Þjóðviljinn - 01.07.1953, Page 6

Þjóðviljinn - 01.07.1953, Page 6
0) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 1. júlí 1953 -----— þjóovmiNN Ötgefandi: Sameinlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokkurinn. Ritstjórar: Magnús Kjartansson (áb.). Sigurður Guðmundsson. Fréttastjóri: Jón Bjarnason. Blaðamenn: Ásmundur Sigurjónsson, Bjarni Benediktsson, Guð- mundur Vigfússon, Magnús Torfi Ólafsson. Auglýsingastjóri: Jónsteinn Haraldsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig. 1». — Sími 7500 (3 línur). Áakriftarverð kr. 20 á mánuði í Reykjavík og nágrenni; kr. 1T annars staðar á landinu. — Lausasöluverð 1 kr. eintakið. Prentsmiðja Þjóðviljane h.f. Þótt úrslit kosninganna á sunnudaginn hafi ekki orðið með þeim hætti sem ætla mátti eftr málefnaaðstöðu Sósíalista- flokksins og þeirra sem með honum stóðu í kosningabaráttunni ættu andstæðingarnir að fara varlega í það að fagna þeim úrslitum. Allir töpuðu hernámsflokkarnir fylgi með þjóðinni sé miðað við úrslit kosninganna 1949. Það eru framboð Þjóð- vamarflokksins sem hafa orðið þess megnug að sundra and- stæðingum hernámsstefnunnar og draga úr mætti þeirrar fylk- ingar sém háð hefur baráttuna gegn hernámimi og skerðingu lífskjaranna og sem ein er fær um að leiða þá baráttu til sig- urs fyrir íslenzka þjóð. Ætli íslenzka yfirstéttin og flokkar hennar sér þá dul, í skjóli þess að fylkingunni hefur verið sundrað um stund, að fylgja því eftir með nýjum stórárásum á lífskjör alþýðunnar t.d. í formi nýrrar gengislækkunar eða annarra svipaðra ráð- stafana mun hún mæta sameinaðri fylkingu alþýðustéttanna. Verkalýðssamtökin eru þrátt fyrir sundrungarstarf afturhalds- ins enn það afl með þjóðinni að þau munu ekki láta bjóða sér slíkt. Þau eru nýkomin út úr harðvítugri deilu við atvinnurek- endavaldið og ríkisstjórn þess og sýndu þá hvers þau eru megn- ug. Sameinaðar unnu tuttugu þúsundir íslenzkra verkamanna og verkakvenna sinn stóra sigur á dimmum desemberdögum síð- astliðins veturs, vegna þess að þær stóðu saman og börðust hetjubaráttu þrátt fyrir fátæktina sem svarf að heimilum þeirra. ísleeizk alþýða er hert í reynslu baráttu sinnar á undanförn- um árum og mun því ekki láta bjóða sér nýjar árásir á launa- kjör sín eða lífskjör almennt án þess að snúast til varnar af fullkominni hörku. En mikil nauðsyn er nú á því að verkalýð- urinn líti skyggnum augum til allra veðrabrigða á himni stétta- stakanna í þjóðfélaginu og sé á öllum vígstöðvum viðbúinn til að hrinda af sér áhlaupum stéttarandstæðingsins, hvort sem þau koma frá atvinnurekendavaldirfu og auðklíkunni eða reyílt verð- ur að skipuleggja þau með ríkisstjórn afturhaldsins og flokka þess sem foruStu og nota þingvald til óþurftarverkanna. Þetta þýðir að efla verður starfið í verkalýðsfélögunum um sllan helming og að öll verkalýðsstéttin verður að vera vakandi á verði um hagsmuni sína. Hún verður að vera reiðubúin hve- rær sem er. Og sameinaðri er henni sigur vís í hverri orustu. En einnig á stjórnmálasviðinu bíða stórvaxin verkefni til þess að vinna upp það sem glatazt hefur og undirbúa nú þegar nýja sókn alþýðunnar og hinna þjóðlegu afla. Þetta verður bezt gert með því að sósíalistar um allt land bregðist strax við á þann eima hátt sem er stefnu þeirra og hugsjónum sam- boðinn. Þýðingarmesta verkefnið sem framundan er á þessu sviði er stórlega efld starfsemi Sósíalistafélaganna um allt land cg aukið starf þeirra að útbreiðslu málgagna flokksins. Með því að bregðast þannig við því áfalli sem flokkurinn hefur crðið fyrir í þessum kosningum er næsta augljóst að auðvelt er að bæta fyrir það tap sem varð í kosningunum og undirbúa nýja sókn í þágu alþýðumálstaðarins og sjálfstæðisbaráttu ís- lendinga. Þannig bíða verkefnin á öllum sviðum framundan, bíða þess að alþýðan sameinist, skipi sér í eina öfluga fylkingu um hags- muni sína. Vettvangur hennar er verkalýðssamtökin og þau þarf r.ú að gera að enn sterkara og áhrifaríkara afli í baráttunni við auðstéttaröfliu og ríkisvald þess. Ekkert annað en samfylking fjöldans, hvar sem hann hingað til hefur skipað sér í flokk, getur hindrað fyrirætlanir auðklíkunnar um aukinn gróða sér til handa en féfleLtingu verkalýðs og millistétta. Að þessari samfylkingu þarf því að vinna af meiri bjartsýni og þrótti en nokkru sinni fyrr. Og samtímis þarf alþýðan til sjávar og sveita og millistéttir þjóðfélagsins að efla stjórnmálasamtök sín og stjórnmálaþátt- töku. Ekkert annað afl í þjóðfélaginu er þess megnugt að hafa forustuna í átökunum við óþjóðholla auðstétt og stjórnmála- spekúlanta sem verzla með það sem þjóðinni er dýrmætast og helgast, frelsi hennar og sjálfstæði. Og vissulega þarf enginn að efast um að þannig munu allir beztu kraftar íslenzkrar al- þýðu bregðast við vanda kosningaúrslitanna nú. Hann mun ^erða þeim hvatning til enn öflugra starfs fyrir Sósíalistaflokk- inn — fyrir málstað Islands. Kosningaúrslitin Reykjavík í kosningunum á sunnudaginn töpuðu hemámsflokkarnir allir fylgi hlutfaillslega. Árið 1949 fengu þeir um 80,5% kjósend- anna, en nú fengu iþeir um 74,5%. Um 6% íslenzkra kjósenda hafa þannig snúíð við þeim bakinu. Virkri andstöðu við hernámið lýstu nú 17.659 kjósendur, cg ef þeir hefðu staðið saman í einni fylkingu, hefðu þeir orðið næst- stærsti flokkur landsins. Siík úrslit hefðu orðið verulegur sig- ur andstæðinga hernámsins, ef ekki hefði verið sundrur.gin — en einmitt henna'r vegna teija hernámsflokkarnir lúrslitin sér hagstæð, og aðeins hennar veigna. Það má segja að það hafi ver- ið tilviliun ein sem réði því að Þjóðvarnarflokkurinn fékk þimg- sæti. Framsóknarflokkurinn í Reykjavík fékk 2624 atkvæði, en Þjóðvarnarflokkurinn 2730. Mun urinn var þannig aðeins 106 at- kvæði. Ef tiiviljunin hefði verið Rannveigu hagstæð, hefðu hátt á fimmta þúsund atkvæði Þjóð- varnarfíokksins fallið dauð og ómerk. Öllu gleggra dæmi um hið glsepsamlega giæfraspil þeirra :sem að klofningnum stóðu er ekki hægt að fá. Rússagrýlan hefur frá upphafi verið eina vopn afturhaldsflokk- ianna gegn sósíalistum. Þeir hafa v-art borið við að gagnrýna störf og stefnu Sósíalistaflokksins, heldur flúið til útlanda. Rússa- grýlan hefur allt fram til þess^ ekki megnað að veikja Sósíal- istaflokkinn, þótt hún hafi stífl- að fyrir aðstrejTnið til hans að verulegu leyti, en í þessum kosn- ingum tókst loks að nota Rússa- grýluna með árangri, Allt til þessa hafa fylgiendurnir skilið að Rússagrýlan var aðeins á- róðursvopn auðmannastéttar- innar, en nú reis upp flokkur manna sem fdutti ah'ar kenningar sósía'lista — og Rússagrýluna að auki! Þetta bragð hreif, óheiðar- legasti áróður íslenzkra stjórn- mála náð; loks árangri. eru mjög alvarlegt áfall fyrir Sjálfstæðisflokkinn, sem frá upphafi hefur haft forustu í bæjarstjóminni. Flokkurinn fé'kk nú 12.'245 atkvæði. en laðrir flokkar samtals 18.964. Þannig hefur 6.719 kjósenda meirihluti ■lýst yfir andstöðu við íhaldið, þótt af mjög mismunandi ástæð- um og skilningi sé. íhaldið fær nú 39,2% atkvæða í bænum en hafði í síðustu alþingiskosning- um 45,5% og í síðustu bæjar- stjórnarkosningum yfir 50%. Sama þróun yerður í öðrum bæjum þar sem einn borgara- flokkur hefur haft meirihluta- vald, ísafirði og Hafnarfirði. Á þessum stöðum snerist kosningin að heita má einvörðungu um innanbæjarmálefni, og varð að harðvítugum átökum. I Hafnar- firði var t- d. kosið með eða rnóti Emil, og önnur atriði kom- ust vart að! Eru úrslitin á báð- um þessum stöðum mjög a'lvar- legt áfai'l fyrir AJþýðuflokkinn og raunalegt dæmi um feril þess flokks; þar sem hann hefur und- irtökin elur hann upp kjósendur handa íhaldinu! Það var t. d. mjög athyglisvert á báðum þess- um stöðum að flokkurinn fékk unga fóilkið mjög eindregið á móti sér. Á ísafirði gerðust einnig þeir atburðir sem sýna glöggt ástand- ið innan Alþýðuflokksins. Samið hafði verið við Framsóknarflckk- inn um stuðning við Hanníbál, og þótt Framsóknarkjósendurnir láti ekki senda sig hvert sem leiðtogunum sýnist. er talið 1 k- legt að meirihlutj þeir.ra hafi kosið iHann'ibal. Enigu að síður tapar hann 50 atkvæðum frá siðasta sumri. Skýringin er aug- djóslega sú að hægriklíkan hefur kosið íhaldið, og er ekki að efa að fyr.irskipun um það heíur komið frá valdamönnum í Reykjavík. Annars er það auglióst að yfir’ýsingar Hanníbals um vænt- anlega samstjórn Framsóknar og ALþýðuflokks hefur orkað sem grýla á mikinn fjölda fó'lks, enda greip íhaldið þá kenningu á lofti og átiti henn; mikið að þakka gen.gi sitt í ýmsum kjördæmum. Vonin um samvinnu þessa var komín frá sambandsdeildinni í Alþýðuflokknum, en Benedikt Gröndal var einn helztj forsvars- maður hennar. Einn liðurinn í samstarfinu var að reyna að tryggía Framsókn báða þing- mennina í Suðurmúlasýslu, enda hafa yfir hundrað Alþýðuflokks- menn kosið Eystein þar miðað við úrslitin síðast. En það að Lúðvík Jósepsson varð ekki kjör- dæmakosinn í sýslunni varð til þess að Alþýðuflokkurinn fékk einum þingmanni færra. Sá upp- bótaþingmaður hét Benedikt Gröndal! Þetta heitir að falla á sjálfs sín bragði. Framsóknarflokkurinn beið nú hliðstæðan kosningaósigur og Alþýðuflokkurinn 1949. Ástæðan er laugljósiega sú að Framsókn hefur haft fomstu ríkisstjómar- innar, og andstaða admennings við ríkisstjórnina birtist á þenn- an hátt. Enda er vart ’hægt að hugsa sér algerari andstæður en milli stjórnarstefnunnar og iþeirr,a kenninga sem Tíminn flíkaði fyrir kosningarnar 1949. Sjaldan hefur þingm.aður fallið á máklegri hátt en Rannveig Þor- 'siteinsdóttir, þótt Tíminn komist þannig að orði í harmagráti sín- um í gær: „Rannveig Þorsteins- dóttir hefur rang'lega verið svipt þvr mikla persónufylgi er hún n*aut við seinustu kosningar11!! En það er athyglisvert að Framsókn edur kjósendur handa íhaldinu á sama 'hátt og Alþýðu- flokkurinn. íhaldið vinnur Vest- urskaftafellssýslu, og er að því komið að vinna Vesturhúnavatns sýsLu, Vesturísafjarðarsýsdu og 'Mýrasýslu. Enda er þessi þróun 'Oifur skiljanleg. Þegar Alþýðu- flokksforustan og Framsókn koma inn íhaldsafstöðu hjá kjós- endum sínum, fara þeir senn að hugsa: Er þá ekki hreinlegr.a að kjósa ihaldið sjálft? I lok þessa árs mun þessi vatnsaflstöð við Kura-fljótið í Kákasus standa fullgerð sem einn mátt. arstólpinn í nýju fimm ára áætliminni.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.