Þjóðviljinn - 19.02.1953, Page 6

Þjóðviljinn - 19.02.1953, Page 6
E) — ÞJÓÐVILJINN — Fknmtudagur 19. febrúar 1953 þióoyiuiNN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurínn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Biaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 línur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljanc h.f. Úrslitin í Dagsbrín Dagsbrúnarmenn hafa einu sinni enn rekið af höndum ser sundrungardraug afturhaldsins, sem að þessu sinni birtist þeim j mynd AB-klíkunnar, sláandi um sig með róttækum slagorðum, en með það eitt í huga að sundra röðum reykvískra verkamanna og lama Dagsbrún, forustufélag verkalýðshreyfingarinnar og öflugasta vígi vinnandi stéttanna í landinu. ★ Úrslit Dagsbrúnarkosninganna sýna hve traustum fótum fylgi verkamanna við stefnu stéttarlegrar einingar í verkalýðsmálum stendur innan iþessa öndvegisfélags. Þrátt fyrir lævísan undirróð ur og margra mánaða skipulagðan róg um stjórn félagsins stend- ur hún eftir þær sterkari og með öruggara fylgi að baki en oftast áður. Séu síðustu kosningar í félaginu teknar til saman- burðar kemur í ljós að fylgi stjórnarinnar hefur aukizt úr 63.4% gildra atkvæða 1952 í 66.3% í kosningunum nú. Vegtna minnk- andi kjörsóknar, sem stafar af fjarveru verkamanna úr bæn- cm, var þátttaka nú 187 atkv. minni en í fyrra. Við það lækkaði stkvæðamagn A-listans um 66 atkv. en andstæðinganna um 121. ★ Þetta eru staðreyndir um úrslit Dagsbrúnarkosninganna. En það eru til menn sem eiga erfitt með að viðurkenna þær og f-ætta sig Við orðinn hlut. Það eru AB-mennirnir, sem að þessu sinni voru látnir bera merkið fyrir klofningsbröltinu. Dag eftir dag birtast í AB-blaðinu skrúðmálgar frásagnir um ,,sigra“ og . .straumhvörf“ sem orðið hafi í Dagsbrún. Þó hefur AB-blaðið tnn ekki gefið út opinbera tilkynningu um að það hafi svift sameiningarmenn málfrelsi á fundum Dagsbrúnar en það var eitt of kosningaloforðum klíkunnar meðan henni svall mestur móður í . brjósti. Ber þetta vott um óskiljanlega hógværð og tillitsemi eftir „sigurinn“ og straumhvörfin", sem AB er svo tiðrætt um' þessa dagana. ★ Það sýnir glöggt þroska og stéttvísi Dagsbrúnarmanna hve cirugglega ;þeir skipa sér um fbrustu sína eti vísa skemmdaröfl- unum á bug. Væri AB-blaðinu og aðstandendum þess áreiðanlega boliast. gð gera sér ljóst að þessi forustusveit íslenzkra verka- ananna er nú ráðnari i því en nokkru sinni fyrr að veita þeim aldrei aðstöðu til að leika Dagsbrún á sama hátt og 1941, þegar þeir leiddu smánarlegan ósigur yfir félagið og skildu við fjár- bag þess í rústum. Verkamenn hafa ekki gleymt þeirri niður- lægingu sem þeir urðu að þola þá fyrir svik og spellvirki AB- broddanna. Það sýna m. a. úrslit stjómarkjörsins nú. ★ AB-menn hafa í frammi tilburði til að gera hlut sinn betri en hann raunverulega er, með því að afneita stuðningi Ihaldsins. Hins vegar hefur ekki að þeim hvarflað að bera af sér atfylgi Framsóknarforustunnar! Eru tilraunir þeirra til að breiða yfir stuðning Ihaldsins allar hinar broslegustu og „rekur eitt sig á annars horn“. T. d. heldur AB-blaðið þvi fram í fyrradag að aðeins 7% íhaldsmanna hafi ikosið. 1952 fékk íhaldslistinn 392 stkv. og ættu þá 27 ihaldsverkam. að hafa kosið nú. Vita allir sem með kosningunni fylgdust að þetta er staðleysa sem á sér enga stoð 1 veruleikanum. Þátttaka íhaldsverkamanna var fast að því jafn mikil og í fyrra og enginn sem til þekkir efast um að flestir þeirra hafa skilað sér á klofningslistann. ★ I dálkum sínum í AJB-blaðinu í gær kemst svo verkalýðsmála- térfræðingur AB-flokksins að nokkuð annarri niðurstöðu. Kveð- ur hann 250 íhaldsmenn hafa setið heima. Ættu samkvæmt þvi 142 að hafa kosið. Hefur talan þannig hækkað nokkuð á annað hundrað á einum degi. Þannig er samræmið i frásögnum og mál- fiutningi AB-klíkunnar. ★ Eitt snjallasta kímniskáld þjóðarinnar kvað eitt sinn svo um vestfirzkan bónda og alþingismann, sem þótti drýgri með sig og meir á lofti en eftii stóðu til: „karlinn er hrifinn af sjálf- i.m sér og sýnist hann vera stærri en hann er ....“. Á þessi Jýsing vissulega vel við AB-flokkinu eins og málflutningi hans er nú háttað. Ung hfón andspænis dauðamim Dómurinn yfir Rosenberghjonunum á sér ekkert fordœmi og hvílir á fortryggi- legum forsendum "K'yrir aldarfjórðungi hreif mál tveggja bandarískra alþýðumanna til sin athygli alls heimsins. Dómstólar Mass- aehusettsfylkis höfðu dæmt ítölsku innflytjendurna Nicola Saeco og Bartolomeo Vanzetti til dauða. Þeir neituðu stað- fastlega sekt sinni og það var fyrir löngu augljóst að þeir sína og spurði: „Mamma, ertu sek eða saklaus?“ Ethei svar- aði: ,,Við erum saklaus, ann- ars myndum við ekki þjást eins og við gerum“. að er ægileg staðreynd, að hefðu Rosenberghjónin játað sakargiftunum, sem á þau eru bornar, væri þeim Ethel og Julíus Rosenberg á leið í fangelsið eftir dómsuppkvaðninguna. voru hafðir fyrir rangri sök. Glæpur þ-eirra var sá að vera stjórnleysingjar, andstæðir þjóðskipulagi Bandaríkjanna. I öllum menningarlöndum reis hreyfing til að bjarga lífi Sac- co og Vanzetti. En yfirvöld- iri' i Massachusetts skelltu skolleyrum við öllum bænar- skrám og áskorunum. Um óttubil 23. ágúst 1927 voru hinir dæmdu menn leiddir í rafmagnsstólinn og raf- straumnum hlejpt í gegnum líkami þeirra. Nú er það við- urkennt af öllum að þarna var framið dómsmorð. Thayer dómari, sem kvað upp dauða- dóminn yfir Sacco og Vanz- etti, er einhver fyrirlitnasta persóna í bandarískri réttar- sögu. Aftaka þeirra er nú skoðuð hámark ofsóknaröld- imnar gegn öllum róttækum hreyfingum í ^Bandaríkjunum eftir heimsstyrjöldina fyrri. ú stendur yfir lokaþáttur annars bandarísks réttar- farshannleiks, jafnvel enn á- takanlegri þeim er settur var á svið í Boston fyrir 25 árum. Eisenhower forseti hefur hafn- að beiðni hjónamta Edit.h og Julius Rosenberg um náðun og Irving Kaufmari dómari hafði ákveðið að þau skyldu láta Hfið í rafmagnsstóhrum í Sing Sing fangelsinu í vik- unni sem hefst 9 marz. en áfrýjunarréttu- hefur nú framlengt þann frest ti'. 30. marz. Þeim fyrirmælum verð- ur framfylgt nema forsetir.n taki afstöðu sína til endur- skoðunar eða Hæstiréttur Bandaríkjanna leyfi endur- uppt.öku málsins. — Emanuel Bloch verjandi hjónanna fékk að fara með syni þeirra VIic- hael níu ára gamlan og Ronn- ie fimm ára. í tveggja klukku- stunda heimsókn til foreidra sinna í klefa dauðadæm.tra í Sing Sing á laugardap.inn. Þegar leið að lokum samveru- stundarinnar leit Michael. sem veit hvað vófir ‘yfir, á móður tryggt líf. Kaufman dómari og Eisenhower forseti hafa báðir lýst yfir að meginástæð- an fyrir því að ekki komi til mála að þyrma lífi þeirra sé að þau „sýna ekki nein iðr- unarmerki". — Hjónin voru dæmd til dauða fyrir ,,sam- særi um að fremja njósnir í Erlend | tíðin di | þágu Sovétríkjanna“. Ekki eitt einasta sönnunargagn gegn þeim var lagt fram í réttinum. Dómurinn hvílir al- gerlega á framburði vitna, sem sjálf áttu dóm eða á- kæru yfir höfði sér en sluppu með milda dóma eða viö máls- höfðun fyrir vitnisburð sinn gegn hjónunum. Þau eru: Max Elitcher. Hann var uppvís að meinsæri en hefur ekki verið ákærður. Hjónin Ruth og Da- vid Greenglass. David er bróð- ir Ethel Rosenberg. Milli Greenglasshjónanna og Rosen- berglijónanna var fullur fjand- skapur út af peningamálum áður en njósnamálið kom upp. Greenglasshjónin hafa bæði iátað á sig njósnir. David var dæmdur í 15 ára fangelsi (má eiga von á að verða lát- inn laus eftir að hafa setið inni í átta ár) og Ruth var ekki einu sinni ákærð. Af sjö manneskjum, sem dregnar hafa verið fyrir lög og dóm fyrir aðild að þessu kjarn- orkunjósnasamsæri hafa þau fimtn sem játuðu s'oppið með fangelsisdóma eia a’ls ekki verið ákæró. Rosenberghjón- in. sem alltaf hafa haldið f nm saldevsi sinu. eiga líf- lát fyrir höndum. Jgkki er nóg með það að vitnin gegn Ethel og Juli- us Rosenberg séu tortryggi- leg, svo ekki sé tfekið dýpra í árinni. Vitnisburð þeirra hafa sérfræðingar nefnt fáránleg- an. Kjarnorkufræðingar í USA og Bretlandi hafa gefið vott- orð um að frásagnir David Greenglass af „kjarnorku- leyndarmálum", sem hann segist hafa afhent Rosenberg- hjónunum. séu fjarri öllum sanni, að svo miklu leyti sem þau eru ekki fjarstæður sé ekki um að ræða leyndarmál heldur vitneskju, sem verið hefur á vitorði allra kjarn- eðlisfræíinga í heiminum áz-- um saman. ®é þetta haft í huga verða orí Kaufmans dómara er hann kvað upp dauðadóminn yfir hjónunum enn fjarstæðu- kenndari en ella og er þó varla á bætandi. Hann mælti úr dómarasætinu: „Glæpur ykkar er verri en morð. Ö- mengað, yfirvegað rnorð, framið að yfirlögðu ráði, er sem ekkert í samanburði við þann glæp, sem þið hafið framið.... Eg álít að sú hegðun ýkkar að fá Rússum kjarnorkusprengjuna í hend- ur. . . . hafi þegar valdið árás kommúnista í Kóreu, sem af hafa þegar hlotizt bani eða meiðsli 50.000 Bandaríkja- manna.... Á því er enginn efi að með svikum ykkar haf- ið þið breytt rás mannkyns- sögunnar landi ykkar í óhag.. . . Ég álít að ég verði að kveöa upp yfir aðal mönnun- um í þessu djöfullega sam- særi um að koma guðhræddri þjóð á ka’dan klaka dóm, sem sýni í eitt skipti fyrir öll að öryggi þessarar þjóíar má ekki skerða“. W"'~: ’TVyllingsleg ræða dómarans ® ber það með sér. að hér er ekki um að ræða dóm kveð- inn úpp að vel yfirveguðu máli. Þetta er ógnardómur, byggður á vafasömum for- sendum og jafnvel þótt þær væru óvéfengjazilegar rétt- læta þær ekki þunga refsing- arinnar. Fjarstæður Ka,uf-. mans dómara um að sending uDplýsinga, sem viðurkennt er að standa í öllum nýrri fræði- ritum, bafi valdið Kóreustrzð- iniv liggja í augum uppi. En };nð er ekki einu sizini sannað að Ethel og Julius Rosen- berg hafi átt neinn þátt i að senda þessar upplýsingar. Jer- ome Fra-zk, dómarí i áfrýpm- arrétti sakamála í Bandaríkj- unum, viðurkennir þetta í úr- sknrði sínum. Hann segir: ..Hefði réttur þessi vald til bess (að bi'evta dómnum) kvnni hann að taka tillit til þess að sönnunai'gögnin um atfez'li Rosenbe"ghjónarma. . . koma næstum eingöngu úr vitnisburði samsekra“. Ak sínum tima voru Sacco og Vanzetti fómarlömb ofsóknarmðís geg>z fólki, sem 'nr andvígt stjórnskipan Bandarílcjanon. Þe«su er eins farið. með Rosenberghjónip. Ö’’ i'tn er k'mnugt hvemig fó'k, sem aðhy’list róttækar skoðanir. hefio- verið huridelt í Bandaríkjunum undanfarin ár. Rosenberghjónin eru einu sakbomingarnir í kjamorku- njósnamálinu sem enz rót- Framhald á 9. síðu

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.