Þjóðviljinn - 30.05.1953, Qupperneq 3
2)
ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 30. maí 1953
_i t dag er laugardagurinn 30.
maíl 150. dagur ársins.
Frá Óhá3a fríkirkjusöfnuðinum.
Frámvegis verður afgreiðs'a
kirkjubygg'ing'arhappdrœttisins á
skrifstofu Klseðaverzlunar Andrés-
ar Andréssonar, Laugavegi 3, kl.
1—6 e,h. Vinsamlega gerið skil
sem fyrst. Dregið verður 10. júní
næstkomandi.
Þeir sungu Islendingabrag
Þjóðdansaæfingar ganga vel. 'en
þátttaka er ekki nógu almenn.
Tvlunlð að 1300 krónur af ferða-
kostnaði verða að vera greiddar
fyrir næstu mánaðamót. Enn-
fremur eru þéir, sem kynnu að
verða að liætta við förina, varaö-
ir við að frá og með 1. júní
verða 300 krónur óendurkræfar,
vegna áfállins kostnaðar.
ÆSKTLEGT er að þeir, sem
ekki hafa gild vegabréf, afii sér
þeirra sem fyrst. Viðvíkjandi
myndatoku er nauðsyniégt að at-
huga að undirbúningsnefndin þarf
að fá fjórar myndir, en ekki að-
eins "tyær eins og áður héfur ver-
ið sagt.
* 6. júní nk. er útrunninn kæru-
frestur vegna lcjörskrár. I*að er
einkum áríðandl fyrir alla, sem
flutt hafa í bæinn frá síðasta
manntali eða frá því í nóv.-
des. sl. að athuga hvort nöfn
þeirra standa á kjörskrá.
12.50—13.35 Óska-
lög sjúklinga (Ingi
björg Þorbergs).
19 30 Tónleikar:
Samsöngur. 20.30
Tónleikar: Lög úr
óperettum. 20.45 Upplestrar og
'tónleikar: a) Þorsteinn Ö. Step'
liensen leikari' les smásögu: „Feg-
urð blómanna" eftir Rósbcrg G.
Snædal. b) Tónleikar pl.: Miðsum-
c.rsvaka, hljómsveitarverk eftir H.
Alfén (Konsérthljómsveit . Stokk-
hóims leikur; Kils Grevillius stj.)
c) Frú Guðrún Guðjónsdóttir les
Ijóðaþýðingar eftir Magnús Ás-
geirsson. d) Tónleikar pl.: Forleik
ur að Töfraf.lautunni eftir Weber
(Hljómsveit Ríkisóperunnar í Ber
lín leikur; Leo Blech stjórnar).
e) Elías Mar rithöfundur les smá-
sögu: „Stúlkan kemur í heimsókn"
eftir Erskine Caldwell. 22.10 Dan-
lög. — 24.00 Dagskrárlok.
ITngbarnavernd Líknar
Templarasundi 3 er opin þriðju-
daga kl. 3,n—4 og fimmtudaga kl.
I3"—23”.. — Á föstudögum er opið
fyrir kvefuð börn kl. 3:'—4.
Krabbameinsfélag Keykjavíkur.
Skrifstofa félagsins er í Lækj-
argötu 10B, opin daglega ki. 2-5.
Sími skrlfstofunnar er 6947.
Er Steindór kom til fundarins
hanian af hamrinum, var fyrsti
ræðumaóur, Jón ritstjóri Ólafs-
son, stiginn upp á ræðusteininn
og byrjaður ræðu sína. — Að
sjálfsögía var „uppkastið“ og
„sambandsmálið“ umræðuefnf.ð,
enda um það mál kosið. — Mun
Jón liafa vikið að sjálfstæðis-
baráttu sinni fyrr og síðar. —
Snemma í ræðu sirmi tók hann
fram, að hann teldi sjálfstæði og
frelsf íá endinga vel tryggt með
me2 tillögum meirihluta milli-
landanefndarnnar. Þá gall Vð
hin háa og hvel a rödd Steindórs:
„En þeir fólar, sem frelsi vorí
svíkja!“ Jóiii brá og setti rauð-
an; en liélt þó áfram máli sínu
hiklaust, er hlátur fundarmanna
lægði. En Steindör skaut við og
vfð orðum inn í og var all nap-
ur. í seinni hluta ræðu sinnar
komst Jón að orði á þá leið, að
hann og liver sá, sem brygðist
málstaí íslands, sem hér væri
þó ekki um að ræða, væri for-
dæmingar verður. — Við þessi
orð jók Steindór jafnskjótt:
„Frjáls því að íi andsþjóð, ei
þekkir heims um slóð 7 neitt
djöfullegra dáðlaust þing en
danskan íslending“. — Brast n«
þingheimur enn í lilátur, en nú
refddist Jón og kallaði sinni
hásu rödd til Steiiidörs: „Haldið
þér kjafti, þarna mannandskoti.
Þér getið taiað á eftir“. Æstist
nú enn hlátur fundarhianna og
andstæðingar Jóns gerðust nú
glaummik'ir og fékk hann lítt
liljóð úr því og lauk máli sínu
svo að tæplega urðu orð greind.
— í fundarlok, eftir heitar um-
ræður, miklar orðahnippingar og
æsingar, gengu allmargir fundar-
menn saman í hóp og sungu
„íslendingabrag" Jóns Ólafsson-
ar allan. (Sigurður Baldvinsson:
Þáttur af Steindóri Hinrikssyni í
Austurland III).
ÁSálsafnaðarfundur Laugames-
kirkju verður að lokinni guðsþjón-
ustu í kirkjunni kl. 3 á morgun.
Dagskrá: venjuleg aðalfundar-
störf, kosning 3ja manna í sókn-
arnefnd og 3ja til vara. Ennfrem-
ur verður kosinn safnaðarfulltrúi.
Næturvarzla
Sími 1618.
Laugavegsapóteki.
Koss í kaupbæti
Þótt sýningar á Kossi í kaupbætl
hafi verfð allskrykkjöttar, bæðl
vegna heimsóknar Finnsku óper-
unnar og La traviata, liefur þessi
létti gamanleikur verið sýndur
við húsfyUl á þvínær hvcrri sýn-
ingu. Nú eru aðeins eftir þrjár
F.ýningar ieiksins á þessu Ieikári,
sökum þess að margir aöalieikend-
iimir leggja upp í leikferð með
Tópaz í byrjun næsta mánaðar.
Kæsta sýning Koss í kaupbæti
verður í kvöld.
ir Gjörið svo vel að gefa kosn-
ingaskrifstofunnl upplýsingar
um kjósendur Sósíalistaflokks-
ins sem eru á förur.i úr bæn-
um, og um þá sem utanbæjar
og erlendis dveljast.
MESSUR Á MORGUN:
( rSj)* Laugarneskirkja:
Messa kl. 2 e. h.
Séra Garðar Svav-
arsson. — Lang
holtsprestakall:
. Messa: kl. 11
Laugarneskirkju. (Ath. breyttan
messutíma). Séra Árelíus Níels
son. —- Háteigsprestakall: Messa
Hallgrimskirkju kl. 2. Séra Jón
Þorvarðsson. — Fríklrkjan: Messa
kl. 2. Séra Þorsteinn Björnsson.
— Hallgrímskirkja: Ferming kl.
11 árdegis. Séra Jakob Jónsson.
Dómkirkjan: Messa kl. 11 f. h.
Séra Óskar J. Þorláksson.
■fr Gofið kosningaskriístofu Sósí-
alistaflokksins upplýsingar um
alla þá kjósendur flökkslns,
seni eru á förum úr bænum
eða dveija utanbæjar eða er-
lendis og þá hvar.
ir nosnlngar erlendis fara fram í
skrifstofum sendiráða, eða' út-
sends aðalræðismanns, útsends
ræðismanns eða vararæðis-
manns íslands.
•Sff
Wk
Eg niætti kannski biðja yður að
liringja selnna. Maðurinn minn er
upptekinn í svipinn.
Söfnin
Landsbókasafnið: kl. 10-12, 13-19,
20-22 alla virka daga nema laugar-
daga kl. 10-12 og 13-19.
Þjóðminjasafnið: kl. 13-16 á sunnu-
dögum, kl. 13-15 á þriðjudögum,
fimmtudögum og laugardögum.
Náttúrugripasafnið: kl. 13.30-15 á
sunnudögum, kl. 14-15 á þriðjudög-
um og fimmtudögum.
Bólusetning gegn bamaveiki.
Pöntunum veitt móttaka þriðju-
daginn 2. júní kl. 10—12 f.Ti. í
síma 2781.
-Trá
&?■
M
\
i wi ,
_A' /
"íííi/ÆMPf
Nú, ætlarðu svo að koma niður
— eða ekki!
Kvenfélag Háteigs.sóknar heldur
bazar i Góðtempiarahúsinu mið
vikudaginn 3. júní n. k. til ágóða
fyrir kirkjubyggingu sóknarinnar.
Kvenfélagið heitir á félagskonur
og aðra velunnara, sem æt!a að
gefa muni á bazarinn, að koma
þeim sem allra fyrst til einhverr-
ar a.f undirrituðum. — Bjarnþóru
Benediktsdóttur, Mávahlíö 6. Svan-
hildar Þórðardóttur, Háteigsvegi
18. Júlíönu Oddsdöttur, Bólstaila-
hlíð 7. Öimu Oddsdóttur,' Fióica-
götu 39. Ingunnar Teitsdóttur,
Mávahlíð 32. Auðar Eiríksdóttur,
Drápulilíð 28. Ilildar Pálsson,
Fióicagötu 45. Svanhlldar Þorvarð-
ardóttur, Mávalilið 8. Elinar Egg-
ertsdóttur, Bólstaðahlíð 10. Svein-
bjargar Klemensdóttur, Flóka-
götu 21.
GENGTSSKKÁNING (Sölugengl):
iL. bandarískur dollar kr. 16,41
1 kanadískur dollar kr. 16,79
1 enskt pund kr. 45,70
ÍOO dánskár kr. kr. 236,30
100 norskat kr. kr. 228,50
100 sænskar kr. kr. 315,50
100 finsk mörk kr. 7,09
100 belg'ískir frankar kr. 32,67
10000 franskir frankar kr. 46,63
100 svissn. frankar kr. 373,70
100 tékkn. kcs. kr. 32,64
100 gyllini kr. 429,90
1000 lírur kr. 26,12
Á hvításunnu
dag voru gefin
saman í hjóna-
band af séra
Jóni Þorvarðs-
syni ungfr. Guð
rún Björgvinsdóttir, bárgreiðslu
mær, Suðurlandsbraut 118, og
páll Andrésson skrifstofumaðui
Langholtsvegi 135. — Um hvíta-
sunnuna voru gefin saman í hjóna
band af séra Árelíusi Níelssyni
Sigrún Arthúrsdóttir Efstasundi
12 og Rögnvaldur Björnsson húsa-
smiður Mánagötu 2. Heimili þeirra
verður að Mánagötu 2. — Enn-
fremur Hanna Halldórsdóttir og
Þórir Guðmundsson, strætisvagn-
stjóri. Heimili þeirra verður að
Nökkvavogi 11. Og af sama presti
á annan í hvítasunnu Borghildur
Kristjánsdóttir og Gunnar Schev-
ing Sigurðsson, bílstjóri, Bolla-
götu 9.
EIMSKIP:
Brúarfoss fór frá N.Y. 21. þm.
áleiðis til Rvíkur. Dettifoss er
í Rvík. Goðafoss kom til Rvikur
í fyrradag. Gullfoss fer frá Kbh.
í dag áleiðis til Leith og Rvíkur,
Lagarfoss fór frá Antverpen í gær
kvöld áleiðis til Rotterdam og R-
víkur. Reykjafoss kom til Seyðis-
fjarðar í gær frá Kotka. Selfoss
fór frá Vestmannaeyjum 26. þm.
áleiðis til hafna í Suðursvíþjóð.
Tröllafoss er í N.Y. Straumey er í
Rvík. Vatnajökull fer frá Hull í
kvöld áleiðis til Reykjavikur.
Skipadeild S.l.S.:
Hvassafell fer frá Fáskrúðsfirði
í dag áleiðis til Finnlands. Arn-
arfell er væntanlegt til Fáskrúðs-
fjarðar í dag. Jökulfell losar á
Hvammstanga.
Ríkisskip:
Hekla er í Rvík. Esja er á
Austfj. á norðurleið. Herðubreið
er í Rvík. Skjaldbreið er í Rvík.
Þyrill er í Rvík. Skaftfellihgur er
í Vestmannaeyjum.
ir Allir þeir sem vilja lijálpa til í
fjársöfnuninni í kosningasjóð
eru beðnir að taka söfnunar-
gögn í kosnlngaskrifstofunni.
Munið áð sénda
Þjóðviljanum fæð-
ingarfréttir. Þær
eru vinsælar og
mikið lesnar, enda
eru fáar fréttir í rauninni athygl-
isverðari og gleðilegri en þær —
jafnvel þó ekki sé alls gætt, sem
náttúrlega er þó eðlilegast.
Krossgáta nr. 89.
★ Kosningaskrlfstofa Sósíalista-
floltksins gefur allar upþlýsing
ar varðandi kosningarnar.
Lárétt: 1 bitar 4 fen 5 fornt
nafn 7 vafi 9 nisti 10 hæf 11
eykst 13 kyrrð 15 kind 16 afgjald.
Lóðrétt: 1 skordýr 2 hrós 3 oki
4 kvenfólk 6 veiðarfæri 7 staf.ur
8 stefna 12 gruna 14 reykur 15
etandi.
Lausn á krossgátu nr. 88.
Lárétt: 1 Bjartur 7 óó 8 róta 9
lin 11 sat 12 áá 14 ra 15 erta 17 ól
18 art 20 stokkar.
Lóðrétt: 1 Bóla 2 Jói 3 rr 4 tos
5 utar 6 ratar 10 nár 13 átak 15
elt 16 ark 17 ós 19 ta.
Ugiuspegill fékk tkóna og safnaði þeim Ug'uspegill hélt áfram að dansa: Eg sagðist
í stakk sinn, og þannig búinn gekk hann ekki ætla að fara í skóna þó ég segðist ætla
út á strenginn og dansaði á honum. að dansa á fótunum, heldur að dansa með
Drengirnir kölluðu að neðan: Þú sagð- þá. Nú dansa ég og þeir dansa með mér.
ist ætla að dansa á skónum okkar. Farðu Borgið mér það sem tilskilið var.
í þá og státtu við veðmálið.
Ugluspegill kastaði skónum niður til þeirra Ugluspegill brosti þegar hann sá hve refsing
og það var stór hrúga. Það hófst æðisgeng-- hans var velheppnuð, en þeir öfunduðu hann
in barátta um skóna því drengjunum gekk fyrir leikni sina og áræði. Hann fetaði nið-
erfiðlega að þekkja þá sundur. Ef einhver ur af strengnum og sprautaði yfir þá sér-
ætlaði að taka einhvem skó hófust mótmæli kennilegu vatni — það var í öllu falli ekki
frá öðrum sem sagði að þetta væri sinn tært vatn.
skór.
Laugardagur 30. maí 1953 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Framhald af 1. síðu.
lögreglan á iKeflavíkurflugvelli
sem verður áð þola bandarískan
yfirgang, heldur einnig, og miklu
Oftar, íslendingar klæddir ó-
toreyttum fötum.
Kast við veginn fyrir ofan
Leiruna hefur bandaríski herinn
sett upp „varðstöð", hlustunar-
toragga. Á hvítasunnudag voru
toændur úr Leirunni að ganga um
land sitt ofan við veginn og voru
þá fyrirvaralaust stöðvaðir af
vopnuðum bandarískum her-
mönnum og þess kr-afizt að þeir
geröu grein fyrir livað þeir væru
að snuðra á sinni eig'n jörð!!!
Daglega dynur nú bandarísk
skot’nríð inn ,-alla V.atnsleysu-
strandarheiðina svo húsin niðri
í toyggðinni nötra, en bændur
verða að passa búfé sitt inni á
lúnum sínum.
Guðmundur hernáms-
stióri kveinkar sér.
Hemámsstjórinn, Guðmundur
(Guðmund-sson frá Hafnarfirði, er
nú ekki eins borubrattur og nótt-
ina sælu fyrir tveim árum þegar
■liann beið á Ke’flavíkurflugvelli
eftir komu bandarísk.a hernáms-
liðsins — sem hinn opinberi full-
trúj landsöluflokkanna þriggja!
Hann sveitist nú daglega við að
:afsaka gerðir- sínar og hleður ó-
•sannindum á ósannindi ofan sér
til varn.ar. Þessi óláns „varnar-
nefndar“maður sem stjórnar töku
landa Suðumesjamanna til um-
ráða fyrir bandaríska herinn —
alla leið inn undir Keili, þóttist
um daginn hver.gi hafa nærri
korr.ið — og sagði að það væri
-samningur um töku lands á
Vatnsleysuströnd, — á sama tíma
■og landei.g'endur þar höfðu enga
hugmynd um sMkan samning!
Meira af þessu!
í gær skrifaði hann í Alþýðu-
tolaðið undir þrídálka fyrirsögn
að frásögn Þjóðviljans af yfir-
gangi Bandaríkjamanna s.l.
Raufarhöfn. Frá frétta-
ritara Þjó'ðviljans.
Undaní'arið hefur verið hér
bjart og gott veður, en fremur
halt. Afli hefur verið ágætur.
Sjómenn segja sjóinn hér
fyrir uian fullan af rauðátu,
svo síldin ætti þess vegna að
geta komið í sumar.
R,anghermt var það í frétt
af inflúenzufaraldrinum á Rauf
ai'höfa að Gunnlaugur Sigvalda
son járnsmiður og ungt barn
hefðu látizt\úr veikinni. Frétt-
in sem Þjóðviljinn birti var
ekki frá fréttaritaranum á
staðnum, 'heldur fréttum sem
Raufarhafnarmenn hér í bæn-
um feagu að austan, en meðal
þoirra lék ekki vafi á þessu.
Um leið og Þjóðviljanum er á-
nægja að geta skýrt frá afJ
gamli járnsmiðurinn þeirra á
Raufarhöfn og litla barnið eru
vel lifandi, biður hann alla við-
komandi og lesendur afsökuriar
á þessum mistökum.
ekÍDffl - Hernámss
þriðjudag væru „tilhæfulaus ó-
sannindi“, og á forsíðu sama
'blaðs var birt frétt um að
bandaríski lögreglustjórinn hefði
verið rekinn'fyrir framferði það
er Þjóðviljinn lýsti! Meii'a af
þessu, Guðmundur Guðmunds-
son hernámsstjóri!
Hvað var hernáms-
stjórinn að gera?
TJm daginn afsakaði hann sig
svo rækilega gagnvart töku
Vatnsleysustrandarheiðarinnar
fyrir herinn, að það vantaði
• F ® 9 •
naumast annað en hann særi:
soddan fólk þekki ég ei! í grein-
inni í gær segir hann: „ég var
staddur suður á Vatnsleysu-
sti'önd'1. Hvað var Guðmundur
hernámsstjóri að gera á Vatns-
leysusti’önd s.l. þriðjudag?
Hann skyldi þó aldrei liafa
verið a2 reyna að fá kjósend-
ur sína til að afturkalla undir-
skriftir sinar undir mótmæl'n
gegn heinii darlausri landtöku
og kröfu þeirra um að banda-
riski heriijn verði brott af
landi Strandarmanna?!
Höluðlð gefur sig
Iíannibal Valdimarsson held-
ur áfram að berja höfðinu við
stein eins og brjálæðingur, og
þess sjást greinilega merki að
höfuðið er tekið að gefa sig.
I gær segir haan um þá þvætt-
ingsbombu sína að ritstjórar
Þjóðviljans hafi látið lögregl-
una taka fastan skipverja af
Agli rauða sem kvartaði undan
aðbúðinni, að hann taki ekki
mark á „fullyrðingum ritstjóra
Þjóðviljans í sjálfs sín sök.
Ritstjórar Þjóðviljans ættu að
sjá sóma sinn (!) í því að fara
gætilega í þessu sambandi. Þeir
eru hér að nokkru (!) sakar-
aðili, og ólæti þeirra (!) sanua
ótvírætt(i), að samvizka þeirra
er hvergi nærri góð í þessu
máli (!)“.
Já, höfuðið er sannarlega
farið að láta. sig. Hér er ekki
um að ræða neinar „fullyrðing-
ar ritstjóra Þjóðviljans“ held-
ur ótvíræðar yfirlýsingar lög-
reglustjórans í Reykjavík og
yfirlögregluþjónsins um að at-
burður sá sem Alþýðublaðið
fjasar mest um hafi aldrei
gerz.t. Ölíu rækilegar er ekki
hægt að reka ósannindi ofan
í söguburðarmann og mun það
nálega einsdæmi í sögu ís-
lenzkra blaða að ritstjóri liafi
verið staðinn að algerum,
hömlulausum uppspuna. Og
ekki þarf að lýsa nánar inn-
ræti þcss raanns sem néitar að
biðjast afsökunar þegar hann
er slaðinn að slíku verki.
Staðhæfingarnar um aðbún-
aðinn á Agli rauða eru með
sama marki brenndar, eins og
áður hefux’ verið rakið hér í
blaðinu. Nægir að benda á að
þar er heimilda rinaður Oddur A
Sigurjónsson, skólastjóri, einn
illræmdasti fáráðlingur á öllum
Austfjörðum. Víldi Oddur ólm-
ur komast i framboð fyrir flokk
inn í Suðurmúlasýslu og lagði
á sig ferð 'til Reýkjávíkur ti'
að tryggja þaö, ea þegar það
frcttist eystra bárust neyðar-
skeyti með mótmælum úr
hverju byggðaiiagi. Síðan er
Oddur að i'eyna að hefna sín
á þennan nýsíótiega hátt.
Fundur Sósí-
alistoflokks-
ins á Hvamms-
tanga
Hvammstanga í gær.
Fx'á fréttaritara Þjóðviljans.
Sósíalistaflokkurinn hélt hér
ágætan stjórnmálafund i gær-
kvöld í samkomuhúsinu. Á fund-
inum mættu Einar Olgeirsson og
Björn Þorsteinsson, frambjóðandi
Sósíalistaflokksins í Vestur-
Húnavatnssýslu. Fluttu þeir ýtar-
legar ræður um viðhorfið í þjóð-
málum og kosningarnar sem
framundan eru. Vax- máli þeirra
vel tekið af fundai'mönnum.
Auk Einars og Björns tók til
máls Gunnlaugur Sigurbjörnsson
bóndi á Toi-fustöðum.
Einar hélt héðan til Blönduóss
og mun halda þar almennan
stjómmálafund kvöld
áhugi alWliiií a^aHsfais
fjails fyrir stefnuméEurr :oi barátfu
Sésíalistaflokksísis
GsS fimdai'sókii hjá Æskulýðsf?lkingnnni á
Sf©kkseys:i og Eyraskðkkð
Stjórnmálaí'undir ÆskulýðsfyLkingai-innar á Stokkseyri
og- Eyrarbakka í fyrrakvöld tókust ágætlega. Voru báðir
fundirnir' vel sóttir og báru vott um vaxandi áliuga al-
þýðunnax austan fjalls fyrar stefnumáium og baráttu
Sóeíalistaflokksins.
Ræðumenn á fundinum á
Stokkseyri voru Hai'aldur Jó-
hannsson hagfræðingur, Tryggvi
Sveinbjörnsson iðnnemi, Álfheið-
ur Kjartansdóttir vei'zim., og
Bjarni Benediktsson blaðamaður.
Leikararnir Gísli Halldórsson og
Karl Guðmundsson lásu upp. |
Fundarstjóri var Guðmundur
Þórðarson vei'kamaður. |
Ræðumenn á Eyrai'bakka vox'u
Halldór Stefánsson verkamaður,
Þói'kell G. Bjöi'gvinsson, formaí-
ur Iðnnemasambands íslands,
Lái'a Helgadóttir skrifstofumær
og Guðmundur Vigfússon. Karl
Guðmundsson og Gísli Halldóx’s-
son lásu upp. Fundarstjóri var
Guðjón Guðjónsson verkamaður.
SÍS sækir bsí að ieígja li tif 2(1 |is,
ionitg oilnfIufningsskip .
Þjóðviljinn fékk frá S. I. S. eftirfarandi upplýsiagar í gær:
Samband íslenzkra samvinnufélaga ihefur fyrir nokkru sótt
um leyfi Fjárhagsráðs til þess að leigja 16—20.000 tonna olíu-
skip án áhafnar, skipa það íslenzkri áhöfn og nota það til flutn-
inga á benzíni og olíu frá Suður-Ameríku til Islaads. Er hugsan-
legt, að skip þetta verði lejgt til 5—10 ára og leigumálar verði
þannig, að íslendingar fái kauprétt að skipiau hvenær sem er
eftir að leigan hefur staðið í eitt ár.
Slík leiga á skipiFr á erlendu
máli kölluð „bare boat charter“
og ber þá leigjandinn allan veg
og vanda af rekstri skipsins.
Ef íslendingar leigðu slíkt olíu-
skip, mundi það vera 3—4 sinn-
um stærra en stærstá skip, sem
íslendingar nú sigla. Þrátt fyrir
það, að slík olíuskip eru vand-
meðfai'in á margan hátt og
geysimikili umbúnaður 1 þeim,
er ekki talið, að vera þyrftu
nema 2—3 erlendir séx-fræðingai'
á skipinu fyrsta árið, en að öllu
öðru leyti gæti áhöfnin, 40—45
manns, verið íslenzkii- sjómenn.
Það er talið hentugast að leigja
mjög stórt skip, 16—20.000 lestir,
því að kostnaður við í'ekstur
olíuskipa vex ekki í neinu hlut-
falli við stækkun skipanna.
Skipsleiga á þann hátt, sem
hér hefur verið lýst,’ er frekar
sjaldgæf og ei'fitt að fá skip á
þennan hátt, en þó hefur SÍS
ástæðu til að ætla, að það gæti
fengið hagkvæma leigu á olíu-
skipi á þennan hátt.
Æskilegast væri að sjélfsögðu
fyrir íslendinga að eignast hrein-
lega olíuskip, en skip aí þeirri
stærð, sem tvámælalaust er hag-
kvæmast að kaupa, kosta nú ný
um 50 milljónir króna. Enda þótt
lán til slíkra skipakaupa kunni
að vera fáanleg erlendis, gæti
það vai’la orðið án rikisábyrgðar,
en slík ábyrgð mun ekki fáanleg
til skipakaupa eins og nú horfir.
Fi-amh. af 12. síðu.
að, skóla, verzlun, samgöngur
c.fl.
Hafa verið gerðar ráðstafan-
ir til þess að fá leyfi til þess
að heimsækja verksmiöjur o.fl.,
fyrir þá, sem þess óska.
í sambandi við þessa ferð er
þátttakendumim bent á að nauð
synlegt er að hafa vegabréf.
Um 120 manns hafa þegar
pantao, en ennþá eru nokkur
rxim laus.
Næsta skemmiiferð uían
á vegum Ferðaskrifstof-i ríkis-
ins er ráðgerð 29. júxxi. Verður
þá farið með m.s. Hsklu til
Glasgow. Verður dvaiið þar og
í Edinborg og ferðazt um há-
lendi cg vataahéruð Skotlands.
Ferð þessi tekur 19 aaga og
verður komið heim aftui’ 17.
júli.
Frá kosrsmg&skrlfstoíu Sósíalistaflokksins:
30 dagmr eru til hfördags
Kæmfrestur resumr
Kosningaskrifstofa Sósíalista
fickksins vill minna alla
stuðningsmenn C-iistans á
eftirfarandi:
KOSNINGASJÓÐUR: Söfn-
un í kosningasjóðinn er nú
hafin fyrir nokkru og hafa
skil borizt nú þegar frá
nokkrum deildum. Innan
skamnis hefjum við opinber-
lega samkcppni milli deild-
anna og verður röð deild-
anna b'rt þá. Þá þurfa all-
ar deildir að vera komnar
á blað og framlag þeirra
orðið sem mest. Skiiadag -
höfum við n. k. mánudag,
og eru allir félagar og aðr-
ir stuðningsmenn livattir til
þess að gera þá skil. Þær
þrjár deiidir sem efstar
verða að lokum fá hver um
sig til ráðstöfunar ferð á
æskulýðsmótið í Búkarest í
sumar fyrir e’.nn mann. Þær
ferðir geta. hverjir sem eru
öðlast hvort sem þeir eru í
flokknum eða utan hans svo
framarlega sem hann verður
efstur í sinni deikí. Félagar
og aðrir stuðningsmenn C-
listans hefj'ð starfið strax.
Komið í skrifstofu Sósíal-
istaflokksins Þórsgötu 1 og
skilið og takið blokkir til
söfnunar. Athug'ð hver
króna fyllir mælinn og ekk-
ert er það smátt að ekki
komi að notum fyrir lista
alþýðunnar C4istann.
ut 6. júní n. k.
UTANKJÖRSTAÐAAT-
KVÆÐAGREIÐSLA hefst
um mánaðamótin. Þeir kjós-
endur sem eru á förum úr
Reykjavík til útlanda eða út
á landí mega ekki gleyma
að kjósa áður en þeir fara.
Þeir kjósendur sem dvelja
fjarri lögheimilum sínum
geta kosið hjá næsta Iirepp-
stjóra, bæjarfógeta eða sýslu
manni ef þeir dvelja á Is-
iandi en hjá aðairæðis-
mannj, ræðismanni eða vara-
ræðismanni ef þeir dvelja
utanlands. — Kosningaskrif-
stofa Sósíalistaflokksins veit
ir allar nanðsynlegar upp-
lýsingar varðandi utankjör-
staðaatkvæðagreiðsíuna. Haf
ið sambaml við hana og gef-
ið upplýsingar um kjósend-
ur flokksins er dveija fjarri
löghcimilum sínum. KJÖR-
SKRÁ: All:r þurfa að at-
huga hvort þeir eru á kjör-
skrá og einkum þó þeir sem
flutt liafa nýlega. Eftir 6.
júuí er það um seinan því þá
rennur kærufrestur inn á
Itjöskrá út. Kosningaskrifst.
Sósíalistaflokksins veitir all-
ar upidýsingar viðvíkjandi
kjörskrá og ltærum. Stuðn-
ingsmenn C4istaiis vinnið að
sigri flokksins. Hafið sam-
band við kosningaskrifstofu
Sósíalistafiokksins Þórsgötu
1. Sími 7510 (þrjár linur).
opin frá kl. 10 f.h. til 16
eftir hádegi.