Þjóðviljinn - 16.10.1952, Side 8

Þjóðviljinn - 16.10.1952, Side 8
Verkafélk greiSi ekki íesignr Jónas Árnason og Áki Jakobsson flytja á þingi frum- varp um að heimilað veröi að draga vinnufatakostnað sjómanna og annars verkafólks frá skattskyldum tekjum. 1 greinargerð segir: „Me'ð frumvarpi þessu er lagt til, að kostnaður sá, sem verkafólk verður fyrir vegna vinnufata- slits, skuli dreginn frá, þegar tekjur eru taldar fram til skatts. Kostnaður þessi er að vísu mismunandi eftir starfs- greinum, en hjá mörgum er hann svo tilfinnanlegur, að full- komið óréttlæti mætti kallast, ef ríkisvaldið vildi engu sinna óskum um, að hér yrði á ein- hvem hátt létt undir. Þessara óska er nú mjög farið að gæta, einkum meðal togarasjómanna, enda er þyngstur þeirra baggi í þessum efnum. Hafa þeir og alloft látið frá sér heyra í málinu, og á þessum vettvangi verður sennilega beztur sá rök- stuðningur að vitna til ný- skrifaðrar greinar eftir einn þeirra, en þar segir svo meðal 3000 kr. á sjómann á ári „Maður, sem fer til sjós á togara og þarf áð kaupa sér hlífðarföt, eyðir meiri hluta þess kaups, sem gera má ráð fyrir að hann ,fái fyrir túrinn, ef hann útbýr sig sæmilega með fatnað. — Nauðsynleg fata- kaup mundu verða: Tveir stakkar á 240 kr. stykkið kr. 480.00 Tvö pör stígvél á 180—240 kr. kr. 400.00 Einn sjóhattur kr. 40.00 Sex pör fingravetl- inga á 10 kr. parið kr. 60.00 Tvö pör sjóvettlinga á 20 kr. parið kr. 40.00 Samtals kr. 1020.00 Ótalin eru vinnuföt, svo sem peysur, buxur og annar nauð- Opnuð ný hus- gagnaverzlun Þorsteinn Sigurðsson, liús- gagnasmíðameistari, hefúr ný- Iega opnað húsgagnaverzlun í sambandi við vinnustofu sína að Grettisgötu 13. Að þessu tilefni ræddi Þor- steinn við fróttamenn í gær og sýndi framleiðsluvörur sínar, bæði þær sem eru til synis í búðinni og aðrar. Húsganga- vinnustofu sína stofnaði Þor- steinn árið 1918, en síðan 1920 Framhald á 6. síðu. synlegur fatnaður, sem óhætt er að fullyrða að mundi kosta um kr. 2000.00“. — Þegar síð- an við þennan byrjunarkostn- að bætist endurnýjunar- og vi'ð- haldskostnaður af fötunum, þá mun varla ofmælt, að saman- lagður vinnufatakostnaður full- starfandi togarasjómanns sé aldrei undir 5 þús. kr. á ári. Dæmið um togarasjómenn er að vísu þungvægast í rök- stuðningi fyrir nauðsyn þessa máls, en fleiri svipu'ð dæmi mætti nefna, og þykir því flm. fara bezt á því að láta ákvæði frumvarpsins ná til alls verka- fólks. Hér er á ferðinni réttlætis- mál sem óskandi er, að Al- þingi beri gæfu til að sam- þykkja“. ga ? Allmiklar umræður urðu á þingi í gær um kjötútflutnings- hneyksli ríkisstjómarinnar í sambandi við fyrirspum Har- alds Guðmundssonar um það mál, og varð Hermann Jónas- son mjög vanstilltur og átti auðsjáanlega bágt. Var auð- sætt á viðbrögðum hans að hann hefur nú gert sér ljóst að bándaríski markaðurinn er enginn orðinn, á sama tíma og ríkisstjórnin er með verðbólgu- stefnu sinni að eyðileggja inn- anlandsmarkaðinn líka. Ekki gaf hann neina skýring- ar á því hverjir ættu að borga brúsann ef sú verður raunin að 3—4 milljónir króna sem Bandaríkin áttu að borga fyrir kjöt koma aldrei fram. En ekki væri þaö ósennilégt að það tjón væri látið bitna á neytendum næsta ár i hækkuðu vöruverði. Spjaldskrármannta! fer fram í dag Sérstakt manntal vegna vélspjaldskrárinnar um alla landsmenn, sem nú er verið að vinna að, á aö fara íram í dag. Færslu manntalslistanna skal lokið í síðasta lagi á sunnudag- inn. í tvíriti. Vegna þess hvemig mann- tal þetta er tilkomið er nauð- synlegt að manntalsskýrslurnar séu færðar í tvíriti og það sé miðað við daginn í dag 16. okt- óber. Skrá skal á skýrslurnar alla sem heimili eiga í hverju húsi og alla sem þar dvelja en eiga lögheimili annarsstaðar. Hver maður er skyldur til að sjá um að hann sé skráður á manntal og gefa þær upplýsing- ar, sem um er beðið. Upplýsingarnar eru: Fullt nafn, atvinna eða staða á heim- ili, hjús'kaparstétt, fæðingar- dagur og -ár, fæðingarstaður, hvenær sezt að í núverandi hrepp eða bæ, trúarfélag, bú- staður við manntalið 1950 (og í Reykjavík við manntalið 1951) og manna. lögheimili aðkomu- Tilgreina ibúðarhæð'. f kaupstöðum, þar sem fleiri en ein fjölskylda býr í sama húsi, skal tilgreina fyrir fram- an nafn heimilisföður eða -móð- ur á hvaða hæð hússins fjöl- skyldan býr. Á skýrslum úr Reykjavík, Hafnarfirði og Kópavogshreppi skal au'k þess tilgreina, ef fleiri en ein fjöl- skylda býr á hæð, hvort íbúð 13 af hokum Laxness komnar! samsfœöri úígáfu Heiman ég fór, hin nýja bók Halldórs Laxness sem Þjéð- viíjinn hefur áður minnzt á, er nýkomin út og er það áttunda bókin í lieildarútgáfunni nýju af verkum lians. Heiman ég fór er uppkast að Vefaranum mikla og í for- mála að bókinni segist höfund- urinn hafa gengið frá þvi 1924 Dr. Stefán Einarsson fékk hand ritið su'ður í Frakklandi, en þar hafði Laxness skilið það eftir í frönsku klaustri. Dr. Stefán Einarsson o. fl. kunningjar Laxness lögðu að honum að gefa bók þessa út og í for- Leðurblakan verður sýnd í Þjóðleikhúsinu á sunnudaginn 19. þ.m. kl. 14.30. Þetta er gert vegna þess a.ð í gær var upp- selt á sýninguna í kvöld, sem átti að vera síðasta sýning, og urðu margir frá að hverfa. mála bókarinnar segist Kiljan hafa látið undan þessum ósk- um og segir síðan: ......hvað sem bókmenntagildi þessa litla verks líöur, þá er það sjálfs- mynd úr æsku dichtung und wahrheit æskumanns um gelgju- ár sín fram til seytján . ára aldurs“. Af heildarútgáfunni af verk- um Kiljans hafa nú verið gef- in út Vefarinn, Alþýðubókin, Kvæðakverið, Salka Valka og Sjálfstætt fólk af eldri bókun- um og þrjár nýjar hafa komið út í heildarsafninu Reisubókar- korn, Snæfríður Islandssól og nú síðast Heiman ég fór. Framhald á 6. síðu. hlutaðeigandi fjölskyldu er til hægri eða vinstri. Fimmtudagur 16. október 1952 — 17. árgangur — 233. tölublað Hafnargerðin í Rifi gengur hægt 16 menn unnu þar í sumar 09 höíðu 2 bíla og 2 krana fil umráða Fréttabréf frá Hellissandi. Vinna við hafnargerðina í Rifi hófst 3. júlí í sumar. Sextán. menn hafa unnið þar og hafa þeir haft tvo krana og tvo bíla til umráða. Byrjað var á verkinu í fyrra- sumar og þá gerður um 100 m langur kafli af hinum fyrirhug- aða hafnargarði. Er fyrirhugað að lokið hafi verið við 400 m kafla þegar vinna hættir í haust. Garðurinn er byggður þann- ig að gerð er uppfylling ofan á grjót, síðan er steypt plata ofan á uppfyllinguna. Aðal- vinnan er því sú að koma grjóti i uppfyllinguna og er þetta merkilegt ráðslag að ekki skuli notað meira og stærra véla- afl en gert er, þar sem nægi- legt fé er fyrir hendi að vinna fyrir og mikil nauðsyn að höfn ikomist upp í Rifi sem fyrst, þár sem um enga góða höfn er að ræða á utanverðu Snæfells- nesi, hvorki til útræðis á stærri Baréff a gegn bandaríska auð- valdinu ósósialisfrísk! Steínuyíirlýsing Steíáns Jóhanns: Stefna Bevar.s og íélaga hans í brezka verkamannaflokknum og andstaða þeirra við bandarískan yfirgang er „ósósíalistísk barátta", sagði Stefán Jóhann Stefánsson formaður íslenzika Alþýðuílokksins á þingi í gær. Yfirlýsing þessi kom í um- ræðum um viðtaótarsamning við Atlanzhafsbandalagssamning- inn, sem ríkisstjórnin hefur lagt fram á þingi, í honum felst Stefán Jóhann Stefánsson fullgilding á endurhervæðingu Vesturþýzkalands og aðild þess að svonefndu „Vamarbanda- Iagi Evrópu“. Finnbogi Rútur Valdimars- son benti á að þetta væri eitt helzta átakamálið í Vestur- Evrópu um þessar mundir og hefði verið um langt skeið. Væri engan veginn víst að V- Þjóðverjar sjálfir létu að vilja Bandaríkjanna í þessu efni, t. d. væri vesturþýzki sósialdemó- krataflokkurinn algerlega and- vígur þessum aðgerðum og brezki verkamannaflokkurinn sömuleiðis. Taldi hann ástæðu- laust að íslendingar færu að fullgilda þetta mál, áður en út- séð væri um úrslit þess. Stefán Jóhann ókyrrðist mjög meðan Finnbogi lýsti afstöðu sósíaldemókrata í Vesturevrópu í þessu máli, og spratt síðan upp til að flytja þá yfirlýsingu sem að framan greinir. Jafn- framt kvaðst hann vita það af einkaviötölum við ýmsa þú- bræður sina í þessum löndum að þeir væru ,,í prinsipinu“ sam þykkir endurhervæðingu Vest- urþýzkalands, þótt þeir létu öðruvísi um sinn. bátum né fyfir skip að leita til undan veðrum. Lítiö útlit er fyrir að bátar geti haft þar viðlegupláss á komandi vertíð, þvi þótt lokið verði áætlaðri lengingu garðs- ins er eftir að moka upp fyrir innan hann. Hæstu yinningarnir I gær var dregið í A-flokki happdrættisláns ríkissjóðs. — Hæsti vinningurinn, 75 þús. kr. kom á nr. 57013. 40 þús. kr. vinningur kom á nr. 26841. 15 þús. kr. vinningur á nr. 114899 og 10 þús. kr. vinningar þrír á nr. 19700; 120167 og 147015. Fimm 5 þús. kr. vinningar komu á eftirtalin númer: 87882; 108125; 114519; 124787 og 146891. (iBirt án ábyrgðar) Þing SÞ sett með hamri eftir Ásmund Pearson, sem í gær var kjör- inn forseti sjöunda þings SÞ setti fyrsta fund hins nýja þings, með fundarhamri, sem Ásmundur Sveinsson hefur gert. Rikisstjórn Islands hafði ákveðið að gefa SÞ tvo fundar- hamra og var Ríkharði Jóns- syni falið að gera hinn. Thor Thors afhenti hamar Ásmund- ar í gær en Ríkharður hefur ekki getað lokið við sinn vegna meiðsla.. Kosningin í F. I. H. Kosning fulltrúa á þing A.S.I. í Félagi íslenzkra hljóðfæra- leikara fór þannig að listi sá, sem Svavar Gests var aðalmað- ur á fékk 39 atkvæði. Listinn, sem Bjarni Böðvarsson var að- almaður á fékk 30 atkvæði. Handíðaskólimi eyktir kemislu í list- sögu og skyldum greinum Handíða- og myndlistaskólinn hyggst á komandi vetri efna til síðdegis- og kvöldnámsikeiða, þar sem kennd verði almenn stilsaga og stílgreining, með sérstöku tilliti til Islands og Skandínavíu. Sýningin framlengd Vegna mikillar aðsóknar hef- ur Veturliði Gunnarsson fram- lengt sýningu sína um 2 daga. Verður hún opin í dag og á morgun kl. 1—11 síðdegis. I gærkvöld höfðu um 2500 manns sé'ð sýninguna, og 48 málverk höfðu selzt. Námskeið þessi veiða í fyr- irlestra- og viðræðuformi, með skuggamyndum, og verður rak- in þróun stíls í listum og sér- staklega listiðnaði Norður- Evrópu (sem snertir t.d. gerð húsgagna, bókagerð, silfur- smíði, húsagerð, vefnað, mynda- saum, tréskurð, járnvirki o.fl.) Gert er ráð fyrir tveimur sam- felldum tímum í viku og verður reynt að haga þeim sem bezt í samræmi við vinnutíma þátt- takenda. Skólinn efnir til þessarar kennslu vegna þess, að hana er annars hvergi að fá hérlendis og engar bækur til um þetta efni á íslenzku. Vill skólinn sér- staklega vekja athygli ungra iðnaðarmanna og þeirra, sem áhuga haía á, eða vinna að list iðnaði, — kvenna sem karla, — á fræðslustarfsemi þessari. sem væntanlega hefst snemma í nóv. n.k. Alnienn listasaga. Fáist næg þátttaka er gert ráð fyrir því, að n.k. vetur — svo sem undangengin ár — verði haldið uppi 'kvöldkennslu í alniennri listasögu fyrir á- hugamenn um þau efni. Fyrir- lestrar og viðræður. Skugga- myndir. Kennt verður eitt kvöld í viku f.u.s. hálfan veturinn. Framhald á 6. síðu. Anganþeyr — ný Ijéðabók Þórodds frá Sandi Nýkomin er út ljóðabók eftir Þórodd Guðmundsson frá Sandi. Heitir hún Anganþeyr, sem að ofan segir, og eru í lienni 40 kvæði, mikill hluti þeirra frá þessu ári. Þetta er fjórða bók Þórodds, en áður hefur komið út eftir hann smásagnasafn, ein ljóða- bók, og ævisaga föður hans1 Guðmundar Friðjónssonar; og mun hún kunnast vehka hans. Bókarinnar verður nánar getið við hentugleika.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.