Þjóðviljinn - 11.06.1953, Page 8
g) _ ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 11. júní 1953
Nýjung, sem fer sigurför um allan heim!
Málcer inn
Símar 1496 — 1498
Handavimiusýnmg
Hósmæðraskóla Reykjavíkur
er opin í dag frá klukkan 10-22
Forstöðukonan
SésWistaflokkuriim hefír opnao
Kosnmgaskrifstofur
úti um land á eftirfarandi stöðum:
Hafnarfirði
Strandgötu 41, sími 9521.
Kópavogshreppi
Snælandi við Nýbýlaveg, sími 80468.
Keflavík
Zophonías Jónsson.
Sigluíirði
Suðurgötu 10, sími 194.
Akureyri
Hafnarstræti 84, sími 1516.
Vestmannaeyjum
Vestmannabraut 49, sími 296.
Auk þess gefa trúnaðarmenn flokksins á öðrum
stöðum allar upplýsingar varðandi kosningarnar.
A ÍÞRÓTTIR
RITSTJÖRl. FRÍMANN HELGASON
-----------—---—----------
Þess skol gefið setn gert er
í bréfum sem íþróttasíðunni
berast, er þess oft getið, og
um kvartað, að ekki ikomi nóg
af fréttum utan Reykjavíkur og
á það réttilega bent „að þar
séu líka iþróttamenn engu síð-
ur en í Reykjavík“. Þessi bréf
sem öll eru vinsamleg eru hér
með þökkuð og sannarlega tek-
ið undir aðfinnslur þessar. Ot
um landsbyggðina eru íþrótta-
menn og íþróttaleiðtogar sem
inna af höndum mikil störf oft
við erfiðar aðstæður sem sízt
eru þýðingarminni eða ómerk-
ari en þau sem unnin eru í höf-
uðstaðnum. Þetta hefur Iþrótta-
síðunni verið ljóst frá byrjun,
og henni hefur verið ljóst að
svo bezt gæti hún komið að full-
um notum að hún geti um það
sem gert er og beri boð og frétt-
ir sem víðast að milli þeirra sem
Víkingur á ísafírði
Um síðustu helgi fór knatt-
spyrnufélagjð Víkingur til ísa-
fjarðar til að keppa við félögin
þar. Var það meistaraflokkur
sem keppti við úrval úr Vestra
og Herði. Fóru leikar svo að
annar leikurinn varð jafntefli
1:1, en hinn unnu Víkingar 1:0.
Má þetta kallast góð frammi-
staða hjá Isfirðingum, þó þeir
hafi leikið á heimavelli. Eru
þeir frískir og fljótir og hafa
úthald en vantar tækni og hafa
ekki getað tileinkað sér nóg
leikskipulag eða ,,taktik“.
Lctu Víkingar mjög vel yfir
öllum . móttökum vestra, en
bæði félögin sáu um þær.
ísfirðingar hafa hug á að
komast á landsmótið í 1. flokk
en það byrjar 19. júní, en þeir
geta efcki komið fyrr en eftir
28. júní og hafa farið fram á
frest til þess tíma, en ekki er
vitað um undirtektir. Sennilega
mælir ekkert á móti því að
fresta mótinu til þess tíma þar
sem þeir og e. t. v. aðrir utan-
bæjarmenn, sem kæmu, gætu
séð leiki austurríska liðsins sem
hér verður um sama leyti.
Karl Guðmundsson úr Fram
hefur dvalið þar undanfarið
og þjálfað þá, og hafa knatt-
spyrnumennirnir æft vel þann
tíma. Er það einn þátturinn í
þvi að búa sig undir að taka á
móti úrvali frá Færeyjum sem
kemur til þeirra í sumar seint
í júlí, en með því gjalda ísfirð-
ingar heimsókn er þeir áttu-til
Færeyja fyrir 2—3 árum.
íþróttum og hugsjón þeirra
unna. Reynslan hefur aftur á
móti sýnt að menn út um land-
ið eru mjög tregir til að skýra
frá því sem er að gerast eða á
að gerast í byggðalögum þeirra.
Það virðist sem þeir séu hlé-
drægir og kalli það framhleypni
aö geta þess sem gert er á
þeirra eigin stað þó þeir vilji
ólmir fá fréttir frá öðrum. Þetta
er skaðlegur misskilningur, því
frásagnir af byggingu íþrótta-
mannvirkis, íþróttamóti eða ævi
starfi forustumanns hefur örv-
andi áhrif á þá sem lesa og
hvetur þá beint og óbeint til
að láta ekki á sig halla í fé-
lagslegu eða íþróttalegu tilliti.
Það eru því vinsamleg tilmæli
íþróttasíðunnar að þið íþrótta-
Víhingur vann
Prétt 5:0
1 fyrrakvöld fór fram annar
leikur Islandsmótsins í meist-
araflokki í knattspyrnu. Þeir
sem kepptu voru Þróttur og
Víkingur. Leikar fóru þannig
að Vikingur vann 1‘eikinn með
fimm mörkum gegn engu.
S*a5 var O'Brien, &em
varpaði kúiuimi 18,04 m
Frá því var sagt hér í blaðinu
að Bandaríkjamaður hefði varp
að kúlu 18,04 en nafnið heyrð-
ist ekki. Nú liggja fyrir upp-
lýsingar um að kúluvarpari
þessi var enginn annar en 01.-
meistarinn og heimsmethafinn
O’Brien, en hann var nýbúinn
að varpa kúlu 18,00. Vann
hann þetta afrek á móti í Comp-
ton.
Á sama móti hljóp Wes San-
tee frá Kansas 1 enska mílu á
aðeins 1 sek lakari tíma en
heimsmet Gunders Hágg er eða
2:02,4. Telja Bandaríkjameno
hann líklegastan til að hlaupa
míluna undir 4 mín sem hefur
verið draumur margra úrvals-
hlaupara.
III. FL. MÓTIÐ — A SVEITIR
Þriðja flokksmótið, sem frest-
að var s. 1. laugardag, heldur á-
fram á laugardag kl. 12 e. h.
og keppa þá Fram og Valur.
Dómari er Halldór Sigurðsson.
Strax á eftir keppa svo KR og
Þróttur. Dómari Magnús Guð-
mundsson.
síðuna geta þess sem gert er og
sendið henni frásagnir af starfi
ykkar. Það skapar kynningu
og örfar til átaka bæði heima
og heiman.
Getraunaúrslit
Með leikjum þeim, sem fram
fóru um helgina, lauk starfs-
tímabili getraunanna í vor. Or-
slit leikjanna á síðasta get-
raunaseðlinum urðu:
Bandaríkin 3 England 6 2
Reykjavik 1 — Waterford 4 2
AIK 4 — Norrköping 3 1
Degerfors 1 — Örebro 2 2
Gais 4 — Jönköping 2 1
Hálsingborg 1 — Göteborg 2 2,
Malmö FF 3 — Djurgárden 4 2
Skeid 3 — Fredrikstad 3 x
Braein 0 — Viking 3 2
Asker 1 — Sandef jord 0 1
Larvik 4 —- Lyn 0 1
Odd 7 — Lilleström 1 1
Auk árangurs úrvalsins gegn
Waterford komu mörg úrslit-
anna á Norðúrlöndum á óvart.
Bæði í Noregi og Svíþjóð hef-
ur baráttan verið tvísýn og
skemmtileg. I síðustu get-
raunavikunni að sinni tókst
engum að ná fleiri réttum á-
gizkunum en 10 og var hæsti
vinningurinn fyrir það kr. 770.
Vinningar skiptust þannig:
1. vinningur 165 kr# fyrir 1Ö
rétta (5). 2. vinningur 44 kr,
fyrir 9 rétta (37).
I sumar verður >hlé á getrauni
unum, en þiær byrja á ný með
ensku keppninni í ágúst.
til Vestmannaeyja á morgun,
Vörumóttaka daglega.
vestur um land til Akureyraú
hinej 16. þ.m. Tekið á móti
flutningi til Tálknaf]arðar, Súg-
andafjarðar, Húnaflóa og
Skagafjarðarhafna, Ölafsfjarð-
ar, Dalvikur og Hríseyjar í dag
og á morgun. Farseðlar seldir,
árdegis á mánudaginn.
KosiiMgaskrifslofa Sósíalislaflðkksins
Þórsgötu 1 — Sími 7510
Skrifsiofan gefur allar upplýsingar varðandi kosningarnar
Kjörskrá liggur frammi
Flokksíélagar og aðrir, sem þurfa upplýsingar varðandi kosningarn-
ar, eru beðnir að hafa sem fyrst samband við skrifstofuna.
Skrifstofan er opin írá kl. 10—10. — Sími 7510.
Arður til hluthafa
Á aðalfundi H.f. Eimskipafélags íslands 6. júní
1953, var samþykkt aö greiða 4 prósent — fjóra
af hundraði — í arö til hluthafa fyrir áriö 1952.
ArðmiÖar veröa innleystir í aöalskrifstofu félags-
ins í Reykjavík og hjá afgreiöslumönnum félagsins
um land allt.
Hi. Eimskipafélag Islands