er prófessor Níe's
Dungal. — Kaupg.jaldstíðindi nefn-
ist nýtt rit sem Alþýðusamband
Islands gefur út. Eru í því birtir
kauptaxtar verka’ýðsfélaganua
með núgildandi visitöluuppbó*. —
Ritið verður seít á götunum í dag.
Frá Reykjavikurdeild
Rauða Kross Islands
Óskiiadót frá barnaheimilum
Rauða krossins er nú á skriístofu
Reykjavikurdeildarinnar, Grófin 1,
og eru aðstandendur barnanna
beðnir að vitja þess hið allra
fyrsta.
Húsma'ðrafélag Reykjavikur far í
berjaferð sunnudaginn 16. þm. að
Draghálsi. Upplýsingar i símum
4442, 7494 og 81449.
Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ung-
frú Reynhildur
Friðbergsdóttir óg'
Svavar Friðbergs-
son, Suðureyri,
Súgandafirði.
Eimskip
Brúarfoss hefur væntan’ega far-
ið frá Antwerpen 12. þm. til R-
víkur. Dettifoss fór frá Isafirði
í gær; væntanlega til Ólafsvíkur
og síðan til Keflavikur. Goðafoss
fór frá Rotterdam 12. þm. til
Gautaborgar og Rvikur. Gullfoss
kom til Rvíkur í gær frá Khöfn
og Leith. Lagarfoss fór frá Rvík
8. þm. til New York. Reýkjafoss
fór frá Genúa í gærkvöld til Sete
eða Port de Bouch í Suður-Frakk-
iandi; fermir þar málmgrýti til
Hollands. Selfoss er i Reykjavík.
Tröliafoss fór frá Halifax 10. þm.
til Reykjavíkur.
Rikisskip
Hekla er væntanleg til Rvíkur
um hádegi í dag að austan úr
hringferð. Esja vár á ísafirði síð-
degis í gær á norðurleið. Herðu-
breið er á Austfjörðum á norð-
urleið. Skjaldbreið verðut- vænt-
an’ega á Skagaströnd í dag. Þyrill
er norðanlands. Ármann verður
væntanlega á Hornafirði í dag.
Loftleiðir
I dag er ráðgert að fljúga til
Isafjarðar, Akureyrar, Siglufjarð-
ar, Sauðárkróks, Hólmavíkur, He'l-
issands, Patreksf jarðar, Bíldu-
dals, Þingeyrar og Flateyrar. Á
morgun verður flogið til Isafjarð-
ar og Akureyrar.
Flugfélag Islands
1 dag eru áætlaðar flugferðir
til Akureyrar (2 ferðir), Vest-
mannaeyj a, Kirk j ubæ j ark' aust urs,
Fagurhólsmýrar, Hornafjarðar og
Siglufjarðar. — Á morgun er ráð-
gért að fljúga til Akureyrar (2
ferðir), Vestmannaeyja, ' Blöildu-
óss, Sauðárkróks, Isafjarðar, Eg~-
ilsstaða og Siglufjarðai'. — Gull-
faxi fer í fyrramálið til Os'ó og
Kaupmannahafnai'.
Ráfmagnsskömmtunin. 1 dag verð-
ur straumlaust kl. 11—12 á svæði
sem nær yfir Hlíðarnar, Norður-
mýri, Rauðarárholtið, Túnin, Teig-
ana og svæðið þar norðaustur af.
Berjaför
Kvenfélag Sósialista eftir til
berjaférðar n. k. sunnudag og
verður lagt af stað frá Þórsgötu 1
kl. 9 f. h. Þátttaka tilkynnist í
síma 7510, 5259 eða 5625.
FleStir inunu véra
samniálá um það,
að Alþýðublaðið
hagaöi sér skyn-
samlegast ef það
minntist aldrei á
landhelgi eða landhelglsmál. Menn
eru ekki búnir að gleyma sendi-
íör Stéfáns Jóhaiins tíl (Syíl»joð-
ar um árið þegar mikilmeiuiið lof-
aði Svíum aö beita sér fyrir sér-
réttinduin þeim til ienzkri laiidhelgi. GENGISSKRÁNING. handa í is-
1 £ kr. 45.70
1 $ USA kr. 16.32
100 danskar kr. kr. 236,30
100 norskar kr. kr. 228.50
100 sænskar kr. kr. 315.50
100 finnsk mörk kr. 7.00
100 belsk. frankar kr. 32.67
1000 fr. frankar kr 46.63
100 svissn.fr. kr. 373.70
100 tékkn. kr. kr. 32.64
100 gyllini kr. 429.90
Vaxinyndasafnið er opið i Þjóð-
ininja.safninu alla daga kl. 1—7 og
sunnudaga kl. 8—10.
Ungbarnavernd Líknar Templara
sundi,3. Opið þriðjudaga 3,15—1 og
fimmtudaga 1,30—2,30.
Næturvörður er i Reykjavikur-
apóteki. — Sími 1760.
8,00—900 Morgun-
útvarp. 10,10 Veð-
urfregnir. 12,10 til
13,15 Hádegisútv.
15,30 Miðdegisútv.
16,25 Veðurfregnir.
19,30 Tónleikar: Harmonikulög
(pl.) 19,45 Auglýsingar. 20,00 Frétt-
ir. 20,30 Útvarpssagan: „Upp við
Fossa" eftir Þorgils gjallanda;
XI. (Helgi Hjörvar). 21,00 Tón-
leikar (pl.): Tríó eftir Ravel (Mer-
ckel, Marcelli Herson og Eliano
Tenro leika). 21,25 Erindi: S^ó-
vinna (Jónas Jónsson skipstjóri).
21,45 Tónleikar: Joe Stafford og
Dick Haymes syngja létt lög (pl.)
22,00 Fróttir og veðurfregnir. 22,10
Vinsæl lög pl.) til 22,30.
Frá vinnuskóla og skólagörðum
Reykjavíkur
I dag kl. 5 vei'ður sýnd kvik-
mynd á vegum danska fræfirm-
ans Oisens Inke, i félagsheim-
ili Fram við Suðurlandsbraut. —
Öllum þeim unglingum, sem störf-
uðu eða starfa á vegum skólar.na,
er heimill aðgangur.
Næturlæknir er í iæknavarðstor-
unni, Austurbæjarskólanum. —
Simi 5030.
Septembersýningin í Listamanna-
skálanum, er opin dagl. kl. 10—22.
RiMN
er opinn alla virka daga kl. 1—7
og á sunnudögum kl. 1—10.
SÖFNIN:
Landsbókasafnið er opið kl. 10—
12, 1—7 og 8—10 alla virka daga
nema laugardaga kl.10—12 og 1—7.
Þjöðskjalasafnið er opið kl. 10—12
og 2—7 alla virka daga nema iaug-
ardaga yfir sumarmánuðina kl.
10—12. — Þjóðminjasafnið er lok-
að um óákveðinn tíma-. — Lista-
safn Einars Jónssonar er opið kl.
1,30—3,30 á sunnudögum. — Bæj-
arbókasafniö er opið kl. 10-—10
alla virka daga nema laugardaga
ld. 1—4. — Náttúrugripasaínið er
opið kl. 10—10 á sunnudögum kl.