Þjóðviljinn - 06.11.1951, Side 3
Þriðjudagur 6. nóvember 1951 — ÞJÓÐVILJINN — (3-
>######»#■#########»##»#########################»
íÞRÓTTIR
RITSTJÓRI: FRlMANN HELGASON
»###############################
Þing frjálsíþróttasambands Norðurlanda
Þing frjálsíþróttasambands
Norðurlanda var haldið í Reyk-
javík dagana 26.—27. okt. s. 1.
Fundinn sátu fulltrúar frá öll-
um Norðurlöndunum- Frá Dan-
mörku Thor Dahl-Jensen, frá
Finnlandi Lauri Miettinen og
Erik Aström, frá Noregi Björn
Benterud og frá Svíþjóð Tage
Eriksson og Birger Bergvall.
Af Islands hálfu sátu þingið
stjórn og varastjórn Frjáls-
íþróttasambandsins. Þá sat for-
seti I.S.I. Benedikt G. Waage
þingið sem heiðursgestur.
Þingið var haldið í húsakynn
um Frjálsíþróttasambandsins
og var forseti þess valinn Tage
Eriksson, formaður sænska
frjálsíþróttasambandsins, en rit
arar voru Bragi Kristjánsson
og Brynjólfur Ingólfsson.
Fjölmörg mál voru rædd á
þinginu og má af þeim nefna
eftirfarandi:
Meistaramót hinna fimm
Norðurlanda verða 1952 haldin
á sama tíma, þ. e. um helgina
23.—24. ágúst-
Landskeppnir Nor'ðurland-
anna innbyrðis voru ákveðnar
sem hér segir:
1) Drengjalandskeppni Svía,
Finna og Norðmanna fer fram
14.-—15. ágúst í Osló eða e. t.
v. annarsstaðar í Noregi, 2)
Landskeppni Dana og Norð-
manna fer fram í Kaupmanna-
höfn 28.—29. ágúst, 3) Kvenna
landskeppni Dana, Finna og
Svía fér fram í Kaupmanna-
höfn 7. september, 4) Keppni
Finna og Norðmanna í karla-
og lcvennaflokki í Osló 13.—14-
september.
Ennfremur var tilkynnt á
þinginu, að Svíar hefðu ákveð-
ið landskeppni við Breta 4.—5.
september í Stokkhólmi og við
Þýzkaland í Dusseldorf 13.—
14. september og loks Finnar
við Frakka í París 13.—14.
september.
Islendingar hafa enn ekki
fengið neitt boð um lands-
keppni og ekki treyst sér til
að bjóða heim liði eða ráðast
til utanfarar með landslið á
sinn kostnað eins og 1950 og
s. 1- sumar. Þá má einnig benda
á, að vegna Olympíuleikanna á
næsta sumri eru færri lands-
keppnir ákveðnar en venjulega.
Enn er þó ekki útilokað að
Islendingar heyi landskeppni á
næsta sumri.
Samþykkt var, eftir tillögu
Islendinga, að þingið sta'ðfesti
hér eftir Norðurlandamet í
ýmsum greinum karla og
kvenna. Ennfremur, að fyrir
næsta þing yrðu athugaðir
möguleikar á að halda reglu-
legt Norðurlandameistaramót í
öllum venjulegum greinum ann-
að hvort ár.
Þá lá fyrir af hálfu Islands
greinargerð og tillögur um sér-
reglur um löglegan hámarks-
meðvind í 200 m. hlaupi á
beygju og um að hlaupa fyrri
helming í 800 m. hlaupi á að-
skildum brautum.
Var samþykkt að senda
laga- og leikreglunefnd Al-
þjóðasambands frjálsíþrótta-
manna (I.A.AF.) greinargerð
Islands um fyrrnefnda atriðið
en um hið síðarnefnda var á-
kveðið að gera tilraunir, hver
í sínu landi, með aðskildar
brautir í 800 m. hlaupi fyrstu
200 til 400 metrana.
Samþykkt var að hafa jafn-
Framhald á 6. síðu.
SAMBANDSRÁÐSFUNDUR I. S. I.
S. 1. laugardag var fyrsti
sambandsráðsfundur ISl, þess
stjórnartímabils er hófst í júní
í vor, en stjórn sambar.dsins
er kosin til tveggja ára í senn.
Fundurinn var haldinn í Fé-
lagsheimili K.R. og voru mætt-
ir flestallir þeir fulltrúar sem
fundarsetu eiga- Forseti I.S.I.
Ben. G. Waage setti fundinn og
gaf skýrslu um störf framkv.-
stjórnar frá því á aðalfundi. Þá
gáfu formenn sérsambanda
skýrslu. Þó hér væri aðeins um
úrdrátt úr skýrslunum að ræða
mátti sjá að starfið er margt
og mikið aðhafst. Það kom líka
fram að fjöldi verkefna biða
alltaf óleyst.
Miklar umræður urðu um
styrlcveitingar til íþrótta-
kennslu. Þá urðu og nokkrar
umræður um skóla og þátttöku
reglur og sérsamböndum falið
að endurskoða þær fyrir n. k.
áramót- Breyting gerð á Olym-
píunefnd þannig áð fjölgað
verður um 3 menn í framkv.-
nefndinni og hlutu kosningu í
haná: Helgi H. Einarsson Bragi
Kristjánsson og Gísli Halldórs-
son. Auk þess urðu fleiri breyt-
ingar á nefndinni. SKJ tilnefndi
nú Gísla Kristjánsson. Sund-
sambandið tilnefndi: Erling
Pálsson og er það í fyrsta sinn
sem hið nýstofnaða sundsam--
band á fulltrúa í nefndinni.
Framkvæmdastj. ISÍ . til-
nefndi Þorgeir Sveinbjarnarson
í stað Erlings sem nú er þar
frá Sundsambandinu en var áð-
ur frá Í.S-Í.
Voru allir þessir menn sam-
þykktir. Er Olympíunefnd Is-
lands nú skipuð 12 fulltrúum.
Næsti sambandsráðsfundur
verður síðla vetrar.
Finnland — Hoiiand 4:4
Um fyrri helgi kepptu Hol-
land og Finnland í knattspyrnu
og fóru leikar svo að jafntefli
varð 4:4. Leikurinn fór frani.
í Hollandi. I hálfleik var einn-
ig jafnt 2:2:. Finnarnir voru.
betri í sókn og vörn, sérstak-
lega sýndu framherjarnir góð-
an samleik og jákvæðan- Ryt-
könen sýndi í leik þessum að
hann er knattspyrnumaður á
heimsmælikvarða. Þessi frammi
staða Finnanna undirstrikar þá
skoðun að þeir séu í hraðri
framför sem knattspyrnuþjóð
en henni hefur oft verið haldið
fram í norrænum blö'ðum í sum-
ar! en þeir stóðu sig betur í
Norðurlandakeppninni í ár en:
nokkru sinni fyrr.
Seiidir Banmörk
einn keppanda á
vetrar-Olympíii”
Menningartengsl Islands og Ráðstjórnarríkjanna
í tilefni af
Það lítur helzt út fyrir að
Danmörk sendi einn keppanda
á vetrarolympíuleikana. Olym-
píunefndin danska telur það
tilgangslaust að senda menn
sém ekki hafá möguleika ti! að
standa sig sæmilega. Sá eini
sem hefur verið talinn nógu góð
ur er Per Cock-Clausen nor-
rænn meistari í listhlaupi. • —
Skautasamband Danmerkur hef
ur óskað eftir að senda 3 kepp
endur en fullyrt er að Olympíu-
nefndin muni neita. Einn þess-
ara manna Háns Jörgen Paul-
sen ætlar í Alpana eftir nýjár
og æfa þar. Standi hann sig
vel í keppni þar syðra er þó
ckki talið útilokað að hann
verði sendur líka til Osló.
u
u
russnesku verkalýðsbyltingárinnar
heldur MÍR minningarhátíð í Iðnó miðvikudaginn
7. nóvember klukkan 8,30 e.h.
1. Árni Jónsson og Vigfús Helgason leika á trompeta
þrjú íslenzk þjóölög.
2. Björn Þorsteinsson magister flytur ræöu.
3. Nína Fedotova: Eitileikur á píanó.
4. Natasja Itamanjúk (4 ára) dansar.
5. Vera Spiridonova og Nina Fedotova syngja rússnesk
þjóölög.
6. Hanna Bjárnadóttir syngur íslenzk lög meö undir-
leik Jóns Ásgeirssonar.
7. Vera Spiridonova dansar.
8. Nina Fedotova syngur rússnesk þjóðlög og; leikur
undir á harmoniku.
9. Fjöldasöngur.
10. Dans.
Aögöngumiðar fást í Bókabúö KRON, Bókabúö Máls og
menningar og í skrifstofu MÍR (kl. 5—7).
tn
Sljórn MÍB
t