Þjóðviljinn - 14.11.1951, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 14.11.1951, Blaðsíða 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 14. nóvember 1951 36. DAGUR segja, að máltíð væri einskis virði nema eitthvað sterkt væri drukkið með henni, og nú stakk hann upp á kokkteil. Og þegar hún var búin að drekka hann og annan til virtist hún enn kátari og ræðnari en fyrr. En allan tímann tók Clyde eftir því, að framkoma hennar gagnvart honum var fjarlæg — ópersónuleg. Ef hann leyfði sér eitt andartak að beina samræðunum að þeim sjálfum, áhuga hans á henni, hvort hún væri alvarlega ástfangin í einhverjum öðrum, þá sló hún hann út af laginu með því að lýsa því yfir að henni litist vel á alla unga menn. Þeir voru allir svo yndis- legir — svo góðir við hana. Þeir áttu líka að vera það. Ef þeir voru það ekki, þá vildi hún ekki hafa neitt saman við þá að sælda. Þá lét hún þá róa, sagði hún. Augu hennar glömpuðu og hún hnykkti til höfðinu. Og Clyde var heillaður af þessu öllu. Hreyfingar hennar, fas, svipbrigði og limaburður voru eggjandi og æsandi Hún virtist hafa yndi af að stríða, gefa loforð, koma misskilningi og áleitni á stað — draga sig síðan inn. í skel og látast ekkert skilja, koma eins og-af fjöllum. Og Clyde var hugfanginn yfir þvi að mega vera í návist hennar. Það var honum kvöl, en þægileg kvöl. Hann fór að hugsa um það hversu dásamlegt væri að mega halda henni í faðmi sér, kyssa varir hennar, jafnvel bíta hana. Þekja munn hennar með munni sínum. Kæfa hana í kossum. Þrýsta og gæla við heillandi líkama hennar. Stundum leit hún á hann angurværum, rökum augum, og hann varð máttvana — næstum veikur. Hann dreymdi um það eitt að geta með ein- hverjum hætti — með útliti sínu eða peningum — unnið ástir hennar. Þegar þau voru búin að vera í leikhúsinu og hann var búinn að fylgja henni heim, gat Kann ekki séð að honum hefði orðið nokkuð ágengt. Meðan á leiksýningunni stóð hafði Hortense, sem var með hugann við leikinn vegna takmarkaðs áhuga 4 Clyde, ekki talað um annað en svipaðar leiksýningar sem hún hafði séð, um leikarana, leikkonurnar og með hverjum hún hefði farið í leikhúsið í hvert sinn. Og í stað þess að vera henni fremri að andríki, stríðni og frásögnunraf ævintýrum, neyddist Clyde til að sitja og hlusta. Hún hugsaði um það allan tímann að nú væri hún búin að vinna raunverulegan sigur. Og af því að hún var ekki ósnortin lengur og var sannfærð um að hann ætti talsverða peninga og væri fús til að eyða þeim í liana, einsetti hún sér að vera alúð- leg við hann — ekki meira — til að halda honum við ef hún gæti, meðan hún héldi áfram að fara sínar eigin leiðir, skemmta sér eins og hún gæti með öðrum og notaði Clyde til að gefa sér ýmislegt og fylla í eyðurnar — þegar henni bauðst ekkert betra. ÞRETTÁNDI KAFLI Og í að minnsta kosti fjóra mánuði gekk þetta nákvæmlega þannig til. Eftir að hann hafði hitt hana eyddi hann mjög miklu af fristundum sínum í það að reyna að fá hana til að sinna sér jafnmikið og öðrum. Og þó vissi hann ekki hvort hún gæti borið einlægar tilfinningar til neins. Og hann trúði því ekki hejdur að hún stæði aðeins í saklausu kunningjasambandi við þessa vini sína. En hún var svo hrífandi að honum lá við sturl- un við tilhugsunina um það, að ef grunur hans reyndist réttur, þá gæti verið að hún veitti honum blíðu sína að lokum. Og hann var svo töfraður af hinu síbreytilega andrúmslofti sem um- lók hana, fasi hennar, skapferli, rödd og klæðaburði, að hann gat ekki hugsað sér að missa hana. Og svo gekk hann á eftir henni með grasið í skónum. Og þegar hún uppgötvaði það, hélt hún honum í hæfilegri f jarlægð, forðaðist hann stundum, neyddi hann til að láta sér nægja molana sem féllu af borði hennar, meðan hún skemmtj honum með lýsingum af öðrum skemmtunum og félagsskap sem hún var í, og honum fannst hann varla þola þetta lengur. Þá sagði hann oft í reiði sinni við sjálfan sig, að hann vildi aldrei sjá hana framar. Hún væri ekki við hans hæfi. En þegar hann sá hana aftur, var hún svo köld og kærulaus, að hugrekkið brást honum og hann treysti sér ekki til að höggva á hnútinn. Og 'hún hikaði ekki við að minnast á hvað hana vantaði eða langaði til að eignast — smámuni fyrst í stað —- nýjan púður- kvasta, varalit, púðurdós eða glas af ilmvatni. Seinna færði hún sig upp á skaftið, þótt hún hefði ekki veitt Clyde annað en nokkur fljótfærnisleg faðmlög — bið í faðmi hans, sem lofaði miklu en e'kkert varð úr — og hún fór að benda honum á ýmislegt við ýmis tækifæri, buddur, blússur, inniskó, sokka, hatt, sem hún myndi kaup sér, ef hún hefði peninga til þess. Og til þess að hún missti ekki áhugann á honum og hann yrði henni ómissandi, keypti hann þetta handa henni, endaþótt hann hefði stundum tæplega efni á því vegna fjölskyiduvandamála sem steðjuðu að. En undir lok fjórða mánaðarins fór honum að verða ljóst að hann var engu nær takmarkinu en í byrjun. 1 stuttu máli sagt, hann tók þátt í óendanlegum eltingaleik, án þess að hafa nokkra von um laun. Hinn þunglamalegi blær á fjölskyldulífinu heima fyrir var enn óbreyttur. Eftir hvarf Estu hafði skuggi fallið yfir heimilið og hann var þar enn. Og í augum Clydes var einhver leyndar- dómsfull hula yfir hvarfi hennar og liún var óþægileg, næstum —-oOo—- BARNASAGAN Himinbjargar saga 3. DAGUR hið mesta tröll." Gekk hún þá burt. Siguiður vaknaði og þóttist sjá svip aí henni. Fór hann þá heim og lagðist í rekkju með ofurharmi. Gengu þá til að hugga hann allir hinir vitrustu menn, og var það sem ógjört. Kóngur bað Himinbjörgu til ganga og vita, ef hun mætti nokkura bót vinna á hans meini. Hún gjörði svo. Og sakir kænsku hennar og mjúkr- ar eftirleitni sagði Sigurður henni draum sinn og allt tilefni harma sinna. Hún kvað allmikið til draga, „og mun hér sannast það, sem mælt er," sagði hún, ,,að fátt er rammara en forneskjan. Mun við þessu ekki mega gjöra. Á ég mér fóstru eina," segir hún, „og kunni hún þér ekkert að hjálpa, þá kalla ég útgjört um þína hjálparvon. Vil ég senda þig til hennar, og er hér knífur og belti, er þú skalt færa henni til jarteikna, að ég vil þú hafir hennar fulltingi til þessarar þrautar. Þar með er hér eitt hnoða, sem ég vil fá þér. Lát það velta fyrir þér, en haltu í enda hnoðans, og muntu að þess leið- sögn hitta á byggð fóstru minnar. Það legg ég og bér til ráðs, að þú gjörir öllum gott, sem á þjjini leið verða. En svo segir mér hugur um, að eftir burtför þína munu ríkismenn og jafnvel faðir þinn snúast í móti mér. Mun mér kennt verða um ósköp þín og verða við dauða hætt, nema þú bjargir." Hann kvað það eigi að sínum vilja vera skyldi. Slitu þau svo tal sitt, og bað hvort vel fyrir öðru. Litlu síðar hvarf Sigurður burt, og vissi enginn, hvert hann fór. Þótti öllum það mikill skaði. Þíng Sósíaiisfaílokksins Framhald af 1. síðu. Varamenn Magnús Kjartansson Einar Ögmundsson Skafti Einarsson Halldór Björnsson Þuríður Friðriksdóttir Böðvar Pétursson Ólafur Jónsson Elín Guðmundsdóttir Hannes Stephensen Helga Rafnsdóttir Samþykkti; L.I.tJ. Framhald af 8. síðu. sókn Sambands ísl. samvinnufé- laga, þess efnis að því verði veitt útflutningsleyfi á saltfiski, Fundurinn lítur svo á, að feng- inni reynslu, áður en núverandi sölufyrirkomulagi var komið á, sé að svo stöddu ekki rétt að breyta um sölufyrirkomulag á saltfiski, og að halda beri áfram sölunni, svo sem verið hefur, í einum heildarsamtökum salt- fiskframleiðenda, og sé þess þá vandlega gætt, að efla vöru- vöndun, og að framleiðendur góðrar vöru, njóti þess til fulls í hækkuðu vöruverði“. Fiskimiðin á landgrunn- inu verði vernduð. Varðandi landhelgismálin var samþykkt svohljóðandi tillaga: „Aðalfundurinn lýsir ánægju sinni yfir því, að með lögum nr. 44, 1948 um vísindalega vernd- un fiskimiða landgrunnsins er því lýst yfir að Islendingar geti gert allar nauðsynlegar ráðstaf- anir, til þess að vernda fiski- miðin á landgrunninu og skorar á ríkisstjórnina áð nota þá heimild, sem allra fyrst“. Nefnd til að athuga veiðar á Grænlandsmiðum. „Aðalfundur L.I.tJ- haldinn í nóv. 1951 samþykkir: Vegna síminnkandi afla við strendur Islands og vaxandi áhuga út- vegsmanna á fiskveiðum við Grænland, skorar fundurinn á - stjórn L.I.Ú. að kjósa sérstaka nefnd, sem falið verði að kynna sér aðstæður allar í sambandi við Grænlandsveiðar, og athugi hvað sé að gera til þess að bæta aðstöðu íslenzkra fiski- skipa, er kunna að verða send til veiða við Grænland11. íslendingum verði tryggð hafnar- og landgönguskil- yrði í Grænlandi. „Með tilliti til þess, að aug- ljóst er að fiskveiðar lands- manna munu í vaxandi mæli verða stundaðar við strcndur Grænlands, skorar aðalfundur L.I.Ú- á ríkisstjórnina að vinna ötullega að því, að Islendingar fái rétt til hafnar- og löndunar- skilyrða þar. Jafnframt felur fundurinn stjórn L.I.Ú. að ^ fylgja máli þessu fast eftir og sameina samtök útvegsmanna til framgangs þessa máls“. STJÓRNARKOSNING Eins og sagt var í gær var Sverrir Júlíusson kosinn for- maður L.I.Ú. í 8- sinn. Vara- formaður var kosinn Loftur Bjarnason. Áðrir aðalmenn eru Finnbogi Guðmundsson, Sveinn Benediktsson, Jón Árnason, Jó- hann Sigfússon, Kjartan Thors, Ásgeir G. Stefánsson, Ólafur Tr. Einarsson, Þórður Ólafsson. Varamenn eru Jón Halldórsson, Ingvar Vilhjálmsson, Margeir Jónsson, Baldur Guðmundsson, Jón Axel Pétursson, Ólafur H. Jónsson, Skúli Thorarensen, Hafsteinn Bergþórsson. I verðlagsráð sjávarútvegsins voru kjörnir Finnbogi Guð- mundsson, formaður, Sveinbj. Einarsson, Valtýr Þorsteinsson, Geir Thorsteinsson, Jón Axel Pétursson- Varamenn Guðfinn- ur Einarsson, Baldur Guðmunds son, Jón Halldórsson, Ólafur Tr. Einarsson, Skúli Thoraren- sen.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.