Þjóðviljinn - 04.03.1953, Side 12

Þjóðviljinn - 04.03.1953, Side 12
Benjamín kastar grímunnl á hagfræðingalundi Flytur aisivIrSISegt llaisila- rikjaloí og Eússs&nið sem 99frsB€lIlegt?? erliidl! Berijamín Eiríksson vakti almenna undrun á fundi Hagfræð- ingafélags Islands sem haidinn var í fyrradág. Átti Benjamín að flytja þar „fræðilegt“ framsöguerindi um Framkvæmdabankann og mótvirðissjóðinn, en notaði tímann til sleikjulegs Bandaríkjalofs og Rússaníðs! Það er svo til ætlazt að á fundum Hagfræðingaféiagsins séu málin rædd fræðilega, enda hefur sú venja verið á. I framsöguerindi sínu um Framkvæmdabankann og mót- virðissjóðinn talaði Benjamín hinsvegar um ímynduð lækna- morð og aftökur í Sovétríkjun- um og að bolsévíkastjórnin hefði látið uppræta heila þjóð- flokka! Fundarmenn undrandi á „vísindum" Benjamíns. Sátu fundarmenn undrandi yfir slíkri fræðimennsku og Belgískur land- helgisbrjótur tekinn í fyrrakvöld tók eitt af varð- skipunum belgískan togara að veiðum í landhelgi við Ingólfs- höfða. Vegna dimmviðris í fyrra- kvöld var þá ekki hægt að gera nákvæma staðarákvörðun, en varðskipið hólt kyrru fyrir til birtiugar með lögbrjótinn þar sem hann var staðinn að verki og reyndist hann vera um elna sjómílu innan landhelgi. Togari þessi heitir María Jose Rosett. Varðskipið fór með hann til Vestmannaeyja og verður málið tekið fyrir í dag. I séuééu Ináll í gær hófust í Genéve ráðstefna 23 landa um efnahag'smál EJvrópu, þ. á. m. a. austur vestur viðskipti. Bæði Sovétríkin og Bandaríkin eiga fulltrúa á ráðstefnunni. Bú- izt er við að hún standi i hálf- an mánuð. Blað eitt í Kairó, skýrði frá því í gær, að egypzka stjórnin hefði látið brezku stjórnina vita, að Egyptar mundu ekki taka þátt í neinu hernaðarbandalagi, en h^lda fast við h.lutleysi á frið- artímum. Bretar hafa sett inn- göngu Egyptalands í hernaðar- bandalag sem skilyrði fyrir brott- flutningi hers sins í Súez. 1 gær slitnaði upp úr samninga- umleitunum um nýja ríkisstjórn í Austurríki milli katólska flokksins og sósialdemókrata. Sagt er að katólskir hafi viljað að nýnazistar tækju þátt í stjórn- arsamvinnunni. Þýzkur dómstóll í Munchen úr- skurðaði í gær, að eignir Jodls hershöfðingja, sem dæmdur var til dauða í Núrnbergréttarhöldun- um skyldu ekki gerðar upptækar. Það hefði ekki sannazt, að Jodl hafði gerzt sekur um striðsglæpi, var sagt í forsendum úrskurðar- ins. skildu ekki hvaða erindi ímynd- uð læknamorð í Rússlandi ættu í fræðilega framsögu ujn Fram- kvæmdabankann og mótvirðis- sjóðinn á Islandi. Þá flutti Benjamín þau „sögu- vísindi“ að Bandaríkin hefðu aldrei sýnt neinni þjóð ágengni, þvert á móti hefðu þau stuðlað að því að smærri þjóðir öðluð- ust sjálfstæði og væru Banda- ríkin örlátasta ríki sem verald- arsagan kynni að greina frá! Allt var gott sem . . . Benjamín dásamaði ennt'rem- ur hinn góða hug V-veldanna Bandaríkjanna og Bretlands, til Islands. Gleymt var nú með öllu löndunarbannið og efna- hagsleg og pólitísk ágengni Bandaríkjanna hér á landi. Sem rök fyrir því að þiggja fé frá Bandaríkjunum sagði hann að slíkt hið sama hetði Rússar gert á styrjaldarárun- um. (I því voru Rússar til fyr- irmyndar!). Sjaldan hefur nokkur auglj'st betur tilgang sinn. Lítið upplýsti hann um hinn raunverulega tilgang með stofn- un Framkvæmdabankans og minntist alls ekki á hvort af- skipti Bandaríkjanna af ís- lenzku efnahagslífi myndu minnka eða aukast með þessu nýja fyrirkomulagi. Á eftir hinu dæmilausa ,,fræðilega“ erindi Benjamíns urðu nokkrar umræður og tóku þátt í þeim Gvlfi Þ. Gíslason prófessor, Ólafur Björnsson prófessor og Haukup Helgason bankafulltrúi. Kvað Haukur m. a. svo að orði, að hafi hann verið í vafa um hver væri hinn raunverulegi tilgangur með starfi Benjamíns hér á landi, þá væri sá vafi með öllu horfinn, því sjaldan hefði nokkur maður auglýst betur tilgang sinr. en Benjamín hefði gert með þess- ari ræðu sinni, sem sé þann að vera helzti umboðsmaður Bandaríkjamna hér á landi. Mun mála sannast að flestir fundarmanna hafi verið á sömu skoðun. Ætlar að tæma þýzka lýðveldið á 15 mánuðum Hin grófa áróðursræða sem Lúðvig ' Guðmunds- son flutti í útvarp á sunrih- dagskvöld á vegum Birg- is Kjarans hefur að von- um vakið inikla athygli. Öllu ósvífnari málflutning- ur hefur ekki heyrzt í út- varpi fyrr, og er þá mikið sagt. En Lúð\ag gerðist ekki aðeins afreksmaður á sviði útvarpsins, ræða hans hefur alþjóðlegt gildi. T.d. hélt hann því frtun að 40.000 Austurþjóðverjar kæmu daglega á flótta vesturyfir. Nú eru íbúar Þýzka lýðveldisins um 18 milljónir, og ætti þá að koma heim að Lúðvig væri búínn að tæma Iandið al- gerlega á 15 mánuðum. Þessi kenning er án efa heimsmet á síðustu árum, og l»að fyrra afrek sem helzt jafnast á við hana hér á landi eru hinar al- kunnu fréttir Morgunblaðs ins sem drápu alla Rússa margsinnis úr hungri fyrstu árin eftir bylting- una. Miklar bokur voru í suðurhlutá Englands og norðurhéruðum meg inlandsins í gær og kom viða til árekstra skipa, flugumferð stöðv- aðist og lestum seinkaði. PJOÐVIUINN Miðvikudagur 4, marz 1053 — 18. árgangur — 52. tölublað Fylgizt með verðlaginu! Verðgæzlustjóri sendi í gær frá sér skýrslu um verðlag á nokkrum nauðsynjum í marzbyrjun, hæstá verð, lægsta verð og meðalverð. Sýair hún sáralitlar breytingar frá fyrra mánuði. Skýrsla verðgæzlustjóra er svohljóðandi: „Hæsta og lægsta smásöluverð ýmissa vörutégunda í nokkr- um smásöluverzlunum í Reykja- vík reyndist vera þann 2. þ.m. sem hér segir: Lægst Hæst Meðalv. kr. kr. kr. pr. kg. pr. kg. pr. kg. Rúgmjöl 2,85 3,20 3,01 Hveiti 2,80 3,25 3,08 Hafragrjón 3,20 3,85 3,47 Hrísgrjón 4,95 7,00 6,26 Sagógrjón 6,00 7,45 6,33 Hrísmjöl Kartöflu- 4,10 6,20 5,22 'mjöl 4,65 5,35 4,95 Rúsinur -Sveskjur 10,60 12,60 11,27 70/80 15,85 17,90 16,56 Molasykur 4,60 4,75' 4,69 Strásykur Kaffi, 3,40 3,70 3,58 óbrennt 25,85 28,15 26,61 Baunir 4,00 5,70 4,93 Sítrónur 10,00 11,60 10,99 Kandís 6,00 7,20 6,48 Púðursykur 3,65 Kakaó 6,25 5,24 % Ihs. Te, pk. 6,85 8,75 7,86 1/8 lbs. 3,40 4,60 3,75 Námskeið í fiskimati hófs! í gær Er sótt ai 18 mömmm víðsvegar af landinu I gær hófst í Fiskiðjuveri ríkisins fiskiðnaðarnámskeið á veg- um fiskmats ríkisins og sækja það 18 manns úr öllum lar.dsfjórð- ungum. Af þátttakendum í námskeiði þessu eru 8 úr verstöðvum við (Faxaflóa, 2 frá Vestmannaeyj- Eitt lík fundil Eitt lík skipverjanna, sem fór- ust með vb. Guðrúnu hefur fund- izt rekið undir Austur-Eyjafjöll- um. Var það lík Kristins Aðal- steinssonar matsveins. Slysavarnasveitimar fyrir austan munu halda áfram ,að leita á fjörunum. Myndarleg gjöf ÍSÍ hafa borizt 1000 krónur frá nemendum (í Reykjaskóla Er það gjöf nemenda til íþrótta- mannsins Ágústar H. Matthías- sonar. um, 3 af Austurlandi, 1 af Norð urlandi, 1 af Vestfjörðum og 3 •af Snæfellsnesi. Á þessu námskeiði er einungis kennt um hraðfrystingu, en vor stendur til að halda nám- skeið í skreiðar- og saltfisks- verkun. Námskeið þetta mun standa yfir mánaðartíma. Forstöðumaður þess er Berg- steinn Á. Bergsteinsson fiski- matsstjóri og ásamt honum kenn ir Magnús Kr. Magnússon á nám skeiðinu. Slík námskeið sem þetta hafa verið haldin nokkrum sinnum á undanförnum árum, en starf- semi þessi hófst-fyrst í ráðherra- tíð Áka Jakobssonar á nýsköp- unarárunum, eins og mörg önn- •ur þörf nýmæli í fr-amleiðslu- málum þjóðarinnar. Nýít þýzkt vélatilboð lækkar verð dráttarbáts Reykja- vikurbaínar um eina milljén króna? Þvottaefni, útlent, pk. 4,70 5,00 4,86 Þvottaefni, innl. pk. 3,00 3,10 3,09 Á eftirtöldum vörum er sama verð í öllum verzlunum pr. kg.: Kaffi brennt og malað kr. 40,60 Kaffibætir kr. 14,75 Suðv.súkkulaði kr. 53,00 Mismunur sá er fram kemur á hæsta og lægsta smásöluverði getur m.a. skapast- vegna teg- undamismunar og mismunandi innkaupa. Skrifstofan mun ekki gefa upplýsingar um nöfn einstakra verzlana í sambandi við framan- greindar atHuganir.“ (Breytingar frá því síðasta skýrsla var gefin út eru sára- litlar. Meðalverð á 11 tegund- unm hefúr lækkáð, haldizt ó- breytt á 8 og hækkað á þremur, en yfirleitt tiema breytingam- ar aðeins nokkrum aurum. Mesta hækkunin er sú að baun- ir hafa hækkað um kr. 1,18 kílóið, en mesta lækkunin að sagógrjón hafa lækkað um 98 aura kílóið. . Sama ólagið á varðskipmu Þór Varðsldpið Þór hefur verið í reynsluferðum imdanfarið, en sérfræðingar hafa sem kunnugt er verið að reyna að bæta úr gölfnnum á vélum skipsics. Vélarnar hafa ekkert lag- azt, konia frarn allir sömu gallar sem fyrr. Þjóðviljan- um er ekki kunnugt um að hvaða ráði verður nú horfið, en yfirmaður landhelgis- gæzlunnar, Pétur Sigurðssott vinnur nú að því að leysa þetta mál. . Reykjavíkurhöfr. ætlar að láta smíða nýjan dráttarbát, og cins og áður hefur verið frá skýrt heíur það ánægjulega gerzt að ákveðið er að liann verði smíðaður hér heima; í Stálsmiðjunni. Það óvænta hefur nú gerzt að allar horfur eru á því að bátur- iun verði einni millj. kr. ódýrari en upphaflega hafði verið áætlað. Stálsmiðjan mun sem fyrr seg- ir sjá um ialla smíði dráttar- bátsins, en vélar verða fenignar erlendis. Hafa verið gerð tilboð í vélarnar og bauð Burmeister og Wain í Kaupmannahöfn véla- samstæðuna fy-rir um 2,2 millj. kr. og við það verð mun haf-a verið miðað þegar kostnaðar- áætlun um smíði dráttarbátsins var gerð. 18 mánaða afhending- -arfrestur vár á vélunum hjá Burmeister og Wain. Nú hefur borizt tilboð í vél- -arnar frá þýzkri dieselvélaverk- smiðju í Vesturþýzkalandi og er það um 1 millj. kr. lægra en danska tilboðið. Allar horfur eru á að hinu þýzka tilboði verði tekið, en það þýðir að dráttarbáturinn vérður 1 millj. kr. ódýrari en ráð hafði verið fyrir gert, eða um 6 millj. kr. í stað um 7 millj. Sýningar haínar afiur á Niðnrsetningnum kvikmynd Lofts Guðmundssonar Kvikmynd Lofts Guðmunds- sonar, Niðursetning’urinn, verð- ur sýnd í Nýja bíó á þrcm sýningum í dag. . Kvikmynd þessi var fyrst sýnd í nóvember 1951, var þá sýnd nokkrum sinnum hér í bænum og síðan á nokkrum stöðum úti á laadi, við ágæta aðsókn. Marga hefur langað til að sjá þessa mynd aftur og hefur þvi verið hafin sýning á henni að nýju. Hún verður sýnd kl. 5, 7 og 9. Þegar sýningum lýkur hér mun ætlunin að sýna hana úti á landi. — Auk þess- arar myndar tók Loftur einnig aðra mynd, sem hér var sýnd: Milli fjalls og fjöru og Sjón er sögu ríkari. Aðalleikendur i Niðursetn- ingnum eru Brynjólfur Jó- hannesson og Bryndís Péturs- dóttir.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.