Þjóðviljinn - 12.01.1952, Side 1

Þjóðviljinn - 12.01.1952, Side 1
Laugardagur 12. janúar 1952 — 17. árgangur — 9. tölublað Veðurstofunni bárust engar fréttir af hafís i gaer. Hvorki frá skipuni né veðurathugunar- stöðvum. Æ'JSX ■' Carlsen skipstjóri við loftskcytatœki sitt um borð í Flying Enterprise 99Verst var a«$ horla á Flying Enterprise Iiverfa I haíið" „Verst leið mér, þegar ég horföi á Flying Enterprise hverfa í hafið“, sagði danski skipstjórinn Kurt Carlsen í gær, er hann var spurður um líðan sína í hálfs mánað- ar hrakningum. Brezkur her ræðst á tvö þorp Egypto Brezkt herlið hernam í gær tvö þorp Egypta og leit- aði á íbúunum og í híbýlum þeirra. ipp.!i' -------.... Sá sjötti reynir stjérnarmyndan Bidault, foringi kaþólskra, gafst í gær upp við að reyna áð mynda stjórn í Frakklandi og sneri Auriol forseti sér þá til Edgar Faure úr róttæka fíokknum, sem var dómsmála- ráðherra í fráfarandi stjórn. Faure er sjá sjötti, sem Auriol biður a3 leita fyrir sér um möguleika á stjórnarmyndun. Mófsagna- kennd rœSa Edens Eden; utanrikisráðherra Bret- lands, héit ræðu í Kólumbía háskólanum í New York í gær. Sagði hann í öðru orðinu að styrjaldarhættan væri nú mun minni en fyrir tveimur árum en í hinu, að Vesturveldin yrðu að hervæðast af kappi. Eden sagðist álíta, að með lausn ein- stakra vandamáia jafnóðum og þau ber að höndum myndi tak- ast að skapa skilyr'ði fyrir frið- samlega sambúð sósíalistískra landa og auðvaldslanda. Rœða hernað í Austur-Asíu I gær hófust í Washington viðræður milli herforingja frá Bandaríkjunum, Bretlandi og Frakklandi. Eiga þeir að semja sameiginlega hernaðaráætlun fyrir Suðaustur-Asíu, þar sem Bretar heyja styrjöld á Mal- akkaskaga og Frakkar í Indó Kína. Carlsen skipstjóri gekk í gærmorgun á land í hafnar- bænum Falmouth á suður- strönd Englands ásamt Dency, brezka stýrimanninum, sem stökk um borð tií hans í rúm- sjó, og skipstjóra dráttarbáts- ir.s Turmoií, sem næstum tókst að bjarga skipi Carisens. Á bryggjunni tóku á móti þeim borgarstjóri Falmouth, flotamálafuiitrúi Danmerkur i London og annað stórmenni. Þaðan var ekið í prósessíu til ráðhússins, þar sem hetjur dagsins ávörpuðu mannfjöid- ann, sem .safnast hafði sam- an, nokkrum orðum. Blaðamenn og ljósmyndarar hópuðust síðan um Carlsen og Déncy, létu rigna yfir þá spurningum og mynduðu þá frá öllum hliðum. Carlsen sagðist hafa verið um kyrrt í skipi sínu vegna þess að hon- um hefði verið Ijóst að ef hamingjan yrði honum hliðholl væri hægt að bjarga því. Var auðheyrt að hann furðaði á því að vika skyldi líða áður en dráttarbátur kom á vett- vang. Skipstjórinn sagðist framan- af hafa nærzt á nýjársköku, sem hann fann í geymslu mat- sveinsins. Síðar tókst að koma til hans matvælum frá banda- rískum tundurspilli. Hann svaf fjóra til sex klukkutíma í sól- arhring á dýnu, sem hann var'ð að skorða milli byrðings og klefagóifs vegna hallans á skip- inu. Þegar þrýstingur af lofti og sjó sprengdi upp hurðina á stýrishúsinu með miklum gný, Framhald á 7. síðu- í gærmorgun fór 400 manna brezk sveit í árásarprömmum yfir ferskvatnsskurðinn, sem liggur samhliða Súesskurðin- um, og umkringdi þorpin. Síðan voru allir ibúarnir FaiigabuHii* relstar I IJSA Bandaríkjastjórn er að láta býggja margar, smáár fanga- búðir, sem eiga að rúma 3000 andstæ'ðinga utanríkisstefnu stjórnarinnar, sem ákveðið hef- ur verið að handtaka ,,ef á- standið gerir það nauðsynlegt“. Þar að auki er fyrirhugað að endurbæta fangabúðirnar við Tule Dage í Kaliforníu, þar sem 20.000 Japanir voru hafð- ir í haldi yfir stríðsárin. Tassigny látinn Jean de Lattre de Tassigny, yfirhershöfðingi Frakka í ný- lendustyrjöldinni í Indó Kína, dó í gær í París af afleiðing- um uppskurðar. Hann varð 62 ára gamall. reknir út úr húsum sínum, smalað saman á einn stað og vopnaður vörður settur að gæta þeirra. Leitað var á öll- um karlmönnum og öllu rótað til, brotið og bramlað í hverju húsi. Brezka herstjórnin segir, að nærri þorpum þessum hafi und- anfarið verið ráðizt á brezka hermenn og hafi árásin á þau verið gerð til að leita að vopn- um. Segir hún, að fundizt hafi skriðdrekasprengjur, skotfæri og sprengiefni. SpUMntj ógnar tilveru USA Herbert Hoover, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur gert að umtalsefni þau fjöl- mörgu hneyksli í opinberu lífi landsins, sem uppvís hafa orðið nýlega. Hann sagði, að ef fjár- málaspillingin í stjórnardeild- um og starfsliði forsetans yrði ekki upprætt með rótum, myndu Bandaríkin „rotna og hrynja einsog önnur stórveldi sögunnnar“. Austurríki í uppnámi útaf komu fasistaforingja Allt er í uppnámi í Austurríki vegna heimkomu fas- istaforingjans Starhembergs fursta. ÁRSHÁTÍÐ ÆSKULÝÐSFYLKINGARINNAR sem jafníramt verður sigurhátíð happdrættisins ★ Verður í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld, hefst kl. 21,30 ★ Allir þeir, sem seldu happdrættismiða eru beðnir að skrifa sig á lista í'skrifstofunni, sem er opin kl. 2—7 daglega, til að tryggja sér aðgöngumiða. ★ DAGSKRÁRATRIÐI: — Ávarp: Einar Olgeirsson. — Ræða: Guðmundur J. Guðmundsson. — Upplestur (úr óprentaðri bók): Þórbergur Þórðarson. — Einnig fer fram verðlaunaafhending, fjöldasöngur og margt fleira. DANS. A Féíagar! Fjölmennið! Ósvífin afvmnukúgimartilraim Óðinsforsprakkanna: HÓTA VERKAMÖNNUM ATVINNUMISSI. EF ÞEIR SVÍKE EKKI DAGSBRÚN Furstinn, sem hjálpaði Dolfuss í valdaráni hans 1944 og lét VesturveidafiIIaga samþykkt Þing SÞ samþykkti í gær til- lögu Vesturveldanna um af- vopnun með 42 atkv. gegn 5 en fulltrúar 7 ríkja sátu hjá. Verkamannafélagið Dags- <j brún lieldur félagsfund í > Iðnó kl. 2 e.h. á morgun. } 2 Aðalumræðuefni fundar- jjins er atvimudeysið. Þurfa ;; Dagsbrúnarmenn því að f jöl- smeiin^, á fund þennan. i i ,,heimavarnarlið“ sitt berja niður verkalýðshreyfinguna í blóðugum bardögum í verka- mannahverfi Vínarborgar, hef- ur búið í Argentínu en ákvað að halda heim þegar hæstirétt- ur Austurríkis úrskurðaði, að honum bæri eignaréttur yfir 82 stórjarðeignum furstaættar- innar. Verkamenn sameinaðír. í fyrsta skipti síðan stríði lauk standa kommúnistar og sósíaldemókratar í Austurríki sameináðir í baráttunni gegn því að furstinn fái tekið upp sína fyrri iðju. Báðir flckkarn- ir boðuðu til allsherjarverk- falls í Austurríki á mánudag- inn. Þúsundir verkamanna í Vínarborg héldu mótmælafundi útifyrir ráihúsjnu og þinghús- inu. Furstamálið hefur vakið úlf- úð milli sósíaldemókrata og þjóðflokksins, sem hafa stjórn- að Austurríki -saman í sex ár. Öðinsforsprakkarnir hafa einmitt þessa dagana verið staðnir að því að beita Dags- brúnarverkamer.n, sem vinna Iijá Reykjavíkurbæ, hinni ó- svífnustu atvinnukúgun. I sambandi við nndirbúning Dagsbrúnarkosninganna, sem verða í lok mánaðarins, liafa erindrekar atvinnurekenda í Óðni gengið á milli bæjarvinnu rnanna til þess að fá þá til að stilla upp Óðinslista í félaginu. Hafa þeir undanfarna daga verið að icyna að smala á klíkufund, sem hálda átti í gærkv'öldi I Holstein, til þess að ganga frá uppstilíingu. I smölunarferðum sínum fyr- ir þcnnan fund, liafa Óðinsfor- sprakkarnir gengið svo langt að hóta einstökum mönnum brottrekstri úr bæjarvinnunni, ef ]ieir kæmú ekki á fundinn og hjálpuðu til við sprengi- lista atvinnurekenda. Hér er um að ræða haturs- fulla tilrauu til jicss að beita v'erkamenn ofbeldi í skjóli þess atvinnuleysis, sem húsbændur Óðinsforsprakkanna háfa leitt yfir v'erkalýðinn. Hér er á ferðinni grímulaus fasismi, sem stefnir að því að mola verkalýðsfélögin og heygja þau undir ok kúgar- anna og ræna állan verkalýð frumstæðustu mannréítindum. En þeim skjátlast herfilega, Iiúsbændunum, ef þeir lialda, að íslenzkur verkalýður láti kúga sig. Reykvískur verkalýður mun sameina krafta sína til sókn- ar gegn atvinnuleysinu, gegn atvinnukúgurunum. Gunnar Thóroddsen, sem er nýbúinn að klyfja Reykvíkinga með 35 milljóna ankasköttum, mun fá Óðinsforsprakkana sína endursenda í Dagsbrúnarkosn- ingunum. Dagsbrúiiarmenn láta ekld beygja sig!

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.