Þjóðviljinn - 25.10.1952, Síða 8
14. iðnþing fslendinga:
ISnaðarmenn fái greiðari
aðgang að rekstursfé
Siyrkleika samtakanna sé beitft gegn þeim er leitast
við að sniðganga íslenzka iðnaðarmenn
Jfcþingið hélt áfram störfum í gær og samþykkti m. a. eftir-
íaratidi:
„14 Iðnþing íslendinga felur stjóru Landssambands Iðnaðar-
ananníi að:
1. l'inna að því að iðnaðarmenn fái greiðari aðgang að rekstr-
ursfé en verið Iiefur að undanförnu.
2. Vera vel á verði og halda fast á hagsm'nnum iðnaðarmanna
Ihjá ráðandi mönnum og ríkisstjóm og leita styrkl'eika samtak-
arina gegn hverjum þeim öfliun, er leitast við að sniðganga ís-
lenzka iínaðarmenn, með því að flytja inn fullunna iðnaðarvöru
eða senda á erlemlan vettvang verkefni, sem auðvelt er að leysa
af Islenzkum iðnaðarmönnum hérlendis.
Stjóm I.andssíunbandsins skal láta sambandsfélögunum jafn-
óðum í té uppíýsingar í slíkum málum“.
Fr\'. til laga um
Knskóla
„14. Iðnþing íslendinga skor-
ar á ríkisstjórn og alþingis-
menn, að vinna að því, að Al-
þingi það, er nú situr, taki til
meðferðar og samþykki frv,. það
til laga um iðnskóla, sem nú
að undanförnu hefur legið fyrir
Aiþingi".
Árstíðahundið
at\ innuleysi.
„Fjórtánda Iðnþing íslendinga
ályktar að kjósa fimm manria
milliþinganefnd til þess að at-
huga möguleika á því livað
hægt sé að gera til þess að út-
rýma því árstíðabundna at-
vinnuleysi, sem svo margar iðn-
greinar eiga nú við að búa“.
Ný kantata
eftir Pál Isólfsson
Á háskólahátíðinni í dag, er
hefst kl. 2 og verður útvarpað,
verður í fjrsta skipti flutt ný
kantata eftir dr. Pál Isólfsson
við ljóð eftir Þorstein Gíslason.
Kantatan er í 6 þáttum og verð-
ur hún flutt í tvennu lagi, í
uppliafi hátíðarinnar og eftir
ræðurnar. Dómkirkjukórinn
syngur imdir stjórn Páls Isólfs-
sonar og Guðmundur JÓJisson
óperusöng\rari syngur einsöng.
Gekk úti í vetur,
kom með lamb
í baust
Tvílembd ær frá Jóni Gests-
syni, bónda á Brekku í Kaup-
angssveit í Eyjafirði. kom ekki
af fjalli í fyrrahaust. I göngum
í haust fannst hinsvegar ærin
á Bleiksmýrardal og voru þá
með henni tveir veturgamlir
hrútar og eitt lamb frá þessu
sumri. Frá þessu var skýrt í
Akureyrarblaðinu Degi nú í vik-
unni.
Ríkissjóðar greiði Iðnbank-
anum þegar allt frainlag sitt
Áki Jakobsson flytur í sameinuðu þingi tillögu um að
Alþingl feli ríkisstjómnni að greiða þegar allt lilutafjár-
framlag ríkissjóðs til Iðnaöarbanka islands.
I greinargerð segir: Nú er
verið að ganga frá.stofnun Iðn-
Sveinaíél. skipasmiða skorar á Alþingi að
samþykkja frumvarp sósíalista um
atvinnuleysistryggingar
I Fundur haldiun í Sveinafélagi skipasmiða í Reykjavík
; 1952 telur það höfuðskyldu þjóðfélagsins að sjá liverj-
; um vinnufærum þegni þe.ss fyrir nægilegri atvinnu, en
; S*ar sem þjóðfélagið hefur ekki orðið við þeirri skyldu
! telur funduriun að {tjóðfélagið verði að taka á sig þá á-
; foyrgð sem af því leiðir, og skorar þ\ í eindregið á Al-
I þingi að samþyltkja frumvarp það er nú liggur fyrir
; þinginu um atvinnuleysistryggingar, flutt af Sigurði
Guðnasym, Einari Olgeirssyni og Jónasi Árnasyni.
Veitt heimild til uppsagnar
Fundur haldinn í Sveinafélagi skipasmiða i Reykjavs'lt
23. okt. 1952 samþykkir að veita stjórninni heimikl til
að segja upp nngildandi liaup- og kjarasamningum félags-
3ns við atvinnurekendur, ef stjóruin telur að nógu \íð-
tíek samvinna hafi tekizt milli verkalýðsféiagaima um
uppsögn.
Sýningar á hinu vinsæla barnaieikriti: ÍLitli Iíláus og stóri Ivláus
hefjast aftur í Þjóðleikhúsinu í dag kl. 3. — 16 sýningar voru
á leiknum i fyrra og sáu leikinn á 11. þús. rnanns og varð þá
að hætta sýningum meðan fuil aðsókn var að i'eiknum.
aðarbanka Islands h.f., en um
hann voru sett lög á síðasta
Alþingi. Mikil nauísyn er á því,
að bankinn geti tekið til starfa
sem fyrst, og eru miklar vonir
tengdar við starf hans. Iðnaðar-
menn i landinu hafa sýnt mjög
mikinn á huga á stofnun bank
ans, og mun nú vera búið að
safna því hlutafé, sem Lands-
samb. iðnaðarmanna og Fél. ís-
lenzkra iðnrekenda var ætlað að
safna. Þegar svo er komið, er
engin ástæða til að draga það,
að ríkissjóður greiði sitt hluta-
fjárframlag, enda mundi
greiðsla þess gera bankanum
kleift að hefja starfsemi. Fjár-
málaráðherra mun hafa færzt
undan að greiða nema V4 hluta-
fjárins að svo stöddu, eða 750
þús. kr. af 3 millj. 'kr. hluta-
fjárframlagi. Ef þessu fer fram,
má búast við, að Iðnaðarbank-
inn geti ekki tekið til starfa
fyrr en eftir 1—2 ár í fyrsta
lagi.
Ég tel mikla nauðsjm, að Iðn-
aðarbankinn taki til starfa sem
fyrst, en skilyrði þess er, að rík-
isstjómin leggi þegar fram allt
það lilutafé, sem Alþingi hefur
lofað að leggja bankanum.
Aðalfundur
Félags ísl. leikara
(Sp.-*#* {« ’V.&vs .« U #*• • 9i ■> ',v. -- IV. «•. «
Aðálfundur Félags íslenzkra
leikara var haldinn 28. sept. sl.
Gerður var á líðhu starfsári
samningur við Ríkisútvarpið
um gjaldskrá fyrir leik og lei'k-
stjórn í útvarpi. Minnst var 10
ára afmælis íelagsins á síðast-
liðnu hausti, með veglegu sam-
kvæmi. Þrjár kvöldvölcur voru
haldnar til ágóða fyrir félags-
sjóð. Voru þær vel sóttar enda
orðnar mjög vinsælar.
Fimm leikarar nutu styrks úr
utanfarasjóði félagsins.
Félagsmenn eru nú 54.
Stjómin var endurkosin en
liana skipa: Valur Gíslason
form., frú Anna Guðmundsdótt-
ir gjaldkeri og Valdemar Helga-
son ritari. Varaform. er Har-
aldur Björnsson.
þJÓÐVlLIÍNN
Laugardagur 25. október 1952 — 17. árgangur —- 241. tölublað
Bandarísk jazz-söngkona og brezkur
jazzleikari og söngvari
bæði blökkumenn, skemmta hér á
fimmtudaginn kemur
Hingað er væntanlcg í næstu viku ameríska söngkonan Marie
Br.vant og enski píanóleikarinn og söngvarinn Mike McKenzie.
Koma þau liingað frá Eiiglaiuli og koma hér fram á hljómleikum
á vcgum Jazzklúbbs íslands.
Marie Bryant er viðfræg söng-
kona, söng hún m.a. um árabil
með hinni þeklitu hljómsveit Duke
Ellington í Bandaríkjunum. Var
hún aðalstjarnan 5 hinni kunnu
revíu, sem Ellington færði upp
á sínum tíma „Jump for Joy“.
Hún hefur sungið inn á nokkr-
ar hljómplötur bæði i Bandaríkj-
unum og Englandi. En til Eng-
iands kom hún fyrir tæplega ári
eftir að hafa ferðazt um Indland
og Ceylon með ameriska um-
ferðaskemmtiflokknum „Harlem
Blackbirds". Hefur hún komið
víða fram í Englandi, á hljóm-
leikum, næturklúbbum, útvarpi,
sjónvarpi og víðar. Marie Bryant
er ekki aðeins kunn söngkona,
heldur er hún og þekkt sem
dansmær. Hún vann m.a. um skeið
hjá ameríska kvikmyndafélaginu
„20h Century Fox“ sem aðstoð-
ardansstjóri og útfærði hún dansa
fyrir jafn frægar stjörnur og
Paulette Goddai'de, Betty Grable
og Vera-Ellen.
Þar sem Marie hefur komið
fram i Englandi undanfarna mán-
uði hefur píanóleikarinn Mike Mc
Kenzie að jafnaði aðstoðað hana,
en Mike er ekki aðeins kunnur
undiileikari heldur er hann og
Marie Bryant
þekkt stjarna í ensku jazzlifi.
Hann syngur og leikur á píanó
ekki ósvipað og Nat „King“ Cole
gerir og hefur hann þessvegna
stundum verið nefndur „King
Cole Englands". Mike McKenzie
er fæddur i Brezku Guiana í Suð-
ur-Ameriu og var einhver vinsæl-
Framhald á 7 síðu.
Broslegur skrlpaleikur Fram-
sóknar I samhandi viS lána-
sfarfsemi landbúnaSarins
Framsóknarmenn í neðri deild andmæla svipuðum
lillögum og Framsóknarmenn ilytja í efri deild!
í fyrradag var til umr. í Alþingi frumv. rílrisstjórnarinna r um
22 millj. ltr. crlent lán til BúnaÓa rbankans.
Fyrir lá' breytingartillaga frá
Ásmundi Sigurðssyni, er var á
þá leið, að í stað þess að frum-
varpið gerir ráð fyrir að bæði
Byggingarsjóði og Ræktunar-
sjó’ði sé lánað féð með sömu
kjörum og lánið er tekið, skuli
ákveðið að lána féð til sjóð-
anna með sömu kjörum og lög-
um samkvæmt gilda um þeirra
eigin útlán. <En eins og kunn-
ugt er hefur þannig verið unn-
ið að f járútvegun til Búnaðar-
bankans undanfarin ár, að það
fé sem hann -hefur fengið til
útlána verðhr hann að greiða
á 20 árum og greiða af 4%
vexti eða jafnvel meira, en
um útlán úr aðaldeildum hans
gilda þau lög að Mnin eru
til 20, 25 og 42 ára og vext-
ir 2 1á og 2%. Er þetta auð-
veld leið, til að iiinheimta til
ríkisins at'tur þau opiuberu
framlög serii sjóðirnir fá og
áttu að vera til að styrkja
starfsemi bankans.
Fulltrúi Sósíalistaflokksins i
fjárhagsnefnd, Einar Olgeirs-
son, hafði klofið nefndina og
lagt til að tillagan yrði sam-
þykkt.
En bæ'ði fulltrúar Sjálfstæðr
isflokksins og Framsóknar-
flokksins snerust algerlega önd-
verðir gegn þessari sjálfsögðu
breytingu á fraumvarpinu.
Einar Olgeirsson og Ás-
mundur Sigurðsson sýndu fram
á að fyrirkomulag sem þetta
hlyti fyrr eðá síðar að koma
bankanum i alger vandræði, —
Benti Ásmundur m.a. á a'ð til
bóta væri að breyta þeim lán-
um sem Búnaðarbankinn hefði
fengið af gengishagnaði bank-
anna 1950 og greiðsluafgangi
ríkissjóðs 1951 í fast óaftur-
kræft framlag. Lýsti Ásmund-
ur því yfir að hann væri í
þann veginn að leggja fram
frumvarp um lausn á lánsfjár-
erfiðleiikum banlcans og væri
þar m.a. gert ráð fvrir ,þess-
ari breytingu. Virtust þessav
upplýsingar snerta fjármála-
íáðherra fremur ónotalega,
enda mun hann hafa minnzt
þeirra ummæla sinni í fjárlaga-
umræðunum á síðasta þingi^ að
Framhald á 7. síðu.
lö. þing I. N. 8.
10. þing Iðnneinasambands
Islands verður sett í Röðli í
dag kl. 2.
Þingið mun fjalla um helztu
hagsmunamál iðnnema, svo sem
iðnfræðs'u í verknámsskólum,
laun og kjör iðnnema auk
fjölda annarra mála sem fyrir
þinginu liggja.
FYISSTS SKILADAGVtt Í HAPPSSttÆTTt ÞJimVILJANS
FÉLAGAR komið á skrifsftofu Sósíalistaflokksins og skilið fyrir selda miða
i