Þjóðviljinn - 06.02.1952, Blaðsíða 8
o
Öðrum boðið í „party" en endalokin urðu þau að
hann var sleginn í rot og rændur peningum og
öðru lauslegu úr vösum hans
I fyrrinótfc var ráðizt á tvo sjómenn á götu hér í bænum,
þeir slegnir í rot oog rændir þeim peningum er þeir höfðu á
sér. Voru tveir menn að verki í bæði skiptin. Rannsóknarlög-
reglan hafði bæði málin til meðferðar í gær og var rannsókn
ekki að í'ullu lokið í gærkvöld. Hvorugur mannanna, sem fyrir
árásinni urðu, þekkti ránsmennina.
Tveir sjómenn barÖir
rændir í fyrrmótt
Ivíiðvikudagur 6. febrúar 1952 — 17. árgangur — 29. tölublað
Hafnfirzkir sjómenn vísa skatta-
kröfum Aiþýðusambandsstjórnar
til föðurhúsanna
Fyrir aðaifundi Sjómannafélags Hafnarfjarðar s.l. ];
; sunnudag lá bréf frá stjórn Alþýðusambands Islands, ;
; er hafði imii að halda nýjar fjárkröfur frá þeim Helga
> bæjarstjóra og öðfum í hópi hinna hestbaksríðandi ;l
j> biskvískoðara. s
Krefjast þeir nú hækkaðs skatts frá sambandsfélög- !;
l! unum til hinnar sísofandi og svíkjandi Alþýðusam- !;
!; bandsstjórnar. Krafa þessi nemur 7 króna liækkun frá J;
hverjum sambandsféilaga.
J; Á fundi Sjómannaféiags Hafnarfjarðar tóku óvenju- ;!
;! margir til máls er skattakrafa sambandsstjórnar kom !!
;' til umræðu, og voru þeir allir á einu máli. Að loknum !;
1; umræðum samþylíkti fundurinn einróma: !;
!; Fundur í Sjómanuaféiagi Hafnarfjarðar, haldinn 3. 2. ;j
1; 1952 mótmælir eindregið hækkun gjalda til sambands- J;
;! stjómar og vísar bréfinu til réttra aðila. ;|
Pöntunarfélag alþýðu
tuttugu ára
Norðfirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
Pöntunarféiag aiþýðu bauð féiagsmönnum til afmælisfagnað-
ar í barnaskólianiun sunnudaginn 3. febrúar í tiiefni þess að
þann dag voru liðin 20 ár frá stofnun félagsins. Fyrsti formað-
ur félagsins var Kristínn Ólafsson bæjarfógeti og fyrsti fram-
kvæmdarstjóri Alfons Pálmason. Stofnendur voru 26, en nú em
félagsmenn 307.
Annar mannanna sem fyrir
áfásinni varð, Óli Anton Þór-
arinsson, sjómaður frá Hliði á
Álftanesi, var á- gangi upp úr
miðnætti niður í bæ og að hann
telur í Kolasundi. Mætir hann
þar tveimur mönnum og voru
tvær stúlkur í fylgd með þeim.
Hófu menn þ -ssir að þukla
hann en hann ýtti þeim frá sér.
Sló þá annar maðurinn hann á
vinstra auga og féll hann við
höggið í götuna. Samstundis
sló hinn maðurinn hann einnig
og missti Óli meðvitund við
höggið. Þegar hann raknaði við
aftur voru mennirnir og stúlk-
urnar á bak og burt og kom
lögreglan að þegar hann var að
standa á fætur. 1 innri jakka-
vasa hafði Öli félagsskírteini
og í því 270 kr. Höfðu pen-
ingarnir verið teknir úr skír-
teininu en það skilið eftir í
vasanum. Við árásina hafði
Óli hlotið glóðarauga á vinstra
auga, sprungið fyrir á neðri
vör, efri gómur sem er falsk-
ur, er brotinn og ein tönn brot-
.inn í neðri góm.
Hinn maðurinn, sem einnig
varð fyrir árás í fyrrinótt var
Einar Björnsson, Flókagötu 6.
sjómaður á Ingólfi Arnarsyni.
Var hann á dansleik að Hótel
Borg og smávegis undir áhrif-
um áfengis að eigin sögn.
Gekk hann um miðbæinn eftir
að dansleiknum lauk og rétt
•eftir kl. 2 hitti hann tvo menn
3 Aðalstræti og voru með þeim
þrjár stúlkur. Kölluðu menn-
irnir til hans og báðu um
sígarettur. Varð hann við
þeirri’ bón. Spurðu þeir því
næst hvort. hann væri til í
„partý“, og játaði hann því.
Fór þá allur hópurinn yfir í
Hafnarstræti, tók sér bíl á
Borgarbílstöðinni, óku síðan
upp í bæ og staðnæmdust á
Bergstaðastræti. Borgaði Einar
þar bilinn og gekk hópurinn
síðan niður í bæinn. Þegar þau
voru þarna á gangi spurði ann-
ar maðurinn Einar hvort hann
hefði peninga, en Einar kvað
honum þiað óviðkomandi. Áður
hafði hann sagt fólkinu að
hann væri með ávísun að upp-
hæð 425 kr. sem hann hafði
ekki getað selt.
Skipti nú engum togum að
annar maðurinn smeygði sér
úr frakka og jakka og ætlaði
Auð jörð í Norð-
firði
Norðfirði. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Samgöngur við Reykjavílc
•eru afleitar og hefur engin
ferð með farþega verið í þrjár
vikur og ekki væntanleg ferð
fyrr en eftir hálfan mánuð.
Jör'ð er að mestu auð á lág-
lendi og snjólétt til fjalla.
Tið hefur verið heldur góð frá
áramótum.
að slá Einar én hann brá
sér undan högginu. Sló hann
nú árásarmanninn, hafði hann
undir í snjóskafli og vildi
reyna að stilla hann. En þegar
hann lá þarna ofan á mannin-
um fékk hann allt í einu spark
í hnakkann og missti meðvit-
und litla stund en raknaði
brátt við aftur og ætiaði að
risa á fætur, en þá var hinn
staðinn upp og sparkaði nú í
höfuð hans og víðar hvað eft-
ir annað. Lauk viðureigninni
þannig að Einar lá eftir í roti.
Þegar ha'nn raknaði við var
kápa hans í tætlum og föt rif-
in.
Þegar Einar fór að kanna
vasa sína kom í ljós að búið
var að -ræna hann, ávísunin
horfin og nokkrar krónur sem
hann átti í peningum. Höfðu
vasar hans verið gjörsamlega
hreinsaðir af öllu lauslegu, svo
sem skipsrúmsbók, sígarettum,
eldspítum, lyklum o. s. frv. Fór
Einar síðan niður á lögreglu-
stöð og tilkynnti þar árásina
og ránið.
Eins og fyrr segir vann lög-
reglan að því í gær, að upp-
lýsa bæði þessi mál, en rann-
sókn er ekki enn lokið.
Sésialistafélags
Reykjavíkur
Fræðsiukvöld
Sósíalistafélag Reykjavík-
ur hefur ákveðið að efna til
fræðslukvölda fyrir félaga
sína og gesti og verður til-
högun þeirra þannig að flutt
verða fræðsluerindi, sýndar
verða kvikmyndir og lesin
verða upp kvæði, sögur o.
fl.
Fyrsta fræðslukvöldið verð
ur n. k. fimmtudagskvöld
kl. 8.30 að Þórsgötu 1. Þá
mun Ásmundur Sigurðsson,
alþm., flytja erindi um
Marshallaðstoðina og áhrif
hennar á efnahagsþróunina
á Islandi. Sýnd verður kvik-
mynd er nefnist „Fiskimað-
urinn og kona hans“ gerð
eftir sögu eftir Puskín; auk
þess verður upplestur. Að-
gangur að fræðslukvöldun-
um er ókeypis og er félög-
um heimilt að taka með sér
gesti. Fræðslukvöld þetta
verður sérstaklega ætlað fé-
lögum úr Þingholtadeild,
Skuggahverfisdeild, Njarðar-
deild, Skóladeild og Baróns-
deild og gestum þeirra, en
síðar mun verða haldið sams
konar fræðslukvöld fyrir hin
ar deildirnar 4—5 í einu og
verður það nánar auglýst
síðar. Félagar úr fyrrgreind-
um deildum eru hvattir til
þess að fjölmenna og mæta
stundvíslega.
Stjórnirnar.
V_________________________✓
Aðalíundur Kven-
félags sósíaíista
Aðalfundur Kvenfélags sósí-
ahsta var haldinn föstudaginn
1. febrúar á Þórsgötu 1. Stjórn
ina skipa nú þessar konur:
Helga Rafnsdóttir, formaður.
Karólína Siemsen. Dýrleif Árna
dóttir. Hallfríður Brynjólfs-
dóttir. Elín Guðmundsdóttir.
Varastjórrfj Halldóra Ö.
Guðmundsdóttir og Þorbjörg
Sigurðardóttir. — Að loknum
aðalfundarstörfum flutti Björn
Bjarnason, formaður Iðju, er-
indi um vandamál iðnaðarins.
Tímarit MÍR
Stórt og vandað hefti tíma-
ritsins MÍR er nýkomið út, og
er þar með lokið öðrum ár-
ganginum. Útgefandi er, sem
kunnugt er, félagið Menningar-
tengsl íslands og Ráðstjórnar-
ríkjanna. Ritstjóri er Geir
Kristjánsson.
Af efni blaðsins má nefna
þetta; Hin græna eik, formáli
Púskíns að ljóðaflokknum Rús-
lan og Ljúdmíla, þýtt beint úr
rússnesku af ritstjóranum.
Einnig skrifar hann ritgerð um
höfundinn. Þá er saga eftir
Tsékov, er ritstj. þýðir úr rúss-
nesku, einnig fyrri hluti frægr-
ar sögu eftir Gorkí: Tuttugu
og sex menn og ein stúlka.
Enn þýðir ritstjórinn ljóð eft-
ir Majakovskí. Birt er viðtal
við Sigvalda Thordarson um
för til Ráðstjórnarríkjanna í
haust, og ræða Björns Þor-
steinssonar á MlR-samkomu 7.
nóv. sl.: Minni alþýðubylting-
arinnar. Ýmsar fleiri greinar
eru í heftinu, auk f jölda mynda,
og hefur tímaritið ekki verið
prýðilegra í annan tíma.
Truxa lít á land
TRUXA hefur haft hér í
Reykjavík nokkrar sýningar á
töfrabrögðum sínum. Síðasta
sýning hans varð í gærkvöldi.
Hann hættir hér sýningum fyrr
en ráð hefur verið fyrir gert
sökum þess að hann þarf að
fara af landi burtu viku fyrr
en ráð hefði verið fyrir gert.
Eins og áður hefur verið
sagt mun TRUXA fara út á
land. Til Akureyrar er hann
væntanlegur um hádegi í dag
og mun hanna hafa þar sýn-
ingu í dag klvikkan 19.00 og
21.30, og á sama tíma á
morgun. — Frá Akureyri er
fyrirhugað að fara til Vest-
mannaeyja með stuttri við-
komu í Reykjavík. Einnig hafa
verið fyrirhugaðar ferðir til
Akraness og Isafjarðar, en allt
er með óvissu um þær ferðir,
sökum þess að utanlandsför
hans var flýtt um viku eins
og fyrr segir.
TRUXÁ sýnir úti á landi á
vegum Sjómannadagsráðsins í
Reykjavík og Hafnarfirði, og
rennur ágóðinn til byggingar-
sjóðs dvalarheimilis aldraðra
sjómanna í Reykjavík.
Hinn 4. febrúar 1952 var
undirritaður í Reykjavík
samningur milli Islands og
Finnlands um viðskipti á tíma-
bilinu frá 1. febrúar 1952 til
31. janúar 1953. Samningurinn
gerir ráð fyrir útflutningi frá
Islandi til Finnlands fyrir allt
að 750.000 sterlingspund og út-
flutningi frá Finnlandi til Is-
Vörusala fyrsta árið var 32
þúsundir, en s.l. ár á þriðju
milljón. Núverandi stjórn
skipa: Sigdór V. Brekkan for-
maður, Jón S. Sigurðsson, Jón-
as Valdórsson, Ársæll Júlíus-
son og Halldór Jóhannsson.
Framkvæmdastjóri er Jóhannes
Stefánsson. PAN hefur allt frá
stofnun verið önnur aðalverzl-
unin í bænum, en samvinnufé-
lögin hafa allt að 75% verzl-
unarinnar.
Afmælishófið sóttu um 300
manns og þótti Jakast vel. Jó-
hannes Stefánsson setti sam-
komuna og stjórnaði henni.
Sigdór V. Brekkan, Vigfús
Guttormsson, Lúðvík Jóseps-
son og séra Guðmundur Helga-
son fluttu ræður. Hans Step-
hensen las upp. Vigfús Gutt-
ormsson, Magnús Guðmunds-
son og Valdimar Eyjólfsson
léku þátt úr Islandsklukkunni,
á leiksviði sem í fyrsta sinni
var sett upp í barnaskólanum.
Biandaður kór söng undir
stjórn Magnúsar Guðmundsson
ar kennara, en hann stjórnaði
lands að verðmæti sem næst
830.000 sterlingspund.
Helztu útflutningsvörur frá
Islandi eru saltsíld, síldar- og
fiskimjöl, þorskalýsi, garnir og
gærur. Helztu útflutningsvörur
frá Finnlandi til Islands verða
timbur, krossviður, þilplötur,
pappír, pappi og unnar pappa-
og pappíi'svörur.
. (Frá utanríkisráðuneytinu).
jafnframt almennum söng und-
ir borðum. Nokkrar félagskon-
ur sáu um veitingar.
Sorplireinsunin í
megnasta olagi
Um allan bæ er nú sorp-
hreinsunin í megnasta ólagi
vegna veðurfarsins að undan-
förnu, og víða er svo ástatt að
sorpið flæðir út úr ílátunum
enda hefur ekki verið hreinsað
í hálfan mánuð til þrjár vikur
í sumum hverfum.
Væri nú ekki ráð fyrir bæj-
aryfirvöldin að fjölga í þess-
ari vinnu meðan ófærðin er
mest og gera þannig tilraun
til að koma hreinsuninni í við-
unandi horf? Nægur vinnu-
kraftur er fyrir hendi svo ekki
myndi standa á því.
Norðfjarðartótar
farnir á vertíð
Norðfirði. Frá fréttaritara
Þjóðviljans.
Togarinn Goðanes kom i
gær með bilaðan ketil og los-
aði nokkur tonn af fiski, en
fór á veiðar í nótt. Egill rauði
kom frá Englandi í gær. Aust-
firðingur tók hér ís í fyrradag.
Bláfellið losar hér þessa daga
600 tonn af kolum til kaupfé-
lagsins Fram.
Bátar eru flestir farnir á
vertíð, nema þeir sem fara á
veiðar héðan að heinmn.
Nýr viðskiptasamningur við Finna
Munið atvinnuleysisskráninguna! Hun fer fram í dag í Hafnarstræts 20 og verður frá
10—12 og 1—5 eftir hádegi