Þjóðviljinn - 19.12.1952, Page 5

Þjóðviljinn - 19.12.1952, Page 5
'4)' — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagur 19. desember 1952 Föstudagur 19. desember 1952 — ÞJÓÐVILJINN — (3 I939WIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýöu — Sósialistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ó'.afsson, Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 18 á mánuði í Reykjavík og nágrenni: kr. 18 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljans h.f. Ráðamenn Framsóknarflokksins Undanfarin ár hefur það komið æ skýrar 1 ljós að afturhaldskurfarnir sem stjórna Framsóknarflokknum hafa litið á það sem eitt meginverkefni sitt að fjand- skapast við almenning bæjanna, ekki sízt alþýðuna í Reykjavík. Þeir hafa hamazt gegn öllum framförum og framkvæmdum til sjávar, barátta þeirra gegn nýsköp- uninni og öllum þáttum hennar var ástríðuþrungin og ofsafull, þeir kölluðu nýsköpunartogarana „gums“ og töldu það hina verstu eyðslu að verja innistæðunum til kaupa á framleiðsluta’kjum; gagntillaga þeirra var sú að einhverjir erlendir auðmenn fengju féð að láni gegn ?águm vöxtum, en síðan mætti nota vextina til ein- hverra framkværnda! Sem betur fór höfðu afturhaldskurfar þessir ekki vald til að fylgja kenningum sínum eftir þau árin, en síðan hafa þeir öðlazt þetta vald. Frá því að Stefán Jóhann Stefánsson myndaði stjórn sína í ársbyrjun 1947 hefur stefnan í innanlandsmálum æ meir mótazt af stefnu Framsóknar, en hún hefur fengið þröngsýnasta hluta íhaldsins til fylgilags við sig. Gengur nú ekki hnífur á milli Eysteins Jónssonar og Bjarna Benediktssonar ann- arsvegar og Vilhjálms Þórs og Björns Ólafssonar hins- / vegar. Það er þessi stefna sem nú hvilir á þjóðinni allri eins og mara. Skattapíninaarstjórinn Eysteinn JÓnsson hefur hamazt eins og óður við að leggja nýjar álögur á almenn- ing, þannig að fyllilega hefur sannazt sú kenning að hann telji hverja krónu, sem hann sér, vanskilafé í rík- issjóð. Óbeinir skattar eru nú hærri hér en í flestum öðrum löndum heims, og dýrtíðin hefur margfaldazt hraöar en í nokkru öðru landi sem skýrslur geta um. Nýsköpunarframkvæmdirnar allar hafa orðið fyrir ó- skoruðum fjandskap, þeim hefur verið neitað um eðli- legt rekstrarfé þannig að stórdregið hefur verið úr fram- leiðslunni, pólitíakt oístæki og skammsýni hefur drottn- að 1 rnarkaðsmálum. Þess hefur veriö sérstaklega gætt að ger'a milliliðaokrurunum sem bezta aðstöðu, og þar hafa Framsóknargæðingar verið leiddir í hásæti, en þunginn af þeirri ósvífnu fjárplógsstarfsemi hvílir nú - af ofurþunga á öllu atvinnulífi. Allt er þetta stefna Framsóknarbroddanna, og þeir hafa því sérstaklega tekið til sín uppreisn verkalýös- hreyfingarinnar gegn hinum linnulausu árásum, víð- tækustu verkföllin í sögu landsins. Og viðbrögð þeirra hafa verið einkar lærdómsrík. Það hafa einkum og sér í lagi verið ráðherrar Framsóknarflokksins sem staðiö hafa gegn öllum samningum; afstaða þeirra hefur verið sú ein að reyna aö kúga og svelta verkfallsmenn til hlýðni. Forsætisráðherrann, Staingrímur Steinþórsson, skýrði frá því við ríkissjóðsjötuna í upphafi verkfalls, að hann vonáði að það stæði í tvo mánuöi. Þessir menn sem á undanförnum árum hafa kastaö hundruðum millj- ■ óna á glæ meö þröngsýni og fjandsamlegri efnahags- stefnu láta si.g engu skipta þótt fjölmörgum milljónum cé sóað á hverjum degi í styrjöldina gegn alþýðu bæj- anna. Og í blaði sínu reyna þeir á hverjum degi að skapa hjá bændum andúð og reiði til bæjaalþýöunnar — þeirra sem kaupa afurðír landbúnaðarins. Framsóknarflokkurínn hefur langtum fleiri' menn á þingi en hann á rétt til samkvæmt atkvæðatölu sinni. Talsverður hluti atkvæðanna í siðustu kosningum kom frá friálslýndu fólki sem hélt aö enn lifði í gömlum stefnumálum Framsóknarflokksins og trúð'i á fagurgala Tímans fyrir þær kosningar. En nú dylst engum aö Fi amsoknarflokknum er stjórnað af þröngsýnustu og búralegustu stjórnmálamönnum landsins, ábyrgðarlaus- um valdastreitumönnum sem í engu skeyta um atvinnulíf- ið eða lífskjör almennings. Framkoma þeirra í verkföllun- um verður munuð 1 kosningunum næsta sumar; þá gefst gott tækifæri til að heilsa eftirminnilega upp á þá ráð- herra sem telja vopn skortsins sjálfsögðustu viðbrögö sín • við nauðvörn almennings. » ► ! i » | Lrtri in L vötn ( væru brennivíni. En Matíjcll og reikningslist. VERÐGILDI matar er tvenns- konar. Annars vegar er mark- aðsverð ólafa og benja- mína, tölur í höfuðbók. Hins vegar er gildi matar fyrir al- þýðuna, sem miðast meir við fjölda hitaeininga, eftir regl- unni því meir því betra. Hinir vísu hagfræðingar reikna mik ið. Stundum ráða þeir ekkert við tölurnar, hin mikla vís- indagrein, stærðfræðin, skipt- ir um sæti við þá, herrann verður þrællinn. — Það kem- ur á daginn að það er of mik- ið af mat og ,,of mikið“ þýðir sama og verðlækkun og þá verður allt vitlaust í gullnum höfuðbókum hins siðmenntaða heims. Og þrælar visindagrein- arinnar reikna og reikna, anda tölum að sér og frá, bilið milli steikar og grauts á borði þeirra stenzt ekki á. Og venjulega finna þeir lausn- arsteininn. Það verður að eýðileggja svo og svo mikið til þess að halda verðinu uppi. Það risa upp ný fjöll af mat sem aðrir visindamenn finna leiðir til þess að eyði- leggja af þrotlausu hyggju- viti mannsandans. Einu sinni en mosi. Reyndust þar ærnar birgðir af saltkjöti, og lá næst fyrir að gá, hvort öll ekki orðin að ekki var svo vel að landið væri orðið að floti og smjöri, svo að loksins hefði ræzt hinn glettnisfulli draumur hungraðrar þjóðar gegr.um aldirnar. Við eftir- grenslan kom í ljós að mann- legt huldufólk hafði verið á ferð á laun að næturþeli og orsökina til þessara birgða- flutninga út í hraun mátti rekja til höfuðbóka sambands ins. Hver var sá vísi maður sem hafði látið sér detta slíkt snjallræði í hug án þess að auglýsa það fyrir alþjóð. Þa'ð hafðist um síðir upp á hon- um þrátt fyrir hlédrægnina, sjálfum forstjóra sambands- ins. Það skipti engum togum, slíkan mann varð óðar að gera að bankastjóra, og í bankastjórastól lýtur þjóðin nú vizku hans. M Á L G Ö G N vísindamanna hafa hátt um þessar mundir. „Kommúnistar hindra áð blessuð bömin fái mjólk!“ Þau hafa aldrei haft mjög ast á, höfuðbækurnar sýna hátt þótt sjórinn hafi orðið hagnað og allir eru ánægðir livítur af mjólk á „normal nema alþýðan. — Einu sinni tímum,“ heldur yppt öxlum var maður á gangi í úfnu yfir eins og veðurfarinu: mjólk- hrauni á íslandi. Eitthvað in selst bara ekki, — af reyndist þar torkennilega hverju? — af því bara. Töi- mjúkt undir fótum, öðru vísi urnar skulu standa! lituðu þeir kartöfiufjöll blá. Einu sinni gerðu þeir duft af milljónum eggja og býggðu síðan hús yfir duftið. Stund- um leituðu þeir einfaldlega til sjávar í trú á orðskviðinn að, lengí taki sjórinn við. HAGFRÆÐINGUM er klappað óspart lof í lófa fyrir vísdóm sinn og sumir eru herraðir. Tölumar fara aftur að stand- ★ Um BÆKUR og anna'S ★ Ljóðasafn Breiðfjörðs — Úr bæ í borg — Iðunnarbækur — Désirée 1 dag verðum vér að breyta þessu málgagni erlendra menntatiðinda í fréttablað inn- lendra bóka, með þv: verkfallið leggur undir sig mestallt frétta- rúm blaðsins. Er fyrst frá því að segja að nú er komið út fyrsta bindið í Ljóðasafni Sigurðar Breið- fjörðs. Er þetta bindi 272 síður, og eru væntanleg 2 í viðbót. Er ætlunin að koma nú á prent meiri hluta þess sem Breiðfjörð orti i bundnu máli, að undanskildum rímum; en þó munu einnig verða birtir kaflar úr einhverjum þeirra, svó sem Númarimum. En náúð- syn þessarar útgáfu sést bezt af því að bráðum eru liðin 60 ár síðan prentað var Úrval úr ljóð- um skáidsins, og var það Einar Benediktsson sem annaðist það verk. — Sveinbjörn Sigurjónsson, magister, sér um þessa útgáfu, en hann er flestum mönnum kunnugri kveðskap Sigurðar Breið- fjörðs. Isafoldarprentsmiðja kost- ar verkið. á i ðunnarútgáfan gefur enn sem" fyrr út allmargar bækur, og skai hér fyrst nefnt síðara bindi ævisögu séra Friðriks Eggerz Úr fylgsnum fyrri aldar, en fyrra bindið kom út í hitteðfyrra. Þetta er mikið verk, um hálft fimmta hundrað síður og fylgja geisimikl- ar nafnaskrár sem umsjónarmað- ur útgáfunnar, séra Jón Guðna- son, hefur samið. Æivisaga þessi er afarauðug bók að mannlýsing- um og margskyns fróðleik, rituð mjög harðvitugum penna; en höfundurinn var mjög í stíl fornra kappa og ójafnaðarmanna, og stóð til dæmis í ævilöngum málaferlum jafnhliða prestskapn- um. Til eru þeir menn á voru landi, og eigi ómerkir, sem töldu fvrra bindi ævisögunnar merkustu bók síns útkomuárs. “á hefur Iðunnarútgáfan gefið út 2. bindi ritsafnsins Brim og boðar, frásagnir af sjóhrakn- ingum og svaðilförum, Meðal þeirra sem rita í þetta bindi eru Þórbergur Þórðarson, Sigurður Helgason rithöfundur, Gáiðmundur Hagalín og Jónas Þorbergsson. Allmargar myndir fylgja ritinu, en Sigurður Helgason hefur safn- að efninu. — Ævintýralegur flótti nefnist þýdd bók, eftir Eric Will- iams, og er kölluð á kápu „met- sölubókin heimsfræga", og lýsir hún „flótta tveggja brezkra liðs- foringja úr þýzkum fangabúðum á styrja'darárunum". Bókin er röskar 300 blaðsíður, en Hersteinn PálssoA ritstjóri þýddi. Nc lú lýkur henni Désirée í útvarpinu í kvöld, enda kemur það heim að sagan er komin út í bók, á vegum Draupnisútgáf- unnar. Þarf ekki að segja mönn- um annað af henni en það, að bókin er 316 síður í stóru broti, búin einni mestu glæsikápu sem hér hefur sézt, en kostar þó ekki nema 65 lágar íslenzkar krónur. Við skildum síðast um stjörnu- bjarta nótt á verkfallsvaktinni uppi hjá Hólmi. Það hefur lið- ið eitt dægur þegar hér er kom- ið. Við erum aftur stödd á Hverfisgötu 21. Þegar ég kem « inn er allþétt- skipað inni og það bætast stöð- ugt fleiri í hóp- inn, komnir til aðjeysa félaga sína af verði. Ekki hafði ég lengi inni verið' þegar inn vihd- ur sér einbeittur maður, saögg- ur í hreyfingum og tjáir vakt- formanninum að þeir hafi stöðv- að mann með benzíntunnu. Hafi hann brugðizt hið versta við og hóti að kæra fyrir lögregi- unni. „Hvar er hann?“ „Hann er hérna úti“. „Látið hann ekki fara. Við hringjum á lögregluna“. Tuanueigandinn er nim> spengilegasti piltur, ljóshærður Óðamála, — hvernig hann lem- ur orðir. út úr sér minnir á vængjaslátt rjúpu se:n hrakin er af hreiðri. „ÞÚ HLlTUR AD HAFA ÆTLAÐ í LANGFERГ. Hinumegin á götunni er vörubíll. Aftan á honum benzín- tunnan umdeilda. Tunnueig- andinn vill auðsjáanlega Ikom- ast af stað, en það eru komnir margir menn að bílnum. „Ég læt ekki taka af mér tunnuna!" „Vertu rólegur, lögreglan er að koma“. Bíll tunnueigandans er G 911. Svo þetta er þá nágranni okk- ar Reykvíkinga. „Hvaðan er hann?“ „Hann er frá Vallá“. Ein- mitt það. Þegar Tíminn sikýrði frá að tún eins bóndans í ná grenni Reykjavílcur hefði allt verið uppsporað eftir bilhjól benzínþyrstra manna skildu all- ir að þar var átt við Vállá á Kjalamesi. Hvers virði er eitt tún, ef hægt er að gera „mal- arskrílnum“ bölvun? „Hvers vegna ertu með þessa tunnu góði?“ „Ég á tunnuna sjálfur". „Já, við rengjum það ekki, en hvers vegna ertu með tunn- una afturá?“ „Ég ætla að nota benzínið“. „Hvert ætlarðu að fara?“ „Ég var að fara í bæinn“ „Jæja, þú hlýtur að hafa ætláð í langferð fyrst þú nest- aðir þig með tunnu, eða hvað tekur tankurinn hjá þér?“ Tunnueigandanum brást mál snilldin. „Ég læt ekki ræna mig tunnunni! Ég á tunnuna! Það er lítið á tanknum. Ég ætlaði að bæta því á.“ „Það ætlar enginn að ræna þig tunnunni. En það er verk- fall hér og afgreiðslubann á benzíni. Þú getur fyllt I bækistöð verkfallsmanna í Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu — Fólkið sem slagsmálaliði er Ýafnað gegn. (Ljósm. Sigurður Guðmundsson. Hann tók einnig myndina af Dagsbrúnarfundinum í blaðinu í gær). Á VáKTlNNI Þeir ætluðu að ræna af mér tunnunni! SKRÍMSLI DAGSINS Það voru 13ka sæskrímsli í gamla daga á Vestfjörðum. Þau eltu ríðandi menn, rifu óg slitu hesta og menn unz hrossið datt niður dautt af sárum rétt við túngarðinn, cn mennimir sluppu stimdum inn fyrir og til bæjar, flakandi í sárum eftir kiær skrímslisins. Mér varð að hugsa: Eru ekki þessar skrímslissögur gamalla daga táknrænar?. Heita skrímslin í dag fetkki okr- arar, auðmenn og braskarar, ríkisstjórn okraraana. Eru það ekki einmitt þessir aðilar sem, í nafni laganna er þingmeua afturhaldsins setja, píaa alþýð- una unz hún er að þrotum komin? 1 gamla daga skutu þeir skrimslin fyrir vestan með vígð- um silfurhnöppum. Vopaið gegn skrímsli auðvaldsþjóðfé- lagsins heitir samheldni alþýð- unnar. tankinn og farið svo með tunn- una heim til þín, —■ við skul- um fylgja þér upp fyrir bæ- inn. Annars tökum við benzínið í geymslu þangað til verkfallið er búið“. „Það geri ég ekki. Ylkkur varðar ekkert um tunnuna. Ég á tuíinuna! Þið fylgið mér ekk- ert!“ En nú renndi lögreglubíllinh upp götuna og staðnæmdist, og flestir þyrptust þangað. Tunnueigandinn hóf nú máls: „Þessir menn ætla að ræna af mér benzíntunnu“. „Uss, það mega þeir ekki“, heyrðist mér vörður laganna segja inni í Svörtu Maríu. Var nú vaktformaðurinn til Ikvaddur að flytja sitt mál. Var málið um stund rætt frá báðum hliðum, töluðu margir í senn, allt fundarform farið í veður og vind. „Þú ætlaðir að selja benzín- ið!“ sagði sá er tilkynnt hafði töku benzíntunnunnar. „Nei, cig ætla að nota það sjálfur?11 „Hversvegna fórstu þá á af- vikinn stað þegar þú sást okk- ur ef þú hélzt ekki að við mynd- um vilja kaupa benzín og þú gætir selt það? Eða hélztu að við værum verkfallsverðir, viss- ir uppá þig sikömmina og ætl- aðir að fela þig?“ „OG NU BIÐ ÉG YKKUR AÐ AÐSTOÐA MIG SVO ÉG VERÐI EKKI RÆNDUR!“ „Gerði hann það? Fór hann á afvikinn stað þegar hann sá ykkur?“ spurði vörður lagantia inni í Svörtu Maríu. „Já, vist gerði hann það“, svaraði verkfallsvörðurinn. „Já, en þið ætluðuð að ræna af mér benzíntunmmni. Hefð- uð rænt mig tunnunni ef ég hefði ekki hringt á lögregluna“. „Það var ég sem hringdi á lögregluna ea ekki þú“, var sagt í hópi verkfallsmanna. Nú þurfti lögreglan eitthvað frekar að ræða við verkfalls- mennina. Ljóshærði tunnueig- andinn fór að gá að tanmmni sinni. Jón Rafnsson sem þama var kominn fór nú að mann- inum með blíðu. „Já, en ég vil enga helvítis ókurteisi", sagði tunnueigand- inn.“ „Voru þeir ókurteisir?“ spurði Jón með samúðarfullri röddu, „menn eiga að vera kurteisir“. Það var sem hun- ang drypi af vörum Jóns. „Já, ég segi það“, sagði tunnueigandinn. „Þeir ætluðu að taka af mér tunnuna“. „Já, mikil ósköp, menn eiga að vera kurteisir. En þú mátt ekki vera að flækjast með tunn- utia hér niðri í bæ, það er e>kki kurteisi í verkfaili", og nú klappaði Jón manninum á herð- arnar. Tunnueigandfnn, sem rétt var að byrja að brosa af því að hafa hitt svona skilningsríkan mann, harðnaði aftur á brún við síðustu orðin og þaut að lögreglubílnum. „Er ekki lögreglan til að sjá um að menn séu ekki rændir“, spurði hann. „Jú, jú“, var svarað inni í svarta kassanum. „Þá bið ég ykkur að aðstoða mig svo að ég verði ekki rændur tunnunni!" sagði ljóshærði pilt- urinn. Ég heyrði ekki betur en inni í svarta kassanum væri svarað: „Já, en það er verkfail góði og við megum ek!ki skipta okk- ur af verkföllum“. Unga hraustlega andlitið á tunnueigandanum var allt í einu orðið gamalt þegar hann labb- aði aftur með lögreglubílnum eftir þetta svar. Að nokkurri stundu liðinni voru verkfailsverðir búair að út vega tunnueigandanum slöngu og farnir að hjálpa honum að setja benzínið á bíltankinn. Nú vildi hann það. Síðan var hinn ijóshærði scaur bóndans á Vallá farinn og allt var kyrrt um stuad. útlendan mælikvarða er Reykjavik ofurlitill hafnarbær á leiðinieg'um stað. 1 vorum augum er hún stórborg sem gæðir skáld- legu lífi jafnvel hraunin í ná- grenninu. Nú hefur sá maður sem um langt skeið átti einna drýgst- an þátt í ýmsum framkvæmdum í Reykjavík gefið út bók þar sem lýst er í ýtarlegu máli aðdrag- anda ’ þessara framkvæmda, bar- áttunni fyrir þeim og hvernig þau komust í höfn. Vér erum að ræða hér um endurminningar Knuds| Zimsens, fyrrum borgarstjóra, j Úr bæ í borg, en þær eru einmitt nýkomnar út í myndarlegri útgáfu Helgafells, 400 síður í stóru broti, auk fjölda mynda frá ýmsum tím-l um bæjarins. Lúðvik Kristjánsson, j ritstjóri hefur fært bókina í let-j ur; en höfuðkaflar bókarinnar heita svo: Svipmyndir úr byggð- arsögu Reykjavikur, Vatn í bæinn eða bæinn að vatni, Reykjavíkur- höfn, Ljós og hiti, Þegar hus ná- grannans brennur er mínu hætt (um brunavarnir) og Hollusta og heilsurækt. — Mörgum ætti að leika forvitni á þessari bók. Um kvöldið, er fyrstu stjörnurnar tendr- uðust á grænum himninum, gekk Hodsja Nasreddín með leirkrukku í 'hendinni i áttina til varðanna er gættu dyranna að kvennabúrinu. Verðirnii veittu honum ekki athygli, en voru önnum kafnir að horfa á stjörnuhrap og ræddu um hvert hinar hrapandi stjörn- ur færu. Þær detta sjálfsagt í sjóinn, sagði einn. Halló, hraustu hermenn, hrópaði Hodsja Nasreddín inn í samtal þeirra: Kallið þegar á kvennabúrsstjórann og segið honum að nú sé ég kbminn hér með meðalið handa sjúkú konunnú Kvennabúrsstjórinn kom og tók virðingar- fyllst við leirkrukkunni, en í henni var ekki annað en vatn með uppleystum krít- armola. Hodsja : Nasreddín útskýxði ná- kvæmlega hvernig ætti að nota lyfið, , „EN ÉG LÁNA HANN EKKI!“ Mennirair á verkfallsverðin- um eru bókstaflega talað öllum landshlutum. Það eru líka Kjalnesingar á vehkfallsvakt. Því heyrði ég eftirfarandi þjóð- sögu ofan af Kjalarnesi. Bóndinn á Vallá á Kjalarnesi kom frá Reykjavík á bíl. Hann var fullur; ók út í skurð þegar hann átti skammt ófarið heim. Ndkkru síðar kom sonurinn þar á öðrum bíl og staðnæmdist þegar hann sá föðurinn húka úti á skurðbakka. „Á ég að kippa þér upp pabbi?“ sagði sonurinn. „Ha, kippa mér upp? — Já, þú mátt það“, mælti faðirinn. „Hefurðu spotta?“ spurði sonurinn. „Já, ég hef kaðal, — en ég iána hann ekki“. Sonurinn ök þegjandi heim. Faðirinu sat eftir á skurðbakkanum. Og nú hafði sonurinn verið hér og þrásagt: ,Ég læt ekki taka af mér tunnuna". Garpar miklir, faðir og scnur. ARNLJÓTUR Á R-277 Það er margt spjallað með- an beðið er eftir vaktaskiptum. Það hefur ýmislegt gerzt. Maður er nefndur Arnljótur. Hann ekur bílnum R-277. Verk- fallsverðir stöðvuðu hann á leið í bæinn. Opnuðu hurðina, buðu gott kvöld, litu aftur í bílinn, buðu góða nótt. Arnljótur hefur í mesta lagi tafizt í 2 mínútur. Stundu síðar kom lögreglan. Arnljótur á R-277 .hafði kært! Hann kvað vera ft'lagsmaður í Bifreiðastjórafélaginu Hreyfli. ÞAR SKERA ÞEIR DRAUGANA 1 þetta sinn fer ég með varð- mönnumun á Krýsuvíkurvegin- um. Þessi engjavegur Émils þótti nú koma í góðar þárfir sem smyglbraut. v 1 myrku hrauninu berst tal- ið að draugasögum. Vestfirðing- ur segir hverja draugasöguna af annarri svo óhörðnuðiun mönnum rennur kalt vatn milii skinns og hörunds. Á ég að segja ykkur hvað maðurinn sagði: Það er ekki mannsaldur síðan þeir skáru draugana á háls fyrir vestan! Það er eog inn leikur að vera draugur með al Vestfirðinga. ANDLIT UM DIMMA VERFALLSN ÓTT Timinn liður fljótt við rabb. Það eru' komnir ■ menn til a5 leysa okkur af. Ulpuklæddir menn líta inn til okkar og heilsa. 1 daufu ljósinu í bílnum sjáum við andlit undir slútandi hettum. Einn talar kunnuglega við mig, er svo farinn. „Hver er þessi?“ spyr einn félagi minn. „Þetta er hann B. B. hjá Þjóðviljanum", svarar annar. „Já, hann Bjarni frá Hofteigi, íivort ég hef lesið greinarnar hans!“ Þannig hittast lesentíur og blaðamenn Þjóðviljans um ur myrka verkfallsnótt. EINNIG FYRIR ÞAU Við ökum heim gegnum Hafn- arfjörð sofandi. Nei, það voru tvö heit og hress á tilhugalífs- Framhald á T. síðu. Hvað gerir stjóra Bifreiðastjórafé- lagsins Hreyfils? Þannig spuming var í blað- inu í gær, og þannig spuming var á vörum margra manna í gær. Það er ósköp létt að svára þessari spurningu. Þa3 sem stjórn Hreyfils gerir er að halda áfram að smygla benz- íni og mjólk í bæinn og gæti ég trúað að þeir úr stjórninni sem ekki hafa ennþá farið í þannig smyglferðalag eigi það aðeins eftir. Ymsir bílstjórar úr sjálfseignardeild Hreyfils eru óstéttvísustu félagar sem fyrirfinnast í þessum bæ, og er merkilegt að ekki skuli vera fyrir löngu búið að reka þá úr launþegafélagi, því þar eiga þeir ekki heima og hafa aldrsi átt. Þeir fylgja yfirleitt at- vinnurekendum að málum, enda eru þeir frekár tiiheyrandi þeim þar sem þeir eiga suœir hverjir 3 bíia í atvinnu. Á ný- afstöðnum fundi hjá þeim þar sem þeir neituðu að hef ja sam- úðarvinnustöðvun með öðrum félögum og einni deild úr sínu félagi, samþykktu 1S þessara manna að verkfailið stæði sem lengst og voru þeir flestir af B. S. R. Þaðan voru þeir einnig flest- ir í umtalaðri smyglferð. Ef nokkur dugur er í Aiþýðu- sambandsstjórninni skora ég á hana að hegna þessum verkfallsbrjótum úr Hrcyfli. Þeir eiga það fyililega skllið mennirnir sem mata krókinn þegar aðrir svelta. En að stjórn Hreyfils geri nokkuð, það þarf enginn að láta sér detta í hug, til þess er hún of duglaus og þá sérstak’ega formaðurinn, enda voru tveir stjóraai-meðlimir í þessarí þokkalegu næturiðju. Strætisvagnabílstjóri. Jj

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.