Þjóðviljinn - 21.11.1951, Side 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 21. nóvember 1951 -
þlÓÐVIUINN
Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn.
Kitstjorar: Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson (áb.)
Fréttaritstjöri. Jón Bjarnason.
B’.aðam.: Ari Kárason, Magnús Torfi Ólafsson, Guðm. Vigfússon.
Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg
19. — Sími 7500 (3 línur).
Áskriftarverð kr. 16 á mánuði. — Bausasöluverö 75 aur. eint.
Prentsmiðja Þjóðviljans h.f.
Tillöpr sósíalista um fulla atvinnu
Atvinnuleysi er nú þegar orðið mjög víðtækt í flest-
um bæjum og þorpum landsins, og alþýða manna horf-
ir fram á erfiðasta vetur frá því fyrir heimsstyrjöldina.
ef ekki veröa þegar gerðar gagngerðar ráðstafanir til
aö tiyggja stórauknar verklegar framkvæmdir.
Og eins og sósíaliistar hafa bent á undanfamar vikur
eru aðgerðir gegn atvinnuleysinu nærtækar og einfald-
ar. Um land allt standa nú ónotuð hin stórvirkustu
framleiðslutæki, þun-khús, hraðfiystihús og aðrar verk-
smiðjur til að fullnýta sjávaraflann. Öll þessi tæki em
sama og ekkert hagnýtt, enda þótt nú sé mikil eftirspurn
eftir íslenzkum fiskafurðum á heimsmarkaðnum og allt
sem framleitt er hér á landi seljist jafnliarðan. Togar-
arnir draga fisk úr sjó með nýjustu tækni, — en fara
svo með fiskinn beina leið til útlanda og láta erlenda
menn um að vinna úr honum og afla gjaldeyris fyrir
vinnsluna!
Ráðið gegn atvinnuleysinu er ofureinfaldlega það
að togararnir leggi hér upp eins mikinn afla og hægt
er að anna. M?ð því móti skapast ekki aöeins mikil at-
vinna, heldur stórfelld aukning á gjaldeyristekjunum,
og hvorttveggja myndi hleypa nýju fjöri í alt annaö at-
vinnulíf landsmanna.
Á þessari ofúreinföldu staðreynd hefur verið hamr-
að hér í blaðinu látlaust vikum saman, og á þingi hafa
sósíalistar að heita má daglega brýnt ríkisstjómina til
framkvæmda. En til þess að hægt sé að fullnýta aflann
hérlendis þarf ríkisstjórnini aíð tryggja framleiðslunni
nauðsynlegt lánsfé. Þaö' er lánsfjárbannið sem rekur út-
gerðarmennina til áð flytja afla sinn út óunninn, þeir
þurfa að’ koma honum í verð umsvifalaust til þess að
geta haldið rekstri sínum áfram. Og eins og sýnt hefur
verið fram á margsinnis á lánsfjárbannið’ ekkert skylt
við neina skynsamlega fjármálastefnu, það er lokleysa
hvernig sem á það er litið. og tilgangur þess .ekki annar
en sá áð draga úr íramkvæmdum á öllum sviðum.
En þrátt fyrir þetta hefur ríkisstjómin enn þrjózk-
azt við allar framkvæmdir í þessu máli, og enn einu
sinni hefur það' gerzt aö Alþýðuflokkurinn hefur veitt
stjórnarflokkunum stuðning til skemmdai-verkanna. í
bæjarstjórn Reykjavíkur hefur afstáða Alþýðuflokksins
verið ísú að togararnir gætu ekki lagt upp afla siim hér
vegna þess að tap yrði á framleiðslunni og sú afstaða
hefur Siðan verið endmtekin í Alþýðublaðinu.
Þessi málflutningur Alþýðuflokksins er þó ósannur
með öilu. Eins og skýrt var frá í blaöinu í gær hefur
togarinn Bjami Ólafsson lagt afla sinn upp á Akranesi
til vinnslu undanfarið, og hefur enginn halli orðið’ á
starfrækslu hans. Enda sýndi rsynslan síðasta sumar
að' einmitt veiðar fyrir hraöfrystihús færa togurunum
hinn ákjósanlegasta og öruggasta rekstur og hrað-
fxystihúsunum hin beztu starfsskilyrði.
Eflaust eru það samantekin ráð hjá þríflokkunum,
hvernig þeir eigi að skipta með sér verkum í andstöðunni
við tillögur sósíalista. En hitt er svo augljóst mál aö til-
lögur sósíalista hafa hlotið fylgi almennings um land allt,
og þær tillögur á aö vera hægt að knýja fram til sigurs,
ef rösklega er að unnið, og bægja þannig vágesti atvinnu-
leysis og skorts frá alþýöuheimilunum á ný.
Afturhaldinu hefur stundum tekizt að gera aðgerða-
leysi sitt skiljanlegt í augum almennings og kenna for-
sjóninni um það sem aflaga fer. En nú er það ekki hægt.
Engin rök em tiltæk til að mæla gegn því að sjávar-
afli íslendinga sé hagnýttur hér á landi qg þar með
tiyggö næg atvinna og stórauknar gjaldeyristekjur. Þess
vegna hlýtur stjórnin og stuð'ningsmenn hennar að láta
undan í þessu mikla nauðsynjamáli ef á það er lagt
nægilegt kapp af almenningi.
Ábendingar til veður-
stofunnar.
Iðnaðarmaður skrifar:
,,Veðurfregnir eru lesnar í út-
varp oft é dag og er ekki nema
gott um það að segja, enda
nauðsynlegt að ýmsar starfs-
stéttir þjóðfélagsins, og þá ekki
sízt sjómennirnir, hafi sem
gleggstar upplýsingar um veður
horfur hverju sinni. En einn
tilfinnanlegur ljóður er á þess-
ari upplýsingaþjónustu veður-
stofunnar og útvarpsins. Ég
minnist ekki að þess sé nokk-
umtíma getið hvort horfur eru
fremur á frosti eða frostleysu.
Nú er atvinnu og framkvæmd-
um margra manna þannig hátt-
að að slíkar upplýsingar geta.
verið. mjög þarfar og komið
sér einkar vel. Enginn steypir
t. d. í frosti. Og nú er fjöldi
fólks að basla við að koma þaki
yfir höfuð sér og sínum í sam-
bandi við hinar nýleyfðu smá-
íbúðabyggingar. Þessu fólki og
mörgum fleirum, sem standa
fyrir byggingum, kæmi sérstak-
lega vel að fá eins greinargóð-
ar upplýsingar og völ er á um
hvort frekar eru horfur á
auknu frosti eða blota.
•
Tíðkast erlendis.
Hlusti maður á veðurfregnir
í erlendu útvarpi er það föst
regla að þessu atriði eru gerð
sömu skil og öðru veðurútliti.
Ég efast ekki um að það vel
menntaða og starfshæfa fóik
sem annast veðurþjónustuna
hér og sér um veðurfregnir út-
varpsins, sé fyllilega fært um
að sjá um þennan þátt upplýs-
inga um veðurútlit, eins og hin
erlendu starfssystkini þess gera,
Mér er því spurn: Hvernig
stendur á því að þetta hefur
alla tíð verið vanrækt? En þótt
spurt sé er hítt þó aðalatriðið
að úr þessu verði bætt og það
sem allra fyrst. Ég veit að ég
mæli fyrir munn margra þegar
ég skora á veðurstofuna og út-
varpið að bæta þessum þætti
við véðurfregnimar framvegis.
— Iðnaðarmaður".
Afleiðing óstjórnar-
innar.
Verkamaður skrifar: „Und-
anfarnar vikur hefur hundruð
verkamanna skort vinnu til
þess að geta séð heimilum sín-
um farborða. Og því miður er
allt útlit fyrir að ástandið fari
stórversnandi á næstunni. At-
vinnuleysið er að leggjast eins
og mara á hverja starfsgrein-
ina af annarri. Það hefur verið
sagt upp í prentsmiðjum, bók-
bandsvinnustofum, skrifstofum,
verzlunum og verksmiðjum.
Þegar svo er ástatt í nóvember
hvernig halda menn þá að á-
standið verði um áramótin?
Það er greinilegt að til full-
kominna vandræða horfir. Og
það sem verst er: Atvinnuleys-
ið og skorturinn sem því fvlgir
er heimatilbúið, það er afleiðing
af marsjallstefnunni og allri ó-
stjórninni, sem núverandi ríkis-
stjórn og flokkar hennar er á-
byrg fvrir og stendur á verði
um. Þennan sannleika þurfa all-
ir að gera sér og öðrum ljósan.
•
Auðvelt úr að bæta.
Það hefur ekki farið fram
hjá okkur verkamönnunum, sem
fengið höfum að reyna atvinnu-
leysið undanfarið, að bent hef-
ur verið á úrræði sem allir vita
að myndu skapa hundruðum
manna trygga atvinnu og jafn-
framt skapa þjóðarheildinni
auknar gjaldeyristekjur. Verka-
lýðssamtökin og fulltrúar sós-
íalista í bæjarstjóra hafa kraf-
ist þess að togarar bæjarútgerð
arinnar, sem eru sameiginleg
eign allra bæjarbúa, hætti að
sigla með aflann óUnninn úr
landi, heldur leggi hann hér
upp til vinnslu í hraðfrysti-
húsum og verkunarstöðvum.
Slík ráðstöfun er svo sjálfsögð
að engu tali tekur að hún skuli
mæta tregðu og f jandskap ráða-
manna bæjarins. Þetta hefur
verið gert á Akranesi og gefið
svo góða raun að þar er at-
vinnuleysi óþekkt.
m
Háskaleg skammsýni.
Andstaða meirihluta Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjóm
Reykjavíkur gegn því að þeir
togarar sem eru eign almenn-
ings í bænum séu notaðir til
þess að útrýma atvinnuleysinu
og færa þjóðarheildinni meiri
björg í bú, hefur vakið mikla
athygli og undrun allra sem ég
hef rætt málið við. Og það
mega þessir herrar vita að
framkoma þeirra í þessu máli
minnir nú, ekki aðeins atvinnu-
lausa heimilisfeður, heldur fjöl-
marga aðra bæjarbúa sem
skilja hvílíkt böl atvinnuleysið
er, á það svo eftirminnilega að
því verður ekki gleymt, að það
er háskaleg skammsýni og
glæframennska að trúa fulltrú-
um forréttindastéttarinnar fyr-
ir stjórn og rekstri á atvinnu-
tækjum í almenningseign. Slík
atvinnutæki gegna ekki því
hlutverki sem þeim er ætlað
meðan þau eru undir stjórn
þröngsýnna og skilningssljórra
erindreka auðmannastéttarinn-
ar, sem láta sig hag og afkomu
alþýðu engu skipta. Það er allt
útlit fyrir að þessi vetur ætli
að kenna mörgum í viðbót að
þekkja þennan óhrekjanlega
sannleika — Verkamaður".
Flugfélag Islaiuls:
X dag eru ráðgerðar flug-ferðir
til. Akureyrar, Yestmannaeyja,
Hellissands, Xsafj. og1 Hóimavikui.
-— Á morgun er ásetlað að fljúga
til Akureyrar, Vestmannaeyja.
Reyðarfjarðar, Fáskrúðsfj. Blöndu
óss og Sauðárkróks.
^ , 15.30—16.30 Miðdeg
isútvarp. — (15.55
Fréttir og veður-
fr.) lð.00 Frönsku-
kennsla. — 18.25
Veðurfr. 18.30 Xs-
lenzkukennsla; I. fl. — 19.00 Þýzku
kennsla; IX. fl. 19.25 Þingfréttir.
— Tónleikar. 20.30 Útvarpssagan:
„Morgun lífsins" eftir Kristmann
Guðmundsson (höf. les). — IT.
21.00 „Sitt af hverju tagd“ (Pétl.r
Pétursson). 22.00 Fréttir og veður-
fregnir. 22.10 „Fram á elleftu
stund", saga eftir Agöthu Chrfstte:
XI. (Sverrir Kristjánsson sagnfr.).
22.30 Tónleikar: Hljómsveit leikur
gömul danslög; Bjarni Böövarss <r.
stjórnar. 23.00 Dagskrárlok.
■w
Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína
ungfrú Svanhildur
Lovísa Gunnarsd.,
Bústaðaveg 59 og
Gunnar Gunnars-
son, Reykjahlíð 14, starfsmaður
hjá Agli Vilhjálmssyni.
Frá raimsóknarlögregluiuil
Við rannsókn á dauðaslysinu,
sem varð á Suðurlandsbraut fyrra
miðvikudag hefur það upplýzts að
3 skóladrengir kornu upp í bifreið-
ina, sem maðurinn varð fyrir, á
gatnamótum Þvottalaugavegar og
Suðurlandsbrautar og voru í bif-
reiðinni þegar slysið varð, en
hlupu þá strax burtu. Rannsókn-
arlögreglan biður þessa drengi að
hafa samband við sig hið bráð-
asta.
Frá Þjóðleikhúsinu
Gamanleikurinn Dóri verður
sýndur í Þjóðleikhúsinu kl. 20 í
kvöld i 10. sinn.
Æglr, september-
október-heftið 1951
er komið út’. Efni:
Daéíð Ólafsson:
Sjávárútvegurinn
1950. Útfl. sjávar-
afurðir 31. ágúst 1951 og 1950. Út-
fluttar sjávarafurðir 30. september
1951 og 1950. .
i
'Félag Borgfirðinga eystri heldur
skemmtifund i Breiðfirðingabúð
föstudaginn 23. nóv. kl. 8,30 e. h.
GENGISSKRÁNING.
Ríldsskip
Hekla var væntanleg til Rvíkur.
í nótt að vestan úr hringferð. Esja
er á leið til Gautaborgar. I-Ierðu-
breið fer frá Reykjavík á morgun
austur um land til Bakkaijarðar.
Skjaldbreið var á Skagaströnd i
gær. Þyrill var á Vestfj. í gærkvöld
á norðurleið. Ármann fór frá R-
vík í gærkvöld til Vestmannaeyja.
I.oftleiðír li. f.
X dag verður flogið til Akureyr-
ar, Hólmavikur, Xsafjarðar og
Vestmannaeyja. — Á morgun er á-
ætlað að fijúga til Akureyrar óg
Vestmannaeyja.
Eimskip
Brúarfoss fór frá Skagaströnd í
gærmorgun 20.11. til Langeyrar,
Þingeyrar, Tálknafjarðar, Patreks-
fjarðar og Akraness. Dettifoss kom
til Antverpen 18.11. fer þaðan til
Hull og Reykjavíkur. Goðafoss fór
frá Reykjavik 16.11. til London,
Rotterdam og Hamborgar. Gull-
foss kom til Reykjavíkur 19.11.
frá Kaupmannahöfn og Leith. Lag
arfoss kom til N.Y. 8.11. ,fer þaðan
22.—23.11. til Reykjavikur. Reykja
foss er í Hamborg. Selfoss kom
til Rvíkur 19.11. frá Hull. Trölla-
foss kom til N.Y. 19.11. frá Reykja
vík.
Skipadeild SIS
Hvassafell fór frá Vestmanna-
eyjum 18. þm. áleiðis til Finn-
lands. Arnarfell er væntanlegt til
Bilbao í kvöld, frá Hafnarfirði.
Jökulfell fer frá Reykjavik í dag
til Patreksfjarðar.
1 £ kr. 45.70
1 $ USA lcr. 16.32
100 danskar kr. kr. 236,30
100 norskar kr. kr. 228.50
100 sænskar kr. kr. 315.50
100 finnsk mörk kr. 7.00
100 belsk. frankar kr. 32.67
1000 fr. frankar kr 46.63
100 svissn.fr. kr. 373.70
100 tékkn. kr. kr. 32.64
100 gyllini kr. 429.90
SÖFNIN:
Landsbókasafnið er opið kl. 10—
12, 1—7 og 8—10 alla virka daga
nema laugardaga kl.10—12 og 1—7.
Þ.jóðskjalasafnið er opið kl. 10—12
og 2—7 alla virka daga nema laug-
ardaga yfir sumarmánuðina kl.
10—12. — Þ.jóðniinjasafnið er lok-
að um óákveðinn tima. — Lista-
safn Einars Jónssonar er oplð kl.
1,30—3.30 á sunnudögum. —
arhókasafnið er opið kl. 10—10
nlla virka datra nema laugardaga
kl. 1—4. — Náttúrugripasafnlð er
opið kl. 10—10 á sunnudögum kl.
Útlvlst barna.
Lögreglan hefur beðið blaðið að
vekja athygli foreldra og annaiTa
forráðamanna barna á því, að
samkv. ilögreglusamþykkt bæjar-
ins mega börn yngri en 12 ára
ekki vera á almannafæri seinna
en kl. 20.00 á tímabilinu frá 1.
október til 1. maí, nema þau séu
í fylgd með fullorðnum. Börn frá
12—14 ára mega ekki vera á al-
mannafæri seinna en kl. 22.00, á
sama tímabili, nema í fylgd með
fullorðnum. Þá er óheimi't að af-
greiða unglinga innan 16 ára á
veitingastöðum eftir kl, 20,00.
nema þeir séu í fy’-gd fullorðn-
um sem bera ábyrgð á þeim.