Þjóðviljinn - 19.10.1951, Side 3

Þjóðviljinn - 19.10.1951, Side 3
Föstudagur 19. október 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3 EINAR 0-LG.EI RS S ON: & er ¥is¥Ífaiidi Jóhann Þ. Jóséfsson teknr nndir ádeiluna á stefnu fjárhagsráðs, stjórnarinnar og bankanna í hiisnæði smálimuin Á funtli í sameiiiuöu þingi í fyrrad. sýndi ELnar Olgeirsson fram á hvernig tánsfjárkreppan, sem allir játa nú að þjaki atvinnu- líf þjóðarinnar, er einn meginþátturinn í stefn'u núverandi rík- isstjórnar. Það er einmitt í vísvitandi skipulögðum lánsfjár- skorti sem baráttan gegn „fjárfestingarstefnunni“, fyrirskipuð ríkisstjórn íslands af alþjóðabankanum og bandarískum stjórn- arvöldum, kemur fram. Óánægjan með þessa hættulegu stefnu ríkisstjórnarinnar er orðin almenn og tók einn af stuðningsmönnum ríkisstjóraar- innar, Jóhann Þ. Jósefsson, mjög undir hina markvissu ádeilu Einars Olgeirssonar. Til umræðu var þingsályktun artillaga Jóhanns Hafsteins og Gunnars Thoroddsen um að ríkisstjórnin láti „rannsaka" lánsfjárþörfina til íbúðabygg- inga og leggi að lokinni þéirri rannsókn fram tillögur. Taldi Einar tillöguna ekki líklega til gagns þó hún stefndi í rétta átt, og 'væri sízt að vænta úrlausnar frá núverandi ríkisstjórn. Hitt væri nær að Alþingi beinlínis fyrirskipaði bönkunum að taka upp nýja stefnu í lánsfjármálum, eins og gert hefði verið er lögin um verkamannabústaði voru sam- þykkt og þegar stofnlánadeild sjávarútvegsins var samþykkt, í harðri deilu við bankavaldið. Jóhann Þ. Jósefsson sakaði fjárhagsráð og stjórnarvöldin almennt um að allt sem gert hefði verið í sambandi við smá- íbúðirnar hefði verið gert „of lítið og of seint“. Fjárhagsráð hefði loks hengslazt við að gefa frjálsar byggingar smá- íbúða (að hans dómi of litlar) þegar allt sem til þeirra þurfti hafði tvöfaldazt í verði. En á sama tima og bannað hefði ver- ið að byggja , smáíbúðir 'bæri sama fjárhagsráð ábyrgl) á stórhýsa-íbúðarhverfum í Hlíð- unum og Skjólunum. . En svo kæmi neitun bankanna á láns- fé út á íbúðir og lánsfé yfir- leitt og bannaði allar bjargir. Tók Jóhann undir ádeilu Ein- ars á lánapólitík bankanna og taldi þess fyllstu þörf að Al- þingi hlutaðist til um fram- komu bankayfirvaldanna og jafnvel skyldaði þau til að taka upp nýja stefnu. Jóhann Hafstein var orðinn svo aðþrengdur eftir meðferð Einars og Jóhanns á tillögu hans og borgarstjórans í Reykjavík að han'n átti að lok- um aðeins eitt spakmæli henni til málsbóta. Það var: „Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi“. Umræðum var frestað. ÍÞRÓTTIR RITSTJÖRI: FRlMANN HELGASON »################*#############«< fslandsmeistararnir frá ðkranesi fara ti! Noregs næsta sumar Eins og menn muna höfðu Akurnesingar undirbúið ferð til Noregs á s. I. vori en á síðustu stundu var förinni aflýst þar eð Norðmenn gátu ekki af óviðráð- anlegum ástæðum tekið á móti þeim. Nú hefur málið verið tekið upp aftur og ferðin ákveðin og leikir í Noregi afrá'ðnir þeg- ar. „Sportsmanden" segir um þessa fyrirhuguðu ferð: „Heimsókn íslenzkra liða til Noregs er orðin árlegur við- burður, atriði sem staðfesta að samstarfið milli frændanna í vestri og Norðmanna er að verða meira og meira. Á'ður höfum. við haft kynni af KR og Val sem bæði hafa vakið athygli. Næsta lið sem kemur verður íslandsmeistararnir frá Akranesi. Vállerengen komst í kynni við styrk þessa liðs í íslands- för sinni í sumar, og það er engin ástæða til að draga í efa að liðið verði ekki eins sterkt næsta ár. Það er a. m. k. hyggilegt að gera ekki lítið úr Akránes- liðinu. Fyrsti leikur liðsins verður í Oslo móti Válerinfren. Það- an verður farið til Sarpsborg þar sem keppt verður við ,,Sparta“; þaðan til Haldem og keppt við ,,Kvik“. Þriðji leikurinn verður við Lilleström Sportsklubb. Þá verður farið til Hamar og þar leiknir nokkr- ir leikir. Akranes leikur hratt og kröftuglega, það mun Váller- engen geta skrifað undir; þann leik töldu leikmenn vera þann harðasta sem þeir hefðu á æfi sinni tekið þátt í, og það talar sínu máli. Hraðinn er einkenn- andi fyrir liðið, og þa'ð sama má segia um hreyfanleikann. Þótt leikmenn hafi hingað til leikið á malarvelli þá er ör- uggt að næsta ár muni þeir hafa grasæfingu að baki sér er þeir leggja af stað til Nor- egs. — Hinn góði landsliðs- maður, Ríkharður Jónsson, er frá Akranesi, en liðið hefur líka aðra, sem standa fyrir sínu“, segir blaðið að lokum. „Siigar6í Ray , íer að leika í kvikmynd Frá góðum heimildum koma þær fréttir að hnefaleikakapp- inn R. Robinson sem sló út Turpin, hinn brezka í „leik árs- ins“ í Nevv York í september s. 1. standi í samningum um að leika i kvikmýnd. Er það ítalski • kvikmvndaframleiðand- inn Roberto Rosseline er hann semur við og á að leika aðal- hlutverkið í myndinni. Sagt er að hann vilji setjast að í Frakk- landi og þá helzt í París. Tæpir fjórir mánuðir til VctraroK nipíu- leikauna Það má sjá það á erlendum blöðum, að það er ekki lang- ur tími þar til úrvalsskíðafólk þjóðanna kemur saman til að sýna ágæti sitt. Það eru held- ur ekki nema tæpir fjórir mán- uðir þar til sjöttu Olympíu- leikarnir eiga að liefjast eða 14. febrúar n. k. I fréttum frá flestum skíða- löndum veraldarinnar segir frá því að þjálfun úrvalsfólksins sé annað hvort byrjuð eða verið að undirbúa hana. Hér er líka unnið markvisst að þessum málum, ekki aðeins með Olympíuleika í huga; þcið er líka hin almenna þróun skíðaíþróttafinnar sem er þar á bak við. Skíðagöngukennar- inn J. Tenmann frá Noregi hefur undanfarið verið hjá Þingeyingum, en er nú kominn til ísafjarðar. Þess má líka geta sem þáttar I undir- búningi undir Olympíuleikana, að á s. 1. vori hafði SKÍ hér á sínum vegum tvo snjalla svig- og brunkennara, Hans Hanson frá Svíþjó'ð, sem nú nýlega hef- ur verið kjörinn fyrirliði sænska flokksins sem fer á Olympíu- leikana, og Erlen frá Þýzka- landi, sem lika hefur verjð valinh í sveit þá er fer til Osló í vetur frá Þýzkalandi. Á þessu má sjá að hér hefur verið um Framhald á 6. síðu. Sveinafélag skipasmiða krefst þess að Iðja sé fsegar fekin . Sveinafélag skipasmiða samþykkti einróma eftirfar- andi: „Fundur haldinn í Sveinafélagi skipasmiða þriðjudag- inn 16. október vítir harðlega brottrekstur Iðju úr Al- þýðusambandi ístands, cg krefst þes.s að Iðja fái inngöngu í Alþýðusambandið strax, enda er nú cauðsyn á einmgu innan verkalýðssamtakanna.“ Æviniýri kqnu sem hiiíi mann Mörg gerast ævintýrin, en ekki hafa þau ævinlega góðan endi, og vart mun konan í ævintýrinu sem Sveinn Sæmundsscn sagði biaðainiönnum frá í fyrrad., vera glöð yf ir endalokum þess. Þannig ér mál með vexti að mánudaginn í fyrri viku fékk kona ein hér í bænum 10 þús. kr. Ráöstafaði hún þegar 4 þús undum, en geymdi 6 þús. heima hjá sér. FÓR IJT OG HITTI MANN. Á miðvikudagskvöldið brá hún sér út og hitti mann nokkum er hún raunar vissi ekki deili á, en samt urðu þau samferða heim til hennar og sátu þar áð drykkju fram eftir nóttu. Um nóttina pantaði maður þessi bíl og bauð konunni með sér, LAGT UPP í LANGA FERfi. Bíllinn kom og ökuferðin hófst. Óku þau um nóttina allt til morguns, en þá bauð mað- urinn tveim öðrum mönnum einnig í bílinn. Var nú ekið austur í Rangárvallasýslu og komið aftur úr þeirri för síðari hluta föstudags. ÞEGAR KONAN VAKNAÐI. Morguninn eftir þegar kon- an vaknaði saknaði hún 5500 króna, aðeins 500 kr. voru 'eftir af 6 þúsundunum. Nú voru góð ráð dýr, því fátt mundi hún frá ferðalaginu með hinum ó- kunna nianni. SKEMMTIFERÐ FYRIR „FÓÐURARFINN". Lögreglan náði þó þessunau greiðvikna manni suður í Kefla vík á. laugardaginn var. Sagði hann að konán hefði farið áð sýna sér peningana og hefði hann þá hrifsað til sín um 2 þús. kr. Bílstjórinn sem ók í áðurnefndri skemmtiferð segir hinsvegar að maður sá er kon- unni bauð í bílferðina hafi ver- ið með 5—6 þús. kr. Hafi han.iv sýnt sér peningana til sanninda- merkis um að hann gæti greitt fyrir aksturinn. Gaf hann bíl- stjóranum þá skýringu aö hann hefði nýlega fengið föðurarf sinn. HVAÐ VARÐ AF ÞÚSUND KRÖNUNUM? 1 Keflavík hélt hann áfram að lifa flott á „föðurarfinum", en rétt áður en hann var tekinn, fastur var hann enn með þús- und kr. af „föðurarfinum“, en> þegar hann var tekinn fastur |var hann peningalaus. Er nú lögreglan í Keflavík að rann- 'saka hvað orðið hafi af þeini j 1000 kr. — Maður þessi er ut- anbæjarmaður. Skrifstofur vorar verða lokaðar á morgun, laugardaginn 20. október. SiévátiyggiítgaEÍélag islands h.í., Eimskipaíélagshúsinu og Borgartúni 7. Tilky nning Fjárhagsráð hefur. ákveðið eftirfarandi há- marksverö á branðúm í smásölu: Án Með söluskatts: söluskatti: Franskbrauð, gOO gr.... kr. 2,47 kr. 2 55 Heilhveitibrauð, 500 gr. .. kr. 2,47 kr. 2,55 Vínarbrauð, pr. stk..... kr. 0,68 kr. 0,70 Kringlur, pr. kg........... 7,23 kr. 7,45 Tvíbökur pr. kg........ kr.11,01 kr. 11,35 Séu brauð bökuð með annari þyngd en afj of- an greinir, skulu þau verðlögð í hlutfalli við ofan- greint verð. Á þeim stöðum, sem brauðgeriöir eru ekld starfandi má bæta sannanlegum flutningskostnaði við hámai'ksveröiö. j Reykjavík, 17. okt. 1951, Verðlagsskrifstofan.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.