Þjóðviljinn - 26.07.1952, Blaðsíða 6
6)
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 26. júlí 1952
. O ' >
*' i
Streber fer á stúfana
Framhald af 5. síöu.
hinn fyrirskipaða forseta sinn.
Að lokum sáu hinir hrelldu
sjálfstæðisrnenn sýslunnar að
við svo búið mátti ekki lengur
standa, hóuðu sér saman á Flat-
eyri á iþriðjudaginn og gérðu
ályktun, hverrar megininntak
var var það að Þorvaldur nok'k-
ur Garðar Kristjánsson gæfi
kost á sér til þingmennsku fyrir
þetta yfirgefna kjördæmi á
vesturkjíilkanum,- Bráat .Þor-
valdur þessi hið ibezta við ósk-
um hinna vestlenzku nauðleit-
armanna, ,,og er framboð hans
þar með ráðið“, segir Mbl. í
fyrradag.
Valdi þessi hefur allt frá
fermingaraldri verið opinber
krati, sat hér á árunum fyrir
þá í stúdentaráði, sótti nú ný-
lega alþjóðlegt þing fyrir þá,
er enn í dag varamaður þeirra. í
útgerðarráði Reykjavikur, hef-
ur s'krifað nokkuð í AB— þó
það sé auðvitað fyrir bí úr því
það er hætt að koma út — og
tekið talsverðan þátt í félags-
starfi AB-flokksins hér í þæ,
svo sem á spilakvöldum hjá 11.
hverfinu o. s. frv. En hann hef-
ur ekki aðeins verið opinber
krati, heldur er hann einnig og
eigi síður týpískur krati. Hann
þurfti að komast áfram í þjóð-
lífinu, hvað sem það kostaði, og
þá hlaut svo að fara að hann
gæti ekki til eilífðar bundið
trúss sitt við minnsta flokk
þjóðarinnar. Þvi varð hinum
nýkjörna forseta íslands auð-
velt verk að útvega Sjálfstæðis-
flokknum þennan frambjóðanda,
enda bættist hér við sú mikla
nauðsyn að útvega kjördæmi
Jóns Sigurðssonar nýjan þing-
mann. Það hefðj verið hin mesta
ódyggð að láta . flokksbönd
hindfa-sig i að gerast fulltrúi
íólksins, vinna þjóðirini gagn
á þeim víðasta vettvangi. Föð-
urlandinu liérumbil ajlt -r- og
þá liggur auðvdtað beinast við
að maður sjálfur fái afganginn.
BáNDARlSK HARMSAGA theodore dreíser
Bælaffréttir
Framhald af 4. síðu.
franibjóðandi Iians. Sag-t er að
hinn nýkjömi forseti liafi orðiii
fár við ok svarað með annarri
spurningu: „Hefur I»orv. Garðar
Kristjánsson nokkurntíma verið
All»ýðufiokksmaður?“! Það fylgir
ekki sögunni hvernig Gylfa Iiafi
orðið við svar Ásgelrs en ekki er
ótrúlegt að hiyin hafi minnt for-
setann á að pessi skjólstæðingur
hans liafi setið í stúdentaráði fyr-
ir AB-stúdenta, verið nýlega full-
trúi AB-fiokksins á alþjóðaþingi
sösíaldemókrata og sé enn vara-
fulltrúi hans I útgerðarráði R.-vík-
urbæjar.
MESSLR A MORGUN:
CiilVi’B Dómkirltjan.
Messa kl. 1.30 f.
h. Prestvígsla.
Biskup landsins
- vígir 5 guðfræði-
kandidata. — Séra
Óskar J. Þorláksson. — Hallgríms
kirkja. Messa kl. 2 e.h. R.æðuefni:
Skálholt. — *>éra Jakob Jónsson.
(Ath. breyt'tan messutíma). —
Rafmagnstakmörkunin í dag
KI. 9—11:
Austurbærinn íog miðbærinn mi’li
Snorrabrautar og Aðalstrætis,
Tjarnargötu, Bjarkargötu að vcst-
an og Hringbraut að sunnan.
Kl. 10:45—12:15:
Vesturbærinn frá Aðalstræti,
Tjarnargötu og Bjarkargötu. Mel-
arnir, Grímsstaðaholtið með flug-
vallarsvæðinu, Vesturhöfnín rpeð
Örfirisey, Kap’askjól og Seltjarn-
arnes fram eftir.
Hafnarfjörður og nágrenni. —
Roykjanes.
Eþ f)ér kaúpijl erlejuijar iðnaðar-
vöruiy sem hæjgjt ey .að. fram-
leiða innanlánds á hngkv:emaji
hátt, er það safúa og' aið' fij’tfa’
Inn erlent verkafólk, og stuðla
að minnknndi atvinnu i landinu.
218. DAGUR
„Síðan á föstudaginn held ég. Ég sá hann að minnsta (kosti á
föstudagsmorguninn. Er> hann kemur bráðum sjálfur og þá
getið þér spurt hann,“ sagði Baggott, en honum fannst hcrra
Mason óþarflega forvitinn og sá auk þess að hann var ekki úr
sömu stétt og hann og Clyde.
Um leið kom Frank Harriet í áttina til þeirra með tennis-
spaða undir handieggnum.
,,Hvert ertu að fara, Franki?“
„Ég ætla að reyna völlinn sem Harrison bjó til í morgun.“
„Með hverjum ?“
„Violet, Nadínu og Stuart.“
„Komast fleiri fyrir?“
„Já, já, vellirnir eru tveir. Geturðu ekki náð í Bertu, Clyde
cg Sondru?“
„Það getur vel verið, þegar ég er búinn að ganga frá þessu.“
Masan hafði lagt við hlustimar: Clyde og Sondra. Clyde
Criffiths og Sondra Finehley — unga stúlkan, sem skrifað hafði
bréfin og kortin, sem hann var með í vasanum þessa stund-
ina. Og ef til vill liitti hann hana bráðum ásamt Clyde — og
gæti spurt hana um Clyde.
En nú komu Sondra, Bertina og Wynetta út úr tjöldum sín-
um. Bertína kallaði: „Heyrðu, Harley, hefurðu nokkurs stað-
or séð Nadínu?“
„Nei, en Frank var héma rétt áðan. Hann sagðist ætla upp
á völl að leika tennis við hana, Voilet og Stuart.“
„Jæja? Komdu þá Sondra. Og þú líka Wynetta. Við skuliun
sjá, hvemig þeim gengur.“
Um leið og Bertína nefndi nafn Sondru tók hún um hand-
iegg hennar, svo að Mason fékk þær upplýsingar, sem hann
óskaði eftir — að sjá og virða. fyrir sér stúlkuna, sem hafði
þokað Róbertu iburt úr hjarta Ciydes á þennan raunalega hátt,
án þess að hafa hugmynd um það. Og nú sá hann hana með
eigin augum að hún var fegurri, glæsilegri og betur búin en
hin stúlkan hefði nokkru sinni getað orðið. Og hún var lifandi,
cn hin lá látin á líkbörunum í Bridgeburg.
Meðan hann horfði á þær, gengu þær burt og leiddust allar
þrjár,-og Sondra kallaði til Harleys: „Ef þú sérð Clyde, viltu
þá segja honum að koma til okkar.“ Og hann svaraði: „Held-
urðu að' ég þurfi' að ségjá skugganum þínum það?“
Snortinn af jiessum litskrúðuga harmleik ihorfði Mason með
ákafa í kringum sig. Nú lá í augum uppi, hvers vegna hann
vildi losna við stúlkuna — þama var hinnar sönnu orsakar að
ieita. Þessi fagra stúlka og uuðlegðin og munaðurinn í kringum
liana. Að hugsa sér að ungur maður með allt lífið framundan
skyldi ieggjast svona lágt! Það var ótrúlegt. Og aðeins fjórum:
úögum eftir morð vesalings stúlkunnar var hann kominn á
hnotskóg eftir hinni stúlkunni í von uxn að kvænast henni eins
og Róberta hafði ger't sér vonir um að giftast honum. Manii-
vonzkan kom fram á hinn ótrúlegasta hátt.
Þegar Clyde lét ekki sjá sig, var Mas-on að þvi komkin að
segja til sín og taka eignir Clydes í sina vörzlu, en um leið
birtist Ed Swenk og gaf lionujn bendingu urii að kóma. Ojf
begar þeir voru komnir í hlé bakvið trén benti 'Íiann. á niann,
sem var enginn annar en Nikulás Kraut og grannan, vel búinn
mann, sem var svo fölur og tekinn í andiiti, að hann þóttist
strax viss um að þama væri Clyde. Og hann flýtti sír í áttina
lil hans, nam aðeins staðar til að spyrja Swenk hvar honum
iiefði verið náð og hver hefði náð honum — *íðan beindi hann
í.ivarlegum rannsóknaraugum á Clyde eins og verði laganna
sæmdi.
„Svo að þér emð Clyde Griffiths?"
„Já.“
,,Jæja, herra Griffiths. Ég heiti Orvilie Mason. Ég er sak-
sóknarinn i héraði því sem Big Bittern og Grænavatn tilheyra.
Ég býst við að þér séuð nákunnugur þessum tveim stöðum.“
Ilann þagnaði til þess að sjá betur áhrif orða sinna. Og þótt
bann bj’ggist við að Clyde færi- að titra og slcjálfa, starði hann
eðeins á hann stórum dökkum, þunglyndislegum augum. „Nei,
bað er ég alls ekki.“
Því að með hverju skrcfi sem hann1 gekk gegnum skóginn
l’afði liann orðið einbeittari i þeirri ákvörðun sinni, að livaða
sannanir sem þeir liefðu gegn honum, ætlaði hann ekki að láta
neitt uppi um samband sitt við Róbertu, ferð sína til Big
Bittern eða Grasavatns Harin þorði það ekki. Því að með því
játaði hann sig sekan um vcrknað, sem liann hefði í rauninni
alls ekki framið. Og enginn mátti trúa því — aldrei — hvorki
Sondra, Griffithsfólkið eða hinir tignu kunningjar hans — að
liann hefði gert sig sekan um annað eins og þetta, ekki einu
jsinni í huganuni. Eri ngjvoru þeir þama á næstu grösum, og á
hverri stundu gátu þeir komið og fengið að vita allt um lrnnd-
töku hans. Og þótt honum væri ljóst, að hann yrði að neita
öilu, þá var hann um leið lamaður af ótta við þennan mann
— ótta við gremju þá og andúð sem neitanir hans kynnu að
vekja. Þetta brotna nef. Þessi stóru hörkuiegu augu.
Mason starði á hann eins og hann væri óþekkt óargadýr,
gramur yfir þrjózku lians en áleit þó vegna aumingjalegs útlits
hans að hann hlyti bráðlega að játa sekt sína. Hami hélt
ofram:
„Þér vitið auðvitað livað þér eruð sakaour um, herra Griff-
lths?“
„Já, þessi maður er nýbúinn að segja mér það.“
„Og játið þér það?“
„Nei, auðvitað játa ég það ekki,“ svaraði Ciyde; þunnar,
—oOo— —oOo— —oOo— —oOo— —oQo— -—oOo— —oOo-»
BARNASAGAN
Ábú Hassan hinn skrýtni eSa
sofandi vakinn
9. DAGUR
varð Abú Hassan litið á sængurábreiðuna og sá
hann, að hún var hárauð og staíað í gulli og alsett
perlum og demöntum. Hjá rúminu sá hann að
lágu íöt úr samkyns veínaði og jaín glitmikil, en
kalífahúfan lá á sessu.
Varð hann óumræðilega glaður og eins og utan
við sig, er hann sá alla þessa dýrð. Hélt hann
enn sem komið var, að þetta væri ekki nema
draumur, en þó íannst honum allt svo verulegt,
að hann óskaði þess, að það væri enginn hugar-
burður. ,,Mikið gaman!" segir hann við sjáifan
sig, „skyldi ég þá vera kalífi? En mér er bezt að
draga ekki sjálfan mig á tálar, því þetta er ekki
annað en draumur, og draumurinn sprottinn ai
óskinni, sem ég lét í ljós við aðkomna manninn
í gærkvöldi." Því næst lokaði hann aítur aug-
unum og ætlaði að sofna út aí aftur.
1 sama vetfangi kom geldingur og sagði með
lotningu: „Drottinn rétítrúaðra manna! Yðar hátign.
ætti ekki að sofna aítur, því nú er kominn tími
til morgunbæna; morgunroðinn er íarinn að koma
í ljós." Vissi Abú Hassan ekki, hvaðan á hann stóð
veðrið, er hann heyrði þetta, og segir vio sjálían
sig: „Seí ég þá eða vaki ég? — Ég sef," svaraði
hann sjálfum sér með augun aftur, „á því er eng-
inn efi.” En ,rer Abú Hassan svaraði geldingnum
engu né heldur myndaði sig til að rísa á fætur,
bá byrjáðí hann á nýjan leik' og mælíi: „Drottinn
rétttrúáðra manna! Yðar hátigri misvirði ekki, að
ég segi vður í annað sinn, að timi er til kominn
að þér íarið á fætur, ef þér eigio ekki að verða
af morgunbænum, sem aldrei er vandi yðar há-
tignar."
tölur sem blaðinu bárust vorv
Mathias 2639, Caompbell 2500,
Simmons 2229. Campbell hijóp
100 m á 10,7, Mathias 10,9,
Heinrich vann langstökkið 7,10,
Campbell 7.09, Mathias kúlu-
varpið- 15,30, Campbell 13,89.
ííeinrich varð í fjórða sæti eft-
ir dáginn í gær. .
Ýmislegt.
i C
Framhald aí 1. síðu.
200 m hlaup kvenna.
Þar voru undanúrslit í gær,
og náði ástralska stólkan
Marjorie Jackson, sem um dag-
inn vann 100 m hiaupið þar
beztum tíma, einsog búizt hafði
verið við. Hún rann skeiðið á
23,4, en það er nýtt heimsmet
og náttúrlega olympíumet um
leið. Gamla metið kar 23,6, sett
af pólskri stúlku í Beriín 1836.
Tugþrautin.
Bob Mathias varð stigahæst-
ur í tugþrautinni fyrri daginn,
eins og búizt var við og í næstu
sætum voru landar hans tveir,
Cammpbeil og SimmonaiSÍðustu
Gúdedoff (Sov.) vann lyft-
ingar í bantamvigt á nýju'
heimsmcti. Urigverjaland vann,
nýju fimmþrautina, Svíþjóð J
öðru sæti, Finnland þriðjái’
Bandarikjamaður vann ökot-
keppnina með skammbyssu með
553 stigum fyrir 60 skot í 50 m
fjarlægð. í gær fóru fram und-
anúrslit í 1.500 m hiaupi. Jo-
hansson frá Svíþjóð fékk bezta
tíma 3; 49,6.