Þjóðviljinn - 10.02.1953, Síða 7
Þriðjudagur 10. fpbrúar 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (7
Þegar stjórn Mllt bað mig
um að segja hér nokkur inn-
gangsorð og varð ásátt um að
kalla þau: Eru Gyðmgaofsókn-
ir austan járníjalds? — þá varð
mér það fyrst ljóst, hve auð-
valdsáróður nútímans, hið æru-
lausa níð um alþýðuríkin, er í
raun og veru orðinn fáránleg-
ur. Mig hefði aldrei grunað, að
ég þyrfti að flytja ræðu með
slíkri fyrirsögn. En svo ennis-
lágur er rógurinn orðinn, að
það virðist sem þess sé þorf.
En þessi rógur veitir manni
þió eina huggun: hann ber vott
um, að vopnabúr áróðursins
gegn alþýðuríkjunum eru orð-
in æði fátækleg, að áróðurshá-
vaðinn fer fram á kostnað
frumlegra áróðurshugmynda.
Þegar öskurapar heimspress-
unnar bera þau tíðindi út um
heiminn, að kommúnistaflokk-
ar austan járntjalds hefji Gyð-
ingaofsóknir, þá mundi mann
helzt langa til að hlæja að slík-
um áburði, ef hér væri ekki um
mál að ræða, sem er allt ann-
áð en hlátursefni. Gyðingaof-
sóknir okkar aldar eru nefni-
lega með þeim hætti, að öll
sápa tilverunnar mundi ekki
nægja fyrirsvarsmönnum krist-
innar menningar til þess að
þvo af tunni þann blett. En
hinu má’^cki gleyma í þessu
sambandi, að um langan aldur
hefur það veriö tízka í heimi
vestrænnar kristinnar menning-
ar, að leggja Gyðingdóm og
kommúnisma að jöfnu, að gera
verkalýðshreyfingu nútímans og
þær byltingar, sem siglt hafa
í kjölfar hennar að myrkra-
verkum Gyðingdómsins, að þátt-
um í fyrirætlun hins júðska
kynstofns um að leggja undir
sig heiminn. Þessar hugmynd-
ir um samhengi Gyðingdóms
og kommúnisma hafa alls ekki
verið einkaeign nazismans, þær
hafa gengið Ijósum logum í
borgaralegum flokkum, sem að
minnsta kosti þessa stundina
telja það heppilegra að afneita
frændsemi sinni við nazismann.
Um 2000 ára skeið hefur
Gyðingaþjóöin verið dreifð eins
og duft um þessa jörð, tvístr-
uð, ofsótt leynt og ljóst, á sí-
felldum flótta fyrir fjandmönn-
um sínum, einkum og sér í lagi
hinum sannkristnu ful'trúum
fagriaðarerindisirís. En þctta
hundelta flóttafólk veraldarsög-
unnar hefur sennilega lagt ríf-
legri skerf til heimsmenning-
arinnar en flestar aðrar þjóðir.
Gyðingar gáfu kristnum mönn-
um guð sinn, son hans anda
helgan og allar ritningarnar.
Þetta virðast kristnir menn
aldrei ætla áð fyrirgefa þeim.
En Gyðingar hafa auk þess
unnið mörg mestu afrek. sem
um getur í sögunni á sviði vís-
inda og lista, og þar sem
þeir hafa átt kost á því að
slita þá fjötra, er lagðir voru
á þá fyrir sakir þjóðemis þeirra
og trúar, hafa þeir orðiö boð-
berar réttlætisins og rist djúpt
plógfar í þeirri sögu mannkyns-
ins, sem fjallar um mannlegt
frelsi. Enginn kommúnisti
gleymir því, að höfundur hins
visindalega sósíalisma, Karl
Marx, var Gyðingur að ætt,
kominn af rabbínum að lang-
feðgatali. Þegar barizt hefur
verið fyrir málstað mannsins,
hvort sem það' var í verkalýðs-
hreyfingunni eða í öörum frels-
ishreyfingum mannanna, hafa
nöfn júðskra manna jafnnn
tindrað á festingunni. Þótt ekki
væri nema fvrir þá sök. þá er
sósíalistum austan tjalds og
vestan og öllum frelsisunnandi
mönnum skylt að minnast Gyð-
inga með þakklæti og virðingu
og ganga fram fyrir skjöldu
hverju sinni, ér gengið er á
rétt þessa harmkvælafólks sög-
unnar. Sósialistar og kommún-
istar austan jámjalds og vest-
SVERRIR KRISTJÁNSSON;
Eru Gyðingaofsóknir
austan járntjalds?
an hafa jafnan gert þessa
sjálfsögðu skyldu og gera það
enn.
I flestum þeim löndum, sem
nú eru í hópi hinna sósíalísku
alþýðulýðvelda, hafa Gyðinga-
hatur og Gyðingaofsóknir ver-
ið mjög tíðar og ógeðslegar
á þeim tímum, er þessi lönd
lutu ekki stjórn guðlausra
kommúnista, heldur var stjórn-
að af sannkristnum mönnum,
leikum sem lærðum. Rúss-
neska keisarastjórnin var læri-
meistari nazistanna þegar um
það var að ræða að afvegaleiða
almenning og snúa reiði hans
gegn Gyðingum. Þegar Pól-
land varð sjálfstætt ríki eft-
ir hina fyrri heimsstyrjöld,
létu hinar sanntrúuðu og
kaþólsku pólsku yfirstéi tir það
verða sitt fyrsta verk að hef ja
ofsóknir gegn Gyðingum, og
minntust svo sinnar frelsis-
töku. Og þó var allt þetfa
barnaleikur samanborið við
það, sem síðar varð. Árið
1939 bjuggu 9,600,000 Gvöing-
ar í þeim löndum, sem þýzki
nazismínn drottnaði yfir á
stríðsárunum síðari. Árið 1945
voru eftir í þessum löndum
3,900,000. Meira en hclming-
ur allra Gyðinga í Evrópu
hafði verið myrtur. AA þessu
verki stóðu forráðamenn þjóð-
ar, sem taldir voru af kristn-
um yfirstéttum vestan hafs
og austan styrkasta f.amvirki
kristinnar vestrænnar menn-
ingar. Og í dag er verið að
vopna þetta kristna Þýzkaland
á nýjan leik, og enn á ný er
okkur sagt, að Vesturþýzka-
land sé 'síðasti útvörður krist-
innar menningar, morðingjar
Gyðinga ganga þar ekki að-
eins lausir, þeir skipa valda-
mestu stöðurnar í her lög-
reglu, stjórnarvörzlu og at-
vinnulífi Vesturþýzkalands, og
um lágnættið ganga nazistar á
kirkjugarða Gyðinga þar í
Iandi og raska ró þeirra sem
þar hvíla og krota klám á
legsteina þeirra. Og það eru
fulltrúar þessarar menningar,
sem dirfast að Ijúga Gyðinga-
ofsóknum á alþýðuríkin, þau
ríki, sem hafa í fyrsta skipti
T-°’tt mönnum af júðsku kyni
fullt félagslegt jafnrétti í
Austurevrópu og hafa öll í
stjórnarskrám sínum refsiá-
kvæðí gegn hverjum þeim, er
gerir sig sekan um virkan
kynþáttaáróður eða reynir að
vekja hatur manna af ólíku
þjóðerni innan vébanda rikis-
ins. Það má sannarlega vera
auðtrúa sál og sauður, sem
getur í alvöru lagt trúnað á
svo hundflatan áróður!
í raun og veru er ekki orð-
um eyðandi að þessum fregn-
um um ofsóknir gegn Gýð-
ingum í alþýðuríkjunum. Þeg-
ar staðhæft er, að alþýðurík-
in hafi byrjað Gyðingaofsókn-
ir vegna þess, að nokkrir Gyð-
ingar hafa orðið sannir að sök
um glæpi gegn guðs og manna
stríði. Af henni má einnig
sjá, að samsæri auðvaldsrikj-
anna gegn heimi sósíalismans
færist æ í aukana og verður
því trylltara sem lengra líður.
Allt frá því að Ráðstjórn-
arríkin urðu til hefur aldrei
linnt á þeirri viðleitni að
grafa grundvöliinn undan
þjóðlélagi þeirra innan frá.
Þegar alþýðuríki A-Evrópu og
Asíu bættust við hinn sósí-
alíska heim varð sóknin enn
æðisgengnari. Fjandmenn al-
þýðulýðveldanna vita það vel,
að þessi ríki verða ekki unnin
og var veitt 100 millj. dollara
fjárfesting, sem nota skal til
ao veita fé fólki, sem býr í
Ráðstjórnarríkjunum og al-
þýðulýðveldunum, eða er að
fara þaðan. Fénu skal varið
.til þess að stofna herdeildir
með þessu fólki til stuðnings
Atlanzhafsbandalaginu „eða til
annarra þarfa“.
Bandaríski þingniaðurinn
Charles Iíersten, sem var
flutningsmaður frv., bætti því
við í ræð-u á þingi, að auk
þess skyldi verja fénu til þess
að „styrkja menn austan Járn-
tjaldsins, er kunna að vinna
að því að kollvarpa stjómum
kommúnista“. Þetta væri að-
ferð, er Bandaríkin gætu beitt
til þess að hjálpa neðanjarð-
arhreyfingum þeim, sem and-
vígar eru valdhöfum alþýðri-
ríkjanna; Hinn nýi utanríkis-
ráðherra Bandaríkjanúa, Jolin
Foster Dulles, lýsti því yfir
við utanríkismálanefnd öld-
ungadeildarinnar hinn 15. jan-
úar síðastl., að það yrði að
vera fremsta markmið amer-
ískrar utanríkisstefnu að
,,frelsa“ hinar undirokuðu
þjóðir austan járntjalds. ,,Við'
getum framkvæmt þetta án
styrjaldar", sagði hann. ,,Það
verður að finna önnur ráð til
þess að komast að þessu
marki.“
Margir kunnustu og álirifamestu leiðtogar alþýðuríkjanna eru af Gyðingaættum.
Hér sjást þrír þeirra: Rakosi forsætisráðherra Ungverjalands, Kaganovitsj einn af
varaforsætisráðherrum Sovétríkjanna og Ehrenburg, rithöfundurinn heimsfægi sem
fékk friðarverðlaun Stalíns fyrir nokkrum vikum.
lögum í Ráðstjórnarríkjunum
og Tékkóslóvakíu, þá er það
álíka sannleikur og staðhæf-
ing nazista og þeirra fylgjara,
að verkalýðsbyltingarnar séu
verk Gyðinga. Báðar þessar
staðhæfingar bera þjófsmark
blekkingarinnar á kinnum sér.
Ásökunin um Gyðingaofsóknir
í alþýðuríkjunum er einn þátt-
ur í því kalda stríði, sem
Vesturveldin, Bandaríkin fyrst
og fremst, heyja nú gegn
heimi sósíalismans. Þessi á- •
kæra er ljósasti vottur þess,
hve hitnað hefur í þessu kalda
í heiðarlegri pólitískri baráttu.
Það verður aðeins unnið á
þeim með svikum og samsæri
og öðrum myrkraverkum. Það
vill raunar svo vel til, að hin-
ir málglöðu Bandaríkjamerm
eiga ákaflégá' erfitt rriéð að
þegja yfir fyrirætlilnum sín-
um. Þeir segja hreinskilnis-
Iega frá hlutum, sem ætla
mætti að heyrðu undir ríkis-
leyndarmál. Jafnvel fjárlög
Bandaríkjastjórnar geta ekki
þagað yfir þeim. I okt. 1951
voru sett lög í Bandaríkjun-
um um Sameiginlegt öryggi
Talið er að þýzku
nazistarnir hafi
myrt 6 millj. Gyð-
inga. — Nú eru
Vesturveldin að
hefja leiðtogn naz-
ista til nýrra valda
í heimalandi sínu,
svo að unnt sé að
hefja sömu verkin á
nýjan leik.
Ekki ófínna tímarit en Wall
Street Journal gat þess 13.
des. síðastl., að það væri
stefna Bandaríkjanna austan.
jámtjalds að vinna að
skemmdarstarfsemi í verk-
smiðjum og atrinnulífi, lauma
fölsuðum skömmtunarseðlum
og fölsuðum peningum inn i
þessi lönd, og stofna svo til
uppþota og óeirða. Blaðið
bætti því vi'ð, að það væri vax-
andi skoðun í utanríkisráðu-
neyti Bandaríkjanna, að ef
Tékkar, Pólverjar eða Ung-
verjar gerðu uppreisn gegn
stjórnum sínum, þá ættu
Bandarikin að skerast í leik-
inn með vopnum, svo sem þau
gerðu í Kóreu.
Þegar Bandaríkin eru ekki
myrkari í máli um fyrirætlan-
ir sínar, þá finnst mér það dá-
lítið skrýtið er menn undrast
það, að menn séu dregnir fyr-
ir lög og dóm í löndum aust-
an járntjalds. sannir að sök
unj landráð • og skemmdar-
starfsemi. Og því sterkara
sem skipulagið er og þrosk-
aðra í þessum löndum, því lík-
legra er, að sökudólga megi
finna í æðstu stöðum þessara
ríkja, svo sem var um Slan-
sky, fyrrum ritara kommún-
istaflokksins. Menn mega ekki
gleyma því, að þvi styrkari
sem alþýðuríkin verða, þvi
hamslausari og ævintýralegri
verða þær a'ðferðir, er auð-
valdið beitir til þess að koma
Framhald á 11. síðu.