Þjóðviljinn - 05.06.1952, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 05.06.1952, Blaðsíða 8
Sigifiriiiigar krefp vaidkafana um vinnu Siglufirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Atvinnuleysið hefur enn ekki minnkað á Siglufirði, heldur þvert á móti aukizt. Engin vinna er í bænum nema við að vaska fisk af togurunum, en auk þeirra sem hafa verið atvinnulausir fyrir bætist nú allt skóla- fólk og allur sá fjöldli er var á vertíð sunnanlands og er nú kominn eða að koma heim. LoftHutningasamningar Nýlegá undirrituðu Bjarni Benediktsson utanríkisráðherra og Leif Öhrváll sendifulltrúi loftflutningasamning milli fs- lands og Svíþjóðar. (Frá utanríkisráðuneytinu). Bæði bæjarstjómin og stjórn Þróttar hafa skorað á stjórn Síldarveirksmiðja ríkisins að taka nú þegar nokkra tugi manna í vinnu við undirbúning síldarvertíðarinnar í sumar. Undanfarið hefur verið hið versta veður og eru enn skafl- ar í bænum á bak við hús. Hríðarveður var á annan í hvítasunnu. Enginn gróður er enn kominn' á láglendi og á búi bæjarins á Hóli mun ekki verða hægt að beita gripun- um íyrri en eftir mánuð. Farfuglar gróðursettu 1800 plöntur í Þórsmörk Ilm hvítasunnuna fóru 23 „Farfuglar“ austur í Þórsmörk og gróðui'settu þar 1800 plönt- ur, en Farfuglar hafa fengið Sleppugilið í Þórsmörk til um- ráða og skógræktar. Farfuglarnir fóru af stað austur á laugardag kl. 3 og gekk ferðin austur greiðlega, því lítið var í ánum. Snjókoma var um nóttina og frosið á pollum, en skógurinn farinn að laufgast og orðinn ótrúlega fal- iegur, að því er einn „Far- íughnn" er Þjóðviljinn hitti skýrði frá. Fyrirlestur um svartlisf Prófessor H. A. Miiller frá Columbia háskólanum í New York flytur fyrirlestur í I. kennslustofu háskólans næst- komandi föstudag, 6. þm. ki. 8.30 e.h. um Svartlist. — Mun hann veita yfirlit um þróun hinna ýmsu greina svartlistar og sýna myndir til skýringar. — Öllum er heimill aðgangur. 2 nýjar slysavarnadeildir Tvær slysavarnadeildir hafa verið stofnaðar. Önnur í Mý- vatnssveit og heitir Stefán. Stofnendur 204; formaður Pét- ur Jónsson Reynihlíð. Hin er í Svarfaðardal og heitir Svarf- dælingur. Formaður Gestur Vilhjálmsson. ..Svaríiskóli” brennur Húsið „Svartiskóli“ í Grundarfirði brann til kaldra kola að- faranótt s.l. þriðjudags og ásamt því verzlunarhús er var á- fast við Svartaskóla. Tjónið er a. m. k. metið á annað hundrað þúsund krónur. „Svartiskóli“ var tveggja hæða timburhús og var þar geymsla þriggja báta og beit- ingarpláss, ennfremur var geymt þar nokkuð af fiski. Var húsið um 200 fermetrar. — ,,Svartiskóli“ var áður verbúð, búið og eldað á loftinu. Hrað- frystihús Grundarfjarðar átti húsi'ð. Ennfremur brann verzlunar- hús Sveinbjörns Hjartarsonar, er var áfast við „Svartaskóla", var það einnar hæðar timbur- hús, 50 ferm. Var einhvevju af vörum bjargað. Ekkert slökkvitæki or til í hreppnum, enda var e'durinn orðinn svo magnaður þegar hans varð vart um kl. 1,30 um nóttina að við ekkert varð ráðið. Eldsupptök eru ókunn. Þing U.Í.A Reyðarfirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans. Ellefta þingi Ungmenna- og íþróttasambands Austurlands er nýlokið hér og stóð það í tvo daga. Þingið sátu 23 full- trúar auk sambandsstjórnar. Aðalumræðuefni var lands- mótið, sem haldið verður að Eiðum Formaður sambandsins var kosinn Skúli Þorsteinsson og varaformaður Gunnar Ólafs- son. Að loknu þinginu sátu fulltrúar kaffiboð ungmennafé- lagsins Vals. Fimmtudagur 5. júní 1952 — 17. árgangur — 122. tölublað Fimtáiidi s)ómaitiiadagiirmit Sjómannadagurinn verður hátíðlegur haldinn í 15. sinn á sunnudaginn kem'ur. Þó verður ekki um hátíðahöld sjómanna að ræða hér í bæ þann dag því útlit er fyrir að engin skip verði í höfn — sjómenn alllir á hafi úti!! Kvennadeild Slysavarnafélagsins hefur þvr hlaupið undir bagga og verður kappróður dagsins háður af konum. Enn- fremur hafa konurnar skorað á sjómannadagsráð að keppa við sig í reiptogi, og þótt ráð þetta sé skipað þéttvöxnum mönnum er það þegar farið að kvíða fyrir úrslitunum! Sjómannadagsráð hefur nú um 3 millj. kr. til umráða og verður byrjað á byggingu dvalarheimilis aldraðra sjómanna í sumar og ráðgert að það verði fokhelt haustið 1953. Það verður reist norðan í Laugarásnum og á að rúma 160 vistmenn og starfsfólk. Á laugardaginn hefst kapp- róður kvenna við Faxagarð kl. 3 e.h. Á sjómannadaginn kl. 1 e.h. verður safnazt saman við Miðbæjarskólann og lagt af stað nokkru síðar í göngu með Lúðrasveit Reykjavíkur í broddi fylkingar og gengið um Vonárstræti, Suðurgötu, Tún- götu, Ægisgötu, Tryggvagötu, Geirsgötu og Pósthússtræti á Austurvöll. Við Austurvöll syngur Ævar Kvaran Bára blá. Bisltupinn yfir Islandi minnist látinna sjó- manna, en samtímis verður lagður blómsveigur á leiði ó- þekkta sjómannsins í Foss- vogskirkjugarði. Þá hefjast á- vörp, síðan verða verðlauna- Hvalfell fiskaði ágætlega á Halamiðum Mokafli við Grænland — LítiSl við Bjarnarey Hvalfell kom af veiöum fyrir Vesturlandi í gær meö á þriðja hundrað tonn af saltfiski og 30 tonn af nýjum fiski er fór í íshúsin, og er þetta óvenjugóð veigii. Egill Skallagrímsson kom nýlega af veiðum á svipuð- um slóðum með á 4. hundrað tonn af ísfiski. Hvalfellið fékk afla sinn á Plalanum og Hornbankanum. Kvað skipstjórinn, (“'næbjörn Ólafsson, meiri h'uta af’ans hafa verið stóran þorsk. Var góð gangn þarna á tímabili. en svo kon éit'h-'ert millibils'á- stand. cn Sn?'bjö"u lcaðst von- ast-til að ve'ð n glæddist þarna aftur og kvaðst búa sig í lang- an túr á sömu slófiir. Snæbjörn kvað hafa verið Hressingarheimili Nátturulækninga- félagsins hefnr starfsemi 21. þ. m. að Varmalanái, Borgarfirðí Hressingarheimili Náttúrulækningafélags íslands tekur til starfa laugardaginn 21. júní næstk. í hinum glæsilegu húsa- kynnum húsmæðraskólans að Varmalandi í Stafholtstungum í Borgarfirði. Dvalarkostnaður verður að- eins 50 krónur á dag, og í því er innifalinn aðgangur að sundlauginni á staðnum. En Tjón af óveðri 27,. maí kom ofsarok af norðri í Lóni, á Mýrum og í Suöursveit. 1 sandgörðunum í þessum sveitum fauk ofan af kartöfl- um er lokið hafði verið við að setja. Síðan hefur verið næt- urfrost og óttast menn mikið tjón. I Suðursveit fauk hlaða, fjár- hús og bílskúr á Hala og fjár- húg skemmdust á Breiðaból- stað og Gerði. rúmfatnað verða gestir að leggja sér til sjálfir. Gigtar- sjúklingar og aðrir, er þarfn- ast eða óska þess sérstaklega, munu geta fengið svitaböð, og þarna er aðstaða til só’biða og útivistar hin ákjósar.Ieg- asta. Beinar ferðir verða að Varmalandi frá Reykjavík með áætlunarferðum, sem fara dag- lega að Hreðavatni eins og undanfarin sumur. Hressingarheimilið verður undir yfirumsjón Jónasar lækn- is Kristjánssonar. — Hægt verður að taka á móti 35 dval- argestum í einu, og er útlit fyrir mikla aðsókn. Að þvi stuðla m.a. hin lágu daggjöld, sem eru hin sömu og sl. sum- ar og voru þá miklu lægri en á öðrum smnardvalarstöðuin. töluvert af skipum á þessum slóðum, einkum Þjóðverjum á Halanum og Bretum á Horn- bankanum. Glæðist veiðin þarna batnar útlitið mjög, því ferðirnar fram og til baka taka ekki nema hálfan annan sólarhring en 5 daga hvora leið til Græn- lands og álíka tíma til Bjarnar- eyjar, Mohafli á Grænlandsmiðum Enn er sami mokaflinn á Grænlandsmiðum og eru nokkr- ir íslenzku togaranna þar, en fiskurinn er verri en veiðist hér við land. Við Bjamarey NÝ BÓK: Iwá gleðinsiar I dag kemnr út ný bók eftir Áskeí Snorrason er hann nefn- ir: I landi gleðinnar, en Áskell var einn í menntamannasendi- nefndinni er fór til Sovétríkj- anna á s.l. liausti. 1 bók þessari segir Áskell frá ferð sinni í Sovétríkjunum, en nefndin var m. a. í Lenin- garði, Gorkí og Moskvu. Segir hann þar frá menningarstofn- eru enn nokkrir íslenzkir tog- arar, fiskur er þar smár og afli fremur lítilL Þannig mun Jón forseti senn hafa verið um 2 mánuði að fylla sig þar. Tveir bæjartogaranna eru á heiniamiðum, tveir eru komnir á Grænlandsmið, en hinir hafa verið við Bjarnarey. Helga fann enga síld Báturinn Helga hefur verið að síldarleit undanfamar ]>rjár vikur suður og vestur af land- inu og er nú komin aftur — án árangurs. Reyndar voru 3 flotvörpur af mismunandi gerð og taldar reynast vel þótt engin fengist síldin. Veiðitilraununum með flotvörpur hefur nú verið hætt í bili. Undir vertíðarlok töldu sjó- menn mikia síld fyrir sunnan land og heyrzt hcfur frá sjó- inönnum á lúðuveiðuni vestur af Snæfellsnesi að þeir hafi orðið þar varir við mikla síld. afhendingar. — Kl. 5 veröur knattspyrnukappleikur og reip- tog á íþróttavellinum. — Um kvöldið verður hóf að Hótel Borg og skemmtun í Sjálf- stæðishúsinu, ennfremur verða dansleikir í Ingólfscafé, Þórs- kaffi, Breiðfirðingabúð, Tjarn- arcafé, Iðnó og Vetrargarðin- um, en á laugardaginn verður dansa'ð í Breiðfirðingabúð. Kvöldvaka í Austurbæjarbíói Sú nýjung er nú upp tekin að hafa kvöldvöku á mánudag- inn í Austurbæjarbíói og verð- ur þar margt til skemmtunar. Fulltrúaráð sjómannadagsins er nú 15 ára og hefur Henry Hálfdansson verið formaður þess frá upphafi. — Nánar verður skýrt frá dagskrá há- tíðahaldanna síðar. Síðasta tækifærið Vert er að vekja athygli á því að nu er síðasta tæki- færið til að kaupa miða í happdrætti dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Sölu miða lýkur á sjómannadag- inn og verður þá dregið. VesíMveldín í vanda Framhald af 1. síðu. ið að láta Alexander land- varnaráðherra og Selwyn Lloyd aðstoðarutanríkisráðh. kyr.na sér hernaðar- og stjórnmála- ástandið í Kóreu og taka af- stö'ðu sína til endurskoðunar í ljósi skýrsiu frá þeim. 0RVALSLIÐIÐ Urvalsliðið sem keppir við Brentford í kvöld skipa þessir menn: Helgi Daníelsson, markvörð- ur; Karl Guðmundsson, Fram.; Haukur Bjarnason, Fram; Gunnlaugur Lárusson, Víking; Einar Halldórsson, Val; Stein- ar Þorsteinsson, KR; Ólsfur Hannesson, KR; Gunnar Gunn- arsson, Val; Bjarni Guðnason, Víking; Gunnar Guðmannsson og Reynir Þórhallsson. Þing Sambands ísl. barnakennara Björn Sigfússon háskólabókavörðnr flytnr þar erindi nm stafsetningu íslenzkrar tungu Fulltrúaþing Sambands íslenzkra barnakennara hefst hér í bænum í dag og verður sett í Melaskólanum kl. 8,30 í kvöld. Er þetta fulltrúaþing, sem haldið er annað hvort ár, um leið og aðalfundur sambandsins. unum, leikhúsum og mörgum frægum tónlistarmönnum er hann kynntist. Þá segir hann ennfremur frá ýmsum fram- kvæmdum Sovétþjóðanna í frið- ar- og menningarmálum. Bókin er mjög ódýr, aðeins 25 kr. og verður hún seld á MtR-fundinum í Stjörnubíói Aðaldagskrármál þingsins að þessu sinni eru þessi: Kennslubækur og kennslu- gögn. Fijameögumaður um málið er Guðjón Guðjónsson skólastjóri í Hafnarfirði. Próf og framkvæmd þeirra. Fram- söguræðu flytur Jónas B. Jóns- son fræðslufulltrúi Reykjavík- Dr. Björn Sigfússon háskóla- bókavöröur flytur erindi fyrir þingfulltrúa og aðra, er áhuga kynnu að hafa fyrir efninu, um stafsetningu íslenzkrar tungu. Hafa forráðamenn sam- bandsins befiið blaðið að vekja athygli á því að dr. Björn flytur erindi sitt kl. 2 e.h. á anuað kvöld. urbæjar. morgun (föstudag).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.