Þjóðviljinn - 26.01.1952, Page 1
Laugardagur 26. janúar 1952 — 17. árgangur — 21. tölubúið
m x
» E
I
ffl B
Forseti íslands, herra Sveinn Björnsson, lézt í
fyrrinótt, og var banameir hans hjartaslag. Var
fráfall forsetans mjög óvænt; hann hafði að vísu
barizt við vanheilsu um alllangt skeið og dvaldist
á sjúkrahúsi er hann lézt, en þó virtist heilsa hans
fara batnandi, þar til hjartað brást snögglega.
Sveini Björnssyni var falið embætti ríkisstjóra
árið 1941, og 17. júní 1944 var Iiann kjörinn for-
seti íslenzka lýðveldisins- Var hann síðan sjálfkjör-
inn, reinast 1949. Mun hans jafnan minnzt sem
fyrsta forseta íslenzka lýðveldisins.
Sveinn Björnsson varð sjö-
tugur á síðásta ári, fæddur 27.
febrúar 1881. Foreldrar hans
voru Elísabet Guðný Sveins-
dóttir og Björn Jónsson rit-
stjóri og siðar ráðherra, en
hann var um skeið einn áhrifa-
mesti stjórnmálamaður þjóðar-
innar, og frá honum tók Sveinn
Björnsson að erfíum áhuga á
þjóðmálastarfsemi.
Stúdentsprófi lauk Sveinn
Björnsson í Latínuskólanum
aldamótaárið og sigidi siðan
til Hafnar að nema lög. Því
námi lauk hann 1907 og flutt-
ist þá heim til Reykjavíkur og
gerðist málfiutningsmaður við
Landsyfirréttinn. Hann var á-
samt Eggert Claessen fyrsti Is-
lendingur sem lauk Hæstarétt-
arprófraun, 1920, og málfærsla
var aðalstarf hans á þessu
tímabili. Jafnframt tók hann
mikinn þátt í opinberu lífi, var
í bæjarstjórn Reykjavíkur
1912—1920 og Alþingisma'ður
fyrir Reykjavík 1914—’16 og
1919—’20 og gegndi í því sam-
bandi ýmsum mikilvægum trún-
aðarstörfum. Hann var mikili
hvatamaður að stofnun Eim-
skipafélagsins og fyrsti for-
maður félagsstjórnarinnar. —
Einnig átti hann mikinn þát-t
í stofnun Sjávátryggingafélags-
ins, h.f. Isaga, h.f. Hamars,
fyrsta bifreiðafélagsins sem
hér starfaði og fyrsta flugfé-
iagsins. Forustu hafði hann
um stofnun Rauða krossins.
Forstjóri Brunabótafélagsins
var Sveinn Björnsson 1916—
’20 og 1924—’'26.
Sveinn Björnsson var skipað-
ur fyrsti sendiherra íslands
1920 og hafði aðsetur í Kaup-
mannahöfn. Var hann siðan ó-
slitið sendiherra til 1940, a'ð
undanskildum tveim árum,
1924—’26, er embættið var fellt
niður. Voru sendiherrastörf
hans að sjálfsögíu mjög um-
svifamikil meðan hann var eini
sendiherra landsins, m.a,- tók
hann þátt í mjög mörgum verzl-
unar- og samninganefndum sem
störfuðu í mörgum , löndum
Evrópu.
Þegar Dánmörk var hernum-
in kölluðu önnur störf að
Sveini Björnssyni. Honum
tókst að komast heim til Is-
lands, og varð ráðunautur rík-
isstjómarinnar í utanríkismál-
um 1940—’41 og fjallaði um
þau vandasömu verkefni sem
þá biöu lausnar. Eins og áður
segir varð hann ríkisstjóri
1941 og endurkjörinn tvívegis
til þess starfs þar til hann
varð með lýðveldisstofnuninni
fyrsti forseti lýðveldisins. Bjó
hann að Bessastöðum, sem rík-
isstjóri og ' átti mikinn þátt í
að sá staður var valinn for-
setasetur. Hafði forsetinn m.a.
mikinn áhuga á búrekstri þar
og möguleikum ísleuzks land-
búnaðar.
Kvæntur var forsetinn danskri
konu, Georgia Hoff-Hansen, og
átti hún ríkan þátt í störfum
hans alla tíð.
Þegar fregnin um andlát for-
setans barst út í gærmorgun
voru fánar hvarvetna dregnir
í hálfa stöng. Forsætisráðherr-
ann, Steingrímur Steinþórsson,
sagði þjóðinni tíðindin í hádeg-
„Góðir íslendingar!
Ég flyt íslenzku þjóðinni
sorgarfregn.
Forseti Islands, herra Sveinn
Björnsson, andaðist í Reykja-
vík klukkan hálf fjögur í nótt.
Forsetinn' hafði fyrir skömmu
gengið undir uppskurð erlendis
og virtist á góðum batavegi,
en að vonum máttfarinn eftir
mikla og hættulega aðgerð.
Þegar ég átti tal við forset-
ann í fyrradag, glaðan og
hressan í anda, grunaði mig
sízt, að sá fundur yrði okkar
síðasti, enda lét hann í ljós
von um, að þreytan mundi
hverfa með vori og hækkandi
sól, svo að hann gæti þá tekið
til starfa fyrir land sitt og
þjóð með endurnýjnðum kröft-
um.
Islenzka þjóðin mun jafnan
minnast hins mikilhæfa, góð-
viljaða og hugljúfa forseta
síns með virðingu og þökk
og meta að verðleikum
störf hans í þágu lands
og lýðs bæði meðan hann
gegndi vandasömu sendiherra-
embætti um langt skeið og eins
er hann mótaði og markaði
stöðu hins íslenzka þjóðhöfð-
ingja sem fyrsti forseti hins
íslenzka lýðveldis.
I dag sýnir þjóðin samúð
sína með því áð störf í skrif-
stofurn og verzlunum bæði hjá
einstakhngum og ríkisfyrirtækj
isútvarpi í gær, eri útvarp féll
sífran niður. Oþinberum skrif-
stofum, verzlunum og fjölmörg-
um fyrirtækjum var lokað í
gær til virðingar við hinn látna
þjóðhöfðingja.
I ræðu sinni til þjóðarinnar
komst forsætisráðherra þannig
að orði:
um eru felid niður frá hádegi
og hverskonar samkomum af-
lýst og skólum lokað.
Hugur vor beinist sérstak-
lega í dag til forsetafrúarinnar,
Georgiu Björnsson, og barna
og annarra vandamanna for-
setahjónanna með hluttekning-
arkve-íjum,-
■ Vér íslendingar munum ávalt
minnast hins fyrsta forseta ís-
lenzka lýðveldisins, herra
Sveins Björnssonar, með miklu
þakklæti og óblandinni virð-
ingu. Guð blessi hann og alla
ástvini hans“.
inni Ismailia viö Súesskurö.
I sex ldukkutíma orustu
skutu Bretar lögreglustöðina í
rúst með skriðdrekum, drápu
að eigin sögn 42 lögregluþjóna
en særðu 58.
Þegar tíðindin frá Ismailia
bárust til Kairo kom egypzka
stjórnin þegar sarnan á skyndi-
Lík forseta ílutt að
Bessastöðum
Lík forseta var flutt frá
Landakotsspítala í Reykjavík
heim til Bessastaða í gær.
Fyigdu því, — auk forsetafrú-
arinnar, barna og tengdabarna
forsetahjónanna, sem heima
eru, — handhafar forsetavalds,
ríkisstjómin, forsetar Alþingis,
sendiherra Norðmanna f.h.
fulltrúa erlendra ríkja hér,
biskup, lögreglustjórinn í
Reykjavík og sýslumaður Gull-
bringu- og Kjósarsýslu. Við
sjúkrahúsið stóðu lögreglu-
menn heiðursvörð, er líkið var
flutt brott.
Samáðarkveðjur
Sendiherrar . erlendra ríkja.
og forstöðumenn erlendu sendi-
ráðanna í Reykjavík gengu
laust fyrir hádegi á fund utan-
ríkisráðherra og vottuðu hon-
um samúð sína í tilefni af frá-
Franihald á 7. síðu.
fund. Þúsundir mamia fóru um
götur Kairo og Alexandríu og
kröfðust vopna til að koma
fram hefndmn á Bretum og
var neyðarástandi lýst yfir í
báðum borgum.
Viðureignin í Ismailia hófst
í gærmorgun, er 1500 manna
SÞ samþykkt
Stjórnmálanefnd þings SÞ
samiþykkti í gær með 21 atkv.
gegn 12 tillögu Sovétrikjanna
um að skora á öryggisráðið að
veita í einu fjórtán ríkjum inn
göngu í bandalagið. Fulltrúar
25 ríkja sátu bjá. Fulltrúi
Bandar.íkjanna hafði forystu
fyrir andstöðunni gegn tillög-
unni en fulltrúar Bretlands og
Frakklands sátu hjá.
Frekkar flytia
her tli Túnis
I gær kom franskt beitiskip
til Bizerta í Túnis með deild
úr frönsku ríkislögreglunni og
fallhlífasveitir og stormsveitir
úr franslta hernum eru á leið-
inni.
I fyrrinótt settu þjóðernis-
sirinar í Túriis tvær járnbraut-
arlestir útaf sporinu. Franskt
lið skaut ■ á útifund þjóðernis-
sinna í Túnisborg. I öðrum
borgum úom til smærri á-
rekstra.
Alexander land-
varnaráðherra
Fullyrt er í London að þess
verði skammt að bíða, að Alex-
ander lávarður verði útnefndur
landva»'naráðherra Bretlands.
Churchill hefur undanfarið
gegnt þessu embætti jafnframt
forsætisráðherraembættinu.
Wiðskipii Japans
og Sovétrikjanna
I gær hófust í Tokyo fyrstu
viðræður um viðskipti milli
Sovétríkjanna og Japans, sem
farið hafa fram síðan stríði
lauk. I þeim taka þátt fulltrú-
ar frá sovétsendinefndinni á
Japan og fulltrúar samtaka
japanska stáliðnaðarins, kola-
iðnaðarins, vefnaðariðnaðarins
og útgerðarmanna.
IJfoya licrstöð
Vestiirvelda
Fulltrúi Egyptalands í auka-
stjórnmálanefnd SÞ lagði til í
gær, að Bandarikjamönnum,
Bretum og Frökkum yrði skip-
að að verða á brott með her
sinn úr Líbyu innan sex mán-
aða. Sagði fulltrúinn, að ómögu
legt væri að telja Líbyu sjálf-
stæða meðan þar væru erlend-
ar herstöðvar.
brezkt lið búið Centurion skrið-
drekum og brynvörðum bílum
umkringdi lögreg’ustöðina og
krafðist þess að lögreglan léti
af hendi vopn sín. Er því var
neitað hófu Bretar skotliríð og
Egyptar svöruðu með hánd-
vopnum. Stóð bardagi.nn lát-
laust þangað til lögreglustöðin
var orðin sundurskotin. Hand-
tóku Bretar þá um 800 lög-
regluþjóna. Segja Bretar þrjá
menn hafa fallið og 13 særzt
af sínu Hði.
Tilkynning forsætisráðherra
Dregur til stórtíðinda í Egyptaiandi
Brefar skfófa lögieglusföðma í Esmaília í rúsf — Egypzka stjóniin á siöðug-
um fuitdum — Mmeriitingur krefst aogerða gegn Brefum
í Egyptalandi getur á hverri stundu dregið til mikilla
tíðinda. Þetta var einróma álit fréttaritara í gærkvöldi,
cftir að Bretar höfðu ráðizt á egypzku lögregluna í borg-