Þjóðviljinn - 31.01.1952, Síða 1
Kvenfélag sósíalista
Aðalfundur
félagsins verður n. k.
föstudagskvöld að Þórs-
götu 1 kl. 8.30.
Venjuleg aðalfundar-
störf.
Kaffidrykkja.
Fjölmennið. — Stjórnin.
Ég melnti ekkert með
því sem ég sagðl!
Churcnill segist ekki senda meiri her til Asíu
Churchill lýsti yfir því í gær í neðri deild brezka þings-
ing að engin sérstök merking hefði legið bak við ummæli
hans í Bandaríkj aþingi, þar sem hann sagði að Banda-
ríkin og Bretland myndu bregða við ,,með hraða, ein-
beitni og atorku“ ef kommúnistar riftuðu væntanlegu
vopnahléi í Kóreu.
Ummæli Churchills á Banda-
ríkjaþingi höfðu vakið mikla
athygli og getgátur um það
hvað fælist á bak við þau.
Höfðu þau almennt verið túlk-
uð svo að Churchill og Truman
hefðu komið sér saman um
stefnu þá sem kennd er við
McArthur, vopnaða árás á
Kína. Höfðu MacArthur-sinnar
fagnað ummælunum mjög, en í
Bretlandi höfðu þau vakið ugg
og ikvíða.
Thor Thors sjái
um kosningar í
Þýzkaiandi!!
Sameinuðu þjóðimar kusu á
síðasta ári nefnd til að undir-
búa kosningar í Þýzkalandi öllu
og athuga skilyrði fyrir þeim.
Var vitað að nefndin yr&i
gagnslaus, þegar er hún var
kosin, þar sem stjórn Þýzka
lýðveldisins neitaði að viður-
kenna hana. Lýsti hún yfir því
að kosningarnar væru þýzkt
innanríkismál og utan verk-
sviðs sameinuðu þjóðanna.
Meðal þeirra landa sem til-
nefna áttu mann í nefndina var
ísland, og í fyrradag var Thor
Thors, sendiherra Islands í
Bandaríkjunum, tilnefndur! —
Aðrir fulltrúar eru Antonio
Mendes Vianna frá Brasilíu, Ali
Haidar Abdasi frá Pakistan og
Max Kohsstarm frá Hollandi.
Pólverjar neitu&u að tilnefna
mann í nefndina.
Churchill tók nú fram i
brezka þinginu að allar slíkar
túlkanir værh úr lausu lofti
gripnar. Kóreumálin hefðu ver-
ið lítið rædd af þeim Truman
Framhald á 7. síðu.
Framleiðslu-
aukning i Sovét
Nýlega hefur verið birt
skýrsla um framleiðsluafköst-
in í Sovétríkjunum 1951, og
varð heildarframleiðslan 103,5
prósent af því sem gert var
ráð fyrir í fimm ára áætlun-
inni. Merkir þetta mjög mikla
hækkun á framleiðslunni frá
næsta ári á undan; t. d. hef-
ur járnframleiðsla aukizt um
14%, stálframleiðsla um 15%,
framleiðsla á bilum um 34%,
rafmagnsvélum um 37%, svo
að nokkur dæmi séu nefnd. —
Skýrslan verður nánar rakin í
blaðinu síðar.
Biezknm banka lokað
Brezki bankinn í Iran hefur
lýst yfir því að hann muni
neyðast til að hætta starf-
semi sinni algerlega á næsta
hálfa ári vegna takmarkana
sem íransstjórn hefur lagt við
stari'semi hans. M. a. var bank-
anum bannað að selja erlendan
gialdeyri.
Vaxandi bandarískur óróður
gegn vopnahléi í Kóreu
Bandaríkin herða nú mjög áróður sinn gegn vopnahléi í
Kóreu með þeirri röksemd að slíkt vopnahlé myndi stórauka
hættuna á „kommúnistískri árás á Indókína og Burma“. Churc-
hill ítrekaði þennan áróður í ræðu sinni í brezka þinginu í gær.
MÍR-fundur í
Hafnarfirði
í kvöld
MÍK-fundurinn, sem frest-
að var vegna veðurs á dög-
unum, verður í kvöld kl. 9
að Strandgötu 41. Sýndar
verða nýjar fréttamyndir
frá Sovétríkjunum. Haukur
Ilelgason flytur stutt erindi
um Armeníu og að lokum
verður sýnd mjög góð lit-
kvikmynd frá Armeníu, sem
lýsir vel landi og þjóð.-Fé-
lagar mega taka með sér
gesti.
1 samræmi við þennan áróð-
ur gera Bandaríkin nú allt til
að draga vopnahlésviðræðurn-
ar á langinn og koma ekkert
til móts við stöðugar tilraunir
Norðanmanna til að ná ár-
angri. Eru nú æ fleiri frétta-
menn þeirra skoðunar að ætlun
Bandaríkjanna sé að tefja við-
ræðurnar fram í marz og benda
þá á þessi atriði:
1. 1 marz er verstu vetrar-
veðrunum lokið. Bandaríkin
hafa þá komið sér upp auknu
og óþreyttu liði. Þrýstiloftsvél-
ar verða þá á takteinum í
stærsta stíl, og tök á að reyna
ný hernaðarátök.
2. Truman mun telja marz
hagstæðan tíma fyrir sig til að
stöðva persónulega hinar ár-
angurslausu samningatilraunir
og bæta aðstöðu sína í barátt-
unni um forsetakjörið.
I haust birti stjórn Þýzka lýðveldisins mikla áætlun um endurreisn Berlínar sem hafi það
markmið að gera höfuðborg Þýzkalands „fegurri en nokkru sinni fyrr“. Hafa beztu bygg-
ingafræðingar og listamenn landsins undirbúið áætlunina og skipulagt borgina 'upp að nýju.
Áætlun þessari hefur verið tekið af geysilegum fögnuði, og auk hinnar almennu skipulagn-
ingar hefur að heita má hver íbúi Austurberlínar boðið fram sjálfboðastörf til að flýta
framkvæmdum. Enda veitir ekki af eldmóði og þrótti andspænis rústum eins og þeim sem
sjást hér á myndinni.
Þýzki nazistaherinn end-
urreistur í júni
Adenauer, kanslari Vesturþýzkalands, gerði nýlega leynisamp-
ing við Vesturveldin, þar sem kveðið var endanlega á um endur-
hervæðingu landsins og einstök atriði hennar. Walter Ulbricht,
varaforsætisráðherra Þýzka lýðveldisins hefur nú ljóstrað upp
um samning þennan og innihald hans.
Ulbricht skýrði frá því að
meginákvæði samningsins væri
það að 1.250.000 ungir Vestur-
þjóðverjar yrðu kvaddir í her-
inn. Herkvaðning árganganna
1929—1934 hefst í júní í sum-
ar, og‘ herskyldutsminn á að
vera 18 mánuðir.
Hinar ýmsu greinar samn-
ingsins fjalla um skuldbinding-
ar Þjóðverja gagnvart Vestur-
veldunum. í formála samnings-
ins, sem undirritaður var af
Adenauer í París með vitund
og samþykki sósíaldemókratans
Schumacher segir svo m. a.:
Churchill gleypíi
flotaforiíigjann
í gær var opinberlega til-
kynnt að bandaríski flotafor-
inginn McCormick hefði verið
skipaður yfirflotaforingi Atl-
anzhafsbandalagsins, en Chur-
chill hafði áður krafizt þess
mjög eindregið að herforingi
þess yrði brezkur og ásak-
að Verkamannaflokksstjórnina
harðlega fyrir undirlægjuhátt
við Bandaríkin. ■— Churchill
reyndi að afsaka þennan ósig-
ur sinn í brezka þinginu í gær.
Kvaðst hann ekki sannfærður
um að nokkur þörf héfði verið
fyrir útnefningu þessa, en hann
ihefði ekki fengið því ráðið.
Hins vegar hefði hann þó feng-
ið því framgengt að sá banda-
ríski fengi brezkan fulltrúa við
hlið sér. Nefnist sá sir William
Andrews.
„Miðevrópa hefur ævinlega
verið hin mikla markalina og
vettvangur fyrir hetjubaráttu
Adenauei
frjálsra þjóða með lífið að
veði“.
I samræmi við það eru svo
sérstök ákvæði í fyrstu grein
um jafnrétti fyrrverandi naz-
istahershöfðingja og SS-sveita
Egypzka stjórnin
óttast þjdð sina
Það verður nú æ greinilegra
að egypzka yfirstéttin er sjálf
orðin óttaslegin við þann frels-
iseld sem hún hefur átt þátt
í að vekja með þjóð sinni.
Brezka blaðið News Cronicle
birti í gær viðtal við hinn nýja
forsætisráðherra, Ali Maher
Pasha, og hefur þar eftir hon-
Framhald á 7. síðu.
Vaufraust á
brezku stjórnina
í gær hófust í brezka þing-
inu tveggja daga umræður
um niðurskurðartillögur Ihalds-
stjórnarinnar, sem merkja á-
framhald hervæðingarinnar á
kostnað almennra lífskjara í
landinu. Gaitskill, fyrrverandi
fjármálaráðherra Verkamanna-
flokksstjórnarinnar réðst harka
lega gegn tillögunum um lækk-
uð framlög til þjóðfélagsmála
og sagði að afleiðingin af tii-
lögum Ihaldsflokksius yrðu at-
vinnuleysi í landinu. Báru
þtingmenn Verkamannaflbkksins
fram breytingartillögur sem
jafngilda vantrausti og verða
greidd atkvæði um þær á morg-
un.
Framhald á 7. síðu.
Vinna falii niður á laugardaginn
vsgna úffarar forseta fslands
Ríkisstjórnin mælist til þess að vinna falli -niður hvar-
vetna á landinu — eftir því sem við verður komið — á
útfararilegi, herra Sveins Björnssonar, forseta, laugar-
daginn 2. febrúar n.k., svo og hverslionar skemmtfeam-
komur.