Þjóðviljinn - 03.05.1953, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 03.05.1953, Blaðsíða 4
4) ÞJÓÐVILJINN — Suntaudagur 3. maí 1953 ÞJÓÐAREINING GEGN HER í LANDI VGnmngarorð uni íormanu Lögmannafélags íslands o <o járnir spítalanaa liafa em ekki faliizt á að halda saiíininp wið sté Tvö biéf Það er upphaf -þessa máls, að undirbúningsnefnd þjóðar ráðstefnunnar 5.-7. maí n.k. sendi Lögmannafél. Islands ávarp um þjóðareiningu gegn her á íslandi og jafn- framt boðsbréf um að senda fulltrúa á ráðstefnuna. For- maður Lögmannafélagsins Lárus Jóhannesson, fyrrver- andi alþitngismaður, sveikst um að láta félag sitt vita um bréfið. En eftir liádegis- blundinn þ. 26. apríl s.l. sett- ist hann við hlið vélritunar- stúlku sinnar og las henni fyrir skammabréf og níð um þá, er undirrituðu ávarpið, og sendi mér. Jafnframt lét hann trúverðugan bílstjóra færa mér að gjöf bókitna: „Ég kaus frelsið“, sem hann sjálfur rembdist við að þýða og hefur auglýst af miklu þreki. Þar eð ég tel, með gildum rökum, að bréf Lár- usar til mín sé ekki einka- bréf, heldur bréf frá for- manni félags til virðulegrar andspyrnuhreyfingar gegn her á Islandi, þá álít ég mér skylt að birta það opinber- lega, svo að allur lýður megi sjá, hversu helstefna hernað- aring leikur forsvarsmenn sína kaldranalega og grátt. Þetta er sem sé bréf til ís- lenzku þjóðarinnar, þúsund- anna, sem leynt og ljóst hafa verið í andófi gegn helstefn- unni, en sameinast nú í vold- ugri og vaxandi fylkingu til þess að hrinda af sér ánauð hernaðarins. Ég skrifaði Lárusi svarbréf, sem ég birti hér einnig. Bréf formanns Lögmanna- félagsins er svohljóðandi: „Reykjavík 26. 4. 1953. Hr. G. M. Magnúss. Pósthólf 1063, Reykjavík. Með ódagsettu bréfi (Inn- skot G.M.M.: Þetta er ekki rétt, Lárus, ávarpið er dag- sett 8. apríl 1953 og boðs- bréfið fylgdi ávarpinu), sem barst mér sem formanni Lög- mannafélags Islands í fyrra- dag, hafið þér sent ávarp nokkurra manna um þjóðar- einingu gegn her á Islandi og farið ,,vinsamlega“ fram á, að Lögmannafélagið sendi fulltrúa á svonefnda þjóðar- ráðstefnu, sem halda á hér í bænum 5.-7. maí m.k. Ávarpið er undirritað af nokkrum kommúnistaspraut- um og mönnum, sem eru al- þekkt handbendi þeirra, og hafa leyft þeim að nota nöfn sín sér til skammar og þeim, sem er persónulega vel við þá, til skapraunar. Þar sem málatilbúnaður er þannig, segir það sig sjálft, að ekki er hægt að skoða málaleitun yðar anmað en hreina móðgun við félagið eða þá sem frábærilegan barnaskap. Alveg án tillits til þess, hvernig menn líta á liersetu hér eða íslenzkan her, svo og samband hinna erlendu hermanna og íslendinga, seg- ir það sig sjálft, að útsend- arar mesta herveldis og morðveldis sögunnar ,sem leika það hlutverk meira eða minna vitandi vits, að svæfa varúðar- og sjáifstæðistil- finningu þjóðarinnar, þó að þeir taki á sig gerfi föður- landsvinanna, samkvæmt skipun frá Moskvu, verða ekki teknir alvarlega af fé- lagi eins og Lögmannafélagi Islands, og að enginn al- mennilegur maður vill hafa samflot með slíku fólki. hversu mikill friðarsinni, sem hann kann annars að vera. Mér dettur því ekki í liug að sýna, hvorki meðstjórn- endum mínum né félagsfundi þá lítilsvirðingu að leggja þessi ómerkilegu plögg fyrir þá. Til sálarbóta fyrir sjálfan yður sendi ég yður hér með ..vinsamlega" eitt eintak af himni heimsfrægu bók. „Ég kaus frelsið", sem ég hef þýtt, því yður veitir sannar- lega ekki af að lesa hana. Með viðeigandi virðingu. Lárus Jóhannesson.“ Svarbréfið er á þessa lund: „Reykjavík 2. maí 1953. Formaður Lögmannafé- lags Islands, hr. Lárus Jó- hannesson. Eg hef ekki opnað bók yðar: „Ég kaus frelsið“, sem þér segist senda mér „til sálarbóta". Þér hafið haft ummæli eftir þekktum manni og sjálfur auglýst fyrir peninga, að honum hafi þótt bókin svo leiðin- leg, að hann hafi gefizt upp eftir 80 blaðsíðna lestur. Ekki veit ég, hvort þér hafið gert þessa „heimsfrægu bók“ (sem þér nefnið svo), svona leiðinlega með þýð- ingu yðar, en hitt þykir mér sennilegt, að „heims- frægð“ bókarinnar í nokkr- um kapitalískum löndum stafi ekki af skemmtileg- heitum, heldur af því, að þar mun vera meira níð um fyrsta verkalýðsríki verald- ar en flestum öðrum. hefur tekizt að koma saman, og nokkuð er ræpan löng, því að ærið virðist bókin þykk. Ég myndi taka á móti and- virði bókarinnar frá yður í peningum og verja þeim aur- um til þess að kaupa eitt- hvert rit, sem flytti sann- leika um vini okkar í ríki sósíalismans, sem þér skjálf- ið fyrir, eins og margir rýrnandi máttarviðir auð- valdsins. Ég endursendi yð- ur því bókina og lagði hana í póst fyrir hádegi 1. maí. I bréfi, sem þér, herra hæstaréttarlögmaður formað ur Lögmannafélags Islands, sendið mér með bók yðar, hafið þér verið óheppinn í orðum og framsetningu og misvitur sem lögfræðingur Það fólk, sem undirritaði á- varp um þjóðareiningu gegn her á Islandi kallið þér m.a. „útsendara mesta hcrveldis og morðveldis sögunnar, sem leika það hlutverk meira eða minna vitandi vits að svæfa varúðar- og sjálf- stæðistilfinningu þjóðarinn- ar“. Svona ódrengileg og rakalaus orð setja ekki blett á það fólk sem þér viljið níða, lieldur yður sjálfan. Það má sanna mhð skýrum röljum að öll störf alls þess fólks, sem undirritaði ávarp- ið, hafa verið unnin með heill lands og þjóðar fyrir augum, og með ávarpinu viljum við hvetja þjóðina til að vinna að endurheimt sjálfstæðis landsins. En aftur á móti hafið þér svikið málstað Islands. Þér svikuð kjósendur yðar á Seyðisfirði, því að þér höfð- uð ekkert umboð á Alþingi til þess að samþykkja að bandarískur her tæki ból- fesetu á Islandi;—þér létuð sneypa yður til þess að sam- þykkja komu hersins, sem nú varpar skugga á atvinnu- vegi landsmanna, fjármála- líf, sjálfstæðismálin, utanrík- ismálin, og seilist nú eftir kverkataki á þjóolífinu í heild. Fyrir þenna verknað yðar ber Seyðfirðingum að dæma yður úr leik í kosn- ingunum í sumar og lofa yður að „kjósa frelsið". Þér segið um bréfið, sem Lögmannafélag Islands fékk frá okkur: „Mér dettur ekki í hug að sýna, hvorki með- stjórnendum mínum né fé- lagsfundi þá lítilsvirðingu að leggja þessi ómerkilegu plögg fyrir þá“. Þar sem þér skrifið bréf- ið sem formaður Lögmanna- félags íslands vil ég benda yður á, að þér hafið brugð- izt almennum félagslögum, trúnaði og skyldum, svo fá- heyrt mun vera á Islandi. Þessi trúnaðarbrot skjalfest- ið þér og staðfestið með undirskrift yðar. Eg full- yrði, ef sá háttur, sem þér hér hafið upp tekið, yrði framkvæmdur í félagssam- tökum þjóðarinnar yfirleitt, myndi það hafa örlagaríkar og illar afleiðingar, það myndi svæfa siðgæðisvitund manna, setja sorámark á fé- lagslíf og samtök fólksins, eitra og tortryggja sam- vinnu manna og sambýli og næra hinar lægri hvatir. Ég mun ekki þurfa að benda Lögmannafélagi Is- lands á félagslegar aðgerðir í sambandi við þessa fram- komu yðar, en ekki tel ég ósennilegt, að með þessu séuð þér fallinn í valinn sem formaður Lögmannafélags- ins hvað sem á eftir kann að fara. Þetta bréf ,sem ég birti opinberlega, má því skoðast sem upphaf að minningarorðum um yður sem formann hins virðulega félags, en það mun sjálft gera yður betri skil, svo sem verðugt er. Verið þér sælir. G.M.M. isg siar Sékn snýr sér íil Mþýðusambasidsiiss um málsböfðmt fyrir félagsdómi vsgsta sarsraingsrofannfí. Trúnaðaririannaráð samþykkir að sagt skuli upp samningum. I deilunni milli Starfsstúlkna- félagsins Sóknar og stjórna spítalanna hefur það gerzt nýtt, að félagsfundur Sóknar 24. þm. samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta að stefna stjórn Ríkisspítalanna fyrir félagsdóm (} vegna samningsbrota. Trúnað- ') armannaráðsfundur félagsins í fyrrakvöld samþykkti ennfrem. ur að sagt skyldi upp gildandi kjarasamningi, en ekki- er vit- • að á hvaða forsendum það var gert. , • Eins og kunnugt er hafa starfsstúlkur á Kleppi haldið fram kröfumii um íið þcer stúlkur sem þess óskuðu fengju keyptar einstakar máltíðir á vinnustað eins og 3. gr. kjara- samnings gefur þeim rétt til og tíðkast á öðrum spítölum, svo sem Landsspítalanum. —■ Hins vegar hafa forráðamenn spítalanna boðið fram nokkra tilslökun á verði fæðis ofl. sem hér um ræðir, en ekki fengizt til að viðurkenna ákvæði 3. greinarinnar um rétt stúlkn- anna til að kaupa fæði utan spítalanna að einhverju eða öllu leyti, ef þeim falla ekki þeir kostir, sem vinnuveitand- icm býður hvað verð fæðis ofl. snertir. — Þennan samnings- lega rétt til að velja og hafna vilja stúlkurnar ekki láta af hendi, og ‘skyldi enginn )á þeim það. Til leigubílsijóranna. — Bókmenntakynning ungu skáidanna. — Listvinasalurinn. — Áuglýsingar. — Kaldalónskviða. — Vísa 7 ára telpu UNG OG FALLEG stúlka bið- ur Bæjarpóstinn að skila því allra vinsamlegast til leigu- bílstjóra bæjarins að taka upp þann sið að bíða ofurlítið lengur en þeir gera fyrir framan húsin, þegar bílar eru pantaðir frá stöðvunum. „Þeir eru lagðir af stað aftur, áður en maður er kominn í káp- una“, segir hún — og er það vitanlega mesti ósómi af hálfu bílstjóranna, en enginn efast um, að stúlkan hefur mikið til 'síns máls. — Sem- sagt, leigubílstjórar góðir, hafið þetta á bak við eyrað .. ATHYGLI SKAL vakin hér á tvennu, sem menn geta gert sér til skemmtunar yfir þessa helgi. Það fyrra er bók- menntakynning Helgafells, sem haldin er í Austurbæjar- bíói klukkan eitt í dag. Bú- ' ast má við, að mikil aðsókn verði að kynningunéi, því hér koma fram ung skáld og rit- höfundar, sem ekki hafa kom- ið fram á bókmenntakynning- um: áður, og er því ráðlegt að köupa aðgöngumiða fyrr en síðar; en aðgöngumiðasalan héfú't kl. 11, og er við suður- dýf hússins. — Eins og sjá má á auglýsingum koma þarna fram eftirtaldir menn: Elías Mar, sem le.s kafla úr nýrri skáldsögu, Ei.nar Bragi Sigurðsson, sem les Ijóð; Jón Óskar les nýja smásögu, Stefán Hörður Grímsson ljóð, Indriði G. Þorsteinsson kafla úr -óprentaðri sögu og loks Ásta Sigurðardóttir eina af sínum athyglisverðu smásög- um ,sem ekki hefur birzt áð- ur. — Óvist er, hvort bók- menntakynningin verður. end- urtekin. Aðgangur er 10 kr. Svo skal einnig minnzt á yfir- standandi sýningu í Listvina- salmum við Freyjugötu. ■— Þar eru sýndar fjölmargar prentanir lieimsfrægra mál- verka eftir málara eins og van Gogh, Cézánne, Renoir, Dufy, Gaugin, Rouault, de Utrillo ofl. — Myndirnar eru listavel prentaðar, og verði þeirra mjög í hóf stillt, kosta frá 50-150 krónur. Aðgangur á sýninguna er aðeins fimm krónur, og hún er vel þess virði að sjá hana, þótt menn fari ekki með þeim ásetnieigi að kaupa. — Opið ef aðeins til kl. 10 í kvöld, því þá verð- ur farið að undirbúa aðra sýningu, sem opnuð verður seinna í vikunni. B.S. SEGIR: — „Mér finnst nokkuð andkannalegt, hvern- ig menti og fyrirtæki komast stundum að orði í auglýsing- um, einkum hvað menn hota mikiö sama venjubundna orðalagið, þar sem hver tygg- ur upp eftir öðrum, stundum hálfgerða vitleysu. Hvaða þörf er t.d. á því, að menn taki það beinlínis fram, að þeir hafi rétt. til að „taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum“? — Liggur það ekki í augum. uppi, að svo er?“ JÓN Þórarinsson liefur sent eftirfarandi ' athugasemd: „1 bréfi frá ,Austfirðingi‘ í ,Bæj- arpóstinum' 1. þm. segir m. a.: Ríkisútvarpi'ð flutti, ekki alls ,f.yrir löngu, Kaldalóns- lcyilðu eftir Jón Þórarinsson.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.