Þjóðviljinn - 08.02.1952, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 08.02.1952, Blaðsíða 3
Föstudagur 8. febrúar 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (3 ÍÞRÓTTIR RlTSTJÓRl: FR.ÍMANN HELGASON Bezti árangur í frjálsum íþróttum á Akureyri 1951 í blaöinu Dagur á Akureyri birtist fyrir nokkru skrá yfir beztu afrek á Akureyri í fr.iáls- um íþróttum. Árangur í sum- um greinum er allsæmilegur. Löngu hlaupin eru það þó sem þar eins og mðasthvar arm- arstaðar á landi voru eru snið- gengin. Af einstaklingum er árangur Hreiðars Jónssonar mjög at- hyglisverður. Hann á bezta ái- angur á Akui'eyri i 300 m og 400 m, 800 m, 1000 m, 1500 m, 3000 m og 300 m torfæru- hlaupi. I fimmtarþraut er hairn nr. 2, í 200 m nr. 5 (24,9), og þátítakandi í 4x100 m boð- h’aupssveit K.A. Hreiðar hefur tekið þátt í mótum í Reykja- vík með góðum árangri og má fullyrða að þarna er hUup- araefni á ferðinni, sem mikils má vænta af í framtíði.im þjálfi hann samviskusamlega og fái góða kennslu. 100 m hlaup. 1. Baldur Jónsson Þór 11,4 2. Jón S. Arnþórsson KA 11,7 3. Herm. Sigtryggsson KA 11,8 200 m hlaup. 1. Herm. Sigtrj'ggsson KA 23,8 2. Sigurður Bárðarson Þór 24,0 3. Baldur Jónsson Þór 24,4 300 m hlaup. 1. Hreiðar Jónsson KA 39,5 2. Einar Gunnlaugss. Þór 39,8 3. Slcjöldur Jónsson KA 41,0 2. Guðm. Ö. Áraason KA 73,0 Hástökk. 1. Tryggvi Georgsson Þór 1,7 2. Leifur Tómasson KA 1,7 3. Gunnar Óskarsson Þór 1,65 Langstökk. 1. Haraldur Jóhannss. KA 6,29 2. Herrn. Sigtryggsson KA 6,05 3. Garðar Ingjaldsson KA 5,96 Þrístölik. 1. Haraldur Jóhanss. KA 13,16 2. Snorri Rögnvaldss. KA 12,65 3. Skjöldur Jónsson KA 12,62 Stangarstökk. 1. Herm. Sigtryggsson KA 3,05 2. Jón Steinbergsson KA 3,00 3. Páll Stefánsson Þór 2,95 Kúfuvarp. 1. Guðm. Ö. Ámason KA 13,43 2. Öfeigur Eiríksson KA 12,34 3. Baldur Jónsson Þór 12,28 Kringlukast. 1. Öfeigur Eiríksson KA 36,06 2. Hörður Jörundss. KA 35,85 3. Ga.rðar Ingjaldss. KA 34,83 Spjótkast. 1. Kristj. Kristjánss. Þór 55,22 2. Ófeigur Eiríksson KA 52,69 3. Tryggvi Georgss. Þór 50,61 Fimmtarþraut. 1. Einar Gunnl.son Þór 2271 st. 2. Hreiðar Jónsson KA 2258 st. 3. Þorv. Snæbj.son KA 2213 st. Hanáknattleiksmótið: Afturelding Þrótfur 13:8 Vaiur K.R. 10:6 Á miðvikudagskvöld fór fyrsti leikurinn fram í B-deild- inni en það var milli Aftur- eldingar og Þróttar. Þó Aftur- elding ynni þennan leik með 5 marka mun þá var munur þessara liða ekki svona mikill; þessi leikur Aftureldíngar var mun lakari en þeir hafa sýnt um langt skeið. Virtust daufir og fremur slappir. Þróttur á þarna lið sem reynir að vinna saman og skapa sér nafn. Þeir eiga að vísu við byrjunarörð- ugleika að stríða, sem er hræðsla við að gánga nær varnarveggnum í leit að opnum og skottækifærum. í hálfieik stóðu leikar 4:4. Síöari leikurinn var hinn fjör- ugasti og höfðu Valsmenn mjög góð tök á leiknum; það mætti líka. segja að Sveinn Helgason hafi haft svo góð tök á liði sínu að það gekk eins vel og smurð vél, er gaf viifliing yfir ágætu KR-liði. KR-liðið í dag er ekkert lamb að leika við; flestir há- ir vexti, leiknir og hreyfanleg- ir En þetta tiltölulega unga lið hefur ekki enn fengið þann- keppnisvana sem nauðsynlegur er; þegar hann er fengir.n til viðbntar kunnáttu þeirra verö- ur lið þeirra torsótt til sig- urs. Hraði var mikil’ í leiknum og sérstaklega af Vals háifu i byrjun en KR-ingar sóttu á er Frá aðalfundi K.R.R. Aðalfundur Knattspymuráös Reykjavíkur hcfst s. 1. mánu- dagskvöld. — Flutti formaður ráðsins, Sveinn Zoega skýrslu stjórnarinnar. Bar hún með sér að störfin eru margþætt og mikil, sem lögð eru fram tii að halda uppi knattspyrnu- íþróttinni hér í höfuðstaðnum, því auk stjórnar réðsins korna nefndir sem starfa að tilhletun þess eins og mótanefndir, sem sjá um leikina, en þeir eru orðnir hátt á annað hundrað á keppnistímabilinu. Þá má og geta knattspyi’nudómarafélags- ins, sem er fræðilegur aðili innan KRR. Til þess að halda öliu þessn gangandi hefur stjóm ráðsins orðið að halda 52 bókaða fundi á árinu, eða einn á viku til jafnaðar. Það er líka s\’o að það eru ekki aðeins Reyk.ia- víkurmótin sem undirbúa þurfti, heldur fóru öll landsmótin fram hér í Reykjavík s.l. ár — „en þátttaka utanbæjarfélag- anna var mjög lítil. Væri þvi óskandi að ekkí yrði langt að bíða. betri þátttöku þeirra í iandsmótum“, segir í skýrs’u formanns. Gat hann þess að KRR hefðu borizt óskir og tilboð frá ýms- um félögum og bandalögum um að koma til íslands á næaia sumri. T. d. frá Noregi, Dan- mörku, Austurríki og Irlandi. Þá er þess getið að KSl hafi samþykkt áð taka boði knatt- spyrnusambands Þýzkalands um landsleik Island-Þýzkaland í september 1952 (þó með viss um skilyrðum). a ieið þegar Valsmenn tóka að þreytast. Næstu leikir fara fram á sunnudag og keppa þá Fram- V/kingur og ÍR-Valur. Með skýrslunni fylgdi skrá yfir leiki þá sem liáðir voru hér s.l. sumar. Urðu nokkrar umræður ur.i sltýrsluna. ÞingmáJ Fyrir fundinum lágu tillögur um breytingar á starfsreglum ráðsins. Veigamesta breytingin var sú að kosinn verði dómstóll er starfi við hlið stjórnar ráðs- ins og annist afgreiðslu og dóma í öllum kærumálum er fyrir í'áðið koma. Er þetta sam- kvæmt döms- og refsiákvæðun- um nýju, en þar er gert ráð fyrir að dómsvald og fram- kvæmdavaid í sérráðum verði aðskilið. Þá var rætt um reglugerð um dómara og framkomnum tillögum vísað til nefndar. Á síðari fundinum verða einnig til umræðu mörg merk mál; t. d. mótamyrirkomulag. Enn- fremur Olympíuför knattspyrnu manna. Stjóm ráðsins var öll endur- skipuð, en í henni eru: Ó at- ur Haildórsson frá Fram, Har- aldur Guðmundsson frá KR. Sveinn Zoega frá Val, Ólafur Jónsson frá Víking og Ari Jónsson frá Þrótti. Sveinn Framhald á 7. síðu. Viðtal við Mora-Nisse \ í blaðinu á ruorgun birt- ist viðtal við hlnn heims- kunna skíðagiinguniann, Mora^Nisse — viðtal sem allir skíðamenn og aðrir íþróttanienn þurfa að lesa. ) Kúmsins vegna gat það / ekki birzt á íþróttasíðuimi ) í tlag. Skemmdarvérk Sjálfsíæðisflokksins Fjandmenn bæjarútgerðarinnar beita valdi sínu til að hindra að atvinnutæki almennings séu hagnýtt til atvinnuaukningar 400 m hlaup. 1. Hreiðar Jónsson KA 53,2 2. Hemi. Sigtryggsson KA 53,2 3. Einar Gunnlaugss. Þór 53,5 800 m hlaup. 1. Hreiðar Jónsson KA 2.00,8 2. Einar Gunnl.son Þór 2.04,2 3. Aðalgeir Jónsson KA 2.05,5 1000 m lilaup. 1. Hreiðar Jónsson KA 2.39,5 2. Aðalgeir Jónsson KA 2.52,1 3. Kristinn (Bergsson Þór 2.56,6 1500 m lilaup. 1. Hreiðar Jónsson KA 4.16,0 2. Kristinn Bergsson Þór 4.27.5 3. Gunnar Jakobsson KA 4.28,1 3000 m híaup. 1. Hreiðar Jónsson KA 9.56,2 2. Kristinn Bergsson Þór 9.59,3 3. Aðalgeir Jónsson KA 10.04,7 5000 m hlaup. 1. Kristinn Bergss. Þór 17.39,6 Míluhlatip. 1. Aðalgeir Jónsson KA 4.51,2 3000 m torfæruhlaup. 1. Hreiðar Jónsson KA 10.13,8 4x100 m boðhlaup. 1. A-sVeit KA 46,3 2. A.-sveit Þórs 47,0 4x400 m boðhlaup.- 1. A-sveit KA 2.08,3 2. B-sveit ICA 3.49,8 1000 m bothlaup. 1. A-sveit KA 2.08.5 2. A^sveit Þórs 2.10,7 200 m grindahlaup. 1. Hallgr. Tryggvas. Þór 32,4 2. Magnús Jónsson Þór 32,5 400 m griiulahlaup. 1. Skjöldur Jónsson KA 66,1 Sjálfstæðisflokkurinn barðist gegn því að Reykjavíkurbær eignaðist togara svo lengi sem hann þorði og taldi stætt á þeirri afstöðu. Það var fyrst þegar almenningsálitið knúði svo fast á í þessu efni, að ekki varð lengur undan vik- izt, að Sjálfstæðisflokkurinn lét undan og Bæjarútgerð Reykjavíkur var stofnuð. Barátta Sósíalistaflokksins og reykvískrar alþýðu yfirleitt fyrir stofnun togaraútgerðar á vegum bæjarins var byggð á þeirri forsendu öllum öðrum framar, að það væri skylda bæjarfélagsins að efla atvinnu- lífið í bænum og taka beinan og öflugan þátt í uppbyggingu þess. Þessi barátta hefur nú bor- ið þann árangur að bærinn á 8 botnvörpuskip, glæsi'.egan og myndarlegan flota, sem gæti átt mikinn og giftudrjúgan þátt í því að byggja upp at- vinnulíf bæjarbúa og tryggja afkomumöguleika hins vinnandi fólks, ef rétt væri á málum haldið og rekstri skipanna hag- að með almenningsheill fyrir augum. Á þessum vetri hefur geig- vænlegra atvinnuleysi her jað reykvísk alþýðuheimili en dæmi eru til síðan á kreppuárunum fyrir stríð. Samkvæmt. áliti fróðustu manna eru ekki faérífci en 2500 atvinnuleysingjar í Revkjavik og á heimilum þessa íolks ríkir skortur og neyð. Það eru engir peningar til fyrir bráðnauðsynlegustu lífsþörfum á heimilum hins atvinnuiausa. fjölda. Verkalýðsfélögin bentu strax í byrjun vetrar á þann sjálf- sagða möguleika, áð togaram- ir og þá ekki sízt togarar bæj- arins sjálfs, yrðu látnir hefja veiðar fyrir frystihúsin og aðr- ar fiskverkunarstöðvar í landi. Þessari kröfu var fylgt svo fast eftir, ekki sízt af Dags- brún, að þessar veiðar voru liafnar, þótt í smáum stíl væri. 2—4 af togumm bæjarins hafa stundað veiðamar frá 10. nóv. og hafa lagt á 'and sam- tals 2440 tonn af fiski. Vinnsla aflans hefur gefið í vinnulaun 1 mi’lj. og 56 þús. kr. Sölu- verð aflans til frystihúsanna hefur reynzt 1450 000 kr. en út- f’utningsverðmæti eftir vinnslu hans í fiskiðjuverunum 3 350 þús. kr. Hafa þá verið dregnir frá allir áðalkostnaðarliðir fisk- iðnaðarins, svo sem olía og umbúðir. — Verðnætisaukning nemur um 1.9 millj. kr. og verður ekki annað sagt en það sé umtalsverð og athyglisverð upnhæð. Á veiðunum hefur hins veg- ar orðið nokkur haili, sem stafar af gæftaleysi og af'a- tregðu. En þó munu veiðarn- ar hafa gefið þá raun að þegar gæftir eru sæmilegar og afli glóður, er afkoma skipanna mjög viðunandi. Við þær aðstæður í atvinnu- málum Reykvíkinga, sem nú eru fyrir hendi, er áreiðan- lega engin leið ífarsælli til þess að skapa atvinnulausu/ fólki lífsmöguleika en sú, að láta skip bæjarfélagsins leggja afla sinni hér upp til vinnslu, hvort sem er til frystingar, saltfiskverkunar eða herðing- ar. Slík ráðstöfun myndi skapa hundruðum manna atvinnu og stórauka útflutningsverðmæti aflans. Með þetta í huga hafa verka- lýðsfélögin að undanförnu hert á þeirri kröfu, að bæjartog- aramir allir liæfu veiðar til vinnslu í landi. Sósialistar hafa flutt málið hvað eftir annað í bæjarstjóm og nú síðast í út- gerðarráði, en ailt hefur strand- að á stirfni og fjandskap Sj^if- stæðisflokksins, sem bérst gegn öllum raunhæfum . aðger'ðum til úrbóta á atvinnumálum reykvískra verkamanna. Það er eins og það sé bein- Jínis orðið metnaðarmál Sjálf- stæðisflokksins aS útgerð bæj- artogaranna komi vinnandi fólki bæjarfélagsins að sem minnstu gagni. Það er eins og þessi flokkur íhaids og auð- stéttar leggi á það höfu'ð- áherz’.u „að hefna þess í héraði sem haliaðist á alþing“, með því að koma í veg fyrir að bæjarútgerðin, sem hann barí- ist á móti meðan hann þorði verði atvinnulífi Reykjavíkur sú lyftistöng, sem til var ætl- azt og allar vonir stóðu til. En þetta skemmdarstarf má Sjálfstæðisflokknum ekki heppnast. Alþýða bæjarins verður nú að krefjast þess með sívaxandi þunga að þessi þýð- ingarmik’u framleiðslutæki verði hagnýtt með það fyrir augum að skapa sem flestum mönnum atvinnu við að gera áfla þeirra a’ð sem dýrmætastri markaðsvöru, í stað þess að flytja hann óunninn út úr land- inu, meðan atvinnuleysið held- ur áfram að þrengja að sífellt fleiri reykvískum lieimiium. Það er óviðunandi með öllu að láta starblindum íhalds- meirihluta bæjarstjórnar og mönnum eins og Kjartani Thors, Sveini Ben. og Ingvari Vilhjálmssyni haldast uppi að koma í veg fyrir áð togarar bæjarins séu hagnýttir til að skapa atvinnu í landi ög stór- aukin útflutningsverðmæti. Af- staða íha'.dsins í bæjarstjóni og útgerðarráði er svo and- stæð sameiginlegum hagsmun- um bæjarbúa sem framast má verða. Það eru þröngsýn sjón- armið stóratyinnurekandans er hér ráða stefnunni, en ekki velferð og lífsaíkomumöguleik- ar fjö’dans, eins og vera ætti. Þessum hérrum stendur ná- kvæmlega á sama þótt atvinnu- leysingjarnir, konur þeirra og börn, svelti, aðeins ef þeir geta þjónað stéttareðli sínu. Það er enginu skortur á heimili borgarstjórans í Reykja.vík með sínar 125—150 þúsundir í árs- laun frá bæ og riki. Og allir munu iiðsmenn hans í bæjar- stjóm, fólkið sem iátið er hundsa kröfur atvinnuleysingj- anna með einni handaupprétt- ingu á bæjarstjórnarfundum, vél ha'dnir í launum og lífskjör- um öllum. Stórútgerðarmenn í- haldsins í útgerðarráði skera heldur ekki launin til sjálfra Framhald á 7. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.