Þjóðviljinn - 05.10.1952, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 05.10.1952, Blaðsíða 6
Q) __ ÞJÖÐVILJINN — Suimudag-ur 5. október 1952 * u- r' tft I Herðubreið austur um land til Siglufjarðar ihinn 11. þ. m. Tekið á móti flutn ingi til Hornafjarðar, Djúpa- vogs, Breiðdalsvíkur, Stöðvar- fjarðar, Mjóafjarðar, Borgar- fjarðar, Vopnafjarðar, Bakka- fjarðar, Þórshafnar, Raufar- hafnar, Kópaskers og Flateyj- ar á Skjálfanda á þriðjudag og miðvikudag. Farseðlar seldir á fimmtudag. Skaftfellingur til Vestmannaeyja á þriðjudag. Vörumóttaka daglega. Sófasett og einstakir stólar, margar gerðir. Húsgagnabólsfrnn Erlings Jónssonar Sölubúð Baldursg. 30, opin 'kl. 2—6. Vinnustofa Hofteig 30, sími 4166. ð&i i2 //Kaupum gamlar bækur ogí( / timarit. Ennfremur notuð ís-/ ^lenzk frímerki. Seljimi skáld-ý fesögur, ódýrt, Námsbækur og/ í'ýmsar a'ð’rai- bækur fyrir-) , liggjandi. Útvegum ýmsar■ [sjaldgæfar bækur. Sendumt ,gcgn póstkröfu. BÖKABAZARINN f'Traðarkotssundi 3. Sími 4663 Lálí'ð okkur annast hreinsun á fiffri og dúti úr göml- um sœngur- fötum. Fiðurhreinsun Hverfiegötu 52. BANDARfSK HÁRll Bæjarfréttir Framhald af 4. síðu. Úr vígsluför Gissurar Einarsson- ar biskups: Rínsgyllini og Ro- stockaröl (Björn Th. Björnsson listfræðingur). 21.00 Einsöngur: Þorsteinn Hannesson óperusöngv- ari syngur; dr. Urbancic aðstoðar. a) An die ferne Geliebte, lagafl. oftir Beethoven. b) Dichterliebe, lagaflokkur eftir Schumann. 21.45 Upplestur: Kvæði eftir Einar Braga (Gunnar Eyjólfsson leikari) 22.05 Dansiog. 23.30 DagskrárJok. — Útvarpið & morgun: 19.30 Þing- fréttir. — rónleikar. 2020 Útvarps hljómsveitin leikur. 20.45 Um dag- inn og veginn (Ólafur Jóhannes- son prófessor). 21.00 Einsöngur: Sig. Ólafsson. syngur; Fritz Weiss- happel leikur undir. 21.20 Erindi: EgJ'ptaland (Baldur Bjarnason magister). 21.40 Tónleikar pl.: Vallée d’Obermann, píanóverk eft- ir Liszt. 21.50 Búnaðarþáttur: Ráð- stafanir vegna lambanna (Páll A. Pálsson dýralæknir). 22.10 Désii-ée, saga eftir Annemarie Selinko (Raghheiður Hafsteln). — II. MESSÚR I DAG: Kópavogsskólinn. Messa.kl. 2 síðdeg- is. Sr. Gunnar Árnason, einn af ■umsækjendunum um Bústaðapresta- kall. Óháðl fríkirkjusöfnuðurinn. Messað í Aðventkirkjunni kl. 2 e. h. Sr. Emil Björnsson. Þjóðviljann vantar unglinga til að bera blaðið til kaupenda í eftirtalin hverfi: S i g t ú n , Skjólin. Talið við afgreiðsluna. — Sími 7500 SS2S2S8SSSSS2SSSSSSS2SSS2S25SS382S2SS; SSSSSSSSS8SS2SSSSSSSSSSSSS2SSS3SSSSSSSS? Haustmót mástaraflokks í dag kl. 2 leika UM % 8P KR—Víkingur Strax á eftir keppa Fram — Valur Þetta eru síðustu leikir sumarsins MÖTANEFNDIN. •o*o*o*ðfo«o«oéCj«o«c>*o*o«f)«D*o»o*o«o«o«o*o«o«r)«ruiottr>«0#o«»o*o«a*o*o«0«o«o«Ofö*o«oéOéoéO«<i«o*o«o*o Langholtspresfakall Stuðningsmenn séra Páls Þodeilssonar hafa opnað kosningaskrifstofu í Holts-apoteki við Langholtsveg. — Opin kl. 8—10 síðdegLs. Sími 81246. EINANGRUNARKORK nýkomið — lækkað verð Korkiðjan h.f. Skúlagötu 57 — Sími 4231 273. DAGUR ,,Ég veit það“, svaraði Clyde — enda hafði hann í fulla tvo jnánuði æft þetta svar í samráði við Belknap og Jephson. „En eina áætlunin, sem ég veit um“, — og hann reyndi eftir megni að vera hreinskilinn og sannfærandi á svip, — „var þessi á- ætlun sem ég hafði lágt fyrir hana hvað eftir amiað“. „Og hvaða áætlun var það?“ „Nú, að hún færi burt og leigði sér lierbergi annars staðar, og ég veitti henni fjárhagsaðstoð og kæmi í heimsókn stöku sinnum“. „Nei, nú skjátlast yður", sagði Jephson ísmeygilega. „Þetta getur ekki verið áætliuiin, sem hún hafði í huga. 1 einu bréfinu segist hún vita, að að það só erfitt fyrir yður að verða að fara burt og dveljast svo lengi í burtu, en það sé ekkert við þvi að gera“. „Já, ég veit“, svaraði Clyde fljótt og rösklega eins og honum hafði verið sagt, „en það var áætlun hennar en ekki mín. Iiún var alltaf að segja við mig, að hún vildi að ég gerði þetta og ég reyndi að gera það. Hún sagði það hvað eftir annað í símann og það getur ved verið að ég hafi sagt allt í lagi, en ég var ekki sammála henni, heldur vildi ég tala betur um það við liana seinna". „Ég veit að minnsta kosti að ég samþýkkti aldrei áætlun. liennar. Ég bað hana bara að bíða og aðhafast ekki neitt, fyrr en ég hefði safnað nægum periingum til að koma til fundar við liana, tala við hana og reyna að fá hana á mitt mál“. „En ef hún liefði ekki viljað eamþykkja ráðagerð yðar, hvað þá?“ „Þá ætlaði ég að segja henni allt um ungfrú X, og sárbæna hana að sleppa mór“. „En ef hún neitaði samt sem áður?“ „Þá hafði mér dottið í hug að flýja, en ég reyndi að hugsa sem minnst um það“. „Eins og þér vitið, Clyde, þá eru sumir þeirrar skoðunar að þér hafið þá þegar verið staðráðinn í að fara með henni undir fölsku nafni á einhvem afskekktan stað og myrða hana á hinn svívirðilegasta hátt, svo að þér gætuð kvænzt imgfrú X. Er nokk- uð til í því? Gefið kviðdómendum svar við því — já eða nei? „Nei. Nei. Mér datt aldrei í hug að myrða hana eða nokkum annan", hrópaði Clyde með tilfinniitgu, greip-'báðum höndum um amia stólsins sem hann sat á og reyndi að leggja mikla á- herzlu á orð sín. Um leið reis hann upp úr sæti sínu og reyndi að vera alvarlegur og sannfærandi á svip, en í huga hans og hjarta bjó vissan um það, að hann hafði einmitt áformað slíkan verknað, og það dró úr honum mátt þessa stimdina, eyðilagði áhrif orða hans. Augu alls þessa fólks. Augu dómarans, kvið- tíómenda, Masons, blaðafólksins. Og aftur spratt kaldur sviti íram á enni hans og hann sleikti varirnar vandræðalega og kingdi munnvatni, vegna þess hve háls hans var þurr. Og svo voru rakin bréfin frá Róbertu til Clydes eftir að hún kom lieim, unz hún skrifaði síðasta bréfið, þar sem hún krafðist þess að hann kæmi, að öðmm kosti færi hún til Lycurgus og íletti ofan af honum. Jeplison minntist á öll smáatriði og gerði allt sem honum var unnt til að draga úr og rífa niður allt sem vitnað hafði verið fram að þessu. Hvers vegna hafði hann ekki skrifað Róbertu. Jú, hann hafði óttazt afleiðingarnar af þvi í sambandi við ættingja sína, starf sítt og fleira. Og sama var að segja um þá ákvörðun hans að hitta hana í Fonda. Hann liafði engar áætlanir í huga um ferða- lag með henni. Honum hafði aðeins dottið í hug að hitta hana einhvers staðar — hvar sem væri -—og reyna. að fá hana til að fara bui*t. En þegar komið var fram í júlí og hann hafði ekki fengið neinar jákvæðar hugrnyndir, datt lionum í hug að þau gætu farið saman á einhvem ódýran sumardvalarstað. í Utica hafði Róberta stungið upp á vatnahéruðunum fyrir norðan. Og á gistihúsinu, ■eikki á járnbrautarstöðinni, hafði hann fengið kort og uppdrætti yfir þess hóruð — en í þessu varð honum á hættu- leg skyssa, því Mason hafði í fórum sínum kort, sem á var stimplaö Lycurgus House, en Clyde vissi ekki um það. Og meðan. hann sagði frá þessu, var Mason að hugsa um þetta kort. Og' ástæðan til þess að hann fór frá Lycurgus, svo að lítið bar á — var sú að hann hafði ekki viijað láta fréttast um brottför þeirra Róbertu, en aðeins vegna þess að hann viidi ekki að skuggi félli á nöfn þeirra. Og þess vegna ferðuðust þau sitt í hvorum vagni, gengu undir nafninu Clifford Golden og frú, og þannig var allur feluleikurinn rakinn. Hvað hattana tvo snerti, þá var hatturinn óhreinn og þess vegna keypti hann annan sem honum léizt vel á. Og þegar slysið vildi til og hann missti hattinn, þá öetti hann auðvitað hinn hattinn upp. Vissulega liafði liann átt myndavél og verið með hana, og hann hafði verið með hana. meðferðis fiegar hann kom tii Cranstonfólksins í fyrsta skipti

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.