Þjóðviljinn - 14.03.1953, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 14.03.1953, Blaðsíða 2
2) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 14. marz 1953 k 1 dag er laugardag:urinn 4. * marz. — 73. dagur ársins. =55SS==: Upptölc trúarbragöa Sig'urb.iörn Einarsson prófessor fl.ytur tVo háskólafyrirlestra fyrir almenning' um upptök ti'úar- bragða. Verður hinn -fyrri fluttur á morgun, sunnudaginn 15. marz en hinn síðari sunnudaginn 22. marz. Báðir verða fluttir í. há- txðasal Káskólans og hefjast kl. 2 e.h. stundvíslega. Viðfangsefni þessara ei'ir.da verður spurningin unx sálrænar rætur trúarbragð- anna. Enginn mannflokkur hefur fundizt án trúar. Trúhneigð seg- ir til sln á öllum stigum menn- ingar og félagsþróunar. Hvað er það sem veldur þessu? Er hægt að skýrt þetta sálfræðilega? — Margar kenningar hafa komið fram um þetta frá því í fornöld og til þessa dags. Mun próf. Sigurbjörn taka þær helztu til athugunar. iÆiðréttingar Nokkrar villur í grein minni Úr lífi a'þýðunnar eru þannig vaxn- ar að ég verð að biðja blaðið að leiðx-étta þær. Mannanöfnin Hír- ans, Pósapeus, Timótes og Tjá- fýlur eiga að vera Hiram, Dósó- þeus, Tímóteus og Tjáfýlus; einnig leiðréttist Víga-Steinn í Víga-Glúm. Dúholt á að vera drífholí. — Halldór Pétursson. -- \ ík cX.H fHfc AvVÝTn’ Heimkoma og brottför TY'Iag Eiðamanna heldur árshátíð sína í Breiðfirð- ingabúð í kvöld kl. 8:30. SI. laugardag opin- beruðu trúlof un, sína ungfrú Katrín E'sa Jónsdóttir, Heiðarveg 11 Sel- fossi, og Ragnar Bjarnason, starfsmaður hjá Mjóllc- urbúi Flóamanna. Kínanefndin h-eldur skemmtifund með kvik- myndasýningu i sa’num á Þórs- götu 1 í kvöld kl. 8.30. Sýnd verður kínverska myndin Hvít- hærða stúlkan. Ein af beztu myndum sem tekin hefur verið í Kína. Öllum er heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir. Kínanefnd- in kom með þessa mynd að aust- an í vetur og hefur hún ekki sézt hér áðhr. Kún hefur fengið verðlaun fyrir framúrskarandi góðan leik. GENGISSKBANING (Söiugengi): 1 bandarískur dollar kr. 16,32 1 kanadiskur dollar kr. 16,79 1 enskt pund kr. 45,70 100 danskar kr. kr. 236,30 100 noi-skar kr. kr. 228,50 100 sænskar kr. kr. 315,50 100 finsk mörk kr. 7,09 100 belgískir frankar kr. 32,67 10000 franskir frankar kr. 46,63 100 svissn. frankar kr. 373,70 100 tékkn. kcs. kr. 32,64 100 gyllini kr. 429,90 10000 lírur kr. 26,12 Ðómkirkjan. \ Mess- að kl. 11. Björn Magnússon, prófes- sor, prédikar. Messa kl. 5. Sr. Óskar J. Þorlákss. Laugarnessókn. Messa kl. 2 e.h. Sr. Garðar Svavarsson. Barna- guðsþjónusta kl. 10.15. Sr. Gai'ð- ar Svavarsson. Bústaðaprestakall. Messað kl. 2 e.h. í Fossvogskirkju. — Barna- messa kl. 10.30 á sama stað. Sr. Gunnar Árnason. IláteigsprestakaU. Messa í Sjó- mannaskólanum kl. 2. Barnasam- koma kl. 10.30. Sr. Jón Þorvarð- arson. Nesprestakall. Messa í Mýrar- húsaskóla kl. 2,30. Sr. Jón Thor- arensen. Fríkirkjan. Messa kl. 5. Barna- guðsþjónusta kl. 2. Sr. Þorsteinn Björnsson. LangholtsprestakaH. Messa í Laug- arneskirkju kl. 5 e.h. Barnasam- koma kl. 10.30 á Hálogalandi. Sr. Áreííus Níelsson. Býræktarfélag Islands byrjar námskeið fyrir meðlimi og aðra, er þess kynnu að óska, 1. apríl. Upplýsingar í símum 80560 og 81404. Barnasamkoma í Tjarnarbíói kl. 11 árdegis á morgun. Séra Óskar J. Þorláks- son. Þeir Gísli Magnússon og Sveinn Bjarman létu aflmikið að sér kveða í leiklistarlífi Akureyr- ar á sínum yngri árum. Ein- hverntíma hafði Gísli farið út úr rullunni, er þeir voi-u tveir einir á sviðinu. Stóð hann þannig lengi -orðlaus. Sveinn beið í fyrstu hinn rólegasti en þar kom að honum leiddist þófið, gekk til Gísla og sagði Ég held að súfflörinn vilji eitthvað tala við þig. — Svona glitrar Landneminn af fyndni og gamansemi. Rafmagnstakmörkun Laugai'dagm' 14. marz. III. 10.45-12.30: Austurbærinn og miðbærinn milli Snorrabr. og Aðalstrætis, Tjarnar götu, Bjarkargötu að vestan og Hringbraut að sunnan. Og, ef þörf krefur: Hafnarf.jörður og nágrenni. — Reykjanes. Kl. 18.15-19.15: Nágrenni Reykjavíkur, umhverfi Elliðaánna vestur að markalínu frá Flugskálavegi við Viðeyjar- sund, vestur að Hlíðai'fæti og það- an til sjávar við Nauthó'svík í Fossvogi. Laugarnes, meðfram Kleppsvegi, Mosfellssveit og Kjal- arnes, Árnes- og Rangárvallasýslur. Læknavarðstofan Austurbæjar- skólanum. — Sími 5030. Naxturvarzia í Laugavegsapóteki. Sími 1618. Margrét Guðmundsdóttir og Gunnar Eyjólfsson í hlutverkum elsk- endanna í Stefnumótinu, sem sýnt verður i síðasta sinn í Þjpðleik- húsinu í kvöld. Sýningar geta þvi miður ekki orðið fleiri, vegna þess að aðalleikandinn Gunnar Eyjólfsson, fer af landi burt í næstu viku. Leikgagnrýnandi Þjóðviljans, Ásgeir Hjartarson, segir m.a.: „Öll ber sýningin sterkan hei’darsvip, enda er vel og viturlega í hlutverkin skipað.... Fáguð og skýr er framsögn Gunnars------ og tilfinningum hins unga manns lýsir liann látlaust og fallega, skáldlegu imyndun- arafli hans og þrá eftir hamingju og nýju lífi.... vel túlkar hún (Margrét Guðmundsdóttir) sársauka og þótta hinnar ungu stúlku, þegar hún er svikin um leikinn, og sannfærandi er ást hennar og viðkvæmni þegar hún fær að njóta örskammrar sælu í örmum elsk- huga síns, en það atriði er fegurst í leiknum". Voi-ið, tímarit fyr- ir börn og ung- linga, hefur borizt, jan.-marz-hefti ár- gangsins sem er hinn 19. Þar er m.a. sagan Vaskur drengm- eft- ir Jóhannes Friðlaugsson. Gam- anleikurinn Litli engillinn, þýdd- ijr úr dönsku. Þá er' framhalds- saga: María annast heimilisstörf- in. Frásaga af tíkinni Pilu. Sag- an Dóri eftir Guðmund Eiríks- son. Úr heimi barnanna. Vísur og kvæði — og er þá ekki allt upptalið. Vorið er gefið út á Akureyri, og eru ritstjórar Hann- es J. Magnússon skólastjóri og Eiríkur Sigurðsson kennari. Tímaritið Satt er. einnig nýkomið út. Flytur það frásögn um Auð- kýfinginn Engels á biðilsbuxun- um, Forhei'ta í-æningja, Óskar Wilde í réttarsalnum, söguna Klukkán sló tólf, og Afbrot og ástir Raspútíns. Fastir liðir eins og venjulega. 12,50— 13.35 Óskalög sjúkl inga . (Ingibj. Þor- bergs. 17.30 Ensku kennsla; II. fl. — 18.00 Dönskukennsla; I. fl. 18.30 Tónleikar: Úr ópei-u- og hljóm- leikasal. pl. 20.20 Leikrit: Carvallo eftir Dennis Cannan, í þýðingu Bjarna Guðmundssonar blaðafull- trúa. — Leikstjóri: Gunnar Eyj- ólfsson. Leikendur: Hildur Kal- man, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Jón Sigurbjörnsson, Lárus Ingólfs son, Þorgrímur Einarsson, Bald- vin Halldórsson og Gunnar Eyj- ólfsSon. 22.20 Danslög pl. — 24.00 Dagskrárlok. 578.675 kr. Hollandssöfnunin nemur nú kr. 578.675. 1 gær bárust 21.250 kr. frá deild RKI í Hafnarfirði, þar af 5000 kr. frá Hafnarfjarðarbæ; 10.431 kr. frá Siglufjarðardeild- inni, og 31.000 kr. fi-á deildinni á Akureyri. Skipaútgerð ríkisins. Hekla fer frá Rv:k á mánudag- inn austur um land í hringferð. Esja var á Isafirði í gærkvöld á norðurleið. Herðubreið er á Húna^ flóa á austurleið. Þyrill er í R- vik. Helgi Helgason fór frá R- vík í gærkvöld til Vestmannaeyja. Eimskip Brúarfoss er í Londonderry; fer þaðan til Reykjavíkur. Dettifoss fór frá Reykjavík 10. þm. til New York. Goðafoss er í Rvik. Gullfoss fór frá Leith í gær áleiðis til Reykjavíkur. Lagarfoss kemur að bryggju í Reykjavík fyrir hádegi í dag. Reykjafoss fór frá Rotterdam í gær áleiðis til Antverpen og Reykjavíkur. Selfoss er á leið til Svíþjóðar. Ti-öllafoss kemur til Ne\f York á morgun, Drangajökull lestar í Hull í næstu viku til Reykja- víkur. Sambandsskip Hvassafgll fór frá Reykjavík í gærkvöld áleiðis til Rio de Jan- eirio. Arnarfell er í Keflavík. Jök- ulfell fór fi’á New York 6. þm. til Reykjavíkur. Söfnin eru opin: Landsbókasafnlð: kl. 10—12, 13—19, 20—22 alla virka daga nema laugard. kl. 10—12, 13—19. I> jóðminjasaf nið: kl. 13—16 á sunnudögum; kl. 13—15 þriðju- daga og fimmtudaga. Llstasafn Einars Jónssonar: kL 13.30—15.30 á sunnudögum. Náttúmgripasafnið: kl. 13.30— 15 á sunnudögum; kl. 14—18 þriðjcdaga og fimmtudaga. Krossgáta nr. 32 Lárétt: 1 kvennafn 7 samtenging 8 rymja 9 líffæri 11 gola 12 sam- stæðir 14 guð 15 krafs 17 blóð 18 vatn 20 óveður Lóðrétt: 1 jurt 2 forfaðir 3 þyngd 4 þýt 5 nærist 6 segir 10 áhald 13 bæjarnafn 15 fálm 16 stilltur 17 sk.sí. 19 sk.st. Lausn á krossgátu nr. 31 Lárétt: 1 ragur 4 ee 5 rá 7 ark 9 lát 10 orf 11 tól 13 rý 15 ir 16 landi Lóðrétt: 1 Re 2 ger 3 rr 4 eflir 6 álfur 7 att 8 kol 12 ónn 14 ýl 15 ii Hodsja Nasreddin skaut upp í Istanbúl þremur dögum eftir að soldáninum hafði borizt bréfið frá emírnum í Búkhöru. Hundruð sendiboða voru sendir til bæja og þorpa um allt landið til að tilkynna fólk- inu dauða Hodsja Nasreddíns; og fagnandi prestarnir lásu kvölds og morgun bréf emírsins í bænahúsunum og þökkuðu Alla hátt og í hljóði fyrir landhreínsunina. Soldáninn sat að veizluhöldum í hallar- garðinum, í svölum skugga trjánna er vökvuðust úða gosbrunnanna. Kringum hann þyrptust vesírar, vitringar, skáld og annað hirðfó'k, og stóðu allir á öndinni eftir gjöfurn. Svartir þrælar ií siðum skikkj- um deildu rjúkandi veizluréttum um allan garðinn, ásamt pípum og vínföngum. Sol- dáninn var í Ijómandi skapi og lét gatnan-. yrðin fjúka til beggja handá.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.