Þjóðviljinn - 09.05.1952, Blaðsíða 1
Föstudagur 9. maí 1952 — 17. árgangur — 102. tölublað
Kína býður Ind-
landi hrísgrjón
Kínastjórn hefur boðið Ind-
landsstjórn til kaups 100.000
tonn af hrísgrjónum. Jafnframt
fer Kínastjórn þess á leit að
fá að fiytja matvæli og annan
varnig til Tíbet yfir Indland.
Lífskjor í Sovétríkjunum
befrl en víða í Vívrópu
segir brezka borgarablaðið TEMES
í langri grein í brezka blaðinu Himes frá efna-
hagsráöstefnunni í Moskva í síðasta mánuði segir frétta-
ritari þess, að lífskjör manna í Sovétríkjunum hafi batn-
að ótrúlega ört hin síðari ár.
Times, sem er mikilvirtasta
borgarablað í heimi, farast orð
á þessa leið:
„Frá stríðslok’um þangað
til nú hafa lífskjörin í Sovét
ríkjunum batnað svo ört að
erfitt er að gera sér grein
fyrir því og í dag eru þau
orðir betri en í ýmsum lönd-
om Vestur-Evrópu“.
Um efnahagsráðstefnuna
segir blaðið, að hún hefði verið
m.erkisviðburður hvar sem er
en það hafi aukið þýðingu
hennar að hún var haldin í
Sovétríkjunum. Ræðumenn hafi
forðast allar ádeilur en lagt
megináherzlu á að benda á
leiðir til aukinna viðskipta.
Fréttaritari Times kemst svo
að orði um Kína að landið hafi
„aukna þörf fyrir innflutning
vegna stóraukins kaupmáttar
á heimamarkaðinum, sem leið-
ir af því að kyrrð er komin á
í landinu“.
Hvað Sovétríkjunum viðkem-
ur er niðurstaða hans að þau
séu „að líkindum komin á það
stig að framleiðslugeta þunga-
iðnaðarins er orðin meiri en
þarfir heimamarkaðarins krefj-
ast og lífskjörin hafa batnað
það mikið að innflutningur
varnings verður æ fýsilegri".
Fréttaritari Times bendir á
að brezku fulltrúunum, sem
margir voru kaupsýslumenn úr
Ihaldsflokknum, var boðið að
ferðast um Sovétríkin, einum
sér eða fleiri saman eftir því
sem þeir vildu. I Moskva fengu
þeir „fyllsta frelsi til að seðja
forvitni sína“.
Van Flfeet hershöfðingi.
Kvartar yfir
grjóthernaði!
Van Fleet, yfirhershöfðingi
bandaríska. landhersins í Kóreu,
kvartaði yfir því í gær að
norðanmenn væru teknir að
beita skæðu leynivopni í næt-
urárásum sínum á víglínu
'Bandaríkjamanna. Sagði hann
þá skjóta stórum steinum úr
slöngum niður í skotgrafir
manna sinna.
Dóra Sigorðsson
skipuð prófessor
Bóra Sigurðsson, kona Har-
aldar Sigurðssonar, hefur verið
lega tónlistarháskólann í Kaup ihandsamaður af fönarim
mannahöfn. Blaðið Berlingske
Tidende skýrir frá þessu 28. f.
m. og segir að hún sé fyrsta
konán, sem þar skipar prófess-
orsstöðu. Frúin er prófessor i
söng og eins og kunnugt er
er maður hennar prófessor í
píanóleik við Tóniistarháskól-
ann. Berlingske Tidende segir
að þa'u séu vafalaust fyrstu
hjónin í Danmörku, sem bæði
eru prófessorar.
Bandarískur hershöfðin^i
Fangar á ey við Kóreu halda íangabúðastjóranum
í gislingu
Kóreskir og kínverskir fangar í bandarískum stríðs-
íangabúðum hafa bandarískan hershöfðingja í haldi.
Fangabúðastjórinn í strí'ðs-
fangabúðum Bandaríkjamanna
á eynni Koje undan suðurodda
Kóreu, hershöfðingi að nafni
Krefjast Kýpur af Brefum
Öspektir í Aþenu er erkibiskup býður ríkisstjórn
Grikklands byrginn og ávarpar bannaðan íund
Óspektir urðu í Aþenu í gær er lögregian reyndi að
dreifa mannsöfnuði á útifundi.
Fundurinn var haldinn til að
árétta kröfu Grikkja um að
Bretar láti af hendi eyna Kýp-
ur i Miðjarðarhafi. — 'Eyjar-
skeggjar eru flestir grískumæl-
andi og vilja sameinast Grikk-
landi en eyjan er ein mikil-
vægasta her-, flug- og flotastöð
Breta á þessum slóðum og
mega þeir því ekki heyra nefnt
að láta að óskum íbúanna.
KveSja frá sendi-
nefndimii
ÞJÓÐVILJANUM barst í
gær eftirfafeandi skeyti frá
verkalýðssendinefnd MlR:
Förnm í dag til Kænugarðs
(Kieff). Góð líðan allra.
Kveðjur. — Þorvaídur.
Gríska stjórnin hefur verið
deig að bera fram við Breta
kröfu almennings um samein-
ingu Kýpur og Grikklands. —
Hinsvegar hefur Spyridon erki-
biskup í Aþenu tekið foryst-
una í baráttunni fyrir samein-
ingu.
Erkibiskup ávarpaði fundinn
i gær og hafði að engu bann
ríkisstjórnarinnar við fundar-
haldinu. Sama máli gegndi um
almenning í Aþenu, opinberir
starísmenn lögðu niður vinnu
og kaupmenn lokuðu búðum
sinum til að sækja fundinn.
Áður en lögregian réðist a
fundarmenn hafði Spyridon
erkibiskup borið upp og fengið
samþykkta áskorun á ríkis-
stjórnina að taka kröfuna á
hendur Bretum um Kýpur upp
á alþjóðavettvangi. Allmargir
óbreyttir borgarar og lögreglu-
þjónar særðust í átökunum.
Dodd, var í fyrradag staddur
í fangabúðunum ásamt öðrum
bandarískum liðsforingja. Allt
í einu gerðu fangarnir aðsúg
að þeim og handsömuðu þá.
— Undirforingjanum tókst að
sleppa en fangarnir fóru með
Dodd hershöfðingja til vistar-
vera sinna og er hann nú fangi
fanga sinna!
Fréttamenn gátu lítið haft
upp úr talsmönnum bandarísku
herstjórnarinnar um þennan at-
burð, en þó það að fangarnir
hafa sett fram einhverjar kröf-
ur og halda Dodd hershöfð-
ingja i gislingu, hóta að líf-
láta hann ef kröfunum er ekki
fullnægt en lofa að láta hann
lausan ef að þeim er gengið.
I fangabúðunum á Koje kom
til blóðsúthellinga í febrúar og
marz í vetur. 1 bæði skiptin
skutu Verðirnir á fangana og
drápu og særðu tugi þeirra.
100.000 flokks-
menn á 3 lán.
Kommúnistaflokkur ítal.’u
hefur tilkynnt, að fyrstu þrjá
mánuði þessa árs hafi 100.000
menn gengið í flokkinn. Tala
flokksmanna er nú 2.200.000 og
auk þess eru 400.000 unglingar
í Æskulýðssambandi kommún-
ista á ítalíu.
tjrslitakostuiii USA hafnað
en viðræðiir lialda álrain
Nam II, formaöur samninganefndar norðanmanna um
vopnahlé í Kóreu, sagði í gær að þeir létu sér hvergi
bregða við úrslitakosti Bandaríkjamanna.
Nam II sagði, að með því að
neita að skila stríðsföngum
væru Bandarikjamenn af ráðn-
um hug að tefja vopnahlé í
Kóreu. Um árangur gæti ekki
örðið að ræða fyrr en þeir
hættu hótunum féllu frá úr-
slitakostum sínum. Fundurinn
í Panmunjom í gær stóð í átján
mínútur og var ákveðið að
halda annan fund í dag.
Þúsundir lítra af napalni.
Bandaríska herstjórnin til-
kynnti í gærkvöld, að frá birt-
ingu til sólseturs hefðu flug-
vélar hennar haldið uppi lát-
lausri árás á birgðastöð norð-
anmanna, 50 km suður af
Puongyang, höfuðborg Norður-
Kóreu. Þar hefði verið ■ varpað
niður þúsundum lítra af na-
palm, benzínhlaupinu, sem
brennir allt á mörghundruð
fermetra svæði.
Ridgway, yfirhershöfðingi
Bandaríkjamanna í Kóreu, og
Clark hershöfðingi, sem á að
taka við af honum, komu í gær
frá Tokyo til Munsan, aðseturs-
staðar bandarísku samninga-
nefndarinnar. Sátu þeir þar á
fundi með Joy aðmírál, for-
manni nefndarinnar, í hálfan
þriðja klukkutíma. Að fundin-
um loknum vörðust þeir allra
frétta af hvað þeim fór á milli.
Benzinskorfur
i Breflandi
Brezka flugmálaráðuneytið
hefur fyrirskipáð að benzínsala
til farþegaflugs skuli minnkuð
um þriðjung frá því sem hún
hefur verið. Stafar þessi ráð-
stöfun af verkfalli olíuiðnaðar-
manna í Bandaríkjunum, þar
sem gripið hefur verið til sama
ráðs vegna benzínskorts.
Bjarni Benediktsson var þó
dómari í Hœstarétti
I hinum rökfasta málflutningi sínum fyrir kröfunni um
ómerkingu undirréttardómanna út af atburðunum 30. marz
sökum rangrar málsmeðferðar vitnaði Ragnar Jónsson hrl.
í Hæstaréttardóm frá 1938. (Ræða Ragnars var birt í
Þjóðviljanum 3. maí s.l.).
1938 voru 19 lyfsalar víðsvegar um landið sóttir til saka
og kærðir sameiginiega, þótt mál þeirra væru" óskyld.
Þegar málaflækja þessi kom fyrir Hæstarétt viku allir
hinir reglulegu dómarar úr réttinum, en í dómarastólana
settust þessir menn: Björn Þórðarson dr. jur., Bjarni
Benediktsson þáv. próf. og Isleifur Árnason þáv. próf.
Dómur þeirra allra var samhljóða, en í forsendum hans
segir svo m. a.:
„Þá er það einnig ljóst, að hin ástæðnlausa málasteypa
hefur mjög haft áhrif á gang og hraða rannsóknar máls-
ins og meðferðar þess yfirlcitt . . . Yfirlit þetta sýnir, að
á rannsókn og allri meðferð málsins hefur orðið óhæfileg-
ur drátt'ur. Málið gegn hverjum einstökum hinna ákærðu
lyfsala mátti ljúka á skömmimi tíma eftir að rannsókn
gegn honum var hafin. Með því að steypa öllum þessum
óskyldu málum í eitt, og draga auk þess inn í málið menn,
sem dómarinn hafði ekki dómsvald yfir, seinkaði ekki ein-
ungis stórlega málum þeirra, sem fyrst var hafin rannsókn
gegn, heldur einnig hinna, því að vegna umfangs síns varð
málið mjög seinmeðfarið. Verður því að telja, að með
þessari málsmeðferð hafi mjög verið brotið gegn« þeim
rétti hinna ákærðu, að veita þeim greiða úrlausn mála
þeirra.“ >■
Þáverandi prófessor í lögum við Háskóla íslands, Bjarni
Benediktsson, átti þess vegna hlut að ómerkingardómi
Hæstaréttar 1938, sem grundvallaðist á rangri meðferð
máls í héraði og málasamsteypu, og var sá dómur kveðinn
upp í anda þeirrar meginreglu, að réttarfarsreglum má
ekki beita í refsimálum þannig að til tjóns sé eða stór-
fellds óhagræðis fyrir hina sakbornu.
Núverandi dómsmálaráðherra, með öðrum
orðum, ákæruvaldið sjálft, Bjarni Benedikts-
son, stendur hins vegar á árinu 1952 fyrir
rangri málasamsteypu og öllum þeim réttar-
spjöllum, sem af hertni Ieiða fyrir 24 sakborna
menn!