Þjóðviljinn - 18.12.1951, Page 6

Þjóðviljinn - 18.12.1951, Page 6
i 6) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 18. dcsemebr 1951 60. DAGUR sem hann var vel við skál, svo að ekki leið á löngu áður en út- hverfi borgarinnar komu í ljós. Því að billinn ók með ofsa- hraða eftir veginum. En við ein vegamót, þar sem járnbrautar- lestin að austan ók yfir veginn, varð löng og óvænt töf. Og í norðurhluta borgafihnar fór að snjóa, stórum, hvítujn flyks- um, sem liðu hægt til jarðar og þöktu akbrautina, svo að hún varð blaut og hál og gæta þurfti ýtrustu varúðar við akstur- inn. Klukkan var orðin hálfsex. Undir venjulegum kringum- stæðum hefðu þeir elcki j>urft að vera nema átta mínútur að hótelinu með því að aka hratt. En nú varð önnur löng töf við Hannibal brr'ina og klukkuna vantaði tuttugu mínútur í sex, ]>egar þeir komust yfir í Wyandotte stræti. Og ungu mennirmr fjórir voru nú alvag búnir að gleyma dásemdum ferðalagsins og stúlkunum. Þeir voru hræddir um að þeir kæmust ekki á hótelið í tæka tíð. Allir sáu þeir herra Squires fyrir sér, strang- an og hörkulegan. „Hamingjan góða, ef okkur gengur ekki betur en þetta, þá sleppum við ekki á róttum timaj* sagði Ratterer við Higby, sem fitlaði óstyrkmn höndum við úrið sitt. „Við höfum varla tima til að skipta um föt.“ Clyde heyrði til hans og hrópaði. „Skollimi sjálfur. Bara að við gætum ekið hraðara. Æ, ég vildi óska að við hefðum ekki farið í þessa ferð í dag. Það verður féleg aðkomá, ef við kom- um of seint.“ „Og þegar Hortense tók eftir taugaóstyrk hans, bætti hún við: „Heldurðu að þið verðið of eeinir?" „Já, með þessu áframhaldi," sagði hann. En Hegglund sem hafðj starað á snjóflyksurnar fyrir utan — allur umheimurinn virtist hulinn þessum litlu hnoðrum — hrópaði upp: „Heyrðu Willard. Nú verðurðu að slá í. Við erum allir búnir að vera, ef við 'komum of seint..“ Og Higby var aldrei þessu vant búimi að tapa rósemi sinni og bætti við: „Já við verðum állir látnir róa, ef við getum ekki fundið upp einhverja afsökun. Dettur engum neitt í hug?“ Clyde varpaði öndinni mæðilega. Og til að kvelja þá enn meir, urðu umferðartafir við hver einustu gatnamót. Og Sparser var orðinn gramur yfir þessum etfiðleikum og horfði illilega á lögregluþjóninn sem hafði rétt lit handlegginn á horninu á Níundu götu og Wyandotte stræti. „Þama er enn eiim með útrétta lúkuna,“ hi-ópaði hann. „Hvað er hægt að gera við því? Ég gæti beygt niður Washington stræti, en ég veit svei mér ekkj hvort nokkuð er unnið við það.“ Heil mínúta leið áður en honum var leyft að halda áfram. Svo beygði hann í skyndi til hægri og ók framhjá húsaröðum og niður í Washington stræti. En þá tók ekkj betra við. Tveir þungir umferðastraumar runnu hvor í sína áttina. Og við hvert einasta honi liðu margar dýrmæt- ar sekúndur, meðan bílarnir úr þvergötunum óku leiðar sinnar. Þá fyrst gat bíllinn bmnað að næsta götuhomi og smeygt sér inn á millj annarra farartækja eftir beztu getu. Á hominu á Fimmtándu götu og Washington strætr sagði Clydc við Ratterer: „En ef við fæmm úr við Sautjándu götu og gengjum það sem eftir er?“ „Þið græðið ekkert á því, ef ég get beygt þar,“ kallaði Sparser. „Ég er fljótari á leiðinni en þið.“ Hann ók eins nálægt hinum bílunum og mögulegt var og smaug fram úr þeim. Og á horninu á Sextándu götu kom hann auga á opna leið, svo að hann beygði til vinstri og ók með flughraða eftir þeirri götu og aftur niður að Wyandotte stræti. Þegar hann Jiálgaoist homið og ætlaði að fara að beygja og ók þétt upp að gangstéttinni, hljóp lítil níu ára telpa út á gctun^i,, b’eint fyrir framan bílinn. Og þar sem ekkert ráðrúm var til að stöðva bíl- tnn eða beygja framhjá telpunni, rakst bíllinn á teipuna og dró hana með sér nokkra metra, áður en hægt var að stöðva vélina. Og um leið kváðu við skerandj óp fjölda kvenna og allmargra karlmanna, sem höfðu verið sjónarvottar að slysinu. Allir þyrptust að baminu, sem hafði oltið um og orðið undir hjólunum. Og þegar Sparser leit út og sá fólkið hópast saman kringum barnið á götunni, varð hann gripinn ólýsanlegri skelf- ingu og hann sá fyrir sér lögregluna, fangelsi, föður sinn, eig- anda bílsins og refsingar í öllum mögulegum myndum. Og þótt allir í bílnum væru nú risnir á iætur og gæfu frá eér skelfingaróp: „Guð minn góður. Hann ók á telpu.“ „Hamingjan góða, liann hefur drepið barn.“ „Guð hjálpi okkur.“ '„Jesús minn.“ „Hvað eigum við að gera?“ þá snéri hann sér til þeirra og hrópaði: „Hamingjan góða, lögreglan. Ég verð að komast burt með bílinn." Og án þess að orðlengja þetta frekar við farþegana, sem stóðu flestir uppréttir og næstum mállausir af hræðslu, setti hann bílinn aftur í gang, steig benzínið í botn og ók í loftinu fyrir hornið. —oOo—-- —oOo— —oOo— —oOo— ——oOo— —oOo— —eOo— BARNASAGAN MÆRÞALLAR SAGA 3. DAGUR Mærþöll eítir móður minni, oa óska ég, að þú hreppir allt það gott, er systir mín hefur mælt fyrir þér, og að þú sér prýdd öllum kvendyggðum; mæli ég það um, að þú eignist ágætan kóngsson og unnið hvort öðru vel, svo þér verði allt tii sóma og virð- ingar um ætt þína; kann ég ekki framar að mæla fyrir þér." Síðan fær hún meyna yngstu systur sinni; hún tók við henni og mælti: „Þú skalt þess af mér njóta, að þú heitir Mærþöll eftir móður minni, að ég vil eigi rjúfa hin góðu ummæli, er systur mínar hafa fyrir þér mælt, þó móðir þín hafi gjört mér óvirðingu saklausri. Skaltu nú þó hennar gjalda að nokkru, því það legg ég á þig, að hina fyrstu nótt, sem bú sefur hjá kóngssyninum, sem þú átt að eign- ast, verðir þú að tittlingi og fljúgir út um gluggann. skaltu aldrei úr þeim álögum komast, ef þér leggst bað eigi til, að nokkur geti brennt íittlingshaminn hina þriðju nótt Skaltu þær þrjár nætur geta farið úr haminum litla stund, en aldrei síðan." Þegar systur hennar heyrðu þetta, urðu þær mjög reiðar við hana, er hún mælti svo illa fyrir barninu, og stukku á fætur í burt og sáust aldrei síðan. Yfirbygging Framhald af 8. síðu. um ræðir kostar samanlagt, grind og yfirhygging, kr. 286 þús., en sambærilegur vagn er- lendur ætti að kosta hér á stafinum, miðað við það að er- lendum yfirbyggingarverkstæð- um væri ekki ívilnað hér með tollum, krónur 365.900,00, eða ca. 80 þúsund krónum meira en innlendi vagninn. Virðist því sú ráðstöfun vera óskiljanleg með ö’lu, að leyfður skuli inn- flutningur yfirbyggðra almenn- ingsvagna og gefnir eftir inn- flutningstol’ar af þeim, á sama tíma og innlend verkstæði verða að kaupa efni fyrir bátagjald- eyri og greiða fulla tolla af ö!lu efni, en framleiða samt jafn góða vöru ódýrari eins og sýnt hefur verið fram á í þessu tilfelli. Jafnframt má öllum vera ljós sá gjaldeyrisspam- aður, sem felst í þvi, áð fram- leiða yfirbyggingar hér á landi“. Bílasmíði er ekki nema 8—9 ára gömul hér á landi og hefur því tekið mjög miklum fram- förum á þessum stutta tíma. Þetta er fyrsti frambyggði á- ætlunarvagninn sem smíðað er yfir hér á landi og gerði Gunn- ar Björnsson teikninguna, Við þetta tækifæri lýsti Guðmund- ur H. Guðmundsson undan- dráttarlaust þeim erfiðleikum sem íslenzkur iðnaður hefur ’átt í undanfarið vegna þess að hann liefur orðið að hrökldast frá lanai til lands með við- skipti og langtímum saman ekki fengið þau hráefni er hann hefur þurft til þess að framleiða eins góða vöru og æskilegt hefði verið. Bókafregnir Framhald aí 5. síffu. um ", os haf* sumir þeirra birzt áður ; blöðurn oí? tímaritum. Höl’- andurinn er viðförull maður og vel pennafær, og þar að nuki fýigir honum í hver.ja för úrvals ljcamyndavél og sér, þess nokkurn s'.að i þessari reisubók. Nokkur kaflahciti: Ég serist flugfrey.ia, Pöt isatkonan, Allar leiðir lisrs.ia •il Hönxar. Æs'ilef? borg — en íög- ur, Oapri, Túnisía, Flugferð til Vor.ezuela. Bókin er 198 bls., prent uí ú ágætan pappír. Ein bók enn norðan af Akur- eyri nefnist Finuiu unni ég mann- inuni, skáldsaga eftir Árna Jóns- son, og er blaðinu ekki annað kunnugt um höfundinn. Sagan mun þó vera frumsmíð ungs hif- undar. Hún er röskar 300 bis. á lengd, jxrentuð í Prentverki Odds B.jörl-í.í onar. Útgefandi er Bóka- utgáfan B.S. Sögunnar vex-ður get- ið síðar. FurSuleg fyr- irbceri Furðuleg fyrirbseri — bættir úr dulrænni reynslu minni — nefn- ist bók sem bókaútgáfan Fró'ði hefur sent á markaðinn og er höfundurinn Mai‘garet Gordon Moore. Séra Sveinn Víkingur hef- ur þýtt bókina og skrifar hann einnig formála. Efni bókarinnar er dulheyrhir og skyggnigáfa frú Moore. Hún er 201 bls. á lengd og prentuð í Prentfelli h.f. ★ Haflð jb/ð komiS M a jólasöluna hjá MiSgarSi? Gerlð jb/3 befri kaup annars- staSar? ★ Leiðin lá til Yesfrurl sem vakti mesía athygli í íyrra, ER GÖt) JÓLAGJÖF. fl‘61 m s skáldsagan eftir Svein Auðnn Sveinsson. ~’ Keilisútgá í ■ a n. 1Ð J A fl. Hyksaguz — Þvottavélar — Bónvélar — Straujárn Lækjargötu 19 B Hrærivclar — Raímagnskatlar — Brauðristar l --rrr„,,rr> IÐJA h.L, Lækjargötu 10 B

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.