Þjóðviljinn - 19.03.1953, Side 6

Þjóðviljinn - 19.03.1953, Side 6
6) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 19. marz 1953 þJÓÐVIUINN Útgefandi: Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson iáb.), Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Magnús Torfi Ólafsson, Guðmundur Vigfússon. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg. 19. — Sími 7500 (3 linur). Áskriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 17 annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Frentsmiðja Þjóðviljane h.f. Upplausn í hernámsflokkunum Þaö er langt síðan annaö eins los hefur veriö á skoöunum fólks og nú. Þaö hriktir og brakar í her- námsflokkunum öllum, ný blöö eru gefin út og nýir flokkar stofnaðir. í forsetakosningunum síöastliöiö sum- ar réðu stjórnarflokkarnir ekki viö neitt, slíkir þver- orestir urðu t. d. aö viö' lá aö Sjálfstæöisflokkurinn klofnaði cg er engan veginn gróið um heilt síöan. í haust gerðust svo þau tíöindi aö forusta AB-flokksins hrapaöi úr valdastólum sínum í einu vetfangi. og þótt hún hafi síóan tryggt sér aöstööuna aftur með öörum aðferöum má enn vænta mikilla sviptinga á næstunni og ekki ólíklegt aö flokkurinn klofni einnig formlega. í Framsókn er búizt við harövítugum átökum á flokks- þinginu sem hefst nú í vikunni. Þaö er á allra vitoröi að fjölmargar þúsundir kjósenda sem undanfarið hafa kosiö hernámsflokkana hafa nú snúiö við þeim baki ög eru aö velta fyrir sér hvernig atkvæöin veröi bezt hag- nýtt í kosningunum í sumar. Það er Sósíalistaflokkurinn einn sem gengur nú til kosninga sterkari og öruggari en nokkiu s.mni fyn. Enda er þaö árangur af baráttu og stefnu Sósíalista- ílokksins aö uppreisnin magnast í herbúöum heináms- flokkanna. Þaö er árangur af baráttu Sósíalistaflokks- ins að Stefán Jóhann og klíka hans ultu úr miðstjórn A.B-flokksins á þinginu í haust. Það er barátta Sósíal- istaflokksins sem veldur því aö misklíðin magnast í Sjálf- stæöisflokknum og æ flsiri snúa viö honum baki. Þaö stafar af baráttu Sósíalistaflokksins að ráðamenn Fram- sóknar sjá fram á stórfellt fylgishrun í kosningunum í sumar, ekki sízt í bæjunum. Það er sókn Sósíalista- flokksins sem veldur því að' ný stjórnmálablöö spretta upp og nýir flokkar eru ‘stofnaðir. Svo víðtækan árangur hefur sókn Sósíalistaflokksins borið frá þvi hernáms- íiokkarnir mynduöu stjórn sína 1947. Stefna sú sem Sósíalistaflokkurinn hefur markaö hef- ur staöizt próf reynslunnar alla tíð. Allt frá því fyrsta hefur Sósíalistaflokurinn varaö við afleiðingum banda- rískrar ágsngni og barizt haröri baráttu um hvern nýjan áfanga. Sósíalistaflokkurinn hefur sagt nákvæmlega fyr- ir hver þróunin myndi verða, og það hefur allt ásannazt, einnig þaö sem ýmsum þótti ótrúlegast í upphafi. Á sama hátt hefur Sósíalistaflokkurinn sagt fyrir hver yröi þró- unin í efnahagsmálum, rakið sundur þættina og sýnt fram á afleiöingar þær sem nú blasa við hverjum manni. Þessi stefna hefur ekki. alltaf mætt fullum skilningi, en nú blandast engum hugur um aö hún var hárrétt og í fvHsta samræmi við hagsmuni þjóöarinnar. Sósíalistaflokkurinn gengur þannig til kosninganna í sumar sem sigurvegari; hann hefur boöað rétta stefnu í málefnum þjóðarinnar og fleiri en nokkru sinni fyrr hafa nú risiö til andstöðu viö hernámsflokkana og störf þeirra. En það er ekkj þar meö sagt aö þær þús- undir sem snúið hafa baki við hsrnámsflokkunum og fallizt í verki á baráttu Sósíalistaflokksins hafi aö- hyllzt sósíalisma sem lífsskoöun. Einmitt þess vegna eru ýmsir að leita fyrir sér um stofnun nýrra flokka. En þaö er þessi staöreynd sem hernámsflokkarnir hugsa sér aö hagnýta. Ef þeim tekst að sundra andstööunni, fá t. d. íram klofningsframboð þar sem fjölda atkvæöa væri kastaö á glæ, telja þeir sig hafa unnið varnarsigur ssm geri þeim fært að halda áfram sömu stefnu í' lands- málunum. Sósíali'Staflokkurinn hefur einnig tekiö tillit til þess- ara aöstæöna og sýnt fram á hvernig hægt er aö sam- cina alla andstæöinga hernámsstefnunnar, þrátt fyrir skoðanaágreining um önnur mál. Ávarp flokksins, sem birt var fyrir nokkrum dögum, rekur hvsrnig hægt er aö tiyggja slíka einingu í kosningunum í sumar. Hefur ávarp flokksins vakiö mjög mikla athygli; og umtal, og enn aukiö þann geig sem hernámsflokkarnir eru gagn- teknir af. Er Rödd Ameríku hjárómaP McCarfhy veldur fjaSrafoki i upplýs- ingadeild utanrikisráSuneytisins í róðursþjónusta Bandaríkja- •**■ stjórnar, hin svonefnda Rödd Ameríku, hefur unnið að því sleitulaust síðan. hún var stofnuð fyrir nokkrum árum að grafa undan áliti og utan- ríkisstefnu Bandaríkjanna um alla jarðarkringluna, eða það fullyrðir að minnsta kosii Joseph R. McCarthy, öldung- ardeildarmaður frá Wisconsin- fylki og formaður Föstu rann- sóknarnefndarinnar í öldunga- deildinni. Undanfarnar þrjár vikur hefur McCarthy unnið ötullega að því að finna orð- um sínum stað með þeim ár- angri að stjórnandi upplýs- ingadeildar bandaríska utan- ríkisi’áðuneytisins hefur verið knúinn til að segja af sér, öll starfsemi ráðuneytisins og þó einkum upplýsingadeiidai- inoar er gengin úr skorðum og einn starfsmaður Raddar Ameriku hefur framið sjálfs- morð. bent á að nafn hans væri vel þekkt í löndum Austur-Ev- rópu. Ekki hafði McCarthy fyrr sleppt orðinu en Dulles utanríkisráðherra nam úr gildi fyrirmælin um að nota efni úr verkum ,,umdeildra“ höfunda í útvarpi Raddar Am. eríku, hann gekk meira að segja lengra og lagði blátt E r l e n d tíðindi | bann við því að nota efni eft- ir „kommúnista, áhangendur kommúnista og umdeilda rit- höfunda". Til að fullnægja réttlætinu út í yztu æsar voru síðan öllum bókasöfnum bandarísku upplýsingaþjónust- unnar erlendis sead fyrirmæli um að taka niður af hillum sínum sérhverja bók eftir sönnunargögn McCarthys fyr- ir að óamerísk öfl liefðu bú- ið um sig í stjórn Raddar Ameríku. I stóru skotin var notað sterkara púður en það. Til dæmis var ungfrú Nancy Lenkeith, do'ktor að nafnbót, ekkert blávatn. Hún bar það frammi fyrir sjónvarpsmynda- vélunum í fundarherbergi Föstu rannsóknarnefndarinn- ar að hún hefði verið rekin frá ■ störfum hjá Rödd Am- eríku fyrir að vera andkomm- únisfcísk. Auk þess hefði að- stoðardeildarstjórinn í Frakk- laadsdeildinni, þar sem hún. vann, skýrt sér frá því fyrsta starfsdaginn að hann hefði mikinn áhuga á stofnun sam- eignarhópa þar sem börn fengju félagsuppeldi. ,,Ég sagði honum að ég ætti eng- in. Haan sagði, að hægt væri að bæta úr því. Þá sagði ég að ég ætti engan eiginmann. Hann sagði að það gerði ekk- ert til, það vær hægt að bæta úr því .... Ég spurði hann, liverskonar fólk hann vildi hafa þarna .... og hann sagði mér .... fólk með eng- ar rótgrónar trúarskoðanir". Slíkur vitnisburður, þar sem lauslæti og guðleysi var sam- tvinnað, tryggði auðvitað ung- frú Lenkeith og þá ekki síð- ur McCarthy riflegt rúm á forsíðum blaðanna um öll iBandaríkin. Minna fór fvrir yfirlýsingu aðstoðardeildar- stjórans um áð sérhvert orð henna.r væri lj'gi og rógur. Joseph McCarthy lætur það ekki liggja i láginni að hann sé guðrækinn kaþólskur mað- ur og ekki leið á löngu að hann lét nefnd sína grennsl- ast betur eftir guðléysi starfs- mana Raddar Ameríku. Þar kom fram önnur kona, frú Shephard, sem skýrði frá því í sjónvarpaðri yfirheyrslu að hún hefði verið með Roger Lyons, stjórnanda trúmála í dágskrá Raddarinnar, fyrir nokkrum árum og það væri af og frá að hann hefði trúað þá á guð. Lyons flýtti sér að mót- mæla og færði það fram til sannindamerkis um trúarvissu sína að hann hefði ekki alls fyrir löngu gefið tíu dollara til kirkju Lútherstrúarmanna í Engelwood í New Jersy. \Jið þessa vitnisburði bættust * ásakanir manna, sem kvörtuðu yfir breytingum á handritum sínum fyrir Rödd Amerí.tu, og aðdróttanir um skemmdarverk á dagskrá'.ium til Suðu^-Ameríku og ísraels og fleira og fleira, sem hér er ekki rúm til að rekja. En áhrifin af skrípaleiknum í fundarsal Föstu rannsöknar- nefndarinnar létu ekki á sér standa. Dr. Wilson Compton sagði af sár stjórn upplýs- ingardeildar utanrr'cisráðuneyt isins. Bandarísk blöð skýrðu frá því, að starfsmenn í utan- ríkisráðuneytinu héfðu orðið Framh. á 11. siðu C*tarfsaðferðir McCarthys og ^ aðstaða hans í stjórnar- kerfi Bandaríkjanna eru þann- ig, að ekki er furða þótt starfsmenn utanríkisráðuneyt- isins verði taugabilaðir o'g af- kastalitlir af einni saman vitn- eskjunni um að liann kann hvenær sem er að stefna þeim fyrir sig til yfirheyrslu. Sjón- varpað er frá fundum Föstu- rannsóknarnefndarinnar um öll Bandaríkin auk þess sem fundarsalurinn er jafnan troð- fullur af fréttamönnum og ó- breyttum áheyrendum og oft- ast biðröð við dyrnar. Enginn embættismaður, seu; Mc- Carthy hefur tekið í sig að leggja í einelti, hefur átt sér uppreisnar von. Alitaf finnast nóg vitni til að sverja upp a þá kommúnisma og þá er ekki að sö'kum að spyrja, brott- rekstur úr starfi fylgir og hlutaðeigandi er þaðan í frá i settur utangarðs í baadarísku þjóðlífi, hann er kominn á svarta listann, óalandi, óferj- andi og óráðandi ölium biarg- ráðum, einli af skógarmönn- um nútímans. | Tpphafið á hreinsun Mc- Carthys í Rödd Ameríku var yfirlýsing lians á fundi Föstu rannsóknarnefndarmnar um að ,,það eru nokkrir ná- ungar í Rödd Ameríau, sem hefur orðið frekar vel ágengf í því að fremja skemmdarverk gegn utanríkisgtefau Dulles og Eisenhowers“. Auk þess hefði þar verið um „gífurlega. sóun að ræða, svo riemur tugum milljóna". Um „undirróðurinn og skemmdarverkin" gat. hanr, þegar nefnt hróplegt dæmi: Fyrirmæli höfðu verið send yfirstjórn Raddar Ameríku til starfsmanaanna um að það myndi vera hentugt að nota viðeigandi glefsur úr verkum róttækra, bandarískra rithöf- unda í dagskrám, sem ætluð væri að hafa áhrif í sósíalisk- um löndum. Sérst.aklega var tilnefndur Howard Fast og „kommúnista, áhangendur kommúnista og umdeilda rit- höfunda“. IT'yrsta lota var því frægur * sigur fyrir kappann Mc- Carthy og styrkti hann auð- vitað til ciýrra dáða. Þeirra var líka ekki langt að bíða. Hann skáut nú af öllum fall- byssum í einu og þegar reyk- urinn greiddist í sundur var Rödd Ameríku svo gott sem óstarfhæf. Hinsvegar hefur þess ekki orðið vart að einn einasti „óþjóðhollur undir- róðursmaður“, sem allt átti að mora þar af, hafi fallið fyr ir liríðinni. Vitni ‘báru það að 2 öflugum útvarpsstöðvum Raddar Ameríku hefði verið valinn staður þar sem loft- truflanir myndu fara verst mcð secidingar þeirra. Fram- kvæmdum við byggingu stöðv. anna var þegar í stað hætt. Lýst var ferlegum upptöku- vagni, sem smíðaður hafði verið eftir pöntun fyrir Rödd- ina. Vagninn, sem skýrt var frá að hefði kostað milljón króna, fór sína fyrstu og síð- ustu upptökuferð fyrir tveim árum. Eftir hana þurfti að gera við hann fyrir hálfa milljóu og síðan hefur honum verið lagt. ýr mistök af þessu tagi voru þó eklri öflugustu

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.