Þjóðviljinn - 03.08.1952, Page 1
Sunnudagur 3. ,ágúst 1352 — 17. árgangur — 172. tölubíað
*_• / jjgt •■••
F|o9vil[inn
kemur næst út miðviku-
daginn 6. ágúst.
Atvinnuleyslng]ar I Reykjavik!
fram kröfur ykkar m atvinnu og brauð!
Atvinitfileysisskránitigin hefst á þriðjndaginn og stendur í 3 daga
Hin lögboðna atvinnuleysisskráning hefst þriðjudaginn
5. þ. m. og stendur í þrjá daga, 5., 6. og 7. ágúst.
í allt sumar hafa tugir og hundruð manna gengið at-
vinnulausir hér í Reykjavík. í Reykjavík voru í fyrradag
skráðir hjá Ráðningarstofunni 100 manns atvinnulausir.
Hundruð atvinnulausra manna í júlí og ágúst — um
„hábjargræðistímann“ þýðir ekkert annað en það, að
varanlegt atvinnuleysi —v hungurvofa áramia fyrir sið-
ustu heimsstyrjöld — er komín aftur.
Ríkisstjórnm hefur ekkert gert til að ráða bót á þessu
ástandi, en hún hefur skipað nefnd til að rannsaka „árs-
tíðaatvinnuleysi“, — það þýðir: ríkisstjómin neitar stað-
reyndum, neitar að komið sé varanlegt atvihnuieysi.
Það er undir þátttöku atvinnuleysingjanna sjálfra í
atvinnuleyáisskráningunni komið hvort stjómarvöldin
verða neydd til að viðurkenna staðreyndir — og gera
ráðstafanir til að ráða bót á atvinnuleysinu.
Varanlegt atvinnuleysi hefur
verið raunverulega hér í Reykja
vík frá því haustið 1950, því á
6.1. sumri gengu tugir verka-
manna atvinnulausir við höfn-
ina einhvern hluta hverrar viku.
Kókakóla-Björn og
sannleikurinn
Á s.l. hausti jókst atvinnu-
leysið hröðum skrefum, en
stjórnarvöldin börðu höfðinu
við steininn og neituðu að viður-
kenna það og kókakóla-Björn
lýsti yfir í útvarpsræðu að ekki
vissi hann um neitt atvinnu-
leysi. Atvinnuleysingjarnir heim
sóttn ráðherrann þá í Arnar-
hvol til að koma honum í skiln-
ing um sannleikann. Enn hefur
Iþessi ráðherra ekki lært að
kannast við sannleikann.
Barátfa Dagsbmnar
Á s.l. hausti hóf Dagsbrún
baráttu fyrir atvinnuaukningu.
Benti á að þar sem þjóðin hefur
eignazt nýtízku togara og ágæt-
an bátaflota og frystihús og
fiskvinnslustöðvar í landi, þyrfti
ekki að láta fólkið ganga at-
vinnulaust ef afli skipanna
væri unninn hér heima.
Krafa Ðagsbrúnar í
bæjarsfjórn
Kröfu Dagsbrúnar um aukna
atvinnu, vinnslu aflans hér,
flutti varaformaður Dagsbrún-
ar, Hannes Stephensen, í bæj-
arstjórn Reyikjavíkur og ítrek-
aði hana fund eftir fund. En
Ihaldið þvældist fyrir, án þess
að framkvæma þessa sjálfsögðu
ráðstöfun.
í umræðum í bæjarstjórn-
inni fuílyrti íhaMlð hvað eft-
ir annað að atvinnuleysið
væri nú alls ekki einm mikið
og Dagsbrúnarstjórnin vildi
vera láta, og benti á að miklu
færri hefðu mætt tll atvinnu-
leysisskráningar. — Þetta
er atriðj sem atvinnuleysingj
arnir ættu að muna við
skráninguna nú.
Ríkisstjórnin lolai bót...
Verkalýðsfélögin í Reykjavík
ikusu sér sameiginlega atvinnu-
málanefnd; gekk hún á fund
ríkisstjórnar og flutti þar
kröfur verkalýðssamtakanna
um atvinnu og ríkisstjórnin
neyddist til að lofa nokkurri
Nú 10—30 en vom 160
Raunverulegasta atvinnu-
aukningin er knúin var fram á
S.l. vetri var sú ófullnægjandi
framkvæmd á kröfu Dagsbrún-
ar um að vinna afla skipanna
hér í landi. Alltaf var þó mikill
hluti aflans fluttur út óverk-
aður.
Alltaf var þó tilfinnanlegt
atvinnuleysi, eins og vonlegt
er í landi þar sem bygg-
ingarvinna hefur verið næst-
um alveg stöðvuð og verið
er að drepa innlendan iðnað.
Þrátt fyrir það að nú sé há-
sumar JÓKST þó atvinnuleysið
mjög þegar frystihúsinu hættu
að taka á móti fiski. Gott dæmi
um það er Fiskiðjuver ríkisins
á Grandagarði. Þar vinna nú
frá 10—30 manns, en unnu áð-
ur um 160.
Það ei á ykkar valdi
Það er augljóst að alþýða
Reykjavíkur getur ekki sætt sig
við það að vera neitað um að
vinna fyrir brauði sínu jafnvel'
sjálfan „hábjargræðistLmann“.
Hinsvegar munu stjórnarvöldin
engar raunhæfar framkvæmdir
hefja til atvinnuaukningar,
nema henni sé sannað að á-
standið er óþolandi. Það er
á valdi atvinnuleysingjanna
sjálfra að gera það með þvíi að
mæta til atvinnuleysisskráning-
arinnar og lylgja fram kröfum
verkalýðssamtakanna um at-
vinn'u og bralið.
Þegar atvinnumálanefnd Full
trúaráðs verkalýðsíelaganna
ræddi við ríkisstjórnina fyrir
rúmri viku heimtaði kókakóla-
Björn enn sannanir fyrir því
að til væri atvinnuleysi.
Næstu daga gefst atvinnuleys
ingjunum kostur á að leggja
fram þær sannanir með því að
mæta til atvinnuleysisskráning-
arinnar.
Hafnarverkamenn í Reykjavík ganga á fund kókakóIa-iBjörns í Arnarhvoli á s.I. hausti til sanna
homim að þeir væru atvinnulausir. — Enn heimtar þessi sami ráðherra sannanir fyrir því að til
sé atvinnuleysi! Ætlið þið að draga hann á svarinu i þetta sinn?
bót, en þegar til kcm varð sú'
atvinnuaukning kák eit't.
Tlugbrautin ókomin enn
Eitt af fyrirheitum stjórnar-
valdanna. þá var vinna við leng-
ingu flugbrautar á Reykjavík-
urflugvelli, þar sem hundruð
manna áttu að fá atvinnu.
Hvernig þau loforð voru haldin
sést bezt á því að ílugbraut sú
er ólögð enn.
Blygðimailaiísai
Strax eftir síðustu ára.niót
komu stjórnarvöldin af stað
miklum sögum um stórkostleg-
ar framkvæmdir hjá hernáms-
liðinu í Keflavík.sem ættu að
leysa öll atvinnuleysisvandamál.
Borgarstjóri Reykja.víkur notaði
þetta sem rök á bæjarstjórnar-
fundum!!
Allir verkamenn vita að þetta
reyndust blygðunailausar blekk
ingar.
Ilanclarískai* fliigvélar 489
sfnvtiifii yfir Miita á 5 dögum
í frétt frá Peking er sagt frá því, aö á tímabilinu 12.
—16. júlí hafi bandarískar flugvélar flogið 489 sinnum
inn. yfir Mansjúríu og framiö landhelgisbrot gegn Kína.
Pablo Neruba
Neruda iverfur
heim úr útlegð
Blöð í Chile skýra frá því að
skáldið heimskunna Pablo Ner-
uda, sem verið hefur i útlegð í
fjögur ár, muni hverfa heim inn.-
an skamms.
Neruda varð að flýja land til a.ð
forðast handtöku þegar Cliile-
stjórn barði niður verkalýðshreyf-
ingu landsins, en hann var einn.
af þingmönnum Kommúnistaflokks
Chile. Nú er málum þannig komið
í Chile að ríkisstjórn Conzales
Videla, sem fyrirskipaði handtöku
Neruda, stendur höllum fæti og
mun ekki treystast til að leggja.
hendur á hann þótt hann hverfi
heim, vegna þess hve ástsæll hanii
er af allri þjóðinni. Útlegðarár
sín hefur Neruda lengst af dvaiið
í Austur-Evrópu.
Eva Peron 1
verður smurð
Peron Argentínuforseti til-
kynnti í gær að útför konu:
hans Evu hefði verið frestað
til 10. þ.m. til að gefa sem,
flestum kost á að ganga fram-
hjá líkbörunum. Síðan kvað
hann ár myndi líða þangað til
jarðneskar leyfar hinnar látnu'
yrðu aftur til sýnis en svo
langan tíma myndi taka að
gera jþær óforgengilegar off
uppfylla þar með ósk hins
brottkallaða mikilmennis.
Einn af ráðherrum Perons
hefur látið gera kerti, sem er
90 kiló á þyngd. Kveikt verður
á því einn klukkutíma á mán-
uði hverjum og Ijósið slökkt
klukkan 22.20 ’á 26. degi mán-
aðarins en það var andláts-
stund Evu. Vonazt er til að
kertið endist í 100 ár.
Samband veitingahúsastarfs-
manna Argentínu hefur sent
Piusi páfa skeyti og skorað
á hann að taka Evu Peron. í
helgra manna tölu.
Þess var einnig getið, áð
Kórverjar og kínverskir sjálf-
boðaliðar hafi, þann 14. júlí,
'hrundið landgöngutilraun
Bandarikjamanna við Kamsu á
vesturströnd Norðurkóreu, óg
viðar suðaustur af Monggum-
po. — Landgöngutilraunirnar
gerðu rúmlega 300 manns,
studdir herslkipum og flugvél-
um.
Fimmtugsafmæli Einars Olgeirssonar
1 tilefni af fimmtugsafmæli Einars Olgeirssonar verður
samkvæmi haldið að Hlégarði í Mosfellssveit 14. ágúst
næstkomandi. Síðar verður nánar auglýst um tilhögun
samkvæmisins og ferðir uppeftir.
Áskriftarlistar Iiggja frammi í skrifstofu Sósíalista-
flökksins, Þórsgötn 1. Ennfremur er hægt að tilkynna
þátttöku í síma 7510. UNDIRBÚNINGSNEFNDIN.